Leita í fréttum mbl.is

Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu, en verða beðnir um nafn og netfang eftir að smellt er á "Senda". Þeir fá staðfestingarslóð senda í tölvupósti og þurfa að smella á hana til að gestabókarfærslan birtist.

Gestir:

Varðandi Sjúkratryggingar Íslands (SI) og athugasemd sem að birtist ekki hjá þér

Sæll Jón, Takk fyrir góða grein hérna, en ég sé að athugasemd sem ég setti inn birtist EKKI, þrátt fyrir að ég hafi samþykkt hana, en ég vildi hérna benda þér á þetta hér, eða: "Við áætlun á rekstrarkostnaði hjá SÍ er miðað við að talsverður fjöldi umsókna berist vegna COVID-19 bólusetningar. Athuga þarf að heildarkostnaður vegna bráðabirgðaákvæðisins gæti orðið miklum mun meiri en hér er áætlað. SÍ berast um 150–180 umsóknir um bætur úr sjúklingatryggingu á hverju ári. Hvert mál felur í sér gagnaöflun og mat á bótarétti auk mats á umfangi tjóns og upphæð bóta. Málsmeðferð hvers máls er því umfangsmikil. Stöðugildi í sjúklingatryggingu eru nú 4–5. Í kostnaðarmatinu er reiknað með að bæta verði við tveim viðbótarstöðugildum lögfræðinga til tveggja ára og tveimur stöðugildum fulltrúa. Umfang gæti þó jafnvel krafist fleira starfsfólks. Að þessu virtu er talið að kostnaður ríkissjóðs vegna frumvarpsins geti orðið kr. 128.228.383 á ári næstu tvö árin." https://www.althingi.is/altext/151/s/0463.html?fbclid=IwAR1TCmpfjtMAHztyorBj6s0aY099wtlzzKY7tXF_VfzqOjG5KRKWjA2o7_A

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 11. júlí 2021

Gleðilega páska, því Jesús er upprisinn.

Sæll Jón Magnússon. Nú skaust þú yfir markið, þegar þú spyrð: “Höldum við upp á páska?” Þú ert vafalaust góður lögmaður, en lögvitringur ert þú ekki, þegar kemur að lögmálsbók Ísraels og kristinna manna. En þessi bók er Biblían. Allt sem Jesús gerði og sagði var í anda lömálsins og spámannanna. Í rökræðum sínum við djöfulinn hóf Hann ætíð mál sitt á orðunum: “Ritað er”. Sömuleiðis sagði Hann: “Ég er ekki kominn til að afnema lögmálið, heldur til að uppfylla það.” Það gerði Hann með dauða sínum (hrútslambið) og upprisu, til þess að hinir kristnu (sbr. frumburðina) þyrftu ekki að deyja. Hinir munu deyja vegna vanrtúar sinnar. Það verða ekki kynþáttabundin fjöldamorð. Þú trúir á Jesú! Láttu þann Jesú vera Jesú Biblíunnar, sem tengir okkur kristið fólk við páska Gamlatestamentisins, sem er okkar aðal hátíð. Þessi hátíð er þó uppfærð (uppfyllt) í Jesú Kristi. Megi Hann leiða þig inn í Sannleikann. Gleðilega páska. Guðmundur Örn Ragnarsson, prestur.

Guðmundur Örn Ragnarsson, prestur (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 12. apr. 2020

Þú talar hér sem spámaður Guðs

Grein þín Jón Magnússon, LOKAÐAR KIRKJUR, er sannarleg spámennleg. Í Hebreabréfinu 10. kafla, 25. versi stendur: “Vanrækið ekki safnaðarsamkomur yða eins og sumra er siður, heldur uppörvið hver annan, og það því fremur sem þér sjáið að dagurinn færist nær.” Þá getum við einnig lesið hjá Amosi spámanni í kafla 8, frá versi 11: “Sjá þeir dagar munu koma, segir Drottinn Guð, að ég mun senda hungur inn í landið, ekki hungur eftir brauði né þorsta eftir vatni, heldur eftir því að heyra Orð Drottins svo að menn skulu reika frá einu hafinu til annars og renna frá norðri til austurs til þess að leita eftir Orði Drottins. En þeir skulu ekki finna það.” Þökk fyrir grein þína, Guð blessi þig, Guðmundur Örn Ragnarsson, prestur. Staddur í Portúgal.

Guðmundur Örn Ragnarsson, prestur (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 7. apr. 2020

Stefán

Skemmtilegt að lesa um kynni ykkar Stefáns. Nafnið stendur mér nærri kæri granni frá Paradise. Og margir með þessu nafni eru eftirminnanlegri en aðrir.

helga kristjansdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 23. feb. 2020

Ólafur Gunnarsson

Það sem er að ske hér á landi vegna innflytjenda sem heimfærir sína menningu inn í okkar land og komast upp með það, á eftir að eyðileggja íslenskt samfélag eins og við þekkjum það. Þetta þekki ég af eigin raun eftir búsetu mína í Svíþjóð. Þar er hægt að skoða hvernig málin voru og hvernig þau eru núna. Myndefni er til á youtube. Skoðið Rosengard í Malmö. Þar er Svíþjóð ekki lengur Svíþjóð. Þetta er sorglegt hvernig ráðamenn okkar lands leyfa síðan þessu að viðgangast. Nú fer fyrsta Moskan í loftið.

Ólafur Gunnarsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 20. mars 2013

Margaret Thatcher

Blessaður Jón og Gleðilegt ár, Sá greinarstúf þinn í mbl. og gat ekki orða bundist. Eflaust var ekki MT alvon, varla nokkur manneskja er það. En einn góður vinur hennar var Pinochet og hún kallaði Nelson Mandela terrorista. Þetta tvennt segir nokkuð um mannkosti þessa stjórnmálamanns. Bestu kveðjur Einar S Björnsson læknir LSH

Einar S. Björnsson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 8. jan. 2013

Gestabók

Sæll Jón, hef beðið eftir að þú bjórir þig fram til anlingis í næstu kostningum, en nú er ég ráðalaus, þar sem ég hef sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn, kveðja John Hill

John Earl Kort Hill (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 31. des. 2012

Sjálfstæðismaður / Sjálfstæður Maður..?

Sæll Jón, Hvort ertu/Þú..? Kv. Palli Kristjánss.

Páll Björgvin Kristjánsson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 19. júní 2012

Anna Benkovic Mikaelsdóttir

um innflytjendur

Jón, ertu til í að birta aðeins annað innlagið frá mér? Vissi ekki að þú þyrftir að samþykkja. Eða hvorugt, þú ræður, bara ekki öll, fremur engin.?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, mið. 16. maí 2012

Anna Benkovic Mikaelsdóttir

um innflytjendur

Jón, ertu til í að birta aðeins annað innlagið frá mér? Vissi ekki að þú þyrftir að samþykkja. Eða hvorugt, þú ræður, bara ekki öll, fremur engin.?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, mið. 16. maí 2012

Spurning

Svona fyrst þú birtir þetta ekki í kommentakerfinu þá prófa ég hér: ________________________________________ Sjálfsagt að athuga hvort Linda Blöndal vilji biðjast afsökunar. En þarft þú ekki að gera það sjálfur, Jón Magnússon, til dæmis fyrir ummæli þín um níumenningana sem sýknaðir voru af ákæru um árás á Alþingi? Í bloggfærslu þinni — sem nokkrum dögum síðar var að miklum hluta endurbirt í Staksteinapistli Morgunblaðsins (og lesa má hér: http://jonmagnusson.blog.is/blog/jonmagnusson/entry/1054616/) — sagðir þú meðal annars: „Þegar óeirðafólkið sem sótti að Alþingi, slasaði starfsfólk við öryggisvörslu og olli eignaspjöllum er sótt til saka fyrir framferði sitt, þá finnst þeim Birni Val og Guðmundi eðlilegt að stjórnmálin hafi afskipti af málinu. Treysta þeir ekki dómstólum landsins?“ Fyrir það fyrsta var enginn ákærður fyrir eignaspjöll — þar ferðu með rangt mál. Í öðru lagi var einungis einn af hinum níu ákærðu dæmdur fyrir eitthvað sem flokkast mætti undir orð þín um að „slasa starfsfólk við öryggisvörslu“. Í þriðja lagi var enginn dæmdur fyrir eitt né neitt sem flokkast gæti sem óeirðir. Í febrúar 2011 voru níumenningarnir allir sýknaðir af árásarákærunni sem og ákærum um húsbrot og brot á 122. grein almennra hegningarlaga — í stuttu máli var sýknað í öllum helstu ákæruliðum. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem ríkissaksóknari ákvað að áfrýja ekki (og lesa má í heild sinni hér: http://domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S201000149&Domur=2&type=1&Serial=1) segir meðal annars: „Ákærðu, sem voru óvopnuð, fóru í hópi 20 – 30 manna inn í Alþingishúsið og var förinni heitið á þingpallana (eins og beinlínis er tekið fram í ákærunni) en ekki inn í þingrýmið. Sem fyrr segir er engin vísbending í málinu um það að ákærðu hafi ætlað sér að aðhafast annað en að láta heyra í sér mótmæli vegna ástandsins í landinu frá þingpöllunum. Verður með engu móti talið að fyrir þeim hafi vakað að reyna að kúga Alþingi eða að athafnir þeirra geti talist vera sú árás á þingið að sjálfræði þess hafi verið hætta búin. Ber samkvæmt þessu að sýkna öll ákærðu af ákæru fyrir brot gegn 1. mgr. 100. gr. almennra hegningarlaga.“ Nú hlýtur þú — svona í ljósi þess að þú ert farinn að krefja aðra um afsökunarbeiðni vegna þess sem þér þykir meiðandi ummæli — að sjá sóma þinn í því að biðjast afsökunar á þessum helberu lygum sem þú lést út ganga um níumenningana. Er það ekki?

Magnús Þ. (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 22. mars 2012

Lífeyrissjóðirnir "okkar" eða hvað

Sæll Jón. Þegar ég las pistilinn um ísbúðina kom mér fyrst í hug athugasemdir Vilhjálms Egilssonar um tap lífeyrissjóðsins Gildi. Hann lét hafa eftir sér að fjárfestingastefna Gildis væri ekki áhættusækin. Engu að síður skilaði Gildi hæstu ávöxtun lífeyrissjóða um árabil. Þetta er athyglisverð mótsögn því það er eitt af grundvallaratriðunum í fjármálafræðinni að til þess að ná meiri ávöxtun en markaðurinn þarf að taka aukna áhættu. Það er eina leiðin til að ná ávöxtun umfram það sem er skilgreint sem örugg fjárfesting. Mín skoðun er sú að ástæða þess að Gildi tapaði innstreymi sjóðfélaga sinna yfir heilan áratug sé einmitt sú að Gildi ástundaði áhættusama fjárfestingastefnu og fyrirtækjakaup lífeyrissjóðanna nú er ekkert annað en áhættusamt glæfraspil. Kveðja Ásbjörn S. Þorleifsson.

Ásbjörn S. Þorleifsson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 24. ágú. 2010

K.H.S.

sæll jón

var að senda þér vinarkveæjur en veit ekki hvort þú manst nokkuð eftir mér. Við vorum saman í þrekþjálfun hjá Jóhönnu Tryggvadottur í Álfheimunum í dentíð. hef fylgst með þér síðan bestu kveðjur

K.H.S., fim. 15. júlí 2010

Jakob Þór Haraldsson

Hafa samband við Jakob

Heill og sæll félagi, endilega hafa samband fljótlega við Jakob (8627127) vegna smá ráðgjöf til þín.

Jakob Þór Haraldsson, mán. 22. feb. 2010

Haraldur Huginn Guðmundsson

Gott frammtak

Mér fannst gott hjá þér að nefna þetta með hann Egil.Ég hef lengi verið þessarar skoðunar!Og flestir hjá RUV hafa verið talsmenn Samfylkingarinnar.

Haraldur Huginn Guðmundsson, sun. 1. nóv. 2009

Sigurður Þór Guðjónsson

Fyrirspurn

Vildirðu nokkuð upplýsa mig, þú, sem kallað hefur málflutning minn bull í athugasemd hjá þér, hvers vegna þú birtir ekki aðra athugasemd frá mér sem víkur að þessari bull fullyrðingu?

Sigurður Þór Guðjónsson, fös. 16. okt. 2009

"Jón er kominn heim" - (með sínu lagi !!)

Mikið er ég feginn að þú ert loksins kominn heim. Ég fagna því og styð þig heilshugar. Bestu kveðjur Örn Jónsson

Örn Jónsson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 10. mars 2009

Gísli Bergsveinn Ívarsson

Velkominn heim

Heill og sæll félagi Velkominn heim

Gísli Bergsveinn Ívarsson, sun. 22. feb. 2009

Skilanefnd Landsbankans

Sæll Jón. Eins og talað út úr mínu hjarta, varðandi Jón Ásgeir og skilanefndina. Hverslags fíflagangur er þetta eiginlega. Veit Hörður Torfason af þessu?

Hjörtur Ben (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 8. feb. 2009

Slátrun á fólki í Palestínu

Hefði viljað geta svarað skrifum þínum um Palestínustríðið, en las það of seint. Beint út sagt var þar verið að slátra fólki, ungum börnum og eldri borgurum. Alþjóðasamfélagið og Sameinuðu Þjóðirnar verða að verja almenna borgara þar og sækja Ísrael til saka fyrir glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi. Bandaríkjastjórn er jú meðsek fyrir að stoppa ekki hryllinginn. En það er ekki vilji fólksins almennt í Bankaríkjunum. Yfirgnæfandi skrif fólks þaðan í "comments" í New York Times lýsti árásunum sem ómannúðlegum hryllingi og margir kölluðu árásirnar ´genocide´. Allir sem vettlingi geta valdið skrifi til Amnesty International og Sameinuðu Þjóðanna. Elly E

Elly E (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 22. jan. 2009

Hvar eru Frjálslyndir

Ég er farinn að hafa áhyggjur af því hversu lítið ber á Frjálslyndum í öllu þessu hafaríi sem er í gangi um þessar mundir, fólk er bara hreint út sagt að gleyma að Frjálslyndir eru til. Nú er tækifærið til þess að láta til sýn taka og hafa hátt um okkar skoðanir á ástandinu. Skil bara ekki í ykkur þingmönnum að láta ekki í ykkur heyra. OG ÞAÐ HÁTT. Ekki tókum við þátt í sukkinu og eigum þess vegna að taka stóran þátt í að heimta upplýsingar og svör.

Sæmundur (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 10. des. 2008

vÍSITALA

Afskrifa vísitöluna af húsnæðis lánum ár aftur í tíman

Logi Guðm (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 30. okt. 2008

Hver er tilgangur fyrir þá sem geta hjálpað sér sjálfir.Eða þeir sem geta ekki hjálpað sér!!!

Ég rakst á síðu þín kæri Jón. Sú hugmynd sem ég ber í brjósti mér að stjórn. Er með öllu brotin í mola!!! Hvað er það sem stjórn lands okkar gerir?? Hún byggir upp fólk sem má ekkert eiga né gera! Dæmi: Félagslega húsnæðiskerfið Fólk er búið að vera á lista í hvað 3 og allt upp í 5 ár. Það er farið eftir matskerfi hjá þeim. En þetta er tengt tekjum hjá fólki. Manneskja sem er með um 1,5 miljón á ári. Einstæð með 1 dóttir,var með 11 stig og í forgang Búinn að bíða í 3 ár,alltaf sagt að hún sé í forgang.Ekkert skeður og hefur manneskjan verið með dóttir sína á flakki á mörgum stöðum. Henni er tilkynt þegar hún hringir til að ítreka umsókn sína.Að hún sé búinn að missa 1 stig þar sem tekjur hennar hafa hækkað á milli ára. Ástæða: Hún fékk aukavinnu þar sem hún áhvað að fara í skóla og safna sér pening. En það furðulega er að þetta er ekki nema 300 þúsund kr aukning frá ári á undan. Staða: Hún er dottin úr forgang,vegna þess að hún nær í smá aukapening. Eru við að hamra á því að fólk má ekki verða til eða eiga hluti??? Hví ekki að hjálpa þeim sem geta ekki hjálpað sér að því að geta hjálpað sér og sýna stuðning. Þetta er bara svona eitt dæmi sem ég veit um. Hvað með fólk í sambúð?? Maki missir vinnu, var í 50% stöðu en laun rosalega góð.Af þeim sökum fær manneskjan bara 50% atvinuleysisbætur sem gera 70 þúsund á mán.Skerðing upp á 100 þúsund á mánuði.Tekið fram að fólk hefur ekki hugmynd að það eigi bara rétt á 50% bótum,þar sem það hefur ekki lent í svona stöðu áður.En svo er leitað til Félagsþjónustu.En þar sem annar maki er í vinnu og með tekjur,og fólk á bíl og fasteign.Er ekki einu sinni hægt að sækja um hjálp hjá sveitafélagi þar sem ætlast er til að þú lifir á einum tekjum. Mér blöskrar þessi sjónarmið. Hví er ekki hjálpað fólki sem getur hjálpað sér. Til að forða því frá að missa öryggið sitt sem það hefur byggt upp á mörgum árum. Nei Stjórnin vil að við verðum Aumingjar og lifum á engu,og verðum öll undir fátækramörkum. Þetta vantaði í stefnulýsingu þeira greinilega! Mér langaði að koma þessu til þín. Þar sem ég veit að þú hlustar á fólk og mikið er talað um þig í kringum okkur fjölskylduna Gangi þér vel Jón Kveðja Lena Huld

Lena Huld (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 23. okt. 2008

Hjálmar Diego

Það þarf að koma þér á ruv2 eða bylggjuna með þessa pistla þína þeir eru vel sagðir on ná athyglinni.

Hjálmar Diego (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 22. okt. 2008

Rósa Aðalsteinsdóttir

Skyldleiki :-)

Sigurður Halldórsson 1. janúar 1829 - 12. mars 1894 Halldór Sigurðsson 1859 - 1931 Sigurður Rósinkar Halldórsson 1897 - 1984 Stefanía Sigurðardóttir 1925 - 1968 Rósa Aðalsteinsdóttir 1958 Helga Sigurðardóttir 1853 - 1938 Margrét María Pálsdóttir 1884 - 1922 Magnús Jónsson 1916 Jón Magnússon 1946 Kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, fim. 16. okt. 2008

Hvorki þér né mér að kenna!

Er að hlusta á Sögu pistilinn þinn. Ég er líka einn af þeim fjölmörgu sem bera enga sök á ástandinu (keypti ekki betri bíl, betra húsnæði eða annan lúxus, blöskraði þessi geðveiki) og þurfum að sitja undir vitleysu eins og "við höfum ÖLL dansað í kringum kjötkatlana". Vil bara mótmæla mati þínu á sök Framsóknarflokksins samanborið við Samfylkinguna, Framsókn hafði alla möguleika á að stoppa vitleysuna á meðan eitthvað svigrúm var, erlend umsvif bankanna enn lítil og góðæri í heiminum. Í staðinn kynntu þeir undir bálinu með fáránlegum fjárfestingum og öðru verra (Finnur Ingólffson, Árni Magnússon, ...). Samfylkingin er aftur á móti svo vitlaus að fara í þessa ríkisstjórn án þess að fá nokkuð alvöru ráðuneyti, t.d. fjármálaráðuneytið, bara jakkafata og mussuráðuneyti). Þeir höfðu lítið sem ekkert svigrúm til að gera neitt sem skipti máli. Tilraunir á þessu ári til að koma ábyrgðum á IceSave "bankanum" í Bretlandi af okkur yfir á breta voru dæmdar til að taka eins langan tíma og bretar gátu hugsanlega komist upp með, af hverju í ósköpunum hefðu þeir að flýta sér? Þeir áttu nóg með sjálfan sig. Samfylkingin má aftur á móti skammast sín fyrir að hafa ekki slitið ríkisstjórninni STRAX og Glitnir fór yfir um. Í staðinn hafa þeir látið Davíð, Geir og Árna (í þessari röð) klúðra öllu sem hægt hefur verið að klúðra (með hjálp frá Björgvin). Ég á allavegana erfitt að ímynda mér hvernig ástandið gæti verið verra en það er núna.

Óli Braga, öfgamaður (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 13. okt. 2008

Inga Birna Jónsdóttir, lektor

Fáið konur til að stjórna fjármálunum. Þæ hafa alltaf þurft að fara varlega með fjárhag heimilanna.

Inga Birna Jónsdóttir, rithöfundur (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 10. okt. 2008

ÞVÍLIK GRÆÐGI !

Þessi gjörð Þogerðar Katrínar er með þeirri mestu græðgi,sem ég hef séð.Hún á að borga SJÁLF fyrir sig.Henni hefnist fyrir þetta.Og ekki fær hennar flokkur mitt atkvæði,í næstu kosningum.Auðvitað á hún að endurgreiða OKKUR þetta.Eins og að það hafi haft áhrif á úrslit ,að "sníkjudýrið" mætti.Sama má segja um liðið sem át og drakk í Kríunesi.Vantaði kannski utan á þetta lið .Nú er nóg komið !Sjúkleg níska og græðgi! OJ bara !

Kristín (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 28. ágú. 2008

Ellífeyrisþegi

Sæll Jón Eg er Árni Björn Eg var að reyna finna simann þinn en fann hann ekki.Kveðja Árni Björn s.8973608

Árni Björn Guðjónsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 17. ágú. 2008

Til hamingju með formanstitilinn

Vonandi næ ég á fundinn, er að koma frá Köpen á sunnudag. Kær baráttukveðja vinur. Eyjólfur

Eyjólfur Ólafsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 15. ágú. 2008

Marta

Er ekki forsetafrúin frjalskona i frjálsu landi .mér finnst þetta ekki sanngjörn athugasemd kv sigr a

sigr. aðalst . (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 19. júlí 2008

Páll Björgvin Kristjánsson, Palli Kristjánss.

Sæll Jón. Ég(57),skoðunn þín á "Erlendi", fær einkunnina 7? Rubiela Ruiz(55), kona mín gefur þinni skoðunn, 9? Réttar-Kerfið, á Íslandi er ekki í lagi og tími til kominn, að "Lögmenn-Íslands", viðurkenni vandann og hætti að Sperra sig á Alþingi. Mér vitanlega hefur "Atvinnuflugmaður", aldrei komist á Alþingi. Ég get haldið því framm, að ástæðan, eru "Góð-Laun", sem eru á niðurleið,frá því að ég byrjaði 1971. Atvinnuflugmenn, eru eina Stéttin á Íslandi, sem fer í Hæfnispróf & Læknisskoðun, á sex(6), mánaðar fresti, hjá Læknum, sem eru undanskyldir, læknisskoðunn, eins og Lögmenn...? Jón Minn Kæri, við eigum það sameiginlegt, að lenda í xDO. & "Rífa-Kjaft". Ég, held að DO. væri dauður í dag, ef...ekki HS? Ég, óttast, um örlög, Obhama, í USA...? Verður, hann skotinn, eins og Kenedy´s(x2)? Rubiela, bað mig, að hjálpa Yony Ruiz(37), með 5 börn, sem hann gat ekki framfleytt í fátkæu, landbúnaðarhéraði, S-Kólumbíu. Ég, sagði "Já" og kláraði málið, með vinnu og dvalarleyfi. Yony hefur stundað vinnu, af samviskusemi í Þorlákshöfn, frá mars 2001 og sent peninga til framfærslu fjölskyldunar í Kólumbíu. Svo, gerist það fyrir fimm(5) árum, að móðir barnana hverfur "Sporlaust"? Rubiela, biður mig um aðstoð, að koma fimm(5), börnum, til Íslands og ég sagði, "Já" og kláraði pappírsvinnuna á 7 mánuðum, með góðri aðstoðar, dóttir Döllu, dóttir Ólafs, forseta, sem þá starfaði á ÚtlendingaStofu. Guðjón Sigurðsson, skólastjóri, hefur verið "Sundlaugar-Vinur", í mörg ár og var á tánum, að taka við fimm(5), börnum. Ég, tók Ákvörðunn, að gefa þrjú(3) ár, sem nú eru orðin fjögur(4) ár og stelpurnar komu Heim í vor með einkunnir; 8-9, í íslensku, stærðfræði & sundi Nú, hef ég tekið nýja ákvörðunn, sem er að klára þetta dæmi og sjá Danielu(10), Mayru(11), Edy(14),Jenny(15) og David(17), sem kláraði fyrsta árið í "FSU"(08). Yony Ruiz, bróðir Rubielu, sótti um Ríkisborgara-Rétt, fyrir sig og börnin, í apríl 2008. Þessi, "Mafía", dregur lappirnar, að afgreiða umsóknina. Réttar-Ríkið, Ísland er í "Stór-Hættu"! Hættu, að Bulla-Bulla-Bulla!!! Katólskur, prestur, spurði mig um mitt, starf? Ég, sagi presti, að ég væri flugmaður og nær Guð, en hann. Presturinn, svaraði, "Palli Minn, Guð er All-staðar". Ég, óska eftir þínu áliti??? 1. Vinnubrögð,á Alþingi? 2. Vinnubrögð, Dómsmálaráðuneyti/ÚtlendingaStofa 3. Við erum að fá í heimsókn, jarðfræðinga(3), frá S-Ameríku. Þetta eru vinir okkar, sem komu síðast 2001. Fyrir þetta fólk, að komast leiða sinna, þá þurfti "Boðs-Bréf", sem kostaði 10Þ./DHL. Sendiráð Svíþjóðar í Santiago-de Chile. Fólk, sem ég hef kynnst, frá "1951", gleymir mér aldrei. Kæri Jón, hrl...? Kveðja, Palli Kristjánss,+ 5, börn, frá Kólumbíu. Gangi Þér Vel, Páll Björgvin Kristjansson, Þelamörk 9, IS-810 Hveragerði, Islandia. PS. Jón Ef þú vilt tala og fá skoðunn, þá skaltu tala við, mína "Ágætu Konu", Rubielu Ruiz og hún gæti kennt þér bæði, lögfræði, læknisfræði, Kólumbíu. Kæri Jón, Rubiela, hefur ótrúleg tengsl, í Kólombíu. Rúbíala, var send til Íslands, af því að vinir hennar óttuðust um öryggi hennar,frábær Kona!!! Rúbiela er frábær Kona, sem hefur skilað Kólumbíu, meira enn, "Gjörspillt-StjórnVöld". Kveðja. Páll Björgvin Kristjánsso Þelamörk 9, IS-810 Hveragerði. gsm:896-3069-hs.483-4633

Páll Björgvin Kristjánsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 9. júlí 2008

Páll Björgvin Kristjánsson, Palli Kristjánss.

Ágæti Jón, hrl. Væri ég, Lögmaður? Þá myndi ég Skammast Mín Upp-fyrir Haus!!! Ég var atvinnuflugmaður, kokkur, atvinnubílstjóri og...? Fyrir mörgum árum, sagði ég þér og Guðna Víkingi, Sunnlendinga,að Ísland væri ekki Réttar-Ríki. Þú og Guðni, gáfuð orðum mínum ekki vægi? "Palli minn þú ert Bara Róni og bla...bla?" Pistlar þínir á Útvarpi Sögu, enda á "Gangið á Guðs-Vegum"??? Ertu "Refur í Sauða-Gæru??? Ég skil vel að xF eru xD í "Sauða-Gæru". Ég og alvöru Íslendingar þurfum ekki þetta "Hjal þitt". Íslendingar þurfa "FARC-Her", til að uppræta 60 ára Spillingu, sem er ekki sér-íslensk,heldur Alþjóðleg. Ekki Mannsal, Vopna-Smygl, Eytur-Lyf(lögleg/ólögleg) og/eða Gjör-Spillta Stjórn-Málamenn,sem er Stærsta Verkefnið í Heiminum í Dag Ef þú skilur "Bullið"??? Þá ættir þú að hætta því! Miðað við, að þú er lögfræðingur, þá þykir mér smá vænt um þig, en almennt hef eru, að mínu viti lögfræðingar, Þjófar og Skíthælar. Ég hef sjálfur slæma reynslu af þessu liði. Ég, var svifur, Atvinnu-flugmanns-Réttindum, æfilangt, c/o Þórður Harðarsson, xD c/o Hörður Sigurgeirsson,Guðfaðir/DO. ölvunar-aksturs, "93? Í 4(5ár-pappír-vinna) ár hef ég haft umsjóm með 5 börnum,frá Kólombíu. Árangurinn, er frábær og einkunnir 7 til 9,5. Það þarf ekki, að moka "Skatt-Fé", í Rauða-Krossinn. EftirlaunaSjóður Atvinnu-Flugmanna,úrskurðaði mig fyllibyttu og breyttu Reglunum. Ég fæ ekki uppreiknaðan lífeiri, vegna meintra áfengis-notkunnar. 4 ára , umönnun og kennsla í íslenku, stærðfræði

Páll Björgvin Kristjánsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 8. júní 2008

Ásta Erna Oddgeirsdóttir

Farsímar og akstur

Gleðilegt sumar og takk fyrir pistlana á Sögu,reyni alltaf að hlusta á þá,annars les ég þá í póstinum frá þér. Mér liggur mikið á hjarta þetta með að fólk er sítalandi í gemsana án handfrjáls búnaðar og þegar svo er,þá er oft eins ogþetta fólk taki ekki eftir neinu öðru í kringum sig. Ég hef í tvígang núna nýverið næstum verið keyrð niður af bílstjórum sem voru að tala í farsímann á keyrslu. Ég hélt að það væri búið að banna þetta neð lögum,það er að tala án handfrjáls búnaðar. Það þarf að fara að taka betur á þessu máli,slysin sem þetta veldur eru allt of mörg nú þegar,fólk bara verður að fara að hlýða lögunum,eða það fimmst mér allavega,vonandi eru fleiri sammála mér,kveðja

Ásta Erna Oddgeirsdóttir, mán. 12. maí 2008

Gleðilegt sumar sömuleiðis

Sæll Jón Greip niður á síðunni þína og hafði gaman af ýmsu, ekki síst uppgötvunum þínum um íslenskt veðurfar og þeirri staðreynd að þú ættir orðið hund. Gangi þér vel í öllu sem þú ert að gera Bestu kveðjur Hulda Gústafsdóttir

Hulda Gústafsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 25. apr. 2008

Skiljanlegt að fólk sé reitt !

Þessir svokölluðu "pólitíkusar",á niðurgreiddu eða fríu eldsneyti,vaða yfir okkur landsmenn með hroka og frekju. Við eigum að að mótmæla af festu og virðingu.Engin skrílslæti,barsmíðar eða eggjakast.Ofbeldismenn í lögrelunni sýndu sitt rétta andlit og fengu útrás!Óhugnanlegt!Og þessu er stýrt af "ráðamönnum" þjóðarinnar.Hrokinn og yfirgangurinn sem Geir ,Björn og Hörður sýndu í sjónvarpi í gær er óhugnanlegur.Burt með svona lið ,sem lifir á okkur almúganum.Þetta voru kallaðir ÓMAGAR í gamla daga.Á HREPPNUM!Við þurfum líka eldsneyti og eigum að standa með atvinnubílstjórum.En hægt og hljótt.Láta finna fyrir okkur.Munum eftir þessu í næstu kosningum.Kveðja,Kristín.

Kristín (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 24. apr. 2008

Reykingarbann án refsilöggjafar

Komdu sæll Jón. Ég er einn af þeim sem hafa barist fyrir reyklausum stöðum t.d. á mínum vinnustað sem ég mun ekki nafngreina hér að svo stöddu þar sem starfsmenn koma saman og fá sér kaffisopa. Lögin segja að það er nóg að einn einstaklingur óski eftir reyklausu starfsumhverfi,þó að meirihluti starfsfólks reyki. Það hefur verið erfitt að framfylgja þessum lögum sökum þess að það er ekki til nein refsing við þessum lögbrotum. Værir þú sem alþingismaður til í að skoða þessi mál nánar og finna lausn til þess að hægt yrði að framfylgja reykbanninu með refsiákvæðum? Ég er sjálfur fyrrverandi reykingarmaður,en hætti fyrir 21 ári síðan. Mér finnst þetta mál vera afar undarlegt sökum þess að hægt er að banna reykingar á opinberum stöðum án þess að hafa refsiramma utan um þetta furðulega mál sem að hið háa alþyngi samþykkti á sínum tíma. Virðyngarfyllst Össur.P.V.

Össur Valdimarsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 20. mars 2008

Ljóti - Kvóti

Sæll Jón minn. Bara að hressa upp á minnið! Hver var fyrsti framsóknarmaðurinn? SVAR Júdas!! Enda er flestum illa við manntetrið, sama á við um framsóknarflokkinn, flestum er í nöp við hann, sem betur fer. Skondið að sjá þegar Kvótahugmyndafræðingar flokksina sem skópu þetta óréttlæti "deila" á kvótakerfið, kerfi sem þegar hefur rústað flestum byggðarlögum landsins. Kveðja að austan. Eyjólfur

Eyjólfur Ólafsson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 6. feb. 2008

Borgarstjórn

Sæll Jón! Takk fyrir skemmtileg og góð skrif. Væri ekki full ástæða til að uppfræða okkur launagreiðendur borgarfulltrúanna um það hver upphæðin er sem þeir þiggja í laun og aðrar greiðslur frá okkur á mánuði....og þá endilega að allt sé tínt til ekki bara sumt - það myndi benda til vanþakklætis af þeirra hendi...bkv Ekki eru það nein leyndarmál trúi ég eða hvað?

Sigurður A. Hreiðarsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 4. feb. 2008

DÝRASTA LANDID

Saell Jón, athyglisvert, ad Íslendingar hafi loks áttad sig á dýrtídinni á Íslandi; Erlendir / thýzkir kunningjar mínir,- upp til hópa háskólaborgarar ( t. a. m. yfirlaeknar ) med drjúgar tekjur -, róma fegurd Íslands, en ljúka alltaf raedunni med setningunni; " aber teuer ! " Theim blöskrar öldungis verdlagid & koma sjaldnast aftur til landsins m. a. af thessari augljósu ástaedu. Kvedja Orri Ólafur Magnússon / Thýzkalandi

Orri Olafur Magnússon (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 21. jan. 2008

Beturvitringur

Athyglisverð orðanotkun í leikfimiskennslu

Sæll Jón þar sem ég fann ekki netfang þitt, læt ég þetta bara gossa hérna á hálfopinberum vettvangi. Þar sem ég hlusta mikið á Útvarp Sögu hef ég oft heyrt á tal þitt. Fyrst hélt ég að þú hefðir mismælt þig, síðar að þú værir að ofvanda þig. Athyglivert er ekki notað, heldur athygliSvert. Til gamans fór ég með "leitarann" á textann þinn og það var allrar athygli vert hve oft er notað athyglivert. Essið ("S") er n.k. innskotsstafur, ekki eignarfalls "S" Það er allalgengt að fólk "vandi" sig svona fyrir misskilning. Annað dæmi um innskotið er "leikfimiskennsla" Fólk á misauðvelt með að taka tilsögn en ég tek áhættuna til að standa undir nafninu "ylhyra" en íslenska er mitt mál. E.S. (eftirskrift (P.S.þýðir post scriptum, en ég kýs að nota hið íslenska)). Séu þessi orð notuð á annan hátt, fylgir essið ekki, enda til að tengja, sbr. "Það er allrar athygli vert að fylgjast með brenglun tungunnar" Ég myndi ekki nenna að benda þér á þetta ef þú væri ekki að öðru leyti vel máli farinn (fyndist ekki taka því :) Eygló

Beturvitringur, mið. 16. jan. 2008

Hafa samband..:)

Sælir Jón & Gleðilegt ár..:). Ég er ENNÞÁ að bíða eftir því að heyra frá FRJÁLSYNDUM..! Hvaða bull er eiginlega í gangi? Hafa samand - 8627127 sem fyrst Jakob Þór Haraldsson

Jakob Þór Haraldsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 6. jan. 2008

Sturla Snorrason

Borgarskipulag

Stærsta hagsmunamál borgarbúa er að stytta vegalengdir í borginni með því að færa þungamiðju atvinnu og skóla inn í miðja borg. Gott ef þú vildir líta á bloggið mitt midborg og jafnvel taka á þessu máli með mér . kv.Sturla

Sturla Snorrason, mán. 5. nóv. 2007

´Harmaverk í Írak.

ég er sammála Jóni Magnússyni um harmaverk Bandaríkjamanna í Írak. vissulega var Saddam gamli, Hussein, eistaklega vondur og illgjarn við sína landa og vissulega hefur hann brepið þúsunda fólks óður er Amerikanar stútuðu honum. Þó er ástæðan til að ráðast á Írak ekki sú rétta en að segja að hann Saddam átti ´´weapons of mass destruction´´ sem þeir fundi aldrei. Aðal ástæðan er að við viljum hafa táfestu í miðaustur ríkjunum til að gera olíu lindirnar öruggar í okkar garð. Ég vildi að pólíkurnar segðu bara sannleikann í þessu. Gott blog hjá þér. Herbert N Borgthorsson.

Herbert N. Borgthorsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 21. okt. 2007

Mér er spurn?

Sæll Jón. Ég er nú mjög sáttur við að þú sért kominn á þing þar vantar menn eins og þig. Ég er að velta því fyrir mér hvernig standi á því að Margrét eða Ólafur geti verið inni í þessu samstarfi fyrir hönd Íslandshreyfingunnar þegar þetta atkvæði er merkt Frálslindaflokknum en ekki þeim persónulega.Er ekki kominn tími á skírar reglur varðand þjófnað hjá kostnum fulltrúum þjóðarinnar

Davíð Þór Bjarnason (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 12. okt. 2007

Gullvagninn

Sérfræðingaveldið

Sæll Jón, mikið er ég sammála grein þinni í Blaðinu í dag um "vald sérfræðinnar". Það er eins og fólk megi alls ekki hafa neinar skoðanir á nokkru máli, öllu skal stjórnað af sérfræðingum, og almenningur má bara apa upp setningar úr fréttum (sem sé, kvóta í sérfræðingana), og hana nú. Það er líka alveg rétt að víða er þvi svo stjórnað hverjir teljast "sérfræðingar" og þar með stjórnað hvaða skoðunum er haldið á lofti. Að lokum, er þetta ekki alveg það sama og gekk í sovét þegar það var og hét? :-)

Gullvagninn, mið. 12. sept. 2007

Frjálslyndir eru framtíðin

Góður punktur þetta með lyfin, því til er fólk í okkar annars ágæta landi sem skráð hefur verið hér frá fæðingu og alltaf hefur greitt gjöld og skatta, unnið sín 45 ár en hefur ekki ráð á lyfjunum sínum, skammarlegt, Frjálslyndir hafa fengið mitt atkvæði og munu hafa það áfram. Takk fyrir

Hlynur Hjörleifsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 31. ágú. 2007

Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk fyrir góðan stuðning

Ég vildi þakka þér Jón fyrir þann stuðning sem þú hefur veitt mér, þú taldir mig hughvarf að hætta að blogga. Þú sýnir mér mikla vinsemd og virðingu með innleggi þínu og er ég afar þakklátur. Þú átt mitt atkvæði í næstu kosningum og mun ég sýna ykkur stuðning í gegnum skrif mín á blogginu. Megi Guð blessa þig og þína fjölskyldu ævinlega. Með bestu kveðju, Guðsteinn Haukur Barkarson Hansen

Guðsteinn Haukur Barkarson, fös. 10. ágú. 2007

ornjon

Til hamingju með nýja starfið

ornjon (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 14. maí 2007

Sæll og blessaður Jón.

Gangi bæði þér og flokknum í heild sinni vel á morgun. Hlusta alltaf á pistlana þína á útvarp saga,þína og Gunnnars í krossinum.Kallinn er engin asni. Kær kveðja, Jóhann Kristinsson.

Jóhann Kristinsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 11. maí 2007

Inga Lára Helgadóttir

Sæll Jón

Inga Lára Helgadóttir heiti ég og vildi fá að kvitta í gestabókina þína. Þú ert vel hugsandi maður sem allir ættu að bera virðingu fyrir. Með bestu kveðju, Inga Lára Helgadóttir

Inga Lára Helgadóttir, mið. 2. maí 2007

dfgd

fdgfdg

Gunnar Tryggvason (Óskráður), mið. 4. apr. 2007

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 67
  • Sl. sólarhring: 154
  • Sl. viku: 4657
  • Frá upphafi: 2267801

Annað

  • Innlit í dag: 60
  • Innlit sl. viku: 4299
  • Gestir í dag: 60
  • IP-tölur í dag: 59

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband