Leita í fréttum mbl.is

Stjórnmálafundur á Kanaríeyjum.

Framsóknarflokkurinn var með stjórnmálafund á svonefndum Klörubar á Kanaríeyjum í dag. Þar var frummælandi Bjarni Harðarson alþingismaður en einnig var á fundinum Halldór Ásgrímsson sem eit sinn var í forustu fyrir Framsóknarflokkinn og lét til sín taka á fundinum.

Þrátt fyrir að ég væri boðflenna á fundinum var mér boðið að taka til máls sem ég gerði að sjálfsögðu en umræður voru fjörugar á fundinum þrátt fyrir að úti fyrir væri 30 stiga hiti og glampandi sól.

Þetta var skemmtileg uppákoma af hálfu þeirra Framsóknarmanna. Ljóst var að ég var ekki eina boðflennan á fundinn. Greinilegt var að það voru þarna allra flokka fólk en á þaðs skorti samt að stjórnarsinnar létu til sín taka á fundinum. Ef til vill fer þeim svna mikið fækkandi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Framsóknarstefna Bjarna Harðarsonar gengur út á það að Framsóknarmenn eigi að vera stoltir af því að það sé fjósalykt,skítalykt af þeim, það sé þjóðlegt.Síðan lýgur hann því að Hriflu-Jónas hafi haft þessa skoðun.Það sem hefur bjargað þér að komast lifandi frá þessum fundi, og drepast ekki úr skítalykt,er,að það hafa verið svo fáir inni sem hafa sömu skoðun og Bjarni Harðarson.Ég ætla rétt að vona að þú sért ekki orðinn samdauna fjósalykt Bjarna Harðarsonar, þótt þú sitjir með honum á Alþingi.

Sigurgeir Jónsson, 5.1.2008 kl. 21:48

2 identicon

Sæll Jón, og gleðilegt nýár, gaman að heyra frá þessum fundi og  þú  meðal boðflenna heldur uppi málstað Frjálslynda flokksins hvar og hvenær sem er því ekki veitir af því eins og við vitum þá er stefna Frjálslynda flokksins sú allra besta. Ekki brenna á nefinu

kveðja,

ÁJF

asgerdurjona (IP-tala skráð) 5.1.2008 kl. 23:02

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég býst nú við að ummæli Bjarna Harðarsonar hafi verið myndlíking. Jónas frá Hriflu barðist fyrir því að íslenskar sveitir yrðu byggðar sem líkast því sem tíðkast hafði og að þannig varðveittist íslensk menning best.

Jónas og hans menn börðust fyrir sem bestum kjörum íslensks sveitafólks á alla lund þar sem nýtt væri nútíma búskapartækni með bestu tækjum, rafmagni, útvarpi, vegakerfi, verslunum kaupfélaganna, héraðsskólum og menntakerfi.

Jónas barðist ekki fyrir illa þefjandi sveitalubbum, héraðsskólarnir bera merki um annað. Hins vegar kenndi gömul ömmusystir mín, sem ég var hjá í sveit og var mikil Framsóknarkona, það að vinnan göfgaði manninn og öll nauðsynleg störf, hversu óþrifaleg sem þau væru, ættu að gera fólk stolt.

Ekki ómerkari kona en bandarískur ferðamálaprófessor sagði fyrir fáum árum að sú tegund ferðamennsku sem væri í mestum uppgangi fælist í þessari setningu: "Get your hands dirty and feet wet."

Þegar farið er um byggðir í Vestur-Noregi má sjá merki um að þar er haldið uppi svipaðri stefnu og Jónas boðaði, ekki til að uppfylla hagkvæmnis- og semkeppniskröfur í landbúnaði, heldur til óbeins ábata fyrir ferðaþjónustu og ímynd og sjálfsmynd Noregs.

Krafan er sú á þessum slóðum Íslendingasagnanna, Griegs, Björnssons, Ole Böll, Hamsuns og annarra menningarjöfra Noregs eigi ferðamaðurinn kröfu á að upplifa það menningarlandslag og menningarumhverfi sem þessi list spratt úr.

Mörgum þótti mikið ósamræmi annars vegar milli innanlandsstefnu Jónasar í dreifbýlu og köldu landi fátækrar þjóðar og hins vegar víðsýnnar heimssýnar hans sem hann öðlaðist með því að fara árlega í utanlandsferðir til þess eins að drekka í sig það nýjasta og besta sem á boðstólum var, - en í þessu efni skar Jónas sig algerlega frá öðrum íslenskum stjórnmálamönnum.

Að þessum sökum sá hann fyrir það sem hann kallaði úrslitaáhrif engilsaxnesku þjóðanna, Breta og Bandaríkjamanna, á aðstæður og hag Íslendinga.

Jónas reiddist mjög Halldóri Laxness fyrir Sjálfstætt fólk sem hann taldi vera níð um þá íslensku bændur sem hann bar fyrir brjósti. Að mínum dómi var það órættmæt reiði því Laxness skrifaði þessa sögu fyrst og fremst af samúð við íslenskt sveitafólk sem aðstæður þröngvaði til nánast óbærilegrar lífsbaráttu.

Mér fannst á tímabili stefna Jónasar í byggða- og landbúnaðarmálum vera afturhaldssöm úr hófi og tefja fyrir nauðsynlegri hagræðingu að breytingum á íslensku byggðamynstri, - vera alltof dýr fyrir þjóðina. Fannst raunar furðulegur munur á milli afturhaldssemi og dragbítsháttar hans í innanlandsmálum og víðsýnnar og raunsærrar sýnar hans í utanríkismálum.

Ég hef á síðari árum hins vegar fengið aðra sýn og mildari á þetta, vegna þess að ég tel þjóðina vera nógu ríka nú til þess að hlúa að þeim hluta íslenskrar menningar sem stendur á gömlum merg, varna því að íslensku menningarlandslagi verði algerlega tortímt og líta til Norðmanna um það hvort það sé hollt fyrir ferðaþjónustu okkar, ímynd lands og þjóðar og sjálfsmynd okkar að hér verði að lokum borgríki á einu horni landsins en afgangurinn sumarbústaðlönd og eyðibyggðir þar sem heilu dalirnir og héruðin eru komnar í eigu fárra auðmanna og auðfélaga.

Jónas var á undan sinni samtíð hvað snerti mat á stöðu Íslands og kannski var hann bara 60 árum á undan öllum hvað varðaði byggðamálin, 60 árum of snemma á ferðinni.

Ég tel Jónas vera stjórnmálamann 20. aldar. Hann var ótrúlega afkastamikill og áhrifaríkur en jafnframt búinn stórum göllum í lundarfari og samskiptum við þá sem ekki voru honum sammála.

Þessi blanda af þröngsýni (t.d. í listum og kjördæmamálnu) og víðsýni var einstök, en þegar ég legg mat á Jónas er það heildarmat mitt sem ræður, en ekki hvort áhrif hans voru til góðs eða ills.

Ómar Ragnarsson, 5.1.2008 kl. 23:35

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Litla trú hef ég á því að Bjarni Harðarson dragi með sér mikla lykt af kúamykju né verði með neinum öðrum þvílíkum hætti þjóð sinni til hneisu á erlendri grund.

Né heldur að honum verði það á að reyna að verða skemmtilegur með því að fara niðurlægjandi orðum um atvinnuhætti fólks.

En miklum mun betur hugnast mér blessuð fjósalyktin bæði í eiginlegri merkingu og yfirfærðri en margur sá fnykur annar sem nú fyllir vitin. 

Árni Gunnarsson, 6.1.2008 kl. 00:09

5 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Þetta er greinilega so si sona brandaralíf þarna á Kanarí. Hvað eru þingmenn annars að flækjast á Kanarí þegar þeir eiga að vera að anda oní hálsmál skjólstæðinga sinna í þinghaldshléi? Eða eru þeir flestir á Kanarí? Obboðslega er mér misboðið hér heimaá klakanum. Ræður ykkar yfir hjörðinni þarna á Kanarí, þessum hvað 100 manns og þó væru 200, og að vera að flíka slíku "afreki", eru til marks um að þið eruð of fjarri veruleikanum um umboð ykkar.

Herbert Guðmundsson, 6.1.2008 kl. 00:15

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Já gaman að heyra af þessu, já það skyldi þó aldrei vera að stjórnarsnnum færi fækkandi he he...

Góð hugleiðing frá þér Ómar um Jónas, alveg stórgóð.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.1.2008 kl. 01:42

7 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Bið að heilsa Hönnu. kv.

Georg Eiður Arnarson, 6.1.2008 kl. 07:37

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það er allt rétt sem Ómar Ragnarson segir um Hriflu-Jónas.

Sigurgeir Jónsson, 6.1.2008 kl. 09:57

9 identicon

Ef mig misminnir ekki mótmæla allir þingmenn hástöfum þegar þeim er frýjað um hið langa frí þingheims og segjast alls ekki vera í fríi heldur að vinna að málefnum í héraði. Ekki vissi ég að Kanaríeyjar væru hluti af Íslandi, þannig að sennilega er hér enn einn þingmaðurinn í fríi þó hann sé ekki í fríi. Eða hvað?

Tóti (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 11:48

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Væri bara til í 30 stiga hita og glampandi sól - sleppa pólitíkinni!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 6.1.2008 kl. 12:57

11 Smámynd: Huldumaðurinn

Hanga allir alþingismenn þarna og runka sér í 30 stiga hita í löngu fríunum sínum?

Huldumaðurinn, 6.1.2008 kl. 14:24

12 Smámynd: Bjarni Harðarson

thakka umraeduna um okkur framsóknarmenn á kanarí. komment vinar mins sigurgeirs jónssonar frá skálafelli eru alltaf hressandi thó thau séu alls ekki til thess gerd ad madur sé sammála theim,- efast reyndar oft um ad hann sé thad sjalfur. en i thessu tilviki vakti hann upp umraedu og godan pistil omars ragnarssonar um jónas sem eg er algerlega sammála - jónasi tókst odrum stjórnmálamonnum betur ad vera heimsborgari í hugsun og vissi ad til thess ad vera thad tharf ad hafa thjodlega heimanfylgju. vardandi fjósalyktina sem eg hefi einhverntíma nefnt í gamni,- hún hefur aldrei átt heima utan fjósanna en thegar menn halda ad vottur af henni sé thad sem helst thurfi ad skammast sin fyrir hjá landanum sudur á sólarstrond fara menn villur vegar.

ég veit ekki hvort ég á ad vera kommentera á thetta med letilíf thingmanna,- thvi vissulega er ég hér í algeru letilífi í heila viku. stadreyndin er ad thad er haegt ad skamma okkur thingmenn fyrir margt en síst of fáar vinnustundir en mér tekst afar vel ad vera í fríi og afsloppun hér sudurfrá sem er mér jafn mikilvaegt og odru vinnandi fólki. ég flyg svo heim á midvikudag og tek adra flugvél á fimmtudag,- austur á hornafjord thar sem vid gudni heilsum upp á kjósendur haestvirta. kaer kv.-b.

Bjarni Harðarson, 6.1.2008 kl. 23:41

13 Smámynd: Calvín

Innlegg Ómars Ragnarsonar um Hriflu-Jónas er merkilegt fyrir margar sakir og hafi hann þökk fyrir það. Ég hvet hann til að koma innlegginu saman í grein og birta í Morgunblaðinu eða fréttablaðinu.

Í sveitum landsins býr auðlegð sem þarf að virkja betur í þágu lands og þjóðar. Það sjá þeir einir sem hafa farið víða og búa að haldgóðri reynslu - eins og Ómar og vissulega Jónas frá Hriflu á sínum tíma.

Megi annars þingmenn okkar njóta lífsins á Kanarí og koma endurnærðir til Íslands til að vinna landi og þjóð til gagns.

Calvín, 6.1.2008 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 809
  • Sl. sólarhring: 1080
  • Sl. viku: 8263
  • Frá upphafi: 2312524

Annað

  • Innlit í dag: 769
  • Innlit sl. viku: 7659
  • Gestir í dag: 742
  • IP-tölur í dag: 717

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband