Leita í fréttum mbl.is

Örlagatímar og lausnir

Hvað á forseti lýðveldisins að gera þegar forsætisráðherra, sem er ekki í andlegu jafnvægi, trausti rúinn og hefur ekki stuðning þjóðarinnar, eigin flokks eða samstarfsflokks, krefst þess að forsetinn skrifi upp á opin víxil um þingrof og kosningar. Forsetinn getur ekki sagt neitt annað en Nei við slíkri bón. Slíkt Nei er ekki brot á stjórnskipunarreglum heldur heibrigð skynsemi og nauðsynleg stjórnviska.

Sigurvegari gærdagsins var ótvírætt Ólafur Ragnar Grímsson forseti sem steig inn í erfiðan dans sem honum var boðið upp í, skömmu eftir heimkomu og leysti svo vel að ekki var hægt að gera það betur.

Í gær kom í ljós hvað það skipti miklu máli að hafa forseta sem hefur þor,víðtæka þekkingu og nýtur trausts þjóðarinnar. Fólk getur velt því fyrir sér hvort einhver þeirra sem buðu sig síðast fram á móti Ólafi Ragnari Grímssyni hefðu í gær komist með tærnar, þar sem hann hafði hælana fyrir löngu eða hvort einhver af þeim hópi sem býður sig fram núna til forseta sé líklegur til að geta ráðið við mikilvægasta hlutverk forsta lýðveldisins sem er: Að tryggja festu í stjórnarfari landsins og starfhæfa ríkisstjórn í landinu.

Eðlilegt er að fólki sé brugðið við þau tíðindi að mikill fjöldi Íslendinga eigi leynireikninga á Tortólu sem er í umsjá Panamískrar lögmannsstofu. Þeir sem þola ekki að eiga reikningana sína á almennum bankrareikningum undir eigin nafni eiga ekkert erindi í pólitík í lýðræðislandi.

Íslenska þjóðin hefur búið um margt í okursamfélagi þar sem stjórnvöld hafa vegna þjónkunar sinnar við sérhagmuni tekið sérhagsmunina framyfir hagsmuni fólksins í landinu. Þess vegna er matvælaverð með því hæsta í heiminum. Þess vegna er fólki meinað að gera hagkvæm og ódýr innkaup á mörgum hlutum.  Þess vegna þarf fólk að taka verðtryggð lán með okurvöxtum eða óverðtryggð með ennþá meiri okurvöxtum.

Þegar þannig háttar til, er eðlilegt að þrautpíndir þrælar okursamfélagsins bregðist illa við þegar í ljós kemur að nokkrir helstu ráðamenn landsins eigi leynireikninga í erlendri mynt á Tortólu á sama tíma og þeir berjast fyrir því að íslenska krónan verði framtíðargjaldmiðill landsins með tilheyrandi verðtryggingu.

Hvað gat orðið þess valdandi að þessir ráðamenn og aðrir Tortólureikningseigendur veldu að eiga nafnlausa reikninga á Tortólu? Til að fela eignarhald sitt á fjármunum.

Það stoðar lítið að segja að allt hafi verið uppi á borðinu og allir skattar greiddir af því að það er ekki nokkur kostur að sannreyna þær staðhæfingar. Eftir sem áður liggur fyrir að Tortólureikningshafar voru að fela slóð peninganna sinna og af hverju þurftu þeir að gera það?

Mér finnst miður að svo mikill fjöldi íslendinga sem raun ber vitni skuli hafa talið eðlilegt að fela peingana sína í skattaskjólum í umsjá lögmannsstofu sem að öðru jafnan aðstoðar vopnasala, eiturlyfjasala, þá sem stunda mannsal og einræðisherra sem eru að féfletta þjóðir sínar. Ekki góður félagsskapur það. Sæmir ráðamönnum lýðræðisríkis að vera í slíkum félagsskap?

Innan skamms á að kynna samkomulag stjórnarflokkana um fyrirkomulag stjórnar lýðveldisins þar sem tilkynnt hefur verið að flokkarnir hafi náð samkomulagi.

Hvað svo sem líður samkomulagi stjórnarflokkana þá sýnist mér veður vera svo válynd í íslensku samfélagi og traust fólks á stjórnmálamönnum það lítið, að við slíkar aðstæður er það ábyrgðarhluti fyrir sitjandi forseta að breyta ekki ákvörðun sinni um að gefa ekki kost á sér til endurkjörs.

Það er því full ástæða til þess að skora á Ólaf Ragnar Grímsson að gefa kost á sér til endurkjörs, því svo virðist sem þjóðin hafi aldrei haft jafnmikla þörf fyrir það að hann sitji sem forseti lýðveldisins  næsta kjörtímabil og tryggi eftir mætti festu í stjórnskipun landsins og komi í veg fyrir stórslys sem annars gætu orðið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Kjósendur koma ekki til með að vera ánægðir með áframhaldandi setu  núverandi stjórnarflokka í Ríkisstjórn. Ef það er ætlunin, þá verður Ólöf Nordal og Bjarni Ben að segja af sér ráðherraembættunum og Bjarni Ben að segja af sér þingmennsku. Þá kanski fá núverandi stjórnarflokkar starfsfrið?

Þingrof er auðvitað það eina rétta eins og málið er komið í og þá verða Birgitta og Helgi Hrafn forsætisráðherra og fjármálaráðherra augljóslega. Sjóræningjarnir eru jú með yfir 40% fylgi í sköðunarkönnunum og kanski fá þeir yfir 50% fylgi í kosningunum, sem verða að fara fram innan 45 daga frá þingrofi, samkvæmt Stjórnarskrá.

Björt framtíð Íslands er framundan næstu 4 árin, með Birgittu og Helga Hrafn með stjórnarvaldið, er það ekki?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 6.4.2016 kl. 18:45

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Frábærleg skörp greining. Ólafur verður að vera áfram. Maður getur rétt séð fyrir sér hvernig sumir af þessum frambjóðendum hefði staðið sig í sporum Ólafs. það er enginn hæfur af þeim frambjóðendum sem fram eru komnir-já og alvega sama þótt Össur sé ekki kominn fram heldur.

Halldór Jónsson, 6.4.2016 kl. 22:47

3 Smámynd: Elle_

Í gær kom í ljós hvað það skipti miklu máli að hafa forseta sem hefur þor,víðtæka þekkingu og nýtur trausts þjóðarinnar.

Já það er satt það sást sterklega í gær. Það sást líka oft sterklega fyrr varðandi Ólaf forseta. Það kom skýrt fram þegar hann vísaði ICEsave málinu til þjóðarinnar. Við getum í alvöru ekki misst núna hann þó hann vilji hætta.

Elle_, 7.4.2016 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 632
  • Sl. sólarhring: 738
  • Sl. viku: 3042
  • Frá upphafi: 2299015

Annað

  • Innlit í dag: 605
  • Innlit sl. viku: 2849
  • Gestir í dag: 597
  • IP-tölur í dag: 582

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband