Leita í fréttum mbl.is

Skynsemi eða hægri öfgar

Geert Wilders og flokkur hans Frelsisflokksins (PVV)vann afgerandi sigur og tvöfaldaði fylgi sitt í þingkosningunum í Hollandi s.l. miðvikudag. Frelsisflokkurinn er nú stærsti stjórnmálaflokkur Hollands.

Flokkurinn vill að hugsað sé fyrst og fremst um hagsmuni Hollendinga, ganga úr Evrópusambandinu, stöðva innflutning múslima,  moskur og Kóran skóla svo dæmi séu tekin.

Sigur Wilders sýnir að vaxandi fjöldi kjósenda treystir ekki lengur hefðbundnum hægri flokkum, sem hafa brugðist kjósendum sínum á ýmsa og allt of marga vegu. Ísland er því miður ekki undanskilið.

Stöðugt vaxandi fjöldi fólks snýr sér til fylgis við það sem stjórnmála- og fjölmiðlaelítan kallar öfga hægri og pópúlisma, þó þeir flokkar séu að berjast fyrir þjóðlegum gildum og vinna gegn glæpum og öryggisleysi almennra borgara. Hægra "öfgafólkið" í Evrópu er ekkert öfgafólk. Það berst ekki fyrir því að lýðræðið, stjórnkerfið eða stjórnsýslustofnanir séu teknar úr sambandi eða vikið sé frá gildum samkeppnisþjóðfélagsins og gildum almennra mannréttinda. 

Hvað sem stjórnmálaelítan og fjölmiðlaelítan heldur fram, þá er það rangt að kalla Wilders og t.d. Melloni á Ítalíu öfgafólk. Þau svara kalli sífellt stærri hóps fólks í Evrópu, sem sættir sig ekki við að innflytjendur taki yfir og glæpagengi taki heilu hverfin undir sig eins og í Svíþjóð, Frakklandi já og höfuðborg Evrópu, Brussel. 

Sem betur fer telja fleiri og fleiri kjósendur um alla Evrópu sig eiga meiri samleið með þeim sem vilja hugsa um eigin borgara og öryggi þeirra fyrir erlendum glæpahópum. Þessvegna stækka flokkar eins og AfD í Þýskalandi. Flokkur Giorgia Meloni á Ítalíu, Marine Le Pen í Frakklandi og nú Wilders í Hollandi.

Hefðbundnir hægri flokkar eiga ekki lengur erindi við kjósendur þ.m.t.Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi og Íhaldsflokkurinn breski nema þeir séu tilbúnir að svara kalli kjósenda sinna um að gæta að þjóðlegum gildum og stöðva innflytjendastraumin og tryggja öryggi borgaranna fyrir erlendum glæpagengjum, en gengjastríð er þegar hafið á götum Reykjavíkur og þessvegna  Litla Hrauni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jón.

Fólk þarf ekki alltaf að deila sömu lífsýn á margt, en getur samt virt undirliggjandi rök hvors annars.

Og ég er sammála greiningu þinni, og fann til með Eiríki Bergmann þegar hann þakkaði sigur Welders innflytjandaandúð.

Hvers vegna ætti venjulegt fólk að vera eins og Eiríkur lýsir því??, fáfrótt, fordómafullt??

Gæti það hafa eitthvað að gera með stjórnleysið, þar sem innlend gildi láta undan vegna sístraums fólks sem virðist hafa þann eina tilgang, það er innflutningur þess, að grafa undir atvinnu og lífskjörum þeirra sem vinna störfin?? "Ef þú sættir þig við næstum því ekkert, þá get ég valið úr sístreymi fátæks fólks sem sættir sig við hvað sem er".

Að ekki sé minnst á glóbalvæðingu sem er fínt orð yfir flutning stórauðsins fyrirtækja og starfa til þrælabúða Kína og í seinni tíð, ennþá fátækari landa.

Þetta á við Holland sem og önnur lönd Norður Evrópu, lífskjör hins vinnandi manns hafa hafa látið undan vegna innflutnings á fátækari fólki, hvort sem skýringin er flóttamannainnflutningurinn, eða hið Evrópska flæði á fátækari fólki frá Austur Evrópu til Norður og Mið Evrópu, þar sem samnefnarinn á að vera kjör hinna lægstu.  Út á það gengur hið frjáls flæði frjálshyggju Evrópusambandsins.

Í Suður Evrópu bætist við eyðileggingarmáttur evrunnar.

Auðvitað bregst almenningur við og reynir að kjósa sig frá óværu glóbalsins og hins Frjálsa flæðis Evrópusambandsins.

Og kostaðir þjónar ofurauðsins kalla þetta Hægri lýðskrum.

Ekki er ég til hægri Jón, samt er ég að megni sammála greiningu þinni, og þar sem ég er eldri en tvívetra, og þekki næstum því allan málflutning þinn í greinum og viðtölum, frá sirka seinni hluta áttunda áratugar síðustu aldar, og var næstum því aldrei sammála þér, eðli málsins vegna út frá nálgun ólíkra lífsskoðana okkar, þá virti ég þig alltaf sem málefnalegan, rökfastan hægri mann.

Sem þú ert ennþá í dag.

Stjórnmálagreinandi sem fattar það ekki, er ekki góður greinandi, þá þjónar hann hagsmunum, ekki fræðunum.

Og varðandi hægri menn þá er enginn munur á málflutningi Þórdísar og Kristrúnar, til hvers eiga þær að leiða sitthvorn flokkinn?

Við radikalarnir sem kennum okkur við sjálfstæði Sumarhúsa, getum skýrt það, en við erum ekki fræðimenn við Háskóla Íslands, eða annað sem hlustað er á í umræðunni

Þetta er samt svona, aumingja þið hægri menn.

Samt hélt ég aldrei að ég myndi grát fall ykkar, svo breyttist bara heimsmyndin.

Þið þurfið að ná vopnum ykkar á ný.

Kveðja að austan.

P.S. Hollendingar tóku vel á móti fólki sem kom frá nýlendum þeirra við Karbíska hafið, hver man ekki eftir Gulit í fótboltanum. Mig minnir að yfir 200 þúsund, og þeim var vel tekið enda Hollendingar víðsýnir og frjálslyndir. Hvað breyttist svo??

Ómar Geirsson, 24.11.2023 kl. 16:32

2 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Ómar. Ég hef líka séð það á skrifum þínum undanfarið, að flest get ég skrifað undir. Ég held að eini ásteytinarsteinninn á milli okkar í seinni tíð hafi verið viðbrögð við Kóvídinu, en þar hefur sennilega komið fram minn hægri maður sem vill sem minnst afskipti hins opinbera af borgurunum og þinn vinstri sem telur að auðvelt eigi að vera að leysa öllu mannleg vandamál á félagslegum grunni. 

Eitt sem þú kemur inn á í grein þinni sem er afar umhugsunarvert án þess að þú segir það beint, en það er mikil og sérstæð vinstri hyggja flestra ofurauðmanna,sem eru glóbalistar og leggja á ráðin ásamt Katrínu Jakobs og öðrum ráðvilltum stjórnmálamönnum í Davos árlega. Merkilegt að þetta lið ofurauðmannanna vill harðar aðgerðir í loftslagsmálum, en þar sitja þeir á loftslagskvótaveiðum og hagnast vel. Þeir vilja sem óheftastan innflutning fólks til Vesturlanda en það heldur kaupgjaldi niðri. Síðan eru handhafar pólitískra trúarbragða eins og Katrín Jakobsdóttir sem fagnar loftslagsskrúðmælgi einkaþotueigendanna og sveipar komu hlaupastráka til Vesturlanda í mannúðlegan búning.

Það er ekki allt gull sem glóir og ekki allir broshýrir stjórnmálamenn sem leiða þjóð sína til velfarnaðar. 

Jón Magnússon, 25.11.2023 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 786
  • Sl. sólarhring: 1337
  • Sl. viku: 6559
  • Frá upphafi: 2303874

Annað

  • Innlit í dag: 729
  • Innlit sl. viku: 6060
  • Gestir í dag: 705
  • IP-tölur í dag: 686

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband