Leita í fréttum mbl.is

Icesave samninganefndin. Hvar var sérfræðiþekkingin?

Samninganefnd ríkisstjórnarinnar í Icesave málinu var undir forustu Svavars Gestssonar stúdents og var að öðru leyti skipuð starfsfólki í stjórnarráðinu.

Samfylkingarfólk og Vinstri grænir gátu ekki leynt hneykslun sinni í vetur yfir því að fjármálaráðherra væri dýralæknir og Seðlabankastjóri lögfræðingur. Ítrekað töluðu málpípur þeirra í fjölmiðlum um,  að ein mesta meinsemdin í íslensku samfélagi væri skortur á sérfræðiþekkingu.

Í samræmi við það skipar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gamlan vopnabróður sinn úr Alþýðubandalaginu, Svavar Gestsson stúdent til að fara fyrir samninganefnd um flókin lögfræðileg, þjóðréttarleg og bankaréttarleg málefni vegna Icesave. Hvar skyldu VG og Samfylkingi hafa fundið viðunandi sérfræði hjá Svavari til að leiða samninganefndina eða næga sérfræðiþekkingu hjá nefndinni að öðru leyti. Gaman væri nú að heyra í fjölmiðlafólkinu sem mest hneykslaðist í vetur á skorti á sérþekkingu og þá sérstaklega Agli Helgasyni sem ítrekað fjallaði um málið.

Samningarnir um Icesave sem ríkisstjórnin hefur nú undirritað eru í samræmi við það sem við var að búast af jafn vanhæfri samninganefnd og um ræðir.  Í fyrsta lagi þá virðist hafa láðst að taka tillit til löglausri beitingu Breta á hryðjuverkalögum gagnvart Íslandi sem hefur kostað okkur gríðarlega fjármuni. Í öðru lagi þá er vaxtaákvæði samningsins gjörsamlega frjáleitt.  Greiðslutíminn er hins vegar góður og það er það eina.

Það er með ólíkindum að ríkisstjórin skuli hafa fallist á jafn slæma samninga fyrir Ísland.  Góð samninganefnd skipuð góðum sérfræðingum og ríkisstjórn sem byggi yfir nauðsynlegri sérfræðiþekkingu hefði ekki gert slíkan samning. Fjölmiðlamennirnir sem hrópuðu hvað hæst í lok síðasta árs og byrjun þessa ættu  að fjalla um málið út frá því sjónarmiði til að vera samkvæmir sjálfum sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Fréttir herma að þetta sé nánast sami samningur og þau drög sem Sjálfstæðisflokkurinn var tilbúinn að samþykkja skömmu fyrir jól.

Sigurjón Þórðarson, 7.6.2009 kl. 16:53

2 identicon

Já Jón; fólk hér er ekki ánægt með þennan ráðahag. Að mínu mati er ekki spurning hvort það sjóði upp úr heldur hvenær.

Hvers vegna var Svavar fenginn í málið ? Er hann hæfastur íslendinga ? Ég tel ekki svo vera. Hann sagði að þetta væri pólítískt úrlausnarefni.  Það er alrangt hjá manninum; enda reynist niðurstaðan sem byggð er á röngum samningsferlum og forsendum, óviðunnandi.

Hvers vegna var dómstólaleiðin ekki farin ? Má vera að ef hún hefði verið farin að þá hefði mjög óþægilegur sannleikur litið dagsins ljós fyrir stjórnmálaelítuna hér á landi; en við slíkan feril eru málvextir krufnir ? Má vera að þá hefði verið spurt:  Hvar eru fjármunirnir - hvert fóru þeir - spurning sem ekki má minnast á hér (þöggun).

Loks var ráðning Svavars hluti af þögguninn og "manipulation-inni".

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 17:03

3 Smámynd: Sigurður Ingi Jónsson

Tek undir hvert orð hjá þér Jón.

Sigurður Ingi Jónsson, 7.6.2009 kl. 17:36

4 identicon

Í þessa NEFND urðu að fara okkar FÆRUSTU sérfræðingar á ólikum sviðum og markmið átti auðvitað að vera að tryggja "engar vaxtagreiðslur" og alls ekki að skrifa upp á svona "óútfyltann tékka."  Maður skilur í raun ekkert hvað þetta lið er að bæla?  Það er eins og stjórnvöld & samninganefnd hafi ALLTAF gefið sér að við gætum ekki náð góðum samning - svoleiðis hugsunarháttur skilar auðvitað bara af sér vondum samning..!  Núverandi samkomulega er "GLÆPSAMLEGA lélegt...." og alveg óskiljanlegt að fjöldi fólks á GÓÐUM launum skuli skila af sér svona vinnu - algjörlega óskiljanlegt..!

kv. Heilbrigð skynsemi (eitthvað sem vantaði í nefndina..).

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 19:50

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Mig grunar nú að það hafi verið heill her af "flokksbundnum sérfræðingum" til aðstoðar ríkisstjórninni, bönkum landsins, Fjármálaeftirlitinu og ráðuneytum þegar landið fór á hausinn með stæl. Bankar og stjórnsýslan er einnig með eitt öflugasta tölvukerfi sem völ er á. Það vill svo til að landinn er með óvenju hátt menntunarstig og er varla þverfótað fyrir viðskiptafræðingum, hagfræðingum og lögmönnum!

Gæti verið að pólitíkin sé að þvælast of mikið fyrir á Íslandi?

Kjartan Pétur Sigurðsson, 7.6.2009 kl. 20:15

6 Smámynd: Haraldur Huginn Guðmundsson

Já þetta er öfgakenndur frasi,sem fær alltaf nýja mynd.Hvar eru sérfræði kröfurnar núna þegar verið er að semja um 660 miljarða.

Haraldur Huginn Guðmundsson, 7.6.2009 kl. 20:23

7 identicon

Saell Jón,

athyglisverd gagnrýni á samsetningu / skipun samninganefndarinnar íslenzku  , ef  hún á  vid rök  ad stydjast

Med  kvedju

Orri 

Orri Ólafur Magnússon (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 21:08

8 identicon

Mér sýnist þessi samningur mjög góður.

Í fyrsta lagi eru Bretar tilbúnir að lána til 15 ára afborgunarlaust fyrstu sjö árin. Vextirnir eru í samræmi við vexti á löngum skuldabréfum í pundum.

Ég held að ákveðnum þingmönnum veitti ekki af smá veruleikatékki. Við höfum ekkert val um að sleppa því að borga. Menn sem halda því fram eru ekkert annað lýðskrumarar.

Bretum bar engin skilda til að lána okkur fyrir þessu. Þeir hefðu getað sent okkur út á alþjóðlega lánamarkaði þar sem kjörin hefðu orðið enn verri og afborgunarskilmálarnir töluvert erfiðari. Verðmætið sem felst í lánaskilmálunum eru bæturnar fyrir beitingu hryðjuverkalaganna og þær eru gríðarlega mikils virði.

Það er ótrúlegt að horfa upp á það hvernig stjórnarandstaðan hagar sér. Það hefði mátt búast við þessu frá fámennum hóp einangrunarsinna á þingi en ekki öllu liðinu. Það er ótrúlegt að fylgjast með þessu liði reyna ala á tortryggni og þeir eru hreinlega að reyna að stofna til óeirða hér með alls kyns gífuryrðum og ósannindum. Þetta er ykkur til skammar!

Dude (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 22:28

9 Smámynd: Rauða Ljónið

Þau lofsungu loforðin fögru,

fyrir kosningar í röddunum - hrein.

Að bjarga börnunum okkar-

að gera ekki fjölskyldu mein.

 

En loforðin strax voru svikin,

fyrir raðherra stólana setu.

Hégóminn heljar tekinn,

og sannleikur úr húsinu rekinn.

 

Svo seldu þau þjóð mína,

í ánauð og neyða hana í neyð.

Og Íslenskri fjölskyldur setja í fjötrana mein,

svo fengu þau landinu í landinu drottna.

 

Hvert ungbarn er tekið og hlekkjað,

við hel þunga hamarsins stein.

Gert það að borga og borga,

því þrælinn er en ungur að árum,

en aldin hann verður að lokum,

þegar upp verða gerð þau gerræðis mein.

 

Því er þjóð mín nú svívirt og svikin,

fyrir Versala af verst gerð.

Fyrir níutíu árum síðan,

er Þjóðverjar lágu í stríðsins sárum

sá gjörningur sem þá var gjörður,

var af hinni verstu gerð.

 

Því læra ekkert landsfeður okkar,

af spjaldana skráðri sögu,

Því sálin var seld fyrir stólana setu

og hégóminn ræður þar för.

Svig.

Rauða Ljónið, 8.6.2009 kl. 03:52

10 identicon

Hver skrifaði upp á þessar Icesave-ábyrgðir fyrir hönd ríkisins á sínum tíma?

Vil það ekki oft gleymast í þessu öllu?

Hefur það ekki verið m.a.fyrrverandi fjármálaráðherra?

Mr. Jón Scout Commander (IP-tala skráð) 8.6.2009 kl. 21:55

11 Smámynd: Halla Rut

Ég sem hélt að Svavari Gestsyni hafi verið komið fyrir í London því engin vildi hafa hann og engin vissi hvað við hann átti að gera. Og svo er hann allt í einu að semja uppá líf og dauða fyrir alla Íslendinga jafnt núlifandi sem og þá er á eftir koma.

Þetta er auðvitað bara bilun. 

Nær hefði verið að senda Jón Ásgeir sjálfan enda samningamaður mikill eins og dæmin sanna. Náði að plata hálfann heiminn eða hér um bil.

Halla Rut , 8.6.2009 kl. 23:37

12 Smámynd: Jón Magnússon

Sigurjón þú ert að enduróma það sem Steingrímur J. Sigfússon segir. Árni M. Mathiesen hrakti það í kvöldfréttum. En þó svo væri þá er þetta jafn slæmur samningur fyrir því.

Jón Magnússon, 9.6.2009 kl. 00:16

13 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er þér algjörlega sammála Hákon.

Jón Magnússon, 9.6.2009 kl. 00:16

14 Smámynd: Jón Magnússon

Gaman að heyra frá þér Sigurður Ingi. Það mætti vera oftar. Vænti þess að hitta þig við tækifæri.

Jón Magnússon, 9.6.2009 kl. 00:17

15 Smámynd: Jón Magnússon

Ég sá í fréttum Jakob að þú ert kominn í hóp fremstu mótmælenda. Góð hugmynd þetta með gúmmíbjörgunarbátinn.

Jón Magnússon, 9.6.2009 kl. 00:18

16 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta held ég að sé alveg rétt athugað Kjartan að pólitíkin sé að flækjast ansi mikið fyrir hér á Íslandi. Þess vegna er Svavar valinn formaður samninganefndar.  Robert Wade sem einu sinni var átrúnaðargoð Vinstri grænna og Samfylkingarinnar talaði um vanda íslenska embættismannakerfisins og þeirri spillingu sem fælist í því að vina og fjölskyldubönd skyldu tekin fram yfir hæfileika og þekkingu. Ef til vill hafa VG og Samfylkingi gleymt núna átrúnaðargoðinu Robert Wade.

Jón Magnússon, 9.6.2009 kl. 00:21

17 Smámynd: Jón Magnússon

Því miður er samsetning samninganefndarinnar svona Orri. Það er nú það dapra í málinu

Jón Magnússon, 9.6.2009 kl. 00:21

18 Smámynd: Jón Magnússon

Það er alveg rétt Halla Rut þetta er bara bilun. Fyrst skilanefnd Landsbanka Íslands er með helsta skuldarann á launaskrá þ.e. Jón Ásgeir þá er það ekki fráleitt að hugsa með þeim hætti sem þú setur fram. 

Jón Magnússon, 9.6.2009 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 853
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 752
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband