Leita í fréttum mbl.is

Má Bubbi Morthens ekki hafa skoðun?

Bubbi Morthens hefur lýst þeirri skoðun sinni að það hefði verið eðlilegra að Björk Guðmundsdóttir og Sigurrós hefðu frekar haldið mótmælatónleika til að vekja athygli á fátækt í landinu en vegna náttúruverndar. Að sjálfsögðu er Bubba frjálst að hafa þá skoðun  sem og ýmsar aðrar sem hann hefur. Hann hefur t.d.  lýst sig andvígan kynþátthatri og barist gegn kvótakerfinu ásamt mörgu fleiru. Þeir sem eru sammála Bubba og þeir sem eru andvígir eiga að sjálfsögðu að ræða málið málefnalega en vega ekki að persónu hans það er lágkúrulegt. 

Allir sem kveða sér hljóðs um þjóðmál eiga rétt á því að þeir sem fjalla um skoðanir þeirra geri það á málefnalegan hátt. Þeir sem vega að persónu viðkomandi eins og fylgdarlið Bjarkar gerir gagnvart Bubba eru komnir út fyrir mörk velsæmis.  ´

Lýsir það e.t.v. málefnalegu rökþroti að bregðast við með sama hætti og fylgdarlið Bjarkar gerir gagnvart Bubba? 


mbl.is Bubbi liggur undir ámælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sæll Jón og þakka þér fyrir síðast!

Eins og svo sammála þér.

Já, það er ótrúlegt að fylgdarlið Bjarkar, og reyndar flestir þeir sem andsnúnir eru skynsamlegri nýtingu landkosta á Íslandi, nota ekki rök. Þegar bent er á tekjur af rekstri álvera og orkuvera og störf og afleidd störf af rekstri álvera, þá er eins og þetta fólk hlusti ekki.

Jafnvel núna - þegar allt er á heljarþröm - virðist þetta fólk ekki sjá að að við verðum að taka til hendinni og virkja meira og búa til fleiri störf.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 21.7.2008 kl. 16:07

2 Smámynd: Heidi Strand

Skoðun eða afskiptasemi.

Heidi Strand, 21.7.2008 kl. 16:28

3 Smámynd: Óskar Aðalgeir Óskarsson

Ég hefði gaman af sjá þetta blessaða fólk lifa á loftinu einu saman,eins það ætlast t.d. til af fólkinu á landsbyggðinni.

Óskar Aðalgeir Óskarsson, 21.7.2008 kl. 16:30

4 identicon

Auðvitað má bubbi hafa skoðun á hlutunum en ef hann vildi ekki að fólk tjáði sig um þær hvað eru þær að gera í fjölmiðlum.

 Ég er enginn sérfræðingu í viðskiptum en ég las i mogganum að nánast einu tekjunar sem ísland hefur af þessum rekstri eru laun til starfsmanna.  Þessi fyritæki eru öll erlend og peninganir fara til þeirra.

 Hvað störfum kemur þa er atvinnuleysi á íslandi um 1-1,3%.  Það er ekkert atvinnuleysi og ég held að það sé ekki svo ólíklegt að þessi störf sem ríkið vill búa til séu eyðileggjandi fyrir frumkvæði á landsbyggðinni.  Landsbyggðafólk eru ekki bjargarlausir asnar sem verður að hafa fyrir annars sveltur það í hel.

skari (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 16:59

5 identicon

Eisn og ég sagði er ég enginn sérfræðingur, en mér er byrjað að finnast að fólk sé byrjað að lýta á álver sem einhverja þróunaraðstoð við landsbyggðina eins og þetta sé einhverjir sveltandi fólk í afríku.

skari (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 17:10

6 identicon

Bubbi má hafa hverja þá skoðun sem honum sýnist og svo framarlega sem þær skoðanir ekki stangast á við lög gegn meinyrðum, guðlasti eða kynþáttahatri má hann halda þeim fram opinberlega. Ég veit ekki til þess að nokkur hafi viljað meina Bubba að tjá sig. Maðurinn er einn af þeim sem eiga hvað auðveldast með að koma skoðunum sínum til landsmanna.

Það þýðir samt ekki að aðrir hafi ekki rétt til að gagnrýna þær skoðanir sem hann setur fram. Ég veit ekki til þess að neinn af þeim sem hafa tjáð sig gegn Bubba hafi brotið gegn ofantaldri löggjöf og er því einnig frjálst að tjá sig um skoðanir sýnar á skoðunum Bubba.

Svona er umræða í frjáldu samfélagi og þingmaður ætti að vita það og fagna aktívri pólitískri umræðu hvert skuli stefna með atvinnuveg landsins. Sjálfur er ég sammála Bubba um að það séu til alvarlegri vandmál að berjast fyrir hér á landi en röskun náttúru, en ég er guðslifandi feginn fyrir hvern þann í þessu samfélagi sem rýs upp og reynir að breyta samfélaginu. Aðeins gegnum virka þegna með virkar skoðanir finnum við góða lendingu í málefnum samfélagsins. 

Héðinn Björnsson (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 18:03

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hin stóru mistök Bubba Morthens felast sennilega í því að vera jarðtengdur. Hann er nefnilega ekki gróðurhúsaloftegund. Svo er hann einnig góður.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 21.7.2008 kl. 20:23

8 Smámynd: Halla Rut

Algjörlega sammála þér.

Halla Rut , 21.7.2008 kl. 21:10

9 identicon

Er Bubbi ekki bara með afskiptasemi og yfirlæti?  Af hverju er hann að skipta sér af hvað fólki finnst vera sitt hjartans mál? 

Það finnst mér mikill dónaskapur.  Af hverju skiptir hann sér ekki af fólkinu sem styður Kattavinafélag Íslands?.  Af hverju er fólk að ausa peningum og vinnu í ketti í staðinn fyrir t.d. Langveik börn.  Manni myndi ætla að langveik börn væru mikilvægari. 

Svona virkar heimurinn ekki Bubbi.

Og af hverju spilar Bubbi á hótel Litla Hrauni ár eftir ár ?  Af hverju ekki í brasílísku fangelsi sem eru miklu verri heldur en okkar fangelsi eða fyrir stríðshrjáð börn í Írak??   Þau hafa það miklu verr heldur en Fangar á Hrauninu.

Mér finnst að Bubbi ætti að biðjast afsökunar.  Hann virðist vera orðin fullur af hroka og yfirlæti .  

jonas (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 22:36

10 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Það er nú aldeilis sjálfsagt að fá fram skoðanaskipti um áherslur listamanna á hitt eða þetta og Bubba að sjálfsögðu svo innilega frjálst að viðra skoðanir sínar á Björk að ég best fæ séð.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.7.2008 kl. 23:49

11 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þessi ritskoðunarárátta er grátbrosleg.

Sigurjón Þórðarson, 22.7.2008 kl. 01:53

12 identicon

Verð að svara þessu með Bubba, um að hann ætti að snúa sér að því spila fyrir fanga á Brazalíu ?? Eigum við ekki að halda okkur hér á landi og berjast fyrir okkar fólki eða sýna því góðvilja?  Við myndum hafa eitthvað að segja ef usa færi til Brazalíu til að skipta sér af fangelsum þar í landi.  Mér finnst Bubbi hegða sér samkvæmt sjálfum sér. Hann hefur alla sína tíð kveikt í fólki um ýmis málefni sem hafa svo leitt til góðs. Bubbi er ekki veiran hérna. Þögnin er veiran og ef við höldum áfram að hunsa þessi málefni hvort sem er álverið eða fátækt á Íslandi, þá versnar ástandið meira. Báðir aðilar hafa rétt fyrir sér. Vantar bara lausnina og jafnvægið þar á milli.

Ég hef nokkrar : T.d, hvað með að nota bréfpoka í staðinn fyrir plastpoka? Hvernig væri að fara fram á að við fáum baunir og annann dósamat í öðrum pakkningum. Hvernig væri að við færum fram á að boeing ( flugvéla framleiðundir ) noti annað efni í flugvélar ó mæ. Hvernig væri að við hættum að fara fram á merkjavörur...... ó mæ ó mæ

Ef við færum fram á þetta, myndum við eyða 60 - 70 % af atvinnu í þessari veröld okkar. En.... við myndum bjarga náttúrinni, loftinu sem við öndum að okkur, offitu ( færum að ganga meira ) og margt margt fleira. Væri ekki betra að finna jafnvægi og finna lausn á málum. samberandi bílamálin. Þessi mál eiga sér stað og ættu að vinna saman að lausn.

Að stöðva álverið er ekki lausn. Ég geri ráð fyrir að Björk og aðrir listamenn myndu ekki ferðast mikið til útlanda ef engar flugvélar gerðu þeim kleift að gera svo. Mér er spurn : hvernig komust þessir útlensku mótmælendur hingað ??

Að búa til atvinnu er lausn á fátækt og atvinnuleysi. Verðum bara að finna jafnvægi og brúa bilið á milli þessara málefna.

Hættum svo að ráðast að persónunni, höldum okkur við málefnin 

Takk fyrir mig.

Fanney Gunnlaugsdóttir (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 10:22

13 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Allir eiga rétt á því að segja sína skoðun

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 22.7.2008 kl. 12:57

14 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég tek undir orð jonasar hér á undan. Hann sagði það sem ég vildi segja. Það er hreinn hroki að ætla að skipa fyrir um baráttumál annarra.

Svipað og að segja að það sé tóm vitleysa hjá Jóni Magnússyni að berjast gegn kvótakerfinu. Hann eigi bara að hætta því og snúa sér að því að berjast gegn eyðingu regnskóganna.

Theódór Norðkvist, 22.7.2008 kl. 13:11

15 identicon

Hver er þessi Bubbi Morthens.?

Númi (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 13:47

16 identicon

Mér þykir nú ekkert lágkúrulegt við það að fólk svari fyrir sig. Mér þykir þessi pistill nú bera vott um einhverskonar skurðgoðadýrkun.

Eftir hverju ert þú að sækjast með þessari umræðu Jón Magnússon?

sandkassi (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 15:52

17 Smámynd: Jón Magnússon

Mér finnst þetta furðuleg ummæli Gunnar. Að sjálfsögðu er það eðlilegt að fólk svari fyrir sig enda er talað um það í bloggfærslu minni. Það er síðan alrangt og furðuleg hugsun að færslan beri vott um skurðgoðadýrkun.  Ég er einfaldlega að benda á óvandaða lágkúrulega umræðu sem á að fordæma hvar sem hún kemur fram og hver svo sem beitir henni. Það er sitt hvað að deila á skoðanir einstaklings eða að draga persónuleg einkamál hans inn í umræðuna.

Jón Magnússon, 22.7.2008 kl. 18:58

18 Smámynd: Jón Magnússon

Theódór að sjálfsögðu verður hver og einn að berjast fyrir þeim málum sem hann telur þess virði. Fólk er frjálst að því að berjast fyrir eða gegn eftir atvikum hvort sem Bubba,  þér eða mér finnst það gáfulegt.  Ég tel það eitt brýnasta í okkar þjóðfélagi að berjast gegn núverandi gjafakvótakerfi og mun gera það. Ég get síðan stutt þig í að berjast gegn eyðingu regnskóga en þar kreppir skórinn ekki eins að fyrir okkur og gjafakvótakerfið.

Jón Magnússon, 22.7.2008 kl. 19:01

19 identicon

en þetta er nú allt saman bisness og í þessu tilfelli er góð promotering á ferðinni. Ekki fer maðurinn í viðtöl til þess að hafa áhrif á afkomu þjóðarinnar. Persónulega er ég sammála því að ef að fólk vill byggja sér álver þá er það fínt mál.

Það er skurðgoðadýrkun að ætla sér að færa umræðu um alvarleg mál yfir til poptónlistarmanna. Ég fæ ekki betur séð en að það slái ryki í augu fólks og dragi athyglina frá  þessum málum.

Fátækt, álver, og umhverfisvernd eru alla daga í umræðunni hér á landi og leiðast mér afskaplega fiflaleg tilþrif poppara á þessum vettvangi sem eru sérhönnuð þeim sjálfum til frammdráttar.

sandkassi (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 19:37

20 identicon

Sjáðu nú bara hann Mumma í Mótorsmiðjunni. Þetta er strákur sem er búinn að þurfa að berjast með kjafti og klóm fyrir hverri krónu til þess að hjálpa unglingum upp úr eiturlyfjavandamálinu.

Þar fer piltur sem vinnur gott verk, og ætti að aðstoða eftir öllum mögulegum og hugsanlegum leiðum. Er þetta ekki mál sem mætti taka upp í þinginu Jón?

sandkassi (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 20:59

21 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála þér Gunnar með Mumma í Mótorsmiðjunni. Hann hefur gert margt mjög gott. Þú fyrirgefur að ég misskildi upphaflega bloggið þitt. Ég er tilbúinn til að skoða það. Sendu mér hugmynd um málið á netfangið mitt á Alþingi jonm@althingi.is

Jón Magnússon, 22.7.2008 kl. 23:36

22 identicon

ekkert mál, ég er úr stáli :). ok ég ætla að bíða eftir fregnum af heilsunni hjá honum og setja mig í samband við hann í framhaldi. Hef samband bráðlega, bestu kveðjur

Ég veit að það veitir ekkert af haukum í horni á þeim bæ.

sandkassi (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 17
  • Sl. sólarhring: 1216
  • Sl. viku: 5761
  • Frá upphafi: 2277512

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 5323
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband