Leita í fréttum mbl.is

Ok flokksræðisins

Uppreisnarfólkið í þingflokki Vinstri grænna hefur beygt sig undir ok flokksræðisins.

Atli Gísla, Lilja Móses og Ásmundur Einar, hafa undanfarið lýst flokksræðinu og svikum flokksforustunnar við hugsjónir Vinstri Grænna. Í samræmi við þær hugsjónir greiddu þau ekki atkvæði með fjárlagafrumvarpinu af því að ríkissjóðshallinn var ekki nógu mikill að þeirra mati.

Flokksforustan sendi þremenningunum tóninn fyrir jól og þau svöruðu fullum hálsi og töluðu um flokksræði, svik við stefnu flokksins og foringjaræði.  Fólkið í landinu bjóst því við miklum átakafundi í gær þegar þingflokkur Vinstri grænna kom saman í vistaverum sínum í gömlu Moggahöllinni. Búast mátti við að gustmikil Lilja stormaði af fundi og fasprúður Atli færi en samt ekki eins óðslega

Þegar leið að kvöldi varð ljóst að hinir "baráttuglöðu og  husjónaríku" þingmenn Vinstri grænna, Atli, Lilja og Ásmundur höfuð játast undir ok flokksræðisins og samþykkt að ganga í takt framvegis undir styrkri stjórn flokksræðisins og foringjans. Yfirlýsingarnar um stefnufestu og svik við stefnu flokksins voru foknar út í veður og vind. Með einbeittum vilja beygðu uppreisnarliðarnir sig undir okið.

Nú vita menn  og það opinberaðist í gær, að munurinn á Atla Gíslasyni, Ásmundi Einari og Lilju Mósesdóttur og tígrísdýrum er sá að þau eru pappírstígrísdýr og tannlaus þegar kemur að því að standa við stóru orðin og þær hugsjónir sem þau segja sér kærari en nokkuð annað.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Lilja lýsti einka samtali hennar og Steingríms,sem því besta sem þeirra hefði farið á milli. Hann er mælskur og nær örugglega að snúa dálæti fólsk á henni,upp í falskan ómarktækan áróður. 

Helga Kristjánsdóttir, 6.1.2011 kl. 12:58

2 Smámynd: Jón Magnússon

Alla vega þagði Lilja í gær og fram eftir degi í dag.

Jón Magnússon, 6.1.2011 kl. 22:35

3 Smámynd: Elle_

Jón, þú lýstir mínum skoðunum í pistlinum.  Nema ég vil ganga enn lengra og segja að við vissum fyrir löngu að Atli og Ásmundur hefðu beygt sig undir ok foringjaræðisins og stjórnarflokkkaræðisins, sorglega, það var daginn sem þeir sögðu JÁ við ICESAVE kúguninni fyrst, fyrir um 1 + 1/2 ári síðan.  Nú hefur Lilja M. lýst yfir endurtekið að hún styðji ICESAVE-STJÓRNINA og hvað sem henni mislíkar við stefnuna.  Það gerir engan stjórnmálamann trúverðugan.

Elle_, 7.1.2011 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 27
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 2262
  • Frá upphafi: 2296199

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 2092
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband