Leita í fréttum mbl.is

Vinstri græn eru ekki stjórntæk þegar orkuskortur blasir við

Fyrrverandi dómsmálaráðherra Jón Gunnarsson benti réttilega, að ástand orkumála væri orðið mjög alvarlegt og þar bæru VG mesta ábyrgð og nauðsynlegt væri að víkja frá þeirri stefnu vaxandi orkuskorts, sem stefna VG felur í sér. Sé það nauðsynlegt sem ekki er dregið í efa þá er eini kosturinn að hætta stjórnarsamstarfi við VG. 

Fyrrverandi dómsmálaráðherra Björn Bjarnason skrifaði í mbl.2. des. sl.og greinir frá vandræðalegri málaiðlunartillögu atvinnuveganefndar Alþingis um að tryggja raforkuöryggi annarra en stórnotenda og segir: "Það er neyðarúrræði að lögum sé breytt til að tryggja heimilum orku á tímum skerðinga og skorts."

Björn bendir á að eina varanlega úrræðið til að tryggja orkuöryggi almennings og fyrirtækja, sé að snúa vörn í sókn og framleiða meira af "grænni" raforku á Íslandi.

Það sem þeir Björn og Jón benda á ættu raunar allir að sjá. Þessvegna er óskiljanlegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli í svona langan tíma hafa látið VG komast upp með það að búa ti orkuskort í landinu, sem veldur því í dag, að notkun á jarðefnaeldsneyti hefur aukist þrátt fyrir tilkomu rafbíla og annars glingurs vegna trúarsetninga VG í hamfarahlýnunarmálum.

Í lok greinar sinnar segir Björn: "Skerðingar og skammtanir eru viðbrögð við óviðunandi stöðu. Ekki er tekið á rótum vandans, sem er skýr: Raforkuframleiðsla hefur ekki fylgt fólksfjölgun né almennum vexti og viðgangi samfélagsins síðustu 10-15 ár."

Ekki verður annað lesið úr skrifum Björns, að hann eins og Jón Gunnarsson telji mikilvægt að slíta stjórnarsamstarfinu við VG áður en þeir valda meira tjóni. Lýsa verður ánægju með að þessir öflugu forustumenn í Sjálfstæðisflokknum skuli vera komnir á þá skoðun enda kunna þeir vel að greina vandann. 

 

 

 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Á fyrsta fundi almannavarna vegna Grindavíkur nú í haust, var bent á að borgarar þyrftu að fara varlega í ofnotkun á olíuofnum vegna álags á raforkukerfið.

Ekkert var minnst á offjöglun rafbíla á svæðinu undanfarin misseri eða álag þeirra á einu raforkulínuna inn á suðurnesin. Sumir hafa þó tekið eftir undanfarin þrjú til fjögur ár að gagnaverin eru gríðarmikið magn - og sífellt fjölgandi - vararafstöðva ...

Bestu kveðjur

Guðjón E. Hreinberg, 4.12.2023 kl. 17:02

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Stenzt það almenn lagaleg viðmið um jafnræði í þjóðfélaginu, að veita einum hópi forgang að forgangsorku í skorti ?  Þetta stríðir gegn ákvæðum langtímasamninga, sem kveða á um, að afl- og orkuskerðingar forgangsorku skuli lenda hlutfallslega jafnt á öllum kaupendum raforku.    

Það skrýtnasta er, að þetta örverpi orkuráðherrans á þingi er komið úr Orkustofnun, þar sem Landsreglari ESB (National Energy  Regulator) er forstjóri, en heimild til að búa til forgangshóp að orku er ekki að finna í Orkupakka 3.  Samkvæmt honum ræður markaðurinn einn, hver fær keypta raforku.  

Bjarni Jónsson, 4.12.2023 kl. 17:25

3 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta hafa menn látið yfir sig ganga Bjarni. Spurning um samninga viðkomandi. Þekki þá ekki. 

Jón Magnússon, 5.12.2023 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 151
  • Sl. sólarhring: 316
  • Sl. viku: 4763
  • Frá upphafi: 2314282

Annað

  • Innlit í dag: 141
  • Innlit sl. viku: 4419
  • Gestir í dag: 141
  • IP-tölur í dag: 140

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband