Leita í fréttum mbl.is

Ábyrgðarlaus

Stuttu eftir að forsætisráðherra lýsti yfir stuðningi við Gylfa Magnússon sem ráðherra lét hún hann taka pokann sinn. Stuttum ráherraferli svonefnds fagráðherra Gylfa Magnússonar er lokið og það með jafnmiklum ósóma og hinn fagráðherrann Ragna Árnadóttir gegndi sínu ráðherraembætti með miklum sóma.

Forsætisráðherra lá á að gera breytingar á ríkisstjórninni vegna þess að vantraust Alþingis á Gylfa Magnússon var yfirvofandi vegna þess að hann sagði bæði þingi og þjóð ítrekað ósatt. Auk heldur var Gylfi verklítill sem ráðherra. 

Gylfi Magnússon gerði hins vegar nokkra hluti sem orka mjög tvímælis svo ekki sé meira sagt. Þar koma helst til skoðunar ákvarðanir og aðgerðir ráðherrans varðandi það að fella SPRON og Straum fjárfestingarbanka. Eftir því sem séð verður þá var það rangt að fella SPRON og beinlínis skemmdarverk að fella Straum fjárfestingarbanka.

En Gylfi verður ekki sóttur til saka. Hann er í hópi ábyrgðarlausra. Alþingi fær ekki tækifæri til að greiða atkvæði um vantrausttillögu á hann sem boðuð var. Hann verður ekki sóttur til saka fyrir að gera ekki neitt varðandi ofurlaun skilanefndarfólks eins og hann ræddi um í janúar s.l. og oftar að nauðsyn bæri til að taka á.  Hann verður ekki sóttur til saka fyrir vanrækslu í starfi með því að gera ekki ráðstafanir þegar honum mátti vera ljóst að rökstuddur vafi lék á því hvort gengislánin svonefndu stæðust eða ekki.

Væntanlega gefst Gylfa Magnússyni nú tækifæri til að rifja upp ummæli sín frá þeim tíma þegar hann var róttækur mótmælandi á fundum Harðar Torfasonar á Austurvelli og velta því fyrir sér hvort það hafi verið sami maðurinn sem talaði á þeim fundum og sá sem síðar varð viðskiptaráðherra með sama nafni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jón

Þarna greini ég einhverja beiskju hjá þér. Þessi palladómur þinn yfir Gylfa er þér til mikillar vansæmdar.

Þorsteinn Pálsson fjallaði  jafn faglega um málefni Gylfa og þú gerir ófaglega.

Þetta fúsk þitt er sjáflstæðismönnum til tjóns.

Kveðja

sbg 

sigurdur (IP-tala skráð) 5.9.2010 kl. 22:38

2 identicon

Gylfi er mjög gott dæmi um mann með yfirlýstan góðan ásetning en sem fellur í  þá gryfju að ætla að sýna forsjárhyggju fyrir hinum almenna manni með því að leyna hann hlutum.  En það sem mér finnst dæmalaust gott hjá honum er að hann fann upp skilgreininguna á Vogunarsjóðum, sem skv. vísindarvefnum er Hedge Fund. En þar setur hann upp íslensku Vogunarsjóðina sem Hedge Fund skilgreiningu. Reynslulausir fjárfestar á íslandi er þar settir í flokk með fjárfestum með allt að hálfrar aldar reynslu. Bara út af því að lausleg skilgreining á Hedge Fund passar.

Svo kom þetta nokkrum á óvart ?

" The road to Hell is paved with good intentions ".

Persónuleg finnst mér að bæta ætti við þann málshátt eftirfarandi :

"og engri ábyrgð".

Góður ásetningur er einskins virði er menn hafa ekki lappirnar á jörðinni og fyrsta vísbendingin um veruleikafirringu er leyndó.

Það skemmtilega í þessari litlu Gylfa Saga er að á meðan menn hneykslast og fárast á heimsku mannsins og ósvífni þá halda stjórnvöld áfram að svæfa rannsókn mála og ganga frá hinum ýmsu málum sem þjóðin hefur gefið skýr fyrirmæli um að hún vilji hafa lokaorðið í.

Og blekkingarleikirnir halda miskunnarlaust áfram.

Hlynur Jörundsson (IP-tala skráð) 6.9.2010 kl. 08:01

3 Smámynd: Jón Magnússon

Það er engin beiskja Sigurður. Miklu frekar vonbrigði með að Gylfi skyldi standa sig svona illa. Ég bjóst við miklu meiru af honum.  Hvað svo sem því líður þá er ég ekki búinn með palladómana um Gylfa. Það á eftir að gera grein fyrir ýmsu sem nauðsynlegt er að gera grein fyrir.

Við deilum ekki sömu skoðun um þá grein Þorsteins Pálssonar sem þú nefnir. Satt að segja varð ég fyrir miklum vonbrigðum með þá grein vegna þess að almennt skrifar Þorsteinn góðar og vandaðar greinar þó þessi hafi ekki verið í þeim flokki.

En Sigurður finnst þér ekki eðlilegt að Gylfi sé dæmdur á sama grundvelli og hann hefur áður dæmt aðra?

Jón Magnússon, 6.9.2010 kl. 13:19

4 Smámynd: Jón Magnússon

Því miður er þetta allt of rétt hjá þér Hlynur.

Jón Magnússon, 6.9.2010 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 76
  • Sl. viku: 1689
  • Frá upphafi: 2296249

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1562
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband