Leita í fréttum mbl.is

Jón Baldvin slettir skyrinu.

Jón Baldvin Hannibalsson Guðfaðir Samfylkingarinnar á greiðari leið en aðrir á miðopnu Morgunblaðsins. Í dag hvetur Guðfaðirinn landsmenn til þess að kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum og vísar til þess að flokkurinn hafi fengið fjárstyrki á árum áður frá Glitni og Landsbankanum.

Talandi um siðferði í stjórnmálum þá liggur fyrir að Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt hvað harðast að fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins skyldi hafa samþykkt að tekið yrði við háum styrkjum einkafyrirtækja til flokksins.  Ég er sammála þeim sem telja það dómgreindarbrest að hafa samþykkt að taka við þessum háu styrkjum. En það gleymist í umræðunni að það var helst fyrir forgöngu Sjálfstæðismanna að reglur voru settar um fjármál stjórnmálaflokka og ríkisstuðning við þá.  Að vísu allt of miklir styrkir af almannafé en það má fjalla um það síðar.

Jón Baldvin minnir kjósendur ekki á að helsti styrktaraðili Samfylkingarinnar til margra ára er Baugur og fyrirtæki honum tengd. Ættu þá kjósendur með sama hætti að ganga hreint til verks og þurrka þennan smánarblett Samfylkinguna af Alþingi í næstu kosningum.  Það má e.t.v. minna Jón Baldvin og Samfylkingarfólk á að sá sem ber mesta ábyrgð á efnahagshruninu  er Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs.  Opinberanir stjórnmálalaflokkana á fjármálum sínum hefur sannað það sem haldið hefur verið fram lengi að Samfylkingin fengi helst styrki frá Baugi. Það væri gott fyrir Jón Baldvin að minnast þess hvernig forustumenn Samfylkingarinnar hafa hagað málflutningi sínum árum saman til að styðja við bakið á því fyrirtæki, fjölmiðlaveldi þess og amast við rannsóknum á meintum brotum fyrirsvarsmanna fyrirtækisins.

En Jón Baldvin mætti e.t.v. minnast þess líka að það var iðulega um það fjallað með hvaða hætti hann færi með opinbert fé. Afmælisveislur á kostnað ríkisins. Sérstakur fjölmiðlafulltrúi Jóns á kostnað ríkisins í London og þannig mætti lengi telja. 

Það er því miður staðreynd að þjóðin stendur frammi fyrir alvarlegasta vanda sem hún hefur staðið frammi fyrir á lýðveldistímanum. Þá skiptir máli hvernig staðið er að stjórn landsins en síður það sem gerðist árið 2006.  Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir takmörkuð ríkisafskipti, takmarkaða skattheimtu og gildi einstaklingsframtaksins. Nú er meiri þörf en áður á að þessi gildi í stjórnmálum hafi öfluga málsvara á þingi. 

Samfylkingin og Vinstri grænir standa fyrir hefðbundin úrræði valdstjórnarsinna með þá trú að hjálpræðið komi frá ríkinu. Slík stefna leiðir til ofurskattheimtu og að því er mér sýnist miðað við stjórn þeirra síðustu mánuði til nýs og alvarlegra  hruns en við höfum hingað til upplifað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jón!

Þú ferð ekki rétt með, þegar þú segir, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi barist fyrir því, að settar yrðu reglur um fjárstuðning við flokkana. Þessu er einmitt öfugt varið: Sjálfstæðisflokkurinn barðist gegn því áratugum saman, að slíkar reglur yrðu settar og eins að flokkarnir yrðu að opna bókhald sitt, því varla tjáir að setja reglur, ef bókhaldið er leyndarmál.

Sjálfstæðisflokkurinn var einu sinni trúr þeirri hugsjón, að frjálst framtak einstaklingsins sé aflvaki efnalegra framfara. Ekki lengur, langt síðan það breyttist. Nú trúir Sjálfstæðisflokkurinn á stóra ríkisjötu, sem raða má þægum Flokksmönnum á, og til uppfyllingar orkufreka stóriðju, á vegum alþjóðlegra auðhringa, sem frá sjónarmiði hins frjálsa framtaks einstaklingsins er jafn fjarri fyrri hugsjón flokksins og trúin á ríkisjötuna. Stóriðjustefnan ryður svo sannarlega frá sér og minnkar svigrúm einstaklingsframtaksins með því að stuðla að þenslu í atvinnulíf, hækkun á vöxtum og gengi krónunnar. Svo er náttúrlega kapítuli útaf fyrir sig, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið vörð um þá stefnu undanfarin ár, að fjárfestingabankastarfsemi, sem fyrst og fremst er í því að fjámagna skuldsettar yfirtökur og hagræða verði hlutabréfa, sé ein helsta grunnstoð atvinnulífsins á Íslandi. Stefna Sjálfstæðisflokksins í atvinnumálum í dag á lítið skylt við þá stefnu, sem boðuð er í stefnuskrá flokksins og var allavega haldið á lofti á tyllidögum. Vinstri grænir eru sennilega jákvæðari gagnvart raunverulegu einstaklingsframtaki en Sjálfstæðisflokkurinn, þótt þar á bæ megi finna einstaklinga, sem vilja alltof mikinn eftirlitsiðnað. Ábyrgðs Sjálfstæðisflokksins á hruninu mikla er mest allra flokka. Þú hefðir betur orðið eftir í Frjálslynda flokknum.

Sigvaldi Ásgeirsson (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 11:21

2 Smámynd: Jón Magnússon

Það þykir mér líklegt Þrymur.

Jón Magnússon, 14.4.2009 kl. 11:35

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Að vísu var hér um stórkarlalega styrki að ræða og er mér óskiljanlegt að Geir hafi tekið við þessu bara sísvona.

Sá Svarti gaf oft gull og þægindi en vildi ætíð hafa ,,veð í" Sálartetrinu, svo segir í ævint´´ýrunum.

Svo mun einnig í Mannheimum.

Svo er með Jón Baldna, að hann var og er líklega enn, fljóthuga, talaði hraðar en hugurinn náði utanum, framkvæmdi hraðar en skilningur og ígrundun leyfði.

Þessvegna urðu axarsköftin mörg og sum afar flísótt og ill í hendi.

miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 14.4.2009 kl. 12:25

4 identicon

Þetta kallast ekki að sletta skyri, enda sjálfstæðismenn fullkomlega færir um að gera það sjálfir. Sletturnar ganga þar á víxl innanflokks (samlíking nýkjörins formanns við hrært skyr hefur þar með fengið nýja merkingu...!). 

Með svona siðferði í FLokknum þarf hann ekki á andstæðingum að halda.

Jón Baldvin bendir einfaldlega (réttilega) á að FLokkurinn á ekkert betra skilið en að verða þurkaður út í þessum kosningum. Auðvitað vitum við að slíkt gerist aldrei á Íslandi, en það væri hið eina rétta.

Ekki nóg með að FLokkurinn skuli bera höfuðábyrgð á efnahagshruni þjóðarinnar, heldur hefur hann afhjúpað sig sem siðspilltasti og siðblindasti FLokkur landsins - skákar jafnvel Framsókn, sem átti nú varla að vera hægt...

Heiðarlegt og réttsýnt fólk á ekki með nokkru móti að geta kosið SjálfstæðisFLokkinn núna. Svo einfalt er það.

Evreka (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 13:11

5 Smámynd: Jón Magnússon

Sigvaldi það var ekki hægt að vera áfram í Frjálslynda flokknum með þá gjörspilltu forustu sem þar er. Forustu sem vildi ekki að flokkurinn yrði að raunverulegum stjórnmálaflokki og barðist hart gegn þeirri viðleitni að koma upp flokksstarfi á Suðvesturhorninu.

Sjálfstæðisflokkurinn barðist fyrir breytingum á fjármálum stjórnmálaflokka én ég er sammála þér að hann hefði mátt taka þá baráttu mun fyrr. Við vorum með þá stefnu meðan ég var formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna og það hefði verið betra ef hlustað hefði verið á okkur þá.

Varðandi atvinnustefnu VG þá er þar flokkur sem er á móti stóriðju og hefur talað gegn því að einstaklingsframtakið fái að njóta sín. Það er staðreyndin í málinu. Hvað nú með ríkisbankana eigum við að reka 3 ríkisbanka og tug ríkissparisjóða. Hvert leiðir það okkur VG hefur ekki komið með neina heildstæða stefnu í atvinnumálum

Jón Magnússon, 14.4.2009 kl. 14:35

6 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er sammála þér Bjarni að æ skal gjöf til gjalda og það var pólitískt dómgreindarleysi að taka við þessum háu styrkjum.  En það er ekki hægt að kenna þeim um sem ekki vissu um þetta og höfðu ekkert með málið að gera eins og núverandi forusta flokksins

Jón Magnússon, 14.4.2009 kl. 14:36

7 Smámynd: Jón Magnússon

Heiðarlegt og réttsýnt fólk á að kjósa Sjálfstæðisflokkinn núna  Evreka vegna þess að hann hefur gert hreint fyrir sínum dyrum og núverandi forusta flokksins ber ekki ábyrgð á neinu misjöfnu. Það er altént staðreyndin í málinu.  Nýr formaður Bjarni Benediktsson hefur tekið  af heiðarleika og festu á þessum ólukkustyrkjum og það á ekki að láta pólitískan domgreindarskirt annarra bitna á honum.

Jón Magnússon, 14.4.2009 kl. 14:39

8 identicon

Nafnið Jón Baldvin Hannibalsson er EKKI það nafn sem manni dettur fyrst í
hug þegar Jafnaðarstefnan ber á góma, svikarinn a tarna hann er úlfur í
sauðagæru íhaldsins.

Vilhjálmur (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 17:04

9 Smámynd: TARA

það er ef til vill ljótt að segja þetta en ég varð roslega fegin þegar Jón Baldvin drattaðist brott úr þingsölum....ég hef ekkert á móti manninum persónulega, en mér finnst hann afspyrnu leiðinlegur stjórnmálamaður og hef ekki mikla trú á að margir fari eftir hans hvatningarópum en þetta er honum frekar til vansæmdar. Ég held að hann geri engan skaða þó hann væri á forsíðu blaðsins.

TARA, 14.4.2009 kl. 20:20

10 identicon

Ég sé ekki mikinn mun hvort framlag hljóðar upp á 5 eða 25 miljónir. Þetta er spilling. Og þátt í henni tóku allir stóruflokkarnir, mis stórt þó.

Þjófur sem stelur þúsundkalli er í mínum augum ekkert betri en sá sem stelur 5 þúsundum.

En mergurinn málsins er að hér verður ekki sátt eða trúverðugleiki hjá neinum flokki, fyrr en allir flokkar hafa opnað sín bókhöld upp á gátt. Og um persónuframboð líka. Aftur fyrir kvótagjafirnar. Því þar fyrst byrjaði sukkið og fyrirgreiðslupólitíkin. Og ef einhverjir pólitíkusar hafa verið keyptir var það þar.

Eftir afburða vanhæfni í fjármálum þjóðarinnar undanfarin ár er þetta ekki til of mikils ætlast, af þeim flokkum sem voru í stjórn.

Ég segi hinsvegar aldrei aftur D.B.S.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 21:36

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Fjölbreytileiki hugsanaflórunnar sem birtist hér á athugasemdalistanum gengur fram af manni. Vona að þarna sé ekki þverskurður af heilabúi kjósandans.

En Jón Baldvin er gjarn á að gleyma eigin ávirðingum. Hvervegna hann var fluttur frá Washington til dæmis og hvernig hann handlaði ýmis mál sem honum tengdust hér áður fyrr. Hann hefur engin ráð á því að setja sig á einhvern siðferðishest og hleypa gegn Sjálfstæðisflokknum. Það hefur Samfylkingin ekki heldur allt frá Borgarnesi.

En þetta er allt endemis kjaftæði. Það eru engar tillögur um það, hvað við eigum að gera nema lækka laun og hækka svo skatta á þau eftir það. Algert úrræðaleysi stjórnmálavesalinganna til vinstri. 

Eigum við að borga Icesave eða ekki ? Eigum við að láta ESB drepa okkur sem þjóð og börnin okkar í níunda lið líka ?

" Þeir sem aldrei þekktu ráð, þeir eiga að bjarga hinum " Um það snúast kosningarnar framundan.

Halldór Jónsson, 15.4.2009 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 591
  • Sl. sólarhring: 624
  • Sl. viku: 2977
  • Frá upphafi: 2294528

Annað

  • Innlit í dag: 551
  • Innlit sl. viku: 2718
  • Gestir í dag: 523
  • IP-tölur í dag: 506

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband