Leita í fréttum mbl.is

Sjómannaafsláttur

Fyrir nokkrum dögum sagđi Steingrímur J. Sigfússon ađ ekki stćđi til ađ afnema sjómannaafsláttinn. Nú hefur hann sett fram tillögur um ađ gera ţađ í áföngum á kjörtímabilinu.

Röksemd Steingríms nú(sem er önnur en hún var fyrir tveim dögum) er ađ unnt sé ađ afnema sjómannafsláttinn í áföngum en byrja ţó ekki strax af ţví ađ sjómenn hafi fengiđ launahćkkun á árinu á međan flestar ađrar stéttir hafi ţurft ađ sćta launalćkkun.  Í framhaldi af ţeirri fullyrđingu telur Steingrímur eđlilegt ađ byrja ađ skerđa sjómannaafsláttinn eftir tvö ár ţó ekkert sé vitađ hver kjör sjómanna verđa ţá.

Eđlilegt er ađ Steingrímur sé spurđur ađ ţví í framhaldi af ţessum vangaveltum sínum af hverju ţađ er verjandi ađ ţyngja skattheimtuna á ţeim sem lćkkađ hafa í launum strax en fresta skattaţyngingunni hjá ţeim sem hafa hćkkađ í launum um tvö ár. Ţurfa ekki ţeir sem hafa nú verri kjör frekar á umţóttunartíma ađ halda en ţeir sem hafa notiđ kjarabótar á árinu?

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Sćll Jón.

Ţetta eru mjög góđar spurningar hjá ţér og fróđlegt vćri ađ krefja SJS svara viđ ţeim.  Grunar mig ađ ţađ verđi fátt um svör, nema ţetta falska bros sem hann setur upp á mínútu fresti í hverju viđtali...

Kv. Sigurjón

Sigurjón, 27.11.2009 kl. 19:25

2 Smámynd: Eiđur Svanberg Guđnason

Sćll Jón,

Spurt er af forvitni: Ert ţú hlynntur ţví eđa andvígur ađ sjómannafrádrátturinn sé  afnuminn ? Pétur  Blöndal , samherji ţinn og fyrrum kollega ţinn gaf skýr svör úi kvöld.

Ţađ ţarf pólitíoskt hugrekki til ađ taka á ţessu máli. Ţađ hefđu menn átt  ađ gera fyrir löngu.

Eiđur Svanberg Guđnason, 27.11.2009 kl. 21:48

3 identicon

 

Blessađur Jón.

Fróđlegt vćri ađ fá ţína skođun á tilverurétti sjómannafsláttarinns. 

Ekki veit ég hvort ţessi sjómannaafsláttur hafi veriđ réttlátur á sínum tíma, ţegar hann var settur á. Hugsanlega hefur einhver réttlćting veriđ til ţá, vegna einhvers ţjóđfélagsástands. En ţessi gjörningur var vissulega barn síns tíma og ćtti ađ hafa veriđ afnuminn fyrir löngu.

Sá rökstuđningur, sem mađur heyrir frá sumum fyrir áframhaldi ţessa gernings er ađ mínu mati algerlega ga ga.

Ţegar ég var ungur mađur sigldi ég á fraktskipi í eitt ár.

Í meira en 30 ár vann ég hjá stóru opinberu fyrirtćki ,viđ vinnu sem var ađ stórum hluta fjarri heimili mínu í langan tíma, oft uppi í óbyggđum. Í ţessari fjarveru  frá fjölskyldu minni naut ég ekki jafn góđrar viđveru og ég hafđi haft ţegar ég var á sjónum. Ekki hafđi ég skattaafslátt fyrir ţessa vinnu. En ég fékk ýmist borgađ uppihald og fćđi eđa var á lögbođnum dagpeningum allt eftir samningum viđ vinnuveitanda.

Ađstađa sjómanna og fćđi um borđ hlýtur alfariđ ađ vera samningur milli ţeirra og útgerđarmanna.

Ríkiđ á ekki ađ borga neina niđurgreiđslu í ţessu sambandi.

En ert ţú sammála flokksfélaga ţínum, Pétri Blöndal?

Svavar Bjarnason (IP-tala skráđ) 27.11.2009 kl. 21:52

4 Smámynd: Jón Magnússon

Hann setur örugglega upp brosiđ Sigurjón

Jón Magnússon, 27.11.2009 kl. 22:27

5 Smámynd: Eiđur Svanberg Guđnason

 Jón, ertu sammála Pétri, eđur ei ?

Eiđur Svanberg Guđnason, 27.11.2009 kl. 22:32

6 Smámynd: Jón Magnússon

Eiđur og Svavar ég ţakka ykkur fyrir góđar fćrslur en sem svar viđ ţví sem ţiđ spyrjđ mig ađ ţá vil ég gjörbreyta skatta- og velferđarkerfinu.  Ţannig verđi allar undanţágur afnumdar og ţeir sem eru međ tekjur yfir ákveđnu lágmarki sem nćgir til framfćrslu greiđi skatta en ţeir sem eru međ tekjur undir ţví lágmarki fái greitt úr sameiginlegum sjóđum. Ţetta vćri mun ódýrara kerfi en viđ höfum í dag. Ţá mćtti um leiđ afnema ţvingađan lífeyrissparnađ, ellilífeyri, örorkulífeyri o.s.frv. Ţegar talađ er um tekjur ţá á ekki ađ skipta máli hvernig ţćr verđa til ţ.e. hvort heldur fyrir vinnu, vexti af dauđu fé eđa húsaleigutekjur o.s.frv.

Einmitt í stöđu eins og viđ erum í núna ţarf ađ hugsa málin upp á nýtt og athuga hvađ er hagkvćmast ađ gera í skatta- og velferđamálum. Ţví miđur er Steingrímur ekki ađ standa sig og virđist ekki hafa unniđ heimavinnuna sína og snýst ţví eins og skopparakringla aftur og aftur m.a. í ţessu máli varđandi sjómannaafsláttinn.

Jón Magnússon, 27.11.2009 kl. 22:34

7 identicon

Ţakka svariđ jón.

Ég get tekiđ undir međ ţér ađ mestu međ viđhorf ţín til skatta- og velferđamála.

En ég tek alveg undir međ SJS um sjómannafrádráttinn.

m.b.k.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráđ) 27.11.2009 kl. 23:18

8 Smámynd: Eiđur Svanberg Guđnason

 Jón, ţú svarar ekki ţví sem um er spurt !

Eiđur Svanberg Guđnason, 27.11.2009 kl. 23:58

9 identicon

Kerfiđ sem viđ erum međ í dag er mjög einfalt og fáar undanţágur í ţví.  Einu undanţágurnar í kerfinu snúa ađ opinberum starfsmönnum og hálaunastéttum.  Ţ.e. sjómannaafsláttur, laun í formi dagpeninga hjá flugmönnum og stjórnmálamönnum. 

Guđmundur (IP-tala skráđ) 28.11.2009 kl. 10:38

10 Smámynd: Jón Magnússon

Eiđur er ţađ ekki fullnćgjandi svar ađ ég segist vilja afnema allar undanţágur í skattalögum?

Jón Magnússon, 28.11.2009 kl. 10:48

11 Smámynd: Jón Magnússon

Góđ ábending Guđmundur ţakka ţér fyrir.

Jón Magnússon, 28.11.2009 kl. 10:49

12 Smámynd: Sigurđur Ţórđarson

Ólíkt ţví sem margir halda ţá er sjómannaafsláttur ekki séríslenskt fyrirbrigđi, ţađ hins vegar fiskimannaafslátturinn eftir ţví sem eg veit best.

Satt best ađ segja veit ég ekki um neitt land ţar sem farmönnum er gert ađ skila sömu sköttum og öđrum stéttum. Ég er ekki viss um ástćđuna en mig grunar ađ ţađ sé vegna ţess ađ ţessi grein er í alţjóđlegri samkeppni, jafnvel enn frekar en tryggingafélög og bankar.

Íslensk stjórnvöld hafa veriđ mjög treg ađ átta sig á ţessu. Fiskveiđar sem ekki eru í alţjóđlegri samkeppni hafa notiđ mikilla skattfríđinda og mun meiri en vöruflutningar sem keppa á alţjólegum markađi. Niđurstađan er sú ađ íslenskir farmenn borga flestir skatta í Fćreyjum og Danmörku.

Sigurđur Ţórđarson, 28.11.2009 kl. 16:14

13 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Gaman vćri ađ vita hvađ ríkiđ borgar í dagpeninga á ári eins og vitađ er eru ekki borgađir skattur af ţeim og atvinnu veitandinn ţarf ekki ađ borga tryggingagjald af ţeim heldur.

Hef unniđ örfáa daga fyrir ríkisstofnun ţá fékk ég laun greidd ađ stórum hluta sem dagpeninga,var svo sem ánćgđur međ ţađ en kannski ekki sanngjarnt.

Ragnar Gunnlaugsson, 29.11.2009 kl. 12:08

14 Smámynd: Lúđvík Júlíusson

Afnám sjómannaafsláttar mun skerđa laun sjómanns međ 2 milljónir á ári um 11,5% á međan laun sjómanns međ 16 milljónir skerđast um ađeins 1,5%.

Laun allra sjómanna hafa ekki hćkkađ, laun sumra hafa stađiđ í stađ eđa jafnvel lćkkađ.  Frjálslyndir hagfrćđingar eru mjög andstćđir međaltölum ţví ţađ eru einstaklingarnir sem skipta máli, ekki međaltaliđ.  Er réttlćtanlegt ađ hćkka skatta á lágtekjufólk um 11,5% út af međaltali?

Er ekki komiđ nóg af ţví ađ skattpína láglaunafólk?

Lúđvík Júlíusson, 29.11.2009 kl. 22:37

15 Smámynd: Jón Magnússon

Ţetta er góđ athugasemd Sigurđur ţakka ţér fyrir.

Jón Magnússon, 30.11.2009 kl. 17:22

16 Smámynd: Jón Magnússon

Ragnar ţađ ţarf vissulega ađ taka margt til skođunar ţví víđa er potturinn mölbrotinn eins og ţú bendir réttilega á.

Jón Magnússon, 30.11.2009 kl. 17:23

17 Smámynd: Jón Magnússon

Lúđvík ég vil draga úr skattpíningu og hefđi viljađ afnema tekjuskatt međ öllu nema á hátekjum. Annađ er vćri komiđ upp svokölluđu neikvćđu tekjuskattskerfi.  Skattpíningin veldur ţví ađ viđ fáum óréttlátt skattkerfi sem líkist helst svissneskum osti ađ ţví leyti ađ holurnar taka meira pláss en maturinn.

Jón Magnússon, 30.11.2009 kl. 17:26

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 31
  • Sl. sólarhring: 64
  • Sl. viku: 1692
  • Frá upphafi: 2291582

Annađ

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 1519
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband