Leita í fréttum mbl.is

Þessi orusta tapaðist. Sú næsta vinnst.

Jóhanna Sigurðardóttir er ótvíræður sigurvegari kosninganna. Nú reynir á Jóhönnu og ég óska henni alls góðs því sannarlega þarf íslenska þjóðin á því að halda.

Vinstri grænir eru að vísu hástökkvarar kosninganna miðað við síðustu alþingiskosningar og eru nú með meira fylgi en róttækir sósíalistaflokkar eru í öðrum þróuðum lýðræðisríkjum. Fróðlegt verður að fylgjast með framgangi þeirra á þessu kjörtímabili miðað við stefnu þeirra, orð og aðgerðir meðan þeir voru í stjórnarandstöðu.

Borgarahreyfingin náði markinu sem þarf til að ná fjórum þingmönnum og er full ástæða til að óska þeim til hamingju með þann árangur. Síðan reynir á að hreyfingin sýni hvað í henni býr pólitískt. í kosningabaráttunni fannst mér vanta skýra mynd á hreyfinguna en þannig er það iðulega með ný framboð. Spurning er hvar Borgarahreyfingin staðsetur sig í litrófinu og hvaða stöðu hún tekur gagnvart ríkisstjórn.

Því miður náði Sjálfstæðisflokkurinn ekki þeim árangri sem ég hafði vonast eftir. Vafalaust koma þar til margar ástæður og full ástæða er fyrir nýja forustu að setja nú þegar niður vinnunefnd til að fara yfir þau atriði sem úrskeiðis fóru í kosningabaráttunni og skilgreina hvaða atriði það voru sem helst ollu því að Sjálfstæðisflokkurinn fékk ekki betri útkomu en raun ber vitni. Mér fannst ánægjulegt að heyra það í morgun að vinur minn Jón Gunnarsson hefði náð kjöri síðastur inn og óska honum til hamingju með það.

Frjálslyndir eru taparar þessara kosninga og tapa tveim af hverjum 3 atkvæðum sem þeir fengu greidd árið 2007 eða um 67% atkvæðanna. Þetta er með ólíkindum fyrir flokk sem hefur verið í stjórnarandstöðu allan tímann.  Það er mér mikið ánægjuefni að nú skuli ekki vera hægt að kenna mér eða vinum mínum sem voru í Nýju afli um þennan ósigur því nú er hann alfarið á ábyrgð Guðjóns Arnars Kristjánssonar og hirðar hans sem hrakti okkur í burtu. Guðjón reyndist eftir allt ekki vera límið í flokknum.

Fróðlegt verður að sjá nýjan stjórnarsáttmála Rauðgrænu ríkisstjórnarinnar og með hvaða hætti ráðherrasætum verður skipað.  Vonandi tekst borgaralegu öflunum í Samfylkingunni að halda aftur af Sósíalistunum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar B  Bragason

Okkar tími mun koma   vertu bestur að vanda! Kv Einar B Bragason.

Einar B Bragason , 26.4.2009 kl. 20:06

2 identicon

,,Jóhanna Sigurðardóttir er ótvíræður sigurvegari kosninganna."

 Ertu einn með þessa skoðun hjá sjálfstæðisflokknum ?

Hef ekki hitt neinn sjálfstæðismann sem getur viðurkennt neinn sigur hjá samfylkingunni eða Jóhönnu !

Var að vonast eftir því að íslendingar sýndu ykkur ranverulega hvað þið eigið skilið !  Sjálfstæðisflokkurinn hefði átta að þurkast úr af þingi !

JR (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 22:30

3 Smámynd: Þórður Már Jónsson

Þú ættir að gleðjast yfir ósigri Sjálfstæðisflokksins Jón því það þýðir að nú verður loksins hægt að endurskoða kvótakerfið sem þú barðist gegn í Frjálslynda flokknum. Nú ertu kominn á hinn vænginn, í kvótahafabandalag Íslands, sem hefur það sem eitt af sínum stærstu stefnumálum að verja tangarhald núverandi handhafa kvótans.

Það væri samt fínt að fá þig á þing aftur, en vonandi ekki fyrr en það er búið að endurhanna kerfið!

Þórður Már Jónsson, 26.4.2009 kl. 23:16

4 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Kæri Jón, hrifning þín á Samfylkingunni finnst mér með ólíkindum. Samfylkingin hlaut háðulega útreið í kosningunum (29,8%) og náði ekki einu sinni sama fylgi og 2003, þegar þeir náðu 31,0%. Hvernig getur Jóhanna verið sigurvegari kosninganna ?

Innan Samfylkingar eru engin "borgaraleg öfl", bara Sossar sem þjást af ESB-sýkinni. Sossarnir hafa það eina markmið að leiða þjóðina undir yfirráð hinnar sjálfkjörnu yfirstéttar Evrópu. Á manna-máli er þetta nefnt nauðgun. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar allri undirgefni fyrir erlendu valdi. Þú gleymir því vonandi ekki.

Loftur Altice Þorsteinsson, 27.4.2009 kl. 14:06

5 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Jari ég er sammála þér að okkar tími mun koma.

Jón Magnússon, 27.4.2009 kl. 18:11

6 Smámynd: Jón Magnússon

Miðað við aðstæður þá finnst mér þetta stór en raunar mjög óverðskuldaður sigur Samfylkingarinnar. Þjóðin virðist hafa gleymt því að Samfylkingin bar ekki síður ábyrgð á bankahruninu en Sjálfstæðisflokkurinn. Þá er það með miklum ólíkindum að þjóðin skuli ekki muna það að meðan bankahrun var yfirvofandi á Íslandi þá fór þáverandi formaður Samfylkingarinna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir heimsálfa á milli til að berjast fyrir að Ísland yrði kosið í Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna. Það var heldur ekki í umræðunni að Baugsveldið studdi engan flokk eins og Samfylkinguna og það ber enginn meiri ábyrgð á efnahagshruninu en Jón Ásgeir Jóhannesson helsti styrktaraðili Samfylkingarinnar sem skuldaði þegar upp var staðið meir en þúsund milljarða í íslenskum lánastofnunum.

Miðað við málefnastöðu Samfylkingarinnar og þá arfleifð sem ég lýsi að hluta hér að ofan þá tel ég þetta mikinn en óverðskuldaðan sigur flokksins og sé fyrst og fremst tilkominn vegna þess að margir treysta Jóhönnu Sigurðardóttur.

Jón Magnússon, 27.4.2009 kl. 18:17

7 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er mikill misskilningur Þórður ég er ekki stuðningsmaður gjafakvótakerfisins og þú veist það vel að það erum margir Sjálfstæðismenn sama sinnis og ég og þú. Þú ættir að ganga í Sjálfstæðisflokkinn til að styrkja þau öfl  í þeim flokki sem vilja breyta fiskveiðistjórnarkerfinu. Frjálslyndi flokkurinn er hvort eð er hruninn og það var ljóst þegar Guðjón Arnar tók hann því krampataki sem hann gerði í vetur og neitaði að horfast í augu við raunveruleikann sem ætti nú að hafa birst honum með ótvíræðum hætti. Ég vona Þórður að við eigum samleið í framtíðinni.

Jón Magnússon, 27.4.2009 kl. 18:20

8 Smámynd: Karl Löve

Þetta viðhorf Jón er það sem við þurfum öll. Þá meina ég óskir þínar til Jóhönnu um að henni gangi vel. Kosningar eru búnar og nú sem aldrei fyrr þurfum við að standa saman. Ég kaus ekki Sjálfstæðisflokkinn og mun aldrei gera á meðan menn eins og Loftur hér að ofan eru þar innanborðs.

Hans líkar eru móti ESB eingöngu vegna sérhagsmuna og stendur honum hjartanlega á sama um almenning á meðan flokkur ykkar fær að ráðskast með eins mikið og hægt er.

Hann veit að ef við förum inn í ESB þá kemst hann ekki upp með eins mikið af spillingu óg almennum óþverraskap.

Karl Löve, 27.4.2009 kl. 18:23

9 Smámynd: Jón Magnússon

Loftur ég svara þessu efnislega í athugasemd við færslu JR.

Varðandi yfirþjóðlegt vald þá er engin að tala um undirgefni við erlent vald. Bjarni Benediktsson fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins sem barðist hart fyrir því að Ísland gengi í Atlantshafsbandalagið var ekki að leggjast undir erlent vald eins og Kommarnir héldu fram aftur og baka og áfram. Aðild að Evrópusambandinu er spurning um hagsmuni Íslands með sama hætti og það var mat bestu manna á sínum tíma að það þjónaði hagsmunum Íslands að ganga í Atlantshafsbandalagið.

Aðild að Evrópusambandinu er líka spurning um hagsmuni Íslnds og ekkert annað að mínu mati.

Jón Magnússon, 27.4.2009 kl. 18:31

10 Smámynd: Þórður Már Jónsson

Loftur Altice: Þú ert einn mesti brandarakall sem fyrirfinnst á blogginu. Það er með ólíkindum hvað þú getur bullað.

Þú kallar það að fá "háðuglega útreið í kosningunum" að Samfylkingin sé stærsti flokkurinn á landinu. Hvað kallarðu það þá að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði 36% þingmanna sinna? Stórsigur?

 Þú talar um að "leiða þjóðina undir yfirráð hinnar sjálfkjörnu yfirstéttar Evrópu". Það sé á manna máli nefnt nauðgun. Þú ættir að vita manna best að þjóðin hefur í langan tíma verið undir yfirráðum hinnar sjálfkjörnu yfirstéttar Íslands, öðru nafni Sjálfstæðisflokknum. Sá flokkur hefur í skjóli valds síns aukið misskiptingu gríðarlega. Ef eitthvað er nauðgun þá er þetta það.

Og auðvitað segirðu að Sjálfstæðisflokkurinn hafni allri undirgefni fyrir erlendu valdi. Það er auðvitað betra að öll þjóðin sé undirgefin valdi Flokksins líkt og fyrri ár. Ein stærsta ástæða þess að Flokkurinn hafnar þessu "erlenda valdi" er sú að hagsmunaöflin sem stýra Flokknum (LÍÚ) neita aðild því þau vita hvað það þýðir fyrir þá.

Það er annars dapurlegt að sjá hvernig komið er fyrir Sjálfstæðisflokknum (sem ég reyndar studdi áður fyrr) en hann er í gíslingu hagsmunaafla.

Þórður Már Jónsson, 27.4.2009 kl. 18:36

11 Smámynd: Björn Leví Gunnarsson

Segðu mér Loftur, hver er munurinn á því að selja Ísland erlendu valdi með inngöngu í ESB og að selja Ísland erlendu valdi með því að gangast undir skuldir sem við getum ekki borgað?

Veit ekki betur en xD hafi þegar leitt þjóðina undir erlent vald í krafti skulda.

Björn Leví Gunnarsson, 27.4.2009 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 1663
  • Frá upphafi: 2291553

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1492
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband