Leita í fréttum mbl.is

Hvika ţá allir nema Ađalsteinn?

Verkföll eru slćm og leiđa til mikils kostnađar fyrir ţjóđfélagiđ, atvinnurekendur og launţega. Ţess vegna hefur löggjafinn sett reglur  til ţess, ađ komist verđi hjá  verkföllum í lengstu lög. 

Ţessvegna hefur löggjafinn ţ.e. Alţingi sett lög sem heimila trúnađarmanni ríkisins, Ríkissáttasemjara ađ grípa til úrrćđa m.a. setja fram miđlunartillögu, sem ađilar vinnudeilunnar ţurfa ţá ađ greiđa atkvćđi um.  

Í gćr setti ríkissáttasemjari Ađalsteinn Leifsson fram slíka miđlunartillögu í samrćmi viđ gildandi lög og reglur. Ţá bregđur svo viđ, ađ allt í einu hamast verkalýđshreyfing og vinnuveitendur ađ ríkissáttasemjara. 

Forsvarsmenn Eflingar segja ađ ríkissáttasemjari sé sekur um lögbrot og starfandi forseti ASÍ og burthlaupinn forseti ASÍ setja frá sér rangar ásakanir í garđ ríkissáttasemjara og ţeirri ákvörđun hans ađ setja fram miđlunartillögu lögum samkvćmt.

Ótöluleg hjörđ skriffinna á samfélagsmiđlum bćta svo um betur og hnjóđa í ríkissáttasemjara og halda ţví fram ađ hann sé ađ beita ólögmćtu ofbeldi, ráđast á fólk, sem getur ekki boriđ hönd fyrir höfuđ sér og festa láglaunafólk í ţrćlakistu auđvaldsins.

Ţessi skrif eru úr rökrćnu samhengi viđ veruleikann og ţađ sem ríkissáttasemjari ákvađ međ ţví ađ setja fram miđlunartillöguna.

Miđlunartillaga er ţess eđlis, ađ hún kemur engan veginn í veg fyrir ađ vilji félaga í verkalýđsfélagi nái fram ađ ganga. Ţeir hafa lýđrćđislegan rétt međ ţví ađ beita atkvćđi sínu til ađ samţykkja eđa fella tillögu ríkissáttasemjara. 

Til ađ fella tillögu ríkissáttasemjara ţarf meirihluta ţeirra sem atkvćđi greiđa og fjórđung eđa 25%  félagsmanna ađ  verkalýđsfélagsins ađ lágmarki. Lýđrćđislegur réttur verkafólks er ţví til stađar. Sé ţađ svo ađ baráttan standi um mikilvćg atriđi ćtti ţađ ekki ađ vera vanda bundiđ ađ fá fjórđung ţeirra sem telja sig órétti beitta til ađ fella tillöguna. 

Hvar er ţá atlagan? Í hverju er árásin fólgin? Er ţađ árás á kjör eđa lýđrćđisleg réttindi einstaklings eđa félaga í verkalýđsfélagi ađ bjóđa ţeim ađ tjá vilja sinn međ ţví ađ fara ađ lýđrćđislegum leikreglum og greiđa atkvćđi? 

Raunar er ţetta ekki í fyrsta skipti og vćntanlega ekki síđasta sem ríkissáttasemjari setur fram miđlunartillögu. En e.t.v. eru ţessi glórulausu viđbrögđ atvinnurekenda, Eflingar og ASÍ til marks um vaxandi óţol og ţjóđfélagslega jađarmyndun samfélagsins

Ríkissáttasemjari er engin skálkur í ţessu efni. Hann fer ađ lögum. Skálkarnir eru ţeir,sem hamast gegn lögum landsins og lýđrćđislegri ákvarđanatöku.  

Er ţađ virkilega orđiđ merki um ofstopa, árás á lífskjör eđa fasismi, ađ gefa fólki kost á ţví ađ greiđa atkvćđi um kaup  sitt og kjör? 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Ríkissáttasemjari hefur rökstutt ákvörđun sína rćkilega, og ég skil vel röksemdir hans og styđ ákvörđun hans og gerđir.  Flautaţyrlar fara mikinn og telja sig ekki ţurfa ađ rökstyđja mál sitt, enda vísast ekki í fćrum til ţess.  Međ bćgslagangi er ţví haldiđ fram, ađ ríkissáttasemjara skorti lagaheimildir fyrir gjörđ sinni.  Ţađ virđist vera út í loftiđ, en ćtli dómstólar eigi ekki eftir ađ dćma um ţađ ?  Framferđi Eflingarstjórnarinnar sýnir ótta hennar viđ lýđrćđislega ákvarđanatöku félaganna. Ţetta bolsévikkahreiđur er komiđ í algerar ógöngur.   

Bjarni Jónsson, 27.1.2023 kl. 13:58

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ţađ er líka athyglisvert ađ SAJ skuli engum treysta fyrir kjörskránni og ađ einunigs Efling megi telja atkvćđin
Ţađ verđur ađ spurja hvernig öryggisreglur eru hjá Eflingu (ISO27001 vottađ?) og hvernig talningu er háttađ
Fyrst ENGINN getur gert ţađ betur en Efling

Grímur Kjartansson, 27.1.2023 kl. 14:43

3 Smámynd: Theódór Norđkvist

Ríkissáttasemjari er ađ fara út fyrir hlutverk sitt. Miđlunartillaga er eitthvađ sem tekur tillit til krafna beggja ađila deilu. Ţađ er ekki miđlunartillaga ađ taka kröfu SA hráa upp - krafa sem er einmitt ástćđan fyrir ţví ađ Eflin er á leiđ í verkfall. Ţađ kallast ađ ganga í liđ öđrum deiluađilanum og ţar međ er svokallađur Ríkissáttasemjari orđinn vanhćfur til ađ miđla málum.

Ţú ţarft ekkert ađ svara ţessu ef ţú telur ađ ég sé ađ biđja ţig um eitthvađ ókeypis lögfrćđiálit, sem ég er alls ekki ađ gera. Ég efast reyndar um ađ ţú birtir ţessa athugasemd og ţađ verđur ţá bara ađ hafa ţađ.Ţú birtir ekki síđustu athugasemd mína, sem var ţó ekki dónaleg á neinn hátt.

Theódór Norđkvist, 27.1.2023 kl. 23:30

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 274
  • Sl. sólarhring: 1397
  • Sl. viku: 6047
  • Frá upphafi: 2303362

Annađ

  • Innlit í dag: 255
  • Innlit sl. viku: 5586
  • Gestir í dag: 254
  • IP-tölur í dag: 253

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband