Leita í fréttum mbl.is

Þvílíkt rugl.

Ég sá það þegar ég komst loks í tölvu hér út í Brussel að stjórn Kjördæmafélags Reykjavíkur Norður hefði skorað á Sigurjón Þórðarson að gefa kost á sér í formannskjöri á næsta landsfundi flokksins. Í framhaldi af því þá ryðjast fram ýmsir spekingar sem halda því fram að þetta sé undan mínum rifjum runnið og þarna séu mínir stuðningsmenn og/eða Nýtt afl að standa að aðför að formanni flokksins

Þetta er endemis rugl.

Ég hef talað við formann kjördæmafélagsins og það liggur fyrir að þeir tveir stjórnarmenn sem greiddu atkvæði gegn tillögunni um að skorað yrði á Sigurjón Þórðarson til að gefa kost á sér voru báðir úr Nýju afli en þeir sem greiddu tillögunni atkvæði hafa verið í Frjálslynda flokknum mun lengur og alla vega einn frá upphafi. Þeir sem greiddu atkvæði á móti tillögunni eru menn sem eru í nánum tengslum og vinfengi við mig. Það er nú staðreyndin í málinu.

Því fer fjarri að ég hafi nokkuð með þetta að gera og ítreka að ég hef lýst yfir stuðningi við sitjandi formann.  Þeir sem halda því fram að ég hafi með þessa ályktun að gera eða meinta aðför að formanni flokksins eru að gera það gegn betri vitund eða þá að þeir eru einfaldlega illa upplýstir og ættu þá að kynna sér málin áður en þeir fara að bullukollast á bloggsíðum eða öðrum fjölmiðlum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Einmitt. Það er nauðsynlegt að þetta komi fram. Það er algjörlega óþolandi að sitja undir eilífum ásökunum frá fólki sem þekkir hvorki haus né sporð á málinu, þekkir kannski bara einn ugga eða svo.

Þóra Guðmundsdóttir, 24.9.2008 kl. 14:10

2 Smámynd: Rannveig H

Þetta er endemis rugl,og ég harma þetta. Þetta er ekki gott nesti inn í sáttaferli. Mér finnst það fólk sem stóð að þessari tillögu og samþykkti ætti að koma fram á sjónarsviðið svo það sé ekki endalaust verið að hengja bakara fyrir smið. Ég styð minn formann.

Rannveig H, 24.9.2008 kl. 18:26

3 identicon

Ég bý í Reykjavíkurkjördæmi Norður

Er það rétt skilið að Frjálslyndi flokkurinn sé deildaskiptur? Það er Nýtt afl og Frjálslyndir lengra komnir? Hlutföllin 2:3. Hvaða tilgangi þjónar þessi tilhögun gagnvart kjósendum.

 

Þorsteinn H. Gunnarsson (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 20:14

4 Smámynd: ragnar bergsson

Ég er ekki á móti Guðjóni en hefur fólk ekki rétt til að bjóða sig fram eru við ekki í frjálsu þjóðfélagi.

ragnar bergsson, 24.9.2008 kl. 21:29

5 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Ef stjórn kjördæmafélags FF í Reykjavík norður ályktar eitthvað um eitthvað á lýðræðislegan hátt þá er það bara hið besta mál. Hvort við hin erum sammála eða ósammála er allt annað mál. Að ályktun eins kjördæmafélags geti komið öllu um koll segir meir um hina en raunverulegt afl eins lítils kjördæmafélags.

Ég gæti best trúað því að Sigurjóni lítist ekkert á að stjórna þessum blessuðum flokki og eftir sem lætin aukast verður hann örugglega fráhverfari þeirri hugmynd.

Gunnar Skúli Ármannsson, 24.9.2008 kl. 22:04

6 identicon

Jón

Vertu bara í Brussel, það er gott að vita af þér þar.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 22:49

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það hafa margir flokksmenn haft samband við mig undanfarna daga og látið í ljós vilja um að það verði breytingar á Frjálslynda flokknum en jafnframt er vilji til þess að þær verði gerðar með jákvæðum formerkjum 

Það er greinilega verið að rugla fólk í ríminu og endurvekja einhverja Nýja Afls grýlu sem vakin var upp hér um árið og spyrða mig saman við þann góða hóp sem er langt frá því að vera einsleitur söfnuður eins og gefið er í skyn.

Af þessu tilefni vil ég minna á að ég hef verið lengur í Frjálslynda flokknum en okkar ágæti formaður Guðjón Arnar Kristjánsson, þar sem ég er einn af stofnfélögum Frjálslynda flokksins.

Annars hafa samtölin verið með ýmsu móti s.s. vildi góður félagi frá Húsvík vara mig við að vera kominn á kippu Jóns Magnússonar þó svo að hann vildi breytingar og kona vestan af Ísafirði lýsti yfir vonbrigðum með að ég væri ekki nægjanlega samstíga Jóni þar sem að flokksmenn þyrftu að vera samstíga í að skipta um þingflokksformann.

Við sem störfum í flokknum verðum að hafa í huga hvort sem við erum sjálfboðaliðar eða þingmenn að við beitum okkur fyrir sameiginlegum baráttumálum, þó  svo að það sé tímabundinn meiningamunur um hvernig  framvarðasveitin sé skipuð. 

Ég er bjartsýnn á að flokksmönnum takist vel til með að leysa úr málum og að skynsamar breytingar verði gerðar s.s. að þingflokkurinn velji sér nýjan formann og það verði gert í víðtækri sátt.

Sigurjón Þórðarson, 24.9.2008 kl. 23:13

8 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Það var nú aldeilis nauðsynlegt eða hitt þó heldur að vera að skora á einhvern í framboð til formanns nú um stundir.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.9.2008 kl. 00:11

9 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Er farið að róast á miðunum, hverju sætir?

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 25.9.2008 kl. 00:13

10 identicon

Mín skoðun...

Sigurjón Þórðarson er nú eini heiðarlegi tapinn í þessari mýgleku kvótalausu skútu ykkar í Frjálslynda flokknum. Hann er harðduglegur og samkvæmur sjálfum sér í öllum málum. Það er mín skoðun.

Ég held þú sért heiðarlegur maður Jón minn svona alla jafna. Oft ágætlega rökfastur og málefnalegur þegar þú opnast upp og sérð ljósið. Hinsvegar held ég að þú sért enn í Nýju Afli og siglir þannig undir fölsku flaggi á þessari dollu undir stjórn Guðjóns. Þú ætlaðir á þing og sást að Nýtt Afl stefndi á sker, þá notaðir þú tækifærið eins og Kristinn H. og hoppaðir um borð í kvótalausa skipshræ Frjálslynda flokksins. Það er mín skoðun.

Hvað varðar Kristinn H. Þá er hann auðvitað sorgarsaga flestra flokka á landinu að verða. Í hvaða flokk fer hann næst? Skil ekki af hverju maðurinn fékk að ganga í flokkinn. Slæmt var það nú fyrir ástandið. Að hann skuli hafa tekið sæti Sigurjóns Þórðarsonar á þingi er sorglegt. Dugnaðardrengurinn Sigurjón vék fyrir tækifærissinnaðasta stjórnmálamanni norðan Alpa. Þver og leiðinlegur pólitíkus í alla stað. Það er mín skoðun.

Hvað varðar Guðjón Arnar. Þá held ég að hann sé löngu búinn með kvótann og sé því að berjast gegn kvótakerfinu. Sennilega fengið nóg af eigin brottkasti á sínum tíma... án þess ég hafi hugmynd um hvernig sjómennsku hann stundaði. Hann á að snúa sér að öðru en pólitík. Ágætis kall annars og ljúfmenni. Það er mín skoðun.

Frelsisson (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 06:31

11 Smámynd: Jón Magnússon

Ragnar að sjálfsögðu hefur fólk rétt á að bjóða sig fram hvort heldur til embættis formanns eða annarra embætta í lýðræðislegum flokki. Ég hef ekkert við það að athuga. Athugasemd mín lítur fyrst og fremst að andsvari við fullyrðingum sem koma fram enn og aftur um að Jón Magnússon og Nýtt Afl ætli og hafi og stefni að því að yfirtaka Frjálslynda flokkinn. Nýtt Afl var lagt niður. Margir sem voru í Nýju Afli gengu í Frjálslynda flokkinn. Mér er ekki kunnugt um að nokkur þeirra sem þar voru hvorki ég né aðrir hafi sóst eftir æðstu embættum sem kosið er til á flokksþingi. 

Jón Magnússon, 25.9.2008 kl. 13:53

12 Smámynd: Jón Magnússon

Ég veit ekki hvaða mið þú ert að tala um Guðrún Jóna nema þú sért að tala um þau sem þú hefur verið duglegust við að sækja.

Jón Magnússon, 25.9.2008 kl. 13:57

13 Smámynd: Jón Magnússon

Frelsisson ég get tekið undir ummæli þín varðandi Sigurjón.

Vona að þú hafir rétt fyrir þér hvað mig varðar nema í upphafi umfjöllunarinnar að sleppa alla jafna.

Það er hins vegar ekki rétt  hjá þér að ég hafi séð einhvern kost fyrir mig varðandi framboðsmál með því að leita eftir sameiningu Nýs Afls og Frjálslynda flokksins. Því fór öðru nær. Við sem vorum þar komum hins vegar inn í Frjálslynda flokkinn og vildum standa að því að byggja upp flokksstarf og gera Frjálslynda flokkinn að raunverulegum stjórnmálaflokki.  Við vildum koma kvótamálinu áleiðis og töldum þetta vænlegasta kostinn á sínum tíma þá töldum við líka að flokkur sem væri orðinn þetta gamall og hefði átt þingmenn jafn lengi og raun bar vitni hefði eitthvað marktækt innra skipulag og uppbyggingu.

Jón Magnússon, 25.9.2008 kl. 14:19

14 Smámynd: Halla Rut

Ég segi sem Ragnar, er ekki öllum frjálst að bjóða sig fram í lýðræðislegur samfélagi. Sömuleiðis er öllum frjálst að skora á fólk til að bjóða sig fram til trúnaðarstarfa. Ég skil ekki alveg hversvegna margir verða svo reiðir yfir hugsanlegu framboði þessa unga og væna mans sem Sigurjón er að flestra áliti.

Svipað hefur gerst í flestum flokkum. Davíð bauð sig fram gegn Þorsteini, Ingibjörg fór gegn Össuri og svo fr. 

Menn skyldu aldrei taka stöðu sína, sem svo sjálfstæðan hlut, að ekki þurfi að vinna fyrir henni.

"may the best man win"

Halla Rut , 25.9.2008 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 63
  • Sl. sólarhring: 857
  • Sl. viku: 2449
  • Frá upphafi: 2294000

Annað

  • Innlit í dag: 62
  • Innlit sl. viku: 2229
  • Gestir í dag: 62
  • IP-tölur í dag: 62

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband