Leita í fréttum mbl.is

Hvenær lækkar Seðlabankinn stýrivexti?

Eðlilegt er að spurt sé hvenær stýrivextir seðlabanka lækki. Seðlabankar í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað stýrivexti sína verulega vegna bankakreppu og til að fá hjól atvinnulífsins til að snúast hraðar en nú er.  Seðlabanki Íslands hefur ekki lækkað stýrivexti.  Af hverju ekki.

Ljóst er að það er ekki þensla í þjóðfélaginu lengur. Það var raunar ljóst í vor þegar Seðlabankinn skrúfaði upp stýrivextina að það væri að samdráttarskeið að skríða yfir. Sú afsökun að hafa háa stýrivexti til að hafa áhrif á gengi íslensku krónunnar gilda ekki lengur. Háir stýrivextir hafa heldur enga þýðingu lengur við að reyna að draga úr verðbólgu. Háir stýrivextir hafa þann eina tilgang í dag að draga allan kraft úr íslensku atvinnulífi.

Fólkið í landinu verður að búa við sambærileg vaxta- og lánakjör og fólkið í nágrannalöndum okkar.

Hvaða glóra er í því nú að hafa stýrivexti á Íslandi hærri en í Evrópu?

Má ekki færa gild rök fyrir því að miðað við aðstæður þá ættu þeir ef eitthvað er að vera lægri hér?

Stýrivexti Seðlabankans niður í 3% strax.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta smarta

Engin hætta á að vextir lækki meðan þessir $!&!!##"!% ( smá dulkóðun ), eru við völd í Seðlabankanum, út með þá alla og sammála þér með 3% stýrivexti, eins gott að stökkva bara langt, til að hjólin fari að snúast aftur.

Marta smarta, 10.10.2008 kl. 13:24

2 Smámynd: Vigfús Davíðsson

Daginn eftir að Davíð Oddsson lætur af störfum.

Vigfús Davíðsson, 10.10.2008 kl. 17:23

3 Smámynd: Guðmundur Eyjólfur Jóelsson

Það er engvu eftir að bíða með að lækka stýrivexti og skil ekki hvað það er sem tefur ,það er ljóst að þjóðfélagið er að breytast en til þess að það gangi betur fyrir sig þurfa stýrivextir að lækka strax helst í gær

Guðmundur Eyjólfur Jóelsson, 10.10.2008 kl. 22:01

4 Smámynd: Karl Ólafsson

Til viðbótar við þessar pælingar um stýrivextina sem 99% þjóðarinnar, leikmanna sem lærðra, virðist vera sammála um að eigi og verði að lækka verulage eigi síðar en í gær, þá langar mig líka að heyra og sjá einhverjar pælingar um hvort forsendur og grundvöllur verðtryggingar hafi ekki beðið skipbrot með fjármálakerfinu okkar?

Ég tel að vísitöluhækkun 2 1/2 árs gamals íbúðarláns míns upp á 7mkr (það er hækkunin sem er þessi tala, ekki höfuðstólinn!) eigi sér ekki lengur til neinar forsendur. Það hlýtur að vera krafa mín og annarra lántakenda vísitölutryggðra lána að stofn þessara lána verði reiknaður upp á nýtt og verðtrygging afnumin í heild sinni. Ég get ekki sætt mig við að einungis þeir sem hafa tekið myntkörfulán fái einhverja leiðréttingu sinna mála, eins og ýjað hefur verið að, þó högg þeirra hafi verið mikið á skömmum tíma. Hjá mér hefur höggið ekki orðið mikið minna, en það hefur dreifst á þó 2 1/2 ár og það mun halda áfram að höggva næstu áratugina ef ekkert breytist.

Ef ekki er tækifæri til þess núna að afnema verðtrygginguna, þegar alger uppstokkun alls fjármálakerfis landsins blasir við, hvenær verður það þá? Viljum við halda áfram með þetta rugl, eða viljum við taka upp lánakerfi sem tíðkast í flestum, ef ekki öllum löndum í kringum okkur? Hvað segið þið, þingmenn og aðrir?

Karl Ólafsson, 10.10.2008 kl. 22:08

5 Smámynd: Karl Ólafsson

Hvað varðar lækkun stýrivaxtanna, þá langar mig að spyrja að þessu:

Voru það ekki stærstu hagstjórnarmistök allra tíma að lækka bindiskyldu íslensku bankanna í stað þess að hækka hana þegar þeir fóru í útrásina og nota svo stýrivexti til að reyna að hafa hemil á einhverju sem var með lækkun bindiskyldunnar og vexti útrásarinnar í raun orðið á engan hátt háð stýrivöxtunum? Spyr sá sem ekki hefur vit á.

Karl Ólafsson, 10.10.2008 kl. 22:13

6 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Ég skrifaði færslu um það í dag hvernig lækkun stýrivaxta myndu hafa áhrif á allt hjá mér...... gangi þér vel kær Jón,

Kveðja,

Inga Lára Helgadóttir  

Inga Lára Helgadóttir, 10.10.2008 kl. 22:25

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þeim fjölgar jafnt og þétt sem nota þetta bloggheiti mitt, orðnar þrjár núna:

martasmarta,  Marta Smarta og  Marta smarta

Hún er mikil hugmyndaauðgin í henni veröld.

Marta B Helgadóttir, 11.10.2008 kl. 11:43

8 identicon

Ég er hræddur um að fleiri konur heiti Marta og telji sig smartar. En er þetta blogg vettvangur fyrir umræður um nöfn á bloggurum? Ég stóð í þeirri meiningu að hér færi fram umræða um það sem skiptir máli í dag en ekki hégóma.

Það er glórulaust og hefur verið um langa hríð að Seðlabankinn skuli hafa svo háa stýrivexti, en mér heyrist frá mínum vettvangi að ekki verði þess langt að bíða að þeir lækki, jafnvel um 3%.

Nú verður á næstu mánuðum farið í gagngera endurskipulagningu á öllu bankakerfinu og reynt að bæta fyrir óstjórn þeirra mála undanfarin misseri.

Það er ósk mín Jón að þú látir að þér kveða við þetta óvenjulega tækifæri sem nú mun gefast.

Nökkvi (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 14:29

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Geir  hefur sagt að vextir muni lækka við þessar aðstæður.

Halldór Jónsson, 11.10.2008 kl. 22:51

10 identicon

Ég er svo einfaldur, að ég taldi að tregðan við lækkun stýrivaxtanna stafaði af ótta við stóraukningu á innlausnum s.k. "jöklabréfa", en ljósi ríkjandi ástands, þá heldur sú skýring ekki vatni. 

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 15:51

11 identicon

Lækka VEXTI á 'Islandi, halló!!! Nei nei það gengur alls ekki við þurfum að borga og borga og borga fyrir þá sem hafa verið að sukka!!!! Þessi grey sem eiga einkaþotur,snekkjur og bara ALLT, hver á að blæða nema  hinn almenni Íslenski SAUÐUR??? Kanski ríkisstjórnin væri til í að vera á örorku í svona eitt ár? Eða kanski þessir útrásarkallar???????????? svo eiga allir að vera jákvæðir? Ekki frysta eigur þeirra!!!!!!!!!!!! nei nei tökum bara af öryrkjum og öldruðmum;þeir hafa hvort er aldrei neitt!  Ég segi nú bara farið úr landi hver sem getur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Heiðveig Maren Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 04:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 114
  • Sl. sólarhring: 1171
  • Sl. viku: 2695
  • Frá upphafi: 2297429

Annað

  • Innlit í dag: 106
  • Innlit sl. viku: 2511
  • Gestir í dag: 106
  • IP-tölur í dag: 105

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband