Leita í fréttum mbl.is

Hvernig hefði Sigmundur fréttastjóri tekið á máli Sigmundar þingmanns.

Sigmundur Ernir er fyrrum fréttastjóri á Stöð 2. Á þeim tíma þótti Stöð 2 oft óvægin í umfjöllun sinni um einstaklinga. Þess vegna velti ég því fyrir mér hvernig Sigmundur Ernir fréttastjóri hefði tekið á því þegar Sigmundur Ernir þingmaður mætti fullur í vinnuna, sagði ósatt og baðst loks afsökunar án þess að gera grein fyrir því af hverju hann var að biðjast afsökunar.  Hefði Sigmundur Ernir fréttastjóri sagt að þetta væri bara stormur í rauðvínsglasi?

Þó það sé einfaldara að skilja fyllerí og ósannindi en golf og veisluhöld í boði auðhringja þá finnst mér það mun frekar þarfnast skýringa af hálfu þingmannsins Sigmundar Ernis. Hann þiggur boð MP banka í golf og veislu. Daginn eftir boð í golf og viðgjörning hjá 365 miðlum sem hafa nýlega fengið 4 milljarða skuld sína frysta eftir því sem sagt hefur verið í fjölmiðlum.  Af hverju var þingmanninum Sigmundi Erni boðið til þessara veisluhalda af hálfu þessara fyrirtækja og hvaða gjald skal greiða fyrir gjöfina.

Sigmundur Ernir alþingismaður skuldar þjóðinni skýringar á því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Sammála þér Jón. Góð grein. Sigmundur Ernir hefur glatað trúverðugleika sínum!

Helga Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 21:49

2 identicon

Mega fyndinn karakter, ný búinn að lýsa því yfir hversu gott var að losna undan "auðmönnum" og svo mætir hann bara "fullur í vinnuna eins og ekkert sé sjálfsagðara....!"  Þjóðar ógæfa hversu arfa lélega þingmenn Samspillingin býður þjóðinni upp á..!  Maður spyr hvenær verður mælirinn FULLUR...?

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 28.8.2009 kl. 22:36

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Vel orðað Jón..einmitt það sama og ég sagði við félaga mína..núna er hann hinum megin við borðið og drullaði upp á bak.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 28.8.2009 kl. 23:03

4 identicon

Sæll Jón.
Ég vil hér með leiðrétta orð þín um að Sigmundur Ernir hafi þegið boð í golf og viðgjörning hjá 365 miðlum. Föstudaginn, eftir þetta fræga fimmtudagskvöld í þinginu, fór fram árlegt golfmót starfsfólks allra fjölmiðla sem Sigmundur tók þátt í sem gestur. Þátttökugjald nam krónum 5.000. Aðdróttun þín um að honum hafi verið mútað til að gæta - í krafti þingmennskunnar -  hagsmuna 365 með boði í golfmót er ósmekkleg. 

Ert þú ekki einn sumsækjenda um starf saksóknara við embætti sérstaks saksóknara? Ég vona að vinnubrögð þín verði nákvæmari ef þú velst til þess starfs.

 kv,

Björn

Björn Þór Sigbjörnsson (IP-tala skráð) 29.8.2009 kl. 00:20

5 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Þegar maður er Samfylking eða hluti af henni, Jón, þá líðst manni allt...! Og það eiga engir eftir að gera athugasemdir við boðið í golfið ogveisluna nema einhverjir hægrisinnaðir nöldurseggir!

En auðvitað er það mun alvarlegra mál af hálfu þingmannsins að hafa þegið boð MP banka í golf og veislu heldur en að mæta sætkenndur í þingið. Það var auðvelt fyrir forseta þingsins að sjá hvernig ástatt var fyrir manninum og biðja hann um að flytja ekki ræðuna, eða alla vega að bíða með hana til næsta dags.

Ómar Bjarki Smárason, 29.8.2009 kl. 01:35

6 Smámynd: Jón Magnússon

Björn Þór ég var ekki að dæma Sigmund Erni ég sagði að hann þyrfti að gefa þjóðinni skýringar á því af hverju hann mætti á þessum stöðum. Ég sagði það sama fyrir nokkrum dögum þegar málið kom upp en Sigmundur hefur ekki skýrt það. Þú kemur með skýringu á síðara goflmótinu sem er góðra gjalda verð. Þess vegna spyr ég af hverju gerir þingmaðurinn ekki grein fyrir þessu. Það á ekki að vera erfitt eins og þú bendir réttilega á.  En það er misskilningur þinn að ég sé að fella dóma ég er ekki að því heldur biðja um skýringar.

Jón Magnússon, 29.8.2009 kl. 09:58

7 Smámynd: Jón Magnússon

Ég velti því einmitt fyrir mér í bloggfærslu um daginn af hverju forseti Alþingis sem var í forsetastól hefði ekki gripið í taumana.

Jón Magnússon, 29.8.2009 kl. 10:00

8 Smámynd: Jón Magnússon

Eitt enn Björn Þór. Þetta er ekki aðdróttun þetta kom fram í fjölmiðlum.

Jón Magnússon, 29.8.2009 kl. 10:01

9 identicon

Sæll Jón.
Er það ekki aðdróttun að spyrja hvaða gjald Sigmundi sé ætlað að greiða í staðinn fyrir boð um golf og viðgjörning hjá 365? Ég skil ekki þá röksemd þína að þar sem þetta hafi komið fram í fjölmiðlum sé ekki um aðdróttun að ræða. Þú gerir fyrirsvarsmönnum 365 það upp að hafa boðið Sigmundi í golf og veislu til að fá eitthvað í staðinn. Með flýtur að fyrirtækið þurfi ekki að greiða af lánum sínum. Þú ert klókur Jón og kannt að gefa í skyn, svo lítið beri á, að þar kunni Sigmundur að hafa komið að málum.
Þetta er ekki sérlega smekklegt.

 kv,

Björn

Björn Þór Sigbjörnsson (IP-tala skráð) 29.8.2009 kl. 13:36

10 Smámynd: Jón Magnússon

Það kann vel að vera rétt hjá þér að ég sé klókur Björn um það get ég ekki dæmt. Málið er hins vegar það að ég bið þingmanninn um að gefa skýringar á því sem komið hefur fram í fjölmiðlum um boðsferðir til tveggja stórra aðila í viðskiptalífinu.  Í því felst ekki aðdróttun heldur fyrirspurn af gefnu tilefni vegna opinberra ummæla.

Það að 365 þurfi ekki að greiða af lánum sínum kom fram í dagblaði um daginn og þetta haft eftir forstjóra fyrirtækisins.  Þannig að það er engin aðdróttun heldur er þingmaðurinn bara beðinn um að gefa skýringar. Ég er hér raunar að biðja hann ítrekað um að gefa þessar skýringar. Af hverju gefur hann þær ekki fyrst málið er svona einfalt?

Jón Magnússon, 29.8.2009 kl. 14:23

11 identicon

Ég svara náttúrulega ekki fyrir Sigmund en af öllu er ljóst að hann þarf ekki að gefa skýringar á að hafa farið í golf í boði 365. Um slíkt var jú ekki að ræða.
Ég veit ekki Jón hvort þú kýst að fara viljandi í kringum orð þín og mín eða hvort þú skiljir hvorki þig né mig. Þú hélst því fram fullum fetum að 365 hefði boðið Sigmundi Erni í golf og veislu. Og ekki nóg með það heldur spyrðu hvers vegna fyrirtækið hafi boðið honum og hvað það hafi ætlast til að fá í staðinn.
Það er aðdróttun í garð 365, sem má nú þola nóg án þess að svona þvæla sé á borð borin af býsna virtum hæstaréttarlögmanni og fyrrverandi alþingismanni. 

kv,

Björn

Björn Þór Sigbjörnsson (IP-tala skráð) 29.8.2009 kl. 15:18

12 Smámynd: Jón Magnússon

Björn Þór ég sagði í fyrsta svari mínu til þín að ég tæki orð þín góð og gild varðandi þetta golfmót sem þú talar um. Það er frekar eins og þú viljir ekki skilja og fyrsta svarið mitt tæmir málið af minni hálfu og ég ítreka aðeins, ef það er svona auðvelt að gera grein fyrir málinu af hverju gerir þingmaðurinn það ekki? Svo er ég ekki að drótta neinu að 365 miðlum heldur einungis að vísa til fréttar í dagblaði.

Jón Magnússon, 29.8.2009 kl. 18:23

13 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Góður pistill og snjallar athugasemdir. Takk fyrir það.

Baldur Fjölnisson, 29.8.2009 kl. 20:59

14 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það er ágætt að einhver nennir að gagnrýna og oft tókst fjári vel til í Kompásþáttunum. En ef menn velja sér hið vandasama hlutverk gagnrýnandans þá er heppilegra svo ekki sé sterkar að orði komist að hafa sjálfur hreinan skjöld.

Sigurður Þórðarson, 30.8.2009 kl. 08:47

15 identicon

Versti fylgikona hvers manns er Gróa á Leiti. Ýjinn er bróðir hennar og jafn ílla innrættur. Það þykir mér tíðindi að frakkur maður sem JM skuli taka á söguflakk með þeim systkinum. Björn Þór er drenglundaður maður og vel meintur. Íhugaður orð og ábendingar hans.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.8.2009 kl. 19:31

16 Smámynd: Jón Magnússon

Ágæti Gísli ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki til þessa hluta fjölskyldu þinnar sem þú nefnir í upphafi athugasemdarinnar og það er mikill misskilningur að ég hafi haft nokkuð með  þetta frændfólk þitt að gera. Björn Þór þekki ég ekki og það kann vel að vera rétt sem þú segir.

En mér sýnist þú vera með þessu að reyna að verja framkomu þingmannsins þíns. Það er í sjálfu sér góðra gjalda vert. En hann hefur enga skýringu gefið á þessum boðum og ég er að fara fram á að hann geri grein fyrir því af hverju honum var sérstaklega boðið. Ætlaði Samfylkingin ekki að koma á siðareglum fyrir þingmenn og bættu siðferði. Ég veit ekki hvort að ályktun þingflokksins þar sem þingmaður flokksins Sigmundur Ernir er hvítskúraður af þingflokknum er hluti þess siðferðis. Ég spyr var það  liður í að auka tiltrú og siðavendni þingmanna sem Samfylkingin hefur talað um?

Jón Magnússon, 1.9.2009 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 542
  • Sl. sólarhring: 1384
  • Sl. viku: 6187
  • Frá upphafi: 2276825

Annað

  • Innlit í dag: 513
  • Innlit sl. viku: 5751
  • Gestir í dag: 500
  • IP-tölur í dag: 492

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband