Leita í fréttum mbl.is

Framboðið til Öryggisráðsins gengur fyrir.

Íslendingar eiga nú í vök að verjast víða erlendis. Bretar hafa sótt að okkur með ósæmilegum hætti og hamast er að Íslendingum og íslenskum hagsmunum í Lundúnaborg. Sendiherrann talar um að sendiráðið sé fáliðað þegar mál eins og þau sem hafa verið mest í umræðunni tengt Íslandi koma upp í landi eins og Englandi. Þrátt fyrir að utanríkisráðuneytið sé mannfrekasta ráðuneyti Íslands þá er ekki hægt að senda fólk eða hafa tengslafyrirtæki til reiðu til að svara fyrir og koma okkar hlið á málinu á framfæri.

Í utanríkisráðuneytinu er fólk upptekið við að koma okkur í Öryggisráðið og tugir starfsmanna utanríkisráðuneytisins eru staddir í New York til að vinna að því máli á meðan ráðist er á okkur í Hollandi, Noregi, Bretlandi og Danmörku. Það skiptir ekki máli það er bara efnahagsvandi. Fólkið í ráðuneytinu verður að koma þessu áhugamáli sínu áfram. Í Öryggisráðið hvað sem það kostar.

Hefur enginn hugsað þá hugsun að miðað við núverandi aðstæður er það vægast sagt fráleitt að sækjast eftir sæti í Öryggisráðinu. Man einhver hvað það kostar á ári? Veit einhver hvað við höfum eytt miklum peningum í kosningabaráttuna?

Skrýtið eftir alla kynninguna og sendiferðir utanríkisráðherra vítt og breitt um lönd og álfur að þá skuli koma í ljós þegar við þurfum á að halda að við eigum enga vini.  Nema ef til vill Rússa. En er þá einhver glóra að reka Varnarmálastofnun og loftrýmiseftirlit? Til að verjast hverjum?

Er ekki allt þetta vafstur, sendiráðabruðl og framboð til Öryggisráðsins tómt rugl miðað við aðstæður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég hefði nú alveg átt að gefa mér andlegt rými til þezz að átta mig á því að fyrr en síðar yrði ég alveg sammála þér um eitthvað.

& þó, ég tek því með ró.

Steingrímur Helgason, 13.10.2008 kl. 23:40

2 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Já nú sem aldrei fyrr, enda vantar rólegan vinnustað fyrir Ingibjörgu

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 13.10.2008 kl. 23:41

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Bruðl, fyrirhyggjuleysi og uppskafningsháttur, skal það heita.

 p.s.

Kíktu á færsluna mína "Fjórðungi bregður til fósturs"

Sigurður Þórðarson, 13.10.2008 kl. 23:42

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Jú svo sannarlega Jón.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.10.2008 kl. 23:57

5 Smámynd: Rannveig H

Tómt rugl var það fyrir þessar aðstæður og hvað þá núna. Núna hangir maður í þeirri von um að þetta laskaða Ísland fái ekki kosningu.

Rannveig H, 14.10.2008 kl. 00:05

6 Smámynd: Skattborgari

Við höfum ekkert í þetta ráð að gera nema til að láta einhverja politíkusa hafa gott djóp en við erum með mun ódýrara úræði fyrir þá eins og örorkubætur.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 14.10.2008 kl. 00:46

7 identicon

Hver er stoltur af a ð vera Íslendingur núna???Ekki ég svo mikið er víst. Kanski maður ætti að sækja um í ráðaneyti????????????maður spyr sig.????Guð minn góður!!! Hvað er að ske og BER EINHVER ÁBYRGÐ??????? Nei örugglega ekki, kanski gamla fólkið og öryrkjar,??? Hver annar ?JÚ  alveg rétt allir almennir sauðir á Íslandi!!Bara vinna meira borga meiri skatta, launaskatta,fasteignaskatta,vask af matvöru svo erfðaskatta,og guð má vita hvað?? Svo á maður að vera stoltu af að vera Íslendingur:( ó nei takk Ég segi við ungt fólk í Guðs bænum forðið ykkur og látið engan vita frá hvaða svikalandi þið eruð!

Heiðveig Maren Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 05:34

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, ég hef bent á það, nafni, í sambandi við okkar fjárhagshrun, að við eigum að draga framboð okkar til baka, enda mun þátttakan í öryggisráðinu líka kosta okkur stórfúlgur, og mig grunar (eins og ég hafði skrifað um), að verulegur hluti kostnaðarins við kosningabaráttu fyrir framboðinu hafi verið falinn í öðru formi í utanríkisþjónustunni, enda var nýlega að koma fram stórkostleg aukning á útgjöldum hennar. Síðast í grein, sem ég var rétt í þessu að birta, Sjeikinn ætti að lögsækja Gordon Brown (þótt hann dragi fjárfestingu í Alfesca skiljanlega til baka), sagði ég um þetta mál:

  • "... og nú ætti Ingibjörg Sólrún að geta notað þessa utanríkisþjónustu okkar til að gera sjeiknum grein fyrir því, hvar raunveruleg ábyrgð liggur: í heimsborginni Lundúnum, í Westminster.
  • Já, þetta ætti að vera forgangsverkefni utanríkisþjónustu okkar, nú þegar ljóst má vera, að við höfum ekkert með það að gera spandera meira fé í öryggisráðið – þjóð með fjárhagsskuldbindingar upp á 1,9 milljónir króna á hvert einasta mannsbarn vegna Icesave-málsins."

Raunar er borin von, að mörg NATO-ríki styðji framboð okkar (og sízt Bandaríkin), ef stjórnvöld okkar gera í dag fáheyrt samkomulag við Rússa um 600 milljarða króna lán. Æ sér gjöf – og mega-lán með ótrúlega hagstæðum kjörum! – til gjalda.

Viðbót: Um Rússalánið mál hef ég skrifað þessa pistla:

Sbr. einnig greinina Gerði ekki Seðlabankinn stærstu mistökin að hafna hjálp Alþjóðagjaldeyrissjóðsins?

Jón Valur Jensson, 14.10.2008 kl. 11:30

9 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Tómt rugl - sé ekki glóruna í þessu frekar en þú Jón

hvað réttlætir að starfsmenn utanríkisráðuneytis þurfi ekki að borga tékjuskatt - jafnvel frí húsnæði, síma, ferðir á milli landa ofl ofl á kostnað skattborgarans ?  þetta mátti kanski réttlæta að einhvern hátt fyrir 20-30 árum en nú árið 2008 er flogið mörgum sinnum í viku - tölvur ofl ofl hefðu átt að losa okkur undan þessar "ánauð" Utanríkistáðuneytis sem virðist fá endalaust fé til sinna umráða - er ekki tími núna til stokka upp á nýtt og spara?

Munið þið eftir Hemma Túkall - hann hirti það aðrir vildu ekki ómaka sig við og begja sig fyrir, heldur klofuðu yfir 

Jón Snæbjörnsson, 14.10.2008 kl. 11:46

10 identicon

Nú veit ég ekki hvaðan þínar upplýsingar koma Jón, en í utanríkisráðuneytinu og sendiráðunum vinna nú allir starfsmenn beint eða óbeint við mál tengd efnahagskreppunni.  Starfsmenn sendiráðana vinna stöðugt að því að miðla upplýsingum til Íslands og svara spurningum út á við. Auðvitað hafa verið kallaðir til sérfræðingar á sviði almannatengsla, og tekur fréttaflutningur mið af ráðum þessara sérfræðinga.

Þess fyrir utan hlaupum við Íslendingar ekki frá skuldbindingum okkar þó að á móti blási - eða ertu að leggja það til? Það sama gildir um viðbrögð við efnahagskreppunni og framboðinu til öryggisráðsins. Við öxlum ábyrgð.

Öryggisráðsframboðið er norrænt framboð og með því að hætta við núna nokkrum dögum fyrir kosningu værum við einnig að bregðast hinum Norðurlöndunum!

Það er einfaldlega rangt að tugir manna séu í New York að vinna að framboðinu. Til viðbótar við starfslið fastanefndarinnar eru þar sex eda sjö.

Varðandi kostnað við framboðið kemur fram í skýrslu utanríkisráðherra sem var lögð fyrir Alþingi nú í vor (í apríl) að kostnaður nemur á bilinu 250-300 milljónum króna frá árinu 2001.

Þær upplýsingar var auðvelt að finna:

http://www.visir.is/article/20080408/FRETTIR01/80408068.

Eva (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 11:50

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það þarf enginn að telja mér trú um, að kostnaður við framboðið nemi "á bilinu 250-300 milljónum króna frá árinu 2001," og vísa ég til þess, sem ég sagði um það mál hér ofar.

PS. Getur Eva þessi ekki skrifað undir fullu nafni? Er hún á snærum ráðuneytisins? Það er meira mark tekið á innleggi starfsmanna þar, ef það birtist með fullu nafni; annars er þetta eins og léttvægt tal sem enginn þarf að taka ábyrgð á. 

Jón Valur Jensson, 14.10.2008 kl. 12:14

12 identicon

Eva, þetta eru tölur síðan í vor. Þær eru úreltar! Hvað er búið að henda í hítina síðan? Og hvað er áætlaður kostnaður árlega, ef við færum inn?

6-7 starfsmenn þar á fullum launum síðan í vor ?, sem eru svo skattfrjálsir líka? Skandall.

Ég get ekki séð hin norðurlöndin standa við bakið á okkur núna, nema helst Norðmenn, Danir hafa bara áhyggjur um að við komum ekki þangað í ár að versla. Enda engin furða eftir þeirra trakteringar undanfarna daga. Svo að ég fæ ekki séð að við skuldum þeim neitt, frekar en restinni af NATO liðinu.

Auk þess vantar allar tölur um aðra pólitíska bitlinga og fyrirgreiðslur sem ISG. hefur samþykkt eins og styrkir við Palestínu og fl. Til þess gagngert að liðka fyrir framboðið, en heitir alt annað á pappírum.

Nei það er kominn tími á aðra fyrirspurn, og þá tölur um heildarpakkann, hver er staðan í dag.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 12:28

13 Smámynd: Rannveig H

ISG skrifar svo réttilega, skerum meinin burt og þess þarf. Við þurfum að byrja í hennar ráðuneyti,það mætti svikalaust fara sá niðurskurður til félags og heilbrigðismála.

Rannveig H, 14.10.2008 kl. 13:09

14 Smámynd: Halla Rut

Algjörlega 100% sammála þér enda brá mér heldur betur í brún er ég sá að halda átti þessu til streitu.

Og hvað erum við að gera með sendiráð í t.d. Suður Afríku og Kína? Ég bara spyr, fyrir hvern og fyrir hvað?

Halla Rut , 14.10.2008 kl. 16:49

15 identicon

Kúgun og nútímaþrælahald

,,Um áratugaskeið voru helstu útgerðarstaðir á landinu Reykjanesbær og bæirnir hér í kring. Á síðustu árum hefur nánast allur kvótinn flust af svæðinu og atvinnubrestur og upplausn tekið við og annar samdráttur í þjónustu og verslun. Nýsköpun er nánast engin til að auka þjóðatekjur. Að vísu eru hérna enn leiguliðaútgerðir, arfleifð kvótakerfisins.

Það er grátlegt að sjá í blindri örvæntingu leiguliðana og sjómenn þeirra lenda í þeirri ánauð að þurfa að leigja kvóta á allt að 150 kr. pr.kg, og bera nánast ekkert úr býtum og sjá að lokum útgerðirnar fara í þrot. Hins vegar hafa kvótaeigendur sem leigt hafa kvótann frá sér á okurverði verið í góðum málum, þurft aðeins að fara í bankann með peningana sína. Sú atvinnustarfsemi útheimtir oft einungis einn mann til starfa. Þetta er eitt af mörgum neikvæðum dæmum, sem hægt er að segja um þetta kerfi, veruleiki sem snertir flestar sjávarbyggðir allt í kringum landið.

Hér fer fram ein ótrúlegasta hagfræðiflétta sem um getur í veraldarsögunni, að mínu viti. Kannski var þetta það sem háttvirtur utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson meinti þegar hann sagði hjá Sameinuðu þjóðunum að íslenska fiskveiðistjórnarkerfið væri það besta í heimi.''

Leyfi mér að gefnu tilefni að senda hérna inn smá morgunkorn sem er kafli úr grein ,,Á tímamótum'' eftir undirritaðan sem birtist í Morgunblaðinu í feb.2004 

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

P.S.

Nú er Frjálslyndi flokkurinn að koma með frumvarp um að breytta kvótakerfinu.Ég hélt að Frjálslyndi flokkurinn hafi verið stofnaður til þess að afnema kvótabraskkerfið!

B.N. (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 544
  • Sl. sólarhring: 1097
  • Sl. viku: 3125
  • Frá upphafi: 2297859

Annað

  • Innlit í dag: 514
  • Innlit sl. viku: 2919
  • Gestir í dag: 506
  • IP-tölur í dag: 497

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband