Leita í fréttum mbl.is

Mótmæli við Alþingishúsið

Verið er að boða fólk niður á Austurvöll til að mótmæla við Alþingishúsið meðan forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína og umræður verða um hana.  Vissulega er ástæða til að mótmæla stefnu og stefnuleysi ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega úrræða- og aðgerðarleysi hennar gagnvart vanda fólks og fyrirtækja vegna stökkbreyttra höfuðstóla.

Það hefur því sjaldan verið meiri ástæða til að mótmæla duglausri og úrræðalausri ríkisstjórn en einmitt núna.

Á sama tíma og það er full ástæða til að mótmæla á Austurvelli þá er líka full ástæða til að fólk taki höndum saman um að koma í veg fyrir ofbeldi og skemmdarverk. Alþingishúsið er þjóðarhús. Það er húsið okkar allra. Það á engin að sýna þá skrílmennsku að henda einhverju í Alþingishúsið eða sóða það út. Lögregluþjónarnir sem eru við skyldustörf eru að vinna við að halda uppi friði og allsherjarreglu. Við eigum að virða það sem þeir gera og hlýða þeim og koma því fólki burt sem sýnir lögreglu óvirðingu eða veitist að lögregluþjónum.

Við eigum hvort heldur við mótmælum eða tökum þátt í umræðu að sýna að við séum siðað fólk sem leikum eftir þeim leikreglum sem lýðræðið og réttarríkið heimila.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Einhvern veginn hef ég meiri skömm á þessum mótmælum heldur en ríkisstjórninni sjálfri, því ég bókstaflega þoli það engan veginn þegar verið er að henda eggjum og grjóti í fólk og opinberar byggingar.

Ég er alveg jafnreiður út í þessa ríkisstjórn og mótmælendurnir, en ég vil frekar halda mig við siðaðri aðferðir eins og þær að nýta lyklaborð og tungu. 

Það að nota fyrrgreindar aðferðir er brot á lögum, við refsum ekki fyrir lögbrot með lögbrotum. Þannig virka ekki réttarríki.

Því miður hafa boðuð mótmæli þessi leiðindi í för með sér, jafnvel þótt fallist sé á að flestir í hópnum séu friðsamt og löghlýðið fólk.

Það er nóg að það séu þrír til fimm í hundrað manna hóp til að eyðileggja allt.

Jón Ríkharðsson, 4.10.2010 kl. 00:18

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Ef þú dregur þinn forstokkaða haus upp úr náhirðar koppnum, þá áttarðu þig öruglega á því að það er verið að mótmæla fleiru en núverandi stjórn.

Td. stjórninni sem skildi allt eftir hér í kalda kolum með blessun og dyggri aðstoð núverandi ritstjóra Moggans, og allri þeirri spillingu sem sú stjórn bauð upp á þ.á.m hinar gráðugu hýenur sem kenndar hafaverið við útrásarvíkinga.

hilmar jónsson, 4.10.2010 kl. 00:26

3 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Jón,  Sf. lofaði frjálsum handfæraveiðum, Vg. auknum strandveiðum,

það er eins og að tala við steinvegg að tala um þessi mál,

við þetta fólk, 15.000 manns án vinnu og þau efna ekki loforð sín.

Burt með þessa duglausu stjórn.

Aðalsteinn Agnarsson, 4.10.2010 kl. 00:35

4 identicon

Sæll; Jón lögmaður !

Hversu mikils virði; eru húskumbaldar, frá 19. öld - eða þá; seinni eða fyrri öldum, til samanburðar við þau mannslíf, sem kollegar þínir, Bankamenn og stjórnsýsla bera fulla ábyrgð á, að eru að fara af þessum heimi, eða hafa farið, fyrir tilverknað gróða- aflanna, lögmaður góður ?

Mér fannst rétt; að beina þessarri fyrirspurn til þín, að þessu sinni.

Þér; til nokkurar upplýsingar, má reyndar deila um, að öðru leyti hvort rauneverulegt siðað samfélag hafi nokkru sinni náð, að skjóta rótum; yfirleitt, í sögu okkar, frá öndverðu - nema; mjög skammvinn tímabil, mögulega.

Með kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 01:42

5 Smámynd: Viggó Jörgensson

Í BNA mega menn brenna þjóðfánann í mótmælaskyni.

Mér finnst í lagi að henda nestinu sínu í Alþingishúsið en ekki að brenna þjóðfánann. 

Mér finnst líka í lagi að kveikja varðelda á Austurvelli til að halda á fólki hita.  

Ofbeldi af öllu tagi fordæmi ég. 

Bæði ofbeldi lögreglu gagnvart almenningi og öfugt.

Því miður hef ég kynnst ofbeldismönnum meðal almennings en einnig meðal lögreglunnar og man eftir einum biskup.  

Því má ekki gleyma að ofbeldismenn eru það áfram þó að búið sé að færa þá í lögreglubúning eða biskupsskrúða.  

Örfáir lögreglumenn reyna allt sem þeir mega til að hleypa öllu í bál og brand með ónauðsynlegri og allt of harkalegri valdbeitingu.  

Það eru ekki endilega þeir sem halda á kylfunum í framlínunni. 

Um yfirmannavanda er að ræða.  

Þetta sá ég sjálfur á Austurvelli á föstudaginn Jón og hleypti það mjög illu blóði í okkur venjulegt fólk sem þarna var.  

Hvernig vinna þessir menn í myrkrinu ef þeir treysta sér til að andskotast í herklæðum á einhverjum ógæfusömum krakkagreyjum fyrir framan nefið á okkur heiðarlegum borgurum?   

Viggó Jörgensson, 4.10.2010 kl. 02:51

6 Smámynd: Viggó Jörgensson

Já og annað Jón. 

Ég bað suma þarna að hætta að vera með dónaskap við lögreglumennina  sem væru samborgarar okkar að vinna sín störf fyrir húsnæðislánaklafa, börnum og heimili. 

En einnig einstaka lögegluþjóna að láta dónaskapinn sem vind um eyru þjóta í stað þess að vera snakkillir að munnhöggvast við einhverja sem augsýnilega voru ekki svaraverðir í ónefndu ástandi. Ljóst væri að viðkomandi dólgar væru að skamma búninginn sem er tákn ríkisvaldsins og valdamenn þeim á bak.  Ömurlegt að sjá að lögreglumenn geti látið slíkt æsa sig svo upp að haldi megi að þá langi ekkert meir en að keyra kylfu sína í hausinn á viðkomandi. 

Ég hef hvergi fundið lagaheimild til að handtaka eða hafa afskipti af leiðinlegu og dónalegu fólki og sætum við þá mörg í steininum.

Of margir af ungu kynslóðinni í lögeglunni telja slíka heimild vera einhvers staðar. Þeir sömu hafa ekki náð þeirri tækni að taka ekki skætingi persónulega og eru eilíflega í vandræðum í störfum sínum. 

Allflestir lögreglumenn eru öndvegismenn en þeir skapbráðu skemma mikið og spilla þeim trúnaði sem við góðborgarar viljum hafa á milli lögreglu og þjóðar.  

Þá eru einnig einhverjir yfirmenn úr hófi kappsamir að ganga í augun á yfirvöldum hverju sinni og hafa farið stórkostlega út fyrir valdheimildir sínar að mínu mati.  

Ég sá stóra bót á föstudaginn frá lögleysunni gagnvart vörubílstjórum og nærstöddum á Vesturlandsvegi, en samt vantar töluvert upp á vinnubrögðin. 

Á Vesturlandsvegi var einn af toppunum þegar lögreglan sprautaði piparúða á móður er var með barn sitt að kaupa bensín á svæði sem heimilt var að dvelja á.  

Við sem viljum bæta fjárhag og öll starfskilyrði lögreglunnar gerum einnig kröfur um að við sjáum sjálf að hún starfi eftir lögum landsins. 

Það er einnig ótrúlegur dómgreindarskortur að bjóða þjóðina velkomna, með boði um táragas og kylfur í hausinn, við setningu á löggjafarþingi hennar. 

Þakkir fyrir gamalt og gott.   

Viggó Jörgensson, 4.10.2010 kl. 03:31

7 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Algerlega sammála.

Axel Jóhann Axelsson, 4.10.2010 kl. 10:46

8 Smámynd: Jón Magnússon

Já Jón en það á ekki að láta þessa 3 í 500 manna hópi koma óorði á hina sem vilja mótmæla friðsamlega. Mér finnast mótmæli eðlilegur liður í að koma málum á framfæri í lýðræðisþjóðfélagi, en það verður þá að vera í samræmi við leikreglur lýðræðisins.

Jón Magnússon, 4.10.2010 kl. 14:45

9 Smámynd: Jón Magnússon

Hilmar að sjálfsögðu mótmæla menn því sem þeir vilja mótmæla og koma þá með kröfuspjöld í samræmi við það. Ég var ekki að gefa neina forskrift um hugsanleg mótmæli eða mælast til þess við þig eða aðra að gera það eftir annarri forskrift heldur en eingöngu þeirri að mótmælin fari vel og friðsamlega fram.

Jón Magnússon, 4.10.2010 kl. 14:47

10 Smámynd: Jón Magnússon

Aðalsteinn við erum alveg sammála um þessa skilgreiningu.

Jón Magnússon, 4.10.2010 kl. 14:47

11 Smámynd: Jón Magnússon

Óskar Helgi að sjálfsögðu hefur verið og er hér siðað samfélag.  Húskumbaldinn sem þú kallar svo skiptir máli og er þjóðareign og eitt helsta lýðræðistákn þjóðarinnar.  Þess vegna skiptir það máli að fólk sé ekki að svívirða þessa sameign okkar allra.  Ég get ekki svarað því sem þú ert að spyrja um að öðru leyti vegna þess að þú ert að spyrja almennt með tilvísun í starfshætti einhverra aðila sem ég veit ekki neitt um eða hvað er um að ræða.

Jón Magnússon, 4.10.2010 kl. 14:51

12 Smámynd: Jón Magnússon

Viggó að sjálfsögðu er fólk misjafnt líka lögregluþjónar. En mér finnst ekki í lagi að henda þó ekki sé annað en nestinu sínu í Alþingishúsið. Mér finnst ekki  í lagi að brenna þjóðfána og mér finnst ekki í lagi að kveikja eld á Austurvelli. Það finnst mér umfram það sem eðlilegt er. Að öðru leyti þá þakka ég þér fyrir góða færslu.

Jón Magnússon, 4.10.2010 kl. 14:54

13 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Axel.

Jón Magnússon, 4.10.2010 kl. 14:54

14 identicon

Komið þið sælir; að nýju, Jón lögmaður - og gestir þínir, aðrir !

Jón lögmaður !

Þakka þér samt fyrir; þau svörin, sem þú gafst mér. Þín kynni að verða þörf; þá til endurskipulagsins kemur, því virða vil ég, ötula baráttu þína, gegn verðtryggingunni, meðal annars.

Með; þeim sömu kveðjum, sem fyrri /

Óskar Helgi

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 15:00

15 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir það Óskar Helgi. Ég hef raunar furðað mig á því í gegn um árin af hverju baráttan gegn verðtryggðu lánunum hefur verið svna erfið vegna þess að þau eru svo óréttlát.  En sem betur fer eru fleiri farnir að átta sig á því þó ekki verkalýðshreyfingin svo furðulegt sem það er.  En verðtryggingin verður að fara. Skjaldborgin um heimilin verður ekki mynduð meðan hún fær að leika lausum hala.

Jón Magnússon, 4.10.2010 kl. 23:34

16 Smámynd: Viggó Jörgensson

Sæll Jón aftur.

Ég sagði á öðrum vettvangi að ég yrði að sætta mig þessa aðferð sem meirihluti viðstaddra samborgara minn hefði valið, þ. e. að henda eggjum í alþingishúsið.

Ég tók líka fram að ég myndi ekki gera það sjálfur enda ekki alin upp við slíkt.  Ég yrði þá líka að þrífa þinghúsið og Austurvöll sjálfur kæmist móðir mín að slíku.  

Bestu kveðjur aftur.  

Viggó Jörgensson, 6.10.2010 kl. 00:15

17 Smámynd: Viggó Jörgensson

Sæll Jón aftur.

Ég sagði á öðrum vettvangi að ég yrði að sætta mig þessa aðferð sem meirihluti viðstaddra samborgara minna hefði valið. 

Þ. e. að henda eggjum í alþingishúsið.

Þegar ég segi að mér finnist þetta í lagi er ég að hugsa um franskar lýðræðishefðir. 

Hef séð þegar Frakkar sturta kúamykju, úlnum fiski eða mygluðum tómötum við valdastofnanir.

Ég tók líka fram að ég myndi ekki henda eggjum sjálfur, enda ekki alin upp við slíkt.  Ég yrði þá líka að þrífa þinghúsið og Austurvöll kæmist móðir mín að slíku.  

Verði það framhaldið að alltaf fylgi grjót og annað hættulegt með eggjunum. 

Þá verð ég að endurskoða þessa skoðun mína byggða á habeus corpus og fallast á þína.

Bestu kveðjur aftur.  

Viggó Jörgensson, 6.10.2010 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 176
  • Sl. viku: 2418
  • Frá upphafi: 2298391

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 2252
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband