Leita í fréttum mbl.is

Peningarmarkaðssjóðir. Örugg sparnaðarleið?

Bankarnir auglýstu peningamarkaðssjóðina sem örugga sparnaðarleið. Þeir sem vildu ekki spila á hlutabréfamarkaðnum gátu lagt peninga í peningamarkaðssjóði og búið við það öryggi sem fólk almennt telur sig búa við þegar það leggur peningana sína á innlánsreikninga bankanna.

Forsætisráðherra og viðskiptaráðherra hafa lýst því yfir að allir sem eiga innlánasreikninga í þjóðnýttu bönkunum fái inneign sína að fullu. Hvaða rök eru þá fyrir því að láta annað gilda um peningamarkaðssjóðina.

Miðað við það með hvaða hætti peningarmarkaðssjóðirnir voru markaðssettir þá er ekkert sem réttlætir það að fara að með öðrum hætti hvað þá varðar en aðra innlánsreikninga.


mbl.is Fundað með hagsmunaaðilum vegna taps í peningamarkaðssjóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: haraldurhar

Jón þetta blogg þitt er einungis líðskrum, þú veist sjalfur að vextir af peningamarkaðsjóðum var hærra en á sparisjóðsreikningum, vegna þess að þeir voru að fjárfesta í markaðsbréfum.  Auðvitað er ekki gott að fólk hafi verið blekkt,  eg tapa töluverðu fé á peningamarkaðsjóði, en hafði þar notið mun hærri vaxta en fékkst fyrir sparireikning, tel að ég hefði átt að kynna mér málið hverning þeir voru samansettir sem ég gerði ekki, og því verði ég bara bíta í súra epli, eins og oft áður fyrir glópsku mína.

haraldurhar, 29.10.2008 kl. 22:22

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mikið er ég sammála þessu. Mér var t.d. ráðlagt af þjónustufulltrúa hjá  Glitni að taka pening af  bók með mánaðar uppsagnarfresti og setja á peningamarkaðsreikning sem væri með þeim skilmálum að  ég gæti tekið út af með dags fyrirvara en í reynd yrði það aldrei meina en tveir tímar. Þannig væri öruggt að maður gæti tekið út sama dag ef maður kæmi fyrir klukkan 14:00. Á föstudeginum áður en lokað var (það var lokað á mánudegi um hádegisbil) ætlaði ég aftur að taka út peningana en þá var mér tjá að ég fengi þá ekki fyrr en á mánudegi og ef ég bæði um færsluna þá fengi ég vexti yfir helgina.  Fjöldi fólks kom í útibúið að suðurlandsbraut í sama tilgangi og ég en öllum var sagt að nú væri þetta "ríkisbanki" 75% í eigu ríkisins ef ég man rétt og því þyrfti enginn að óttast um innistæður.  Ef ég hefði ekki trúað þessu væri ég betur staddur í dag.

Nú spyr eg þig ráða sem logmann og stjórnmálamann

Sigurður Þórðarson, 29.10.2008 kl. 22:32

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

haraldurhar, það er ekki rétt hjá þér að það hafi verið mun hærri vestir af þessum prningareikningi.   Binditíminn var styttri.

Sigurður Þórðarson, 29.10.2008 kl. 22:35

4 Smámynd: Jón Magnússon

Haraldur þú getur nefnt þetta hvaða nafni sem þú vilt. Miðað við yfirlýsingar forsætisráðherra og viðskiptaráðherra þá tel ég ekki hægt að skilja þessa reikninga útundan. Það er ekki flóknara en það. Hitt er annað mál hvort ráðherrarnir gengu of langt. Það er þeirra mál og Haraldur þú skalt eiga það við þá.  

Jón Magnússon, 29.10.2008 kl. 22:44

5 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Sigurður. Þetta sem þú bendir á er nefnilega mergurinn málsins.

Jón Magnússon, 29.10.2008 kl. 22:44

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ég er ansi hrædd um það sama hljóti að þurfa að gilda um þessa reikninga, miðað við þær fullyrðingar sem fólki var tjáð um.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.10.2008 kl. 00:52

7 identicon

Góð og réttmæt ábending hjá þér Jón. Hér tek ég orðrétt upp úr emali frá Landsbankanum um peningamarkaðsbréf." En þetta er lang vinsælasta svona sparireikningur bankans, af því hann ber góða vexti, enga áhættu og er alltaf laus" Ég kynnti mér málið vel peningamarkaðssjóðurinn var markaðssettur fyrir áhættufælna fjárfesta, og auðvita er enginn munur á því og öðrum sparnaðarleiðum. Í ávarpi forsætisráðherra sagði hann að sparifé landsmanna væri tryggt og undir það tók Bjórgvin G, Sigurðsson bankamálaráðherra.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 01:48

8 identicon

Sæll Jón. Ég veit að þú berð hag almennings fyrir brjósti, ég hef fylgst með framgöngu þinni áratugum saman og fynnst ummæli haraldarhar ósmekkleg, því þetta er nú það síðasta sem hægt er að ásaka þig um, lýðskrum. Hagur fólksins í landinu hefur verið þér ofarlega í huga alla tíð svo mikið veit ég. Og ég vona að þú leggir þessu fólki lið sem þarna er að reyna að endurheimta sparifé sitt. Þetta eru um ellefuþúsund einstaklingar og að baki þessum einstaklingum er fjölskylda svo ætla mætti að á milli tuttugu og þrjátíu þúsund manns verði fyrir barðinu á þessu óréttlæti. Kveðja Ómar Sigurðsson

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 07:46

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég tel mjög auðvelt að sanna fyrir dómstólum að viðskiptavinir bankanna voru blekktir eins og frásögn mín og tölvupóstur Ómars bera með sér.

Þjónustufulltrúarnir eru miður sín enda sögðu þeir það sem þeim var uppálagt að segja.

Það er heldur ekki gaman fyrir okkur Íslendinga að svona lagað lendi á ríkissjóði.

Sigurður Þórðarson, 30.10.2008 kl. 12:17

10 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Auðveld og allsendis lögleg leið til að hafa smávegis upp í dráttarvexti Dabba

Hér er um að ræða nauðaeinfalda og snögga fjárfestingu sem gefur vel af sér og er alveg utan við skattakerfið. Þú ferð bara í Ríkið og kaupir áfengi fyrir 1-2 milljónir eða bara þann aur sem þú átt til og síðan eftir mánaðamótin skilarðu áfenginu aftur í Ríkið og færð peninginn til baka auk 20-30% ágóða vegna stórfelldra hækkana sem munu skella á um mánaðamótin. Munið bara að passa upp á strimilinn og framvísa honum þegar áfenginu er skilað. Síðan væri auðvitað tilvalið að senda mér svona 5-10% af hagnaðinum eða bara hann allan ef vill. Í guðs friði.

Baldur Fjölnisson, 30.10.2008 kl. 12:40

11 identicon

Jón.

Ég byrjaði reglulegan sparnað með því að kaupa spariskírteini ríkissjóðs. Einn daginn voru þau lögð niður og sparnaðinum var beint til Landsbankans.

Þannig var þetta ábyggilega í mjög mörgum tilvikum. Mig minnir að bréf hafi borist þar sem mér var boðið að samþykkja þennan ráðahag sem mælt var með. Og það gerði ég.

Þessi forsaga málsins skiptir einnig miklu máli. Ekki satt?

Karl (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 14:51

12 identicon

Hvernig svo sem spilast úr þessu þá er eitt víst: Það þarf að byggja rausnarlega við Kvíabryggju á næstunni...

Eiríkur (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 15:04

13 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég skoðaði þennan kost fyrir móður mína og þegar ég sá að þetta var ekki 100% öruggt settum við 20 milljónirnar hennar á nokkrar verðtryggðar bækur til fimm ára. Þær eru lausar næsta voru.

Ef þetta fólk fær sína peninga út geri ég kröfu - fyrir hönd móður minnar - um fá hærri vexti af þeim peningum, sem við lögðum á verðtryggðu reikningana.

Það verður ekki bæði sleppt og haldið!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 30.10.2008 kl. 15:32

14 identicon

Auðvitað gildir ekkert sama um þetta og sparnaðarreikninga.

Á ríkið að taka ábyrgð á því hvað bílasalar nota í markaðssetningu hjá sér ?

Hver er munurinn á bankastarfsmanni og notuðum bílasala ?

Báðir starfa hjá einkafyrirtæki, báðir bulla hvað sem er til að selja þér og báðir atvinnulausir.

Geimvera (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 21:08

15 Smámynd: Sigurður Jónsson

Þetta er mikið rétt. Eitt enn, samkvæmt upplýsingum sem ég fékk hjá Landsbankanum varðandi viðbótarlífeyrissparnað getur orðið um skerðingu að ræða einnig þar. Þetta er ekki í samræmi við það sem sagt var.

Sigurður Jónsson, 30.10.2008 kl. 21:37

16 Smámynd: Ár & síð

Blessaður Jón, við vorum einu sinni grannar á Tómasarhaganum.

Eiríkur segir: ,,Ég byrjaði reglulegan sparnað með því að kaupa spariskírteini ríkissjóðs. Einn daginn voru þau lögð niður og sparnaðinum var beint til Landsbankans."
Það gerðist líka hjá mér en Landsbankinn bauð reyndar áfram upp á sjóð sem var alveg jafn tryggur og ríkisbréfin. Margir fengu hins vegar gullglampa í augum...
Ég sparaði áfram í tryggum sjóði þar sem ekkert tapaðist en ég man ekki hve oft bankinn hafði samband við mig í fyrra til að benda mér á að ég fengi hagstæðari vexti á peningabréfareikningunum. Það er ég viss um að margir létu blekkjast þótt ég hafi ekki gert það.
Matthías

Ár & síð, 30.10.2008 kl. 21:53

17 identicon

Fyrir ca 4 mán. fór ég með bankabækur í Landsbankann þær voru skráðar á aldraða móður mína sem nú er látin. Spurði um innistæðu o.fl. og hvernig hennar mál stæðu gagnvart bankanum, hún var þá á lífi. Svar bankastarfsmanns voru á þá leið að svo langur tími hefði liðið síðan að síðast hefði verið spurt um bókina að innistæðan sem var á bókinni væri ekki til lengur til. INNISTÆÐAN VAR HORFIN.Hvert ? Því gat enginn svarað. Ég leitaði og leitaði frá Pontíusi til Pílatusar en enginn gat sagt mér hvert peningar móður minnar hefðu horfið. Ég er ekki að gefa það í skyn móðir mín hafi verið rænd, Guð forði mér frá því, en ég spyr , HVAÐ VARÐ UM PENINGANA HENNAR ?

Getur einhver gefið mér svar við því?

Kv. Kristján

Kristjan (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 23:11

18 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ætli þeir séu ekki bara í peningahimnaríki.

Baldur Fjölnisson, 31.10.2008 kl. 16:59

19 Smámynd: ...

Baldur! Þessi var bæði  kaldhæðinn og góður.

Takk fyrir . 

..., 31.10.2008 kl. 23:37

20 Smámynd: Ransu


'I believe that banking institutions are more dangerous to our liberties than standing armies. If the American people ever allow private banks to control the issue of their currency, first by inflation, then by deflation, the banks and corporations that will grow up around the banks will deprive the people of all property until their children wake-up homeless on the continent their fathers conquered.'
Thomas Jefferson 1802

Ransu, 2.11.2008 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 539
  • Sl. sólarhring: 906
  • Sl. viku: 6283
  • Frá upphafi: 2278034

Annað

  • Innlit í dag: 491
  • Innlit sl. viku: 5797
  • Gestir í dag: 474
  • IP-tölur í dag: 460

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband