Leita í fréttum mbl.is

Staðreyndum verður ekki endalaust hafnað.

Rishi Sunak forsætisráðherra Breta kom inn á mörg mikilvæg mál í ræðu sinni á Flokksþingi breskra Íhaldsmanna sem nú stendur yfir. 

Hann leyfði sér m.a. að benda á þá staðreynd, að karlmaður væri karlmaður og kona væri kona og það væru bara tvö kyn. Svonefnd kvár eru þar af leiðandi eitthvað allt annað.

Þá benti hann á að það væri fásinna að fólk gæti skilgreint kyn sitt eftir hentugleikum jafnvel andstætt líffræðilegum staðreyndum varðandi viðkomandi. 

Einnig tók hann sérstaklega undir þá kröfu, að foreldrar fái að vita hvað er verið að kenna börnunum þeirra t.d. í kynfræðslu og slík viðkvæm mál væru alltaf borin undir foreldra. 

Rannsóknir hafa sýnt, að konur eru alls ekki öruggar og líður ekki nægjanlega vel á ýmsum Breskum sjúkrastofnunum sem þjóna báðum kynjum. Forsætisráðherrann lofar að taka á því vandamáli, en nýlega var greint frá miklum fjölda kynferðisofbeldis á ókynjaskiptum sjúkrahúsum í Bretlandi. 

Flott að forsætisráðherra Breta skuli tala rödd skynseminnar. Það gerir forsætisráðherra Íslands heldur betur ekki heldur snýr öllu á hvolf þar á meðal líffræðilegum staðreyndum 

En væri þá nokkuð til of mikils máls að fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins leyfði sér að hafa aðra skoðun en Katrín og gerði okkur grein fyrir þeirri skoðun sinni umbúðalaust þ.e. ef hann þá hefur eitthvað við málflutning vinkonu sinnar Katrínu Jakobsdóttur að athuga. 

 

 

 


mbl.is „Karlmaður er karlmaður og kona er kona“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Svo ætlar hann að banna Bretum að reykja, rétt eins og Hitler fyrir 90 árum, svo bráðum mun Heilög Katrín setja það í Hatursgospelið. Svo við sem viljum reykja, flýjum til Venezúela.

Guðjón E. Hreinberg, 6.10.2023 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 45
  • Sl. sólarhring: 1393
  • Sl. viku: 5818
  • Frá upphafi: 2303133

Annað

  • Innlit í dag: 38
  • Innlit sl. viku: 5369
  • Gestir í dag: 38
  • IP-tölur í dag: 38

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband