Leita í fréttum mbl.is

Skuggaelítan

New Left Review, sem er málgagn fyrrum kommúnista og öfgafullra vinstri manna, og amast m.a. við frjálsu markaðsþjóðfélagi, birtir greiningu um hrunið á Íslandi. Greinin nefnist "Skuggaeilítan: Innherjarnir sem felldu efnahag Íslands."

Af fyrirsögninni að dæma hefði mátt ætla að umfjöllunin væri um fallin fjármálafyrirtæki og tug- og hundraðamilljarða skuldara sem voru orsakavaldar hrunsins.  Annað kom í ljós. Greinarhöfundar halda því fram, að Geir H. Haarde og Davíð Oddsson hafi af valdagræðgi og með því að stýra sjálfum sér og vildarvinum í lykilstöður, verið helstu orsakavaldar hrunsins.

Þessi niðurstaða kemur á óvart miðað við hlutlægustu greiningar sem farið hafa fram á hruninu eins og hjá Mats Josefsson, Karlo Jänneri og m.a. jafnvel hinni stjórnsýslumiðuðu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Niðurstöður greinarhöfunda New Left Review miðað við greiningar ofangreindra aðila er rugl.

Niðurstaðan kemur ekki á óvart þegar betur er að gáð. Höfundar þessarar rugluðu greinar og röngu greiningar í New Left Review eru nefnilega helstu viðmælendur og vildarvinir silfur Egils Helgasonar þau  Sigurbjörg stjórnsýslufræðingur og Robert Wade sambýlismaður hennar. 

Með greinarskrifum sínum opinbera Robert Wade og Sigurbjörg stjórnsýslufræðingur Sigurgeirsdóttir hvað það fer víðs fjarri að þau séu hlutlausir rýnendur í samtímaviðburði eða hafi hæfi eða burði til að horfa á mál og/eða atburði með hlutlægum hætti. Þeirra viðmið eru pólitísk og grunduð á hatri á markaðsþjóðfélaginu sem persónugerist í tveim einstaklingum að þessu sinni. 

Skrýtið að Sigurbjörg stjórnsýslufræðingur skuli gleyma því að Ingibjörg Sólrún vinkona hennar og fyrrum sambýlingur var alveg sammála þeim Davíð og Geir um markaðsþjóðfélagið og vildi jafnvel gefa peningaöflunum enn lausari tauminn en þeir vildu. 

Bullið í Robert Wade og Sigurbjögu Sigurgeirsdóttur ber þess glöggt vitni að þau eru fyrst og fremst pólitískt ofstækisfólk. Þau hafa vaðið uppi í skjóli Silfur Egils Helgasonar og fréttamanns á RÚV. Þeim hefur verið gefinn kostur á því af Silfur Agli og fréttamanninum vini Sigurbjargar að sveipa um sig kufli fræðimennskunnar við hefur blasið nakið lýðskrum og pólitískt ofstæki þessara skötuhjúa.

Vonandi kemur sá tími að  Sigurlaug og Wade,  fái ekki frekari tækifæri til að rógbera land og þjóð á erlendum vettvangi og níða niður fólk vegna pólitískra skoðana þess. Þá verður fróðlegt að sjá hvort og þá hverjir það verða sem kalla í annað hvort eða bæði þessara skötuhjúa til að tjá sig um mál í framtíðinni.

Hin raunverulega skuggaelíta er allt annað fólk en Davíð og Geir. Þeir eiga ekki heima þar en það eiga þau bæði Wade og Sigurbjörg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Jóhann Bragason

DAVÍÐ VALDAGRÁÐUGUR OG GEIR,ÉG HELD EKKI EN ÞEIM ÞYKIR PYLSUR ÚR BÆARINSBESTA GÓÐAR

Ásgeir Jóhann Bragason, 14.10.2010 kl. 22:34

2 Smámynd: Þór Saari

Þetta er nú frekar ódýrt hjá þér Jón.

Þór Saari, 14.10.2010 kl. 23:02

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Orð í tíma töluð Jón, innilega sammála.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.10.2010 kl. 00:49

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Gallin hér er raunvaxtakrafa á fölskum jafngreiðslu langtíma veðskuldarlánum: kallast íbúðalán af almennengi, sem felst í að lána til að byrja með pínulitla verðbólguvexti. Ótrúlegt en satt eftir 5 ár byrjar þetta að hlaða utan á sig og myndar síðan eign í efnahag lánndrottins við loka greiðslu sem getur munið 30% af raunvirði upphaflegu lánsfjárhæðarinnar til útborgunar. Þetta gildir í 3,0% verbólgu eins og í UK. Hinsvegar í 16% verðbólu eins og síðust 22 ár þá treysti ég mér ekki til að komast því hvað þessi upphæð er há.   

Ég óttast að fá engan lífeyri.

Júlíus Björnsson, 15.10.2010 kl. 08:38

5 Smámynd: Jón Magnússon

Þykir okkur það ekki öllum Ásgeir?

Jón Magnússon, 15.10.2010 kl. 09:43

6 Smámynd: Jón Magnússon

Hvað er það sem er ódýrt Þór? Þú stendur við hlið þessarar skuggaelítu fólks eins og Wade og Sigurbjargar. Skýrðu fyrir mér hvað er ódýrt í þessari umfjöllun minni og segðu mér ef þú telur að farið er rangt með að einhverju leyti.

Jón Magnússon, 15.10.2010 kl. 09:46

7 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Guðrún María já ég held að þetta séu einmitt orð í tíma töluð. Þessi menningarelíta hefur engar lausnir og í raun ekkert fram að færa annað en ásakanir á hendur öðrum.

Jón Magnússon, 15.10.2010 kl. 09:47

8 Smámynd: Jón Magnússon

Júlíus ég skil áhyggjur þínar og deili þeim með þér. En þetta er ekki beinlínis það sem verið er að fjalla um í færslunni.

Jón Magnússon, 15.10.2010 kl. 09:48

9 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég hef aldrei get séð Davíð Oddson fyrir mér nema sem góðan dreng sem alls ekki er neinn sérfræðingur í útreikningum á raunvöxtum til langframa. Langtíma markaður er eitt og í bókhaldi risanna er lengri en fimm ár [medium term].  Skammtími er er hinsvegar aðeins lengri en eitt ár.  Samfylking er í mínum augu safnsafn af liði sem hefur skoðanir til að byggja á, sökum staðreyndaskorts. Þegar skoðanir eru annarsvegar skiptir alltaf máli hver skoðar samanber ekki verða  allir hæstaréttardómarar erlendis. Eins og þú ert greinlega að vekja athygli á.  

Júlíus Björnsson, 15.10.2010 kl. 16:41

10 identicon

Takk fyrir góða grein.

Sigurður (IP-tala skráð) 16.10.2010 kl. 02:14

11 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir það Sigurður.

Jón Magnússon, 16.10.2010 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 189
  • Sl. viku: 2415
  • Frá upphafi: 2298388

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 2249
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband