Leita í fréttum mbl.is

Hver á Bónus?

Kaupþing er með 96% veð í fyrirtækinu Hagar sem rekur m.a. Bónus og Hagkaup. Þeirri spurningu er ósvarað hvort fyrirtækið er meira virði en skuldir þess við Kaupþing. Hver er þá hinn raunverulegi eigandi? Er það Kaupþing eða eru það hluthafar í fyrirtækinu?  Formlega séð eru það hluthafarnir og þeir reka fyrirtækið.

Í markaðsþjóðfélagi er miðað við það að eigandinn taki áhættuna og líði fyrir rangar ákvarðanir ef illa fer en græði ef hagnaður verði á fyrirtækinu. Nú hefur þessari meginforsendu markaðsþjóðfélagsins verið snúið á haus. Öll áhættan er hjá lánastofnunum, sem tapar peningunum ef illa fer en fær aldrei gróðann. Gróðinn fer til þeirra sem reka fyrirtækið.

Þessi tegund af öfugsnúnu markaðssamfélagi leiddi m.a. til bankahrunsins.  Þegar upp er staðið lendir ábyrgðin á skattgreiðendum. Icesave ábyrgðin er ein birtingarmynd þess.

Hvað þá með hina sem eiga fyrirtækin sín og reka á eigin áhættu. Af hverju eiga þeir að sætta sig við að samkeppnisfyrirtæki séu nú rekin í stórum stíl á kostnað skattgreiðenda í gegn um ríkisbanka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Þetta svarar sér sjálft.

Þetta er búið spil og Kaupþing tekur allt klabbið yfir innan fárra daga.

Níels A. Ársælsson., 24.8.2009 kl. 11:15

2 Smámynd: Einar Guðjónsson

Nova Kaupthinking getur það ekki fyrr en lánin falla.

Einar Guðjónsson, 24.8.2009 kl. 11:58

3 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Góður pistill að venju, en er nokkur furða að fólk velti þessu fyrir sér.  Þetta er fatalt.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 24.8.2009 kl. 16:37

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þeim fækkar sem betur fer sem halda hlífiskildi yfir Jóni Ásgeiri og föður hans Jóhannesi í kjötfarsinu.

Samfylkingin hefur lengst af alið þá við brjóst sér ásamt með Frjálslyndum að ógleymdum Ólafi Ragnari á Bessastöðum, forseta Baugs.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 24.8.2009 kl. 19:27

5 identicon

Það er oft sagt að sá sem eigi kröfurnar ráði félaginu. Orðið property þýddi í uppruna þess "sá sem ræður yfir" eða hafði "domain" yfir hlut. Kröfuhafar fyrirtækja ráða í raun fyrirtækjunum. Réttast væri í þessu tiltekna tilviki að Kaupþingi yrði gert að gera Bónus upptækt og afhenda það ríkinu sem síðan seldi það í útboði. Það er óþolandi að í hvert skipti sem verslað er í Bónus þá færi það pening á matarborð Jóns Ásgeirs, sem notar það svipað og Exista notar Lýsingu og VÍS, þ.e. sem mjólkurkýr, en þetta eru einu kýrnar sem þessi félög geta notað nú um stundir.

Gísli Kr. Björnsson (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 20:14

6 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Skilanefndir eiga að leysa þessi fyrirtæki til sín, með gjaldþroti ef þess gerist þörf og selja á almennum markaði til starfsmanna og almennings.  Það er lífsnauðsynlegt að koma þessum fyrirtækjum sem eru í gjörgæslu hjá skilanefndum í góða stjórn nýrra manna og byggja upp eðlilegt eigið fé og efnahagsreikning. 

Þetta kemur líka hlutabréfamarkaðinum á stað og bankarnir fá peninga inn fyrir söluna.  

Skilanefndirnar mega ekki falla í þá gryfju að halda að gömlu útrásarvíklingarnir séu þeir einu sem geta rekið fyrirtæki á Íslandi!  

Andri Geir Arinbjarnarson, 24.8.2009 kl. 20:27

7 identicon

Hm.. hm.. Þeir sem eiga Bónus eru þei sem eiga vörurnar sem greiddar eru tja 90-180 dögum síðar.  M.ö.o. verslun hefur þróast þannig að segull vörumerkis er það sem framleiðendur og birgjar treysta á.  Þetta er staðreynd og á ekki bara við Bónus heldur allar verslanakeðjur, hvers tilboðsþrælar við erum.    Nær væri að spyrja hvar verslar þú og af hverju?  Markaðurinn er fákeppnismarkaður í tilboðstjaldi sem við öll styðjum óbeint "að gömlum vana!"  Væri hægt að breyta þessu?  Varla með Samkeppnislögin eins og þau eru.

Sigurður (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 21:55

8 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Þennan pistil þinn ætti að ramma inn og hengja upp á vegg, hann segir allt sem segja þarf.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.8.2009 kl. 23:35

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Andri Geir, þetta er rétt.

En taktu eftir því að það er stefna Steingríms Rauðgrana að gera Ísland að Alþýðulýðveldi með flest fyrirtæki VEB, VolksEigeneBetriebe eins og það hét hjá lærimeistara Icesave-arkitektsins, Seifs Gestssonar. Steypustöðin VEB; Flugleiðir VEB; Penninn Eymundsson VEB; Þjarkur VEB; Bónus VEB; Landsbankinn VEB; Kaupþing VEB; Íslandsbanki VEB; ofl.ofl.

Hvar halda menn að þeir séu eiginlega staddir? Í Markaðsþjóðfélagi?

Halldór Jónsson, 24.8.2009 kl. 23:51

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sæll Jón.  Svo ég vísi til síðustu málsgreinar þinnar þá er ekki óviðeigandi að vísa í nýjustu auglýsingu bókabúðar Eymundssonar:  "Skólavörurnar hjá Eymundsson eru ódýrari en hjá Office1!

Eymundsson er gjörgæslufyrirtæki á ábyrgð skattborgara en Office1 er enn í einkaeigu.  Dragi svo hver sína ályktun.

Kolbrún Hilmars, 26.8.2009 kl. 16:27

11 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er rétt athugað Kolbrún að það þarf hver að draga sína ályktun af þessu. En með hvaða hætti getum við verið samkeppnisþjóðfélag og rekið stóran hluta samkeppnisfyrirtækja á ábyrgð skattgreiðenda og þeirra kostnað en hin á kostnað og ábyrgð eigenda sinna?

Jón Magnússon, 26.8.2009 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 616
  • Sl. sólarhring: 1170
  • Sl. viku: 2146
  • Frá upphafi: 2293614

Annað

  • Innlit í dag: 565
  • Innlit sl. viku: 1956
  • Gestir í dag: 548
  • IP-tölur í dag: 536

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband