Leita í fréttum mbl.is

Orð Barack Obama um bankahrunið á Íslandi.

Barack Obama forseti Bandaríkjanna er líklega sá maður sem hvað gerst þekkir til efnahagskreppunar í heiminum og hefur kynnt sér ítarlega ástæður bankahrunsins og hefur auk heldur aðgang að betri upplýsingum en nokkur annar lætur sér ekki til hugar koma að halda því fram að stjórnmálaandstæðingar hans beri ábyrgð á bankahruninu í Bandaríkjunum jafnvel þó það hafi gerst á þeirra vakt eins og margir hafa orðað það hér á landi.   

Bandaríkjaforseti bendir á hvað bankahrunið sé alvarlegt og alþjóðlegt vandamál vegna  þess hvernig fjármálastofnunum um allan heim var stjórnað undanfarin ár. Bankahrunið á sér langan aðdraganda og það veit Bandaríkjaforseti mæta vel.

Árið 2007 voru tæp 70% af útlánum bankanna í heiminum ónýt samkvæmt því sem virtasta greiningarfyrirtæki heims Standard og Poors heldur fram. Sjö krónur af hverjum tíu voru ónýtar, lánaðar til ónýtra verkefna, einstaklinga eða fyrirtækja. Þetta er ótrúlegt en sennilega rétt.

Svo virðist sem horfið hafi verið frá öllum eðlilegum gildum í bankastarfsemi fyrir mörgum árum og bönkunum í heiminum hafi verið stjórnað af fólki sem var sannfært um að verðmæti yrðu til með hækkuðu hlutabréfaverði  en áttuðu sig ekki á því að raunveruleg verðmæti verða ekki til nema með framleiðslu, dugnaði, hugviti og nýjungum. Þau vandamál sem eru að kristallast í bankakerfinu um allan heim hafa verið að þróast um nokkurra ára skeið.  

Bandaríkjaforseti veit að frjáls viðskipti skipta máli og eitt það heimskulegasta sem hægt væri að gera núna væri að reyna að byggja einhverja múra og verndarstefnu. Í ræðu sem hann hélt á fimmtudaginn varaði hann við því og benti á mikilvægi alþjóðlegra viðskipta. Í sömu ræðu benti hann á þá staðreynd að efnahagskerfi heimsins væru orðin svo samofin að vandamáli húseiganda í Flórída á að greiða húsnæðislánin sín yllu bankahruni á Íslandi. Obama lét sér ekki detta í hug að það hafi verið vegna stjórnarstefnu þeirrar ríkisstjórnar sem þá var á Íslandi.

Obama horfir á þessu vandamál í víðu samhengi út frá raunveruleikanum. Hann er ekki að draga rangar ályktanir af gefnum forsendum eins og ítrekað er reynt að gera hér á landi.

Ástæður bankahrunsins hér eru alþjóðlegar og hefðu gerst óháð því hvaða ríkisstjórn var við völd eða hvaða stjórnmálaflokkar. Fáir hefðu getað orðað það betur en Barack Obama Bandaríkjaforseti.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þó að Obama kenni ekki Bush um í hv orði, þá er það ekki sama og að hann telji Bush stjórnina bera ábyrgð.  Hann bara veit að það þýðir ekkert að segja það við þá vegna þess að þeir eru í ennþá meiri afneitun en vesalings greyin í Sjálfstæðisflokknum.

Það er alveg rétt að það eru aðstæður á alþjóðafjármálamörkuðum sem urðu til þess að þríburarnir féllu með látum í haust.  Það getur vel verið að þeir hefðu lifað eitthvað lengur, ef ekki hefði komið lausafjárþurrðarinnar.  Hitt er alveg öruggt að viðskiptalíkan þeirra var meingallað vegna óhóflegrar áhættu sem fólst í útlánum þeirra til of fárra aðila.  Ef 100 stærstu lántakendur (einstaklingar og lögaðilar) hvers um sig voru með 50% útlána, þá má gera ráð fyrir því að innan við 50 einstaklingar hafi staðið bak við þessi lán.  Ýmist sem þeir sjálfir eða í formi fyrirtækja sem þeir áttu að miklu eða öllu leiti.  Þetta er bilun sem var leyfð í skjóli handónýts regluverks.  Það getur verið að FME hafi verið að vinna vinnuna sína í samræmi við lög og reglur, en vandinn var að reglurnar voru rangar eða að bankarnir hafi beitt vísvitandi blekkingum til að fela slóðina.

Nú þess fyrir utan, þá fundust mér vinnubrögð FME það gagnrýniverð, að ég sendi þeim póst sl. vor, þar sem ég bauð þeim aðstoð við úttekt vegna leiðbeinandi tilmæla nr. 1/2005 um rekstur upplýsingakerfa eftirlitsskyldra aðila.  Ástæðan var einföld.  FME sendi út sjálfrýnispurningar til eftirlitsskyldra aðila sem þeir sendu svör við inn rafrænt.  Jafnframt var fyrirtækjunum tilkynnt að það yrði haft samband þegar búið væri að fara yfir svörin.  Ég var ákaflega hissa á þessum vinnubrögðum, þar sem ég hefði mætt í öll stærstu fyrirtækin og farið yfir valin svör með mönnum og tekið stikkprufur hjá minni fyrirtækjunum.  Sjálfrýni er góðra gjalda verð, en það er djók að ætla ekki að gera neitt annað.  Nú það tók síðan FME 2 mánuði að svara póstinum mínum og það ekki fyrr en ég var búinn að ítreka hann tvisvar.  Þá var aðstoðin afþökkuð.  Í nóvember eða desember voru síðan send út bréf til fyrirtækja, þar sem þeim var þakkað fyrir svörin!  Ef þetta var dæmigert fyrir vinnubrögðin, þá skil ég bara vel að eitt og annað hafi farið framhjá þeim.

Marinó G. Njálsson, 8.4.2009 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 63
  • Sl. sólarhring: 86
  • Sl. viku: 2548
  • Frá upphafi: 2291531

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 2315
  • Gestir í dag: 46
  • IP-tölur í dag: 39

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband