Leita í fréttum mbl.is

Pólitísk aftaka?

Skoðanir ritstjórnar Morgunblaðsins koma fram í ritstjórnargreinum blaðsins og í Staksteinum. Í Staksteinum í gær segir:

"Nú þarf stjórnmálamaðurinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson að gera slíkt hið sama og axla pólitíska ábyrgð sína og hverfa af vettvangi stjórnmálanna."

Síðar segir í Staksteinum að það hafi komið fram í fréttaskýringu Péturs Blöndal alþingismanns  í Morgunblaðinu að það sé vilji borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þingmanna flokksins og flokksforustu að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hverfi af vettvangi stjórnmálanna.

Aldrei fyrr hefur verið veist að pólitískum forustumanni Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur með þeim hætti sem gert er í Morgunblaðinu. Raunar minnist ég þess ekki að Morgunblaðið hafi fyrr farið þannig fram gagnvart forustumanni Sjálfstæðisflokksins þegar eining er að öðru leyti í flokknum. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur raunar lýst yfir stuðningi við Hönnu Birnu og hefur þar með komið sínum skilaboðum á framfæri gagnvart Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni.

En hvað er vandamálið . Af hverju þarf að veitast að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni með þessum hætti í fréttaskýringum og ritstjórnarpistlum Morgunblaðsins?  

Sé það vilji borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að Vilhjálmur Þ. eigi að víkja þá afgreiða þeir málið. Málið er ekki flóknara en það.  Er það ekki sérkennilegt að það skuli vera gelt að forustumanni Sjálfstæðisflokksins með þessum hætti  utan úr bæ? Þess ætti ekki að vera þörf nema ef svo skyldi vera að borgarstjórnarfólk Sjálfstæðisflokksins sé þeim annmörkum háð að það geti ekki gengið frá nauðsynlegum afgreiðslum og tekið ákvarðanir.

Þarf Morgunblaðið og aðrir aðilar í flokkseigendafélagi Sjálfstæðisflokksins að ákveða málið fyrir borgarstjórnarflokkinn? Af hverju gengur borgarstjórnarflokkurinn ekki frá sínum málum sjálfur? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Alveg sammála, afar sérkennilegt og stórfurðulegt í raun.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.6.2008 kl. 00:45

2 identicon

Blessaður Jón. Það furðulegasta við þessar bollaleggingar Moggadeildar Flokksins og þingmanna og borgarfulltrúa Hans er að Villi var kjörinn í fyrsta sæti á framboðslista Flokksins til borgarstjórnar. Hann var sem sé kosinn af fólki en ekki skipaður af fyrrnefndum aðilum, Moggadeild Flokksins og hinum.

Þessi staðreynd þýðir í augum venjulegs lýðræðissinna að Vilhjálmur situr í umboði kjósenda og einungis kjósendur geta svift hann umboðinu - en hvorki Flokksgæðingar né Flokksapparöt. Ef lýðræðislega kjörinn fulltrúi gerist sekur um að brjóta landslög er það dómsmálayfirvalda að fjarlægja viðkomandi úr embætti. Enginn hefur haldið því fram að Vilhjálmur sé afbrotamaður svo að það er erfitt að skilja þessa blóðþyrstu umræðu Flokksins um að losna við hann - eftir áratuga dygga þjónustu.

Skondið fyrirbæri þessi Flokkur sem hefur einkum áhuga á að vopna lögreglu og hvítliðasveitir og að ráða lögum og lofum í landinu líkt og Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna sálugu og Kommúnistaflokkurinn í Kína. Að vísu sálaðist Maó formaður þó áður en Kínverjar gerðu hann að seðlabankastjóra.

Þráinn Bertelsson (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 00:50

3 identicon

Það stiklar annar á steinum þarna í Hádegismóum. Þó naflastrengur Moggans og Flokksins hafi verið skorinn er hinn ósýnilegi þarna enn. Hér er stiklað með vitund og vilja Valhallar. Það vitum við Jón. En Þráinn kom með kjarna málsins. Flokkssvipan er að smella á manni sem sækir umboð sitt annað. Forysta Flokksins hafa oftlega komið að forystumálunum í borginni. Vandræðin ef brottför Davíðs sýna það. En niðurlægingin er algjör. Flokkurinn er kominn niður fyrir náttúrufylgi, sem er 30%. Það er ófyrirgefanlegt. Þá fjúka hausar eins og hjá Mao og Stalin forðum.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 09:49

4 Smámynd: FrizziFretnagli

Má ekki hver sem er hafa skoðanir á þessu máli, óháð því hvort þeir vinna á mogganum eða 'úti í bæ' eins og þið viljið kalla það? (Ég vinn líka úti í bæ).  Málið er með þennan Vilhjálm að hann er búinn að klúðra þessu tímabili bæði fyrir sjálfum sér og öðru sjálfstæðifólki sem kaus hann.  Það þarf oft að pressa þessa gömlu menn, sem vilja sitja sem fastast og skynja ekki best fyrir þá er að taka pokann sinn.  Villi þarf að hverfa af vettvangi, hann var ekki maður til að takast á við þessu mál sem foringi, loksins þegar hann fékk tækifæri.  Hans tími var liðinn.  Svo einfalt er það.

FrizziFretnagli, 6.6.2008 kl. 10:11

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Kominn nýr þar kafli,
kynlegur er sá nafli,
hjá Óla Stef,
allt það þref,
stórfurðulegur stafli.

Þorsteinn Briem, 6.6.2008 kl. 10:15

6 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Þegi Mogginn er fundið að því í bloggheimum. Tali hann er einnig fundið að því.  Það er vandlifað í henni veröld.

Ágúst Ásgeirsson, 6.6.2008 kl. 13:19

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég held að Óli Stef verði bara fínn ritstjóri á Mogganum og skoðanir hans á mönnum og málefnum hverju sinni eru alveg örugglega ekki pantaðar úti í bæ. Við Ágúst Ásgeirsson ættum nú að hafa einhverja þekkingu á því atriði, þar sem við vorum báðir á Mogganum þegar Óli Stef var að byrja þar sem blaðamaður.

Og fáir myndu ráðleggja Villa að verða aftur borgarstjóri í Reykjavík. En það er kannski laust embætti niðri í Frans hjá honum Gústa og þar eru bjórkælar úti um allar koppagrundir.

Þorsteinn Briem, 6.6.2008 kl. 14:03

8 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Það tíðkast allsstaðar í heiminum að ritstjórnir hafi skoðun á hlutunum, sem birtast annaðhvort í pistlum - líkt hjá Staksteinum - eða í ritstjórnargreinum blaðanna.

Ég sá ekki að stjórnarandstaðan hefði neitt á móti því þegar Fréttablaðinu var haldið úti sem fjölmiðli, sem hafði það aðallega að leiðarljósi að beina spjótum sínum að síðustu ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks. Nú hefur Fréttablaðið vent kvæði sínu í kross og minnkað ósanngjarna gagnrýni á ríkisstjórnina, enda draumastjórn blaðsins við völd - stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Ritstjórn Fréttablaðsins vonast til að þessi stjórn skoði ESB aðild, óheftan innflutning á landbúnaðarafurðir o.fl. og skrifar sínar forystugreinar m.t.t. þessar hagsmunamála. Hún er efalaust studd af stórum hópi atvinnurekenda og auðjöfra. Er það slæmt? Nei, svona er lífið og einstaklingar, fyrirtæki, stjórnmálaflokkar og hagsmunafélög mega setja peninga í það sem þau vilja.

Sem yfirlýstur sjálfstæðismaður verð ég nú að segja að MBL dansar nú ekki alltaf eftir flokkslínu Sjálfstæðisflokksins - þvílíkt bull og vitleysa! Sjálfur geri ég það ekki heldur - stundum er ég algjörlega sammála flokknum og stundum ekki og það er ekki alltaf auðvelt. Ég held að flestir, sem taka þátt í stjórnmálum, sem áhugamenn eða stjórnmálamenn, lenda í því að vera ósammála í einstaka máli. Þá snýrðu ekki baki við þínum flokki, heldur reynir þú að koma þinni skoðun á framfæri innan flokksins. Þannig var ég sammála MBL og ekki flokknum í kvótamálinu, en ósammála MBL varðandi umhverfismálin og sammála flokknum. Ég vil ræða ESB aðild á meðan MBL og flokkurinn - til þessa allavega - hefur verið alfarið á móti að ræða aðild að ESB. Það er ekkert að því að MBL og Sjálfstæðisflokkurinn séu ósammála og sammála á víxl, heldur mjög eðlilegt.

Í raun er mikið mikið heiðarlegra, þegar fólk veit á hvaða skoðun ritstjórn blaðs, stjórnmálamanna og þessvegna einstaklinga er; það er þá hægt að lesa fréttir ritaðar af því fólki, sem í hlut á með rétt lituð gleraugu á nefinu. Það hefur nefnilega mikil áhrif á blaðagreinar, hver ritar þær og ritstjórnir ritstýra nú einu sinni blöðum sínum, þ.e.a.s. velja í þau efni, velja blaðamenn og skrifa forystugreinar.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 6.6.2008 kl. 18:34

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sammála Gústa. Það er vandlifað svo öllum líki

Kolbrún Stefánsdóttir, 6.6.2008 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1125
  • Sl. sólarhring: 1215
  • Sl. viku: 6770
  • Frá upphafi: 2277408

Annað

  • Innlit í dag: 1055
  • Innlit sl. viku: 6293
  • Gestir í dag: 990
  • IP-tölur í dag: 960

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband