Leita í fréttum mbl.is

Hræðslan við lýðræðið

Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins sagði á fundi Evrópuandstæðinga í dag að úrslitabaráttan um aðild Íslands að Evrópusambandinu mundi ráðast á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins.  Þetta er rangt.  Úrslitaorrustan mun ráðast í þjóðaratkvæðagreiðslu um þá skilmála sem kunna að vera í boði eftir samningaviðræður í kjölfar aðildarumsóknar Íslands.

Í dag lýsti formaður þingflokks Vinstri Grænna, Ögmundur Jónasson því yfir að hann teldi eðlilegt að þjóðin kysi um þetta mál. Hann sagðist jafnframt hafa miklar efasemdir um Evrópusambandið og þær efasemdir hefðu aukist. Þannig mátti skilja Ögmund að hann væri á móti því að Ísland gengi í Evrópusambandið en hann teldi að lýðræðið yrði að ráða og leggja þyrfti málið undir þjóðina. Þrátt fyrir að VG mælist nú sem stærsti stjórnmálaflokkur Íslands í skoðanakönnun þá dettur Ögmundi ekki í hug að segja að mikilvæg þjóðmál muni ráðast á landsfundi Vinstri Grænna.

Ég er sammála Ögmundi ég vil að lýðræðið fái að ráða. Ég hef um árabil haldið því fram að við ættum að sækja um aðild að Evrópusambandinu til að fá úr því skorið hvaða kostir væru í stöðunni og síðan ætti þjóðin að kjósa um aðild eða hafna aðild. Það segir hins vegar ekkert til um það hvort ég muni telja æskilegt að við göngum í Evrópusambandið. Það fer allt eftir köldu mati á þjóðarhagsmunum þegar aðildarviðræðum er lokið.

Nú hefur fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins stigið fram og sagt það sama og formaður þingflokks VG. Ljóst er að mikill stuðningur er við það í Framsóknarflokknum að fara þessa leið.  Það virðist því ljóst að taki Sjálfstæðisflokkurinn þá ákvörðun að hafna lýðræðinu þá mun hann samt ekki endalaust koma í veg fyrir að það nái fram að ganga.

Styrmir Gunnarsson er talsmaður gamla valdakjarnans í Sjálfstæðisflokknum sem er búinn að vera svo lengi við stjórn að þeir eru farnir að hugsa eins og arfakonungar á fyrri öldum sem sögðu þegar talað var um að kanna hug þjóða þeirra.  "Vér einir vitum".  Þá þurfti ekki frekari vitnanna við hin eina rétta ákvörðun hafði verið tekin.

Nú reynir á hvort það eru enn það margir í Sjálfstæðisflokknum sem kannast við þann uppruna flokksins sem var fyrir tíma Davíðs:

Að flokkurinn væri frjálslyndur og víðsýnn umbótaflokkur.

Að flokkurinn berðist fyrir lýðræði

Staðreyndin er sú að eftir 17 ára þrásetu í valdastólum hefur Davíð Oddssyni tekist að gera Sjálfstæðisflokkinn að hugmyndafræðilegu þrotabúi sem skilur eftir sig efnahagshrun, fjöldaatvinnuleysi, heimsmet í aukningu ríkisbáknsins og landi þar sem dýrast er fyrir venjulegt fólk að taka lán.

Er kominn tími til þess að hinn þögli meirihluti Sjálfstæðismanna myndi nú breiðfylkingu um frjálslynd viðhorf og lýðræðisleg, utan Sjálfstæðisflokksins?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Það er ekki sanngjarnt að veitast að Styrmi með þessum hætti. Eina ástæðan fyrir því að viðtal var tekið við Styrmi er að hann var eini fundarmaðurinn sem komst óstuddur undir bert loft fyrir aldurs sakir og gat numið spurningar fréttamanns.

Kristján Sigurður Kristjánsson, 1.12.2008 kl. 23:34

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Ég deili þeirri skoðun með Styrmi að Íslendingar hafi ekkert í Evrópusambandið að gera, að svo komnu máli, en tel hins vegar sjálfsagt að þjóðin fái að kjósa um hvort eigi að fara í aðildarviðræður eða ekki.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.12.2008 kl. 23:40

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Hvernig dettur manninum í hug að stjórnmálaflokkur sem í augnablikinu hefur 21% fylgi á landsvísu geti haft loka áhrif á hvort ísland gangi í evrópusambandið ?  Vissulega hefur það mikið að segja hver afstaða Íhaldsins er í evrópumálum en það er af og frá að Sjálfstæðiflokkurinn sé með sömu ítök hérlendis og hann hafði um kostningar hérlendis.

Brynjar Jóhannsson, 1.12.2008 kl. 23:46

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þögli meirihluti Sjálfstæðisflokksins gekk úr fyrir þónokkru síðan.

Þú líka.

En þú skrifar alltaf eins & þú sért í pattstöðu á leiðinni inn þar aftur.

Trúverðugt ?

Nah ...

Steingrímur Helgason, 2.12.2008 kl. 01:18

5 identicon

Ég er sammála þér Jón þessi mál þarf að skoða, semja um og fá á hreint hvar við stöndum, og eyða öllum sögusögnum um hvað aðild ber með sér. Og hvað ekki.

Mér datt í hug t.d. að flokkarnir í sameiningu, eða ríkisstjórnin myndu kaupa óháða fag úttekt frá nokkrum aðilum sem hafa getu til að meta og skoða sérstöðu okkar og hvaða ávinning og hvaða tap er af aðild. Það virðist alls ekki vera líðum ljóst. Okkur vantar staðreyndir.

Það virðast margir halda að við töpum lýðræðinu öllu!    Þessum vafa þarf að eyða. Og staðreyndir koma í  staðinn. Og síðan þarf að sjálfsögðu þjóðin öll að fá að kjósa, af eða á.

En sannarlega segi ég í dag, að lýðræðið lítur ekki byrlega út fyrir almenningi hér. Flokka klíkurnar fara með alræði, og spillingarliðið í kring situr eins og hundar eftir að molarnir falli af borði mafíu stjórnarinnar sem smá saman er að gefa auðlindir okkar.  Og situr sem fastast eftir stærstu mistök Íslandssögunnar.

Þessu þarf að breyta. Við verðum að hætta að kjósa flokka og fá að kjósa fólk, til ábyrgðar.

Annars getum við rétt eins gengið beint undir Evrópubandalag og lög þess refjalaust. Það er þó meira lýðræði í því þar sem þeir hafa strangari reglur og lög um spillingu og ég vil frekar deila landinu mínu með Evrópubúum almennt, heldur en að gefa það flokka klíkunum og pakkinu sem mergsýgur landann. Eins og kvótagreifarnir hafa gert.              

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 01:45

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það er jafn-fáránlegt að sjá þig, nafni, gera lítið úr afstöðu Styrmis Gunnarssonar í ræðu hans eins og þennan Kristján Sigurð í 1. innleggi að gera lítið úr fundarmönnum, sem voru með eindæmum hressir og öflugir, t.d. hún Katrín Jakobsdóttir. En að þessu getið þið, sem sóttuð ekki fundinn, auðvitað leikið ykkur að í ábyrgðarleysi ykkar!

Ræða Styrmis var gríðarlega öflugt innlegg í alla umræðuna. Þú ættir að lesa hana, Jón Magnússon, og tileinka þér hana. Á ég sjálfur eftir að skrifa um hana og þennan velheppnaða fund, en rita þó ýmislegt hér, sem snertir allt málið: Stjórnvöldum mótmælt á Arnarhóli – og baráttan sístæða fyrir sjálfstæði Íslands og auðlindum þess.

Niður með það Ebé-bákn, sem kúgaði okkur í Icesave-málinu (bannaði okkur lögsókn, og Ingibjörg tók þátt í því). Niður með EES-samninginn, sem varð okkur fyrst að gildru og síðan að falli á síðustu mánuðum. Lifi íslenzkt fullveldi, andstætt valdaafsalinu hrikalega og afdrifaríka, sem Ebésinnar voga sér að mæla með!

Jón Valur Jensson, 2.12.2008 kl. 06:43

7 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Jón Magnússon:

Þessi pistill er að innihaldi til svipað og ég er að skrifa á minni heimasíðu og ég er þér innilega sammála.

Ég er enn að berjast í Sjálfstæðisflokknum fyrir breytingum, en hversu lengi mér endist kraftur - og þó sérstaklega þegar ég heyri í mönnum eins og Styrmi og meirihluta þingmanna flokksins - er einungis tímaspursmál!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 2.12.2008 kl. 10:38

8 Smámynd: Jón Magnússon

Jón Valur. Hvað oft á ég að segja þér það að ég er ekki ESB sinni. Ég geri mér fyllilega grein fyrir mörgum og miklum vandamálum innan Evrópusambandsins.  Spurningin er hins vegar um hasmuni og framtíð þjóðarinnar. Þú gefur þér nafni að hagsmunir og framtíð þjóðarinnar geti ekki farið saman með ESB ég gef mér það ekki þó ég hafi fyrirvara að mörgu leyti svipaða og Ögmundur Jónasson.  En ég vil kanna málið. Ég vil vita hvort það geta verið hagsmunir okkar eða ekki að ganga í bandalagið.

Ég deili skoðun þinni um galla á EES samningnum Jón. Mér finnst hann ekki nógu góður hvað varðar afsal löggjafarvalds okkar til Evrópusambandsins í nánast öllum málum sem varða viðskipti önnur en fisk og landbúnað.

Jón Magnússon, 2.12.2008 kl. 11:16

9 Smámynd: Jón Magnússon

Það er rétt Guðbjörn færslur okkar eru keimlíkar.  Stundum komast menn að sömu niðurstöðu þó að þeir séu ekki samvistum. Þakka þér fyrir.

Jón Magnússon, 2.12.2008 kl. 11:17

10 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Sendi þér svar mitt til míns flokksbróðurs Guðbjörns.

Hann er þó ekki eins forhertur og þú en það er vegna þess, að hann er enn innanum þjóðholla menn.

Það hefur slegið að þér í í ,,óskapnaðar út í ríð"  hjarngöngu þinni utan Flokksins.  og fengið hugsanlega heilahimnubólgu og óráð af hita, slíkt er þjóðfjandsamlegt bullið í ykkur ESB dindlunum.

Það er hátur þeirra sem nefnast einu nafni ,,Kvislingar" að vilja frekar undir erlent vald en berjast frjáslir og heiðarlegir fyrir framtíð barna og afkomenda sinna í landinu sem fóstraði þá.

Þú segist hinnsvegar EKKI vera ESB sinni en talar fyrir aðildarviðræum.  Hvernig passar það?

Hér er límið.

Guðbjörn minn.

Þú þarft ekkert að stofna annann flokk.

Farðu bara til hinna sem eru sama sinnis og SAMFYLKIÐ GEGN ÍSLANDI með aðildarbullinu í ykkur.

Það liggur fyrir, að við fáum EKKI undanþágur frá fiskveiðsistefnu ESB.

 Það liggur fyrir, að við fáum EKKI undanþágur frá tilskipun um orkusölufyrirtæki og námur.

Þatta hefur aðeins í för með sér, að við verðum útjaðar með engin áhrif (hugsanlega 4 atkvæði af fl hundruð)

Einnig að þegar útlendingar haf afengið að versla á MARKAÐI með Kvótann og orkufyrirtækin, verður það þannig, að skipuin koma EKKI að landi hér, nema þa´stundum þegar þarf að gera smotterí við  þau.

Orkufyrirtækin verða búsett erlendis go greiða sína skatta þar, því samkvæmt LÖGUM ESB má ekki leggja á gjöld vegna námuvinnslu eða borana, vikrjan fallvatna eða annars orku öflunaraðgerðum (sett inn vegna Breta og Norðusjávar olíuborana)

Hvaða TEKJUR verða þa´til að greiða reikninginn vegna hjúkrunar okkar og skólagöngu barna okkar?

Nei minn kæri vinur, Samfylktu bara gegn afkomendum mínum hér á landi og ég mun snúast gegn þér af grimmd.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 2.12.2008 kl. 10:43

Bjarni Kjartansson, 2.12.2008 kl. 11:35

11 Smámynd: Halla Rut

Mikið rétt hjá þér Jón Magnússon, hroki þessara manna er algjör og sjá þeir ekki sjálfir hve framganga þeirra og hugsun, er úrelt. Þessi tegund stjórnmálamanna (eða þeirra sem áhrif á þá hafa) er að líða undir lok. Nú taka nýir við og er það aðeins á færi nútímalegra og stormasamra manna að heilla lýðinn til fylgis.

Jón Valur mælir að mínu skapi er hann segir:

"Niður með það Ebé-bákn, sem kúgaði okkur í Icesave-málinu (bannaði okkur lögsókn, og Ingibjörg tók þátt í því). Niður með EES-samninginn, sem varð okkur fyrst að gildru og síðan að falli á síðustu mánuðum. Lifi íslenzkt fullveldi"

Halla Rut , 2.12.2008 kl. 15:49

12 Smámynd: Kristján Sigurður Kristjánsson

Má ver að Styrmir hafi ekki verið yngstur manna sem sótti fundinn. En það er ekkert annað á dagskrá annað en ESB eða ekki ESB. Það heyrist ekker annað. Til dæmis: eru hagsmunir Nogregs Færeyja Íslands og Grænlands eitthvað líkir? Þetta eru allt þjóðir utan ESB. Fiskveiðihagsmunir og olíuhagsmunir. 

Kristján Sigurður Kristjánsson, 2.12.2008 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 619
  • Sl. sólarhring: 624
  • Sl. viku: 3005
  • Frá upphafi: 2294556

Annað

  • Innlit í dag: 571
  • Innlit sl. viku: 2738
  • Gestir í dag: 541
  • IP-tölur í dag: 522

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband