Leita í fréttum mbl.is

Leiðir Ingibjargar og Samfylkingarinnar skilja.

Almennt er fagnaðarefni að fólk segi sig úr Samfylkingunni. Flokkurinn er hugsjóna- og hugmyndafræðilegt rekald. Útilokað er að átta sig á fyrir hvað Samfylkingin stendur í íslenskri pólitík í dag annað en að ganga í Evrópusambandið og selja Nubo,  sama sem Kínverska alþýðulýðveldinu,  hluta Íslands.

Þó það sé fagnaðarefni að viti borið fólk segi sig úr þessum landssöluflokki, þá varð ég óneitanlega hugsi þegar ég sá að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafði sagt sig úr Samylkingunni vegna fyrirhugaðra fyrirlestra Jóns Baldvins um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.

Þó Jón Baldvin sé e.t.v. merkilegur þá er hann ekki svo merkilegur að það sé sæmandi fyrir fyrrverandi formann Samfylkingarinnar að láta hann hrekja sig úr flokknum. 

Jón Baldvin hefur ekki frekar en Jóhanna Sigurðardóttir komið fram með vitæna skilgreiningu á banka- og efnahagshruninu. Bæði eiga það sameiginlegt að kenna pólitískum andstæðingum um. Hvorugt horfist í augu við eigin ábyrgð og allt þeirra tal eru pólitísk slagorð og hrakyrði. Hvorugt er tilbúið til að greina málið með sama hætti og gert er t.d. í Bretlandi og Bandaríkjunum. Raunar á það einnig við um rannsóknarnefnd Alþingis að hún greinir málin með öðrum hætti en sambærilegir aðilar í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Jón Baldvin er andstæðingur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og hefur komið það hraklega fram við hana á síðustu árum að það er skiljanlegt að henni sé ofboðið þegar Jón er látinn setjast í dómarastætið við fræðslu um mál sem hann virðist hafa takmarkaðan skilning á.

Það er annars merkilegur flokkur Samfylkingin. Ákveðínn hluti flokksmanna hafa ekki sett sig úr færi við að lítillækka og smána þennan fyrrverandi formann sinn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.

Ég hef aldrei verið pólitískur aðdáandi Ingirbjargar Sólrúnar Gísladóttur, en viðurkenni samt að henni er margt til lista lagt. Mér ofbauð hins vegar að horfa upp á það pakk í Samfylkingunni sem fannst það viðeigandi og sæmandi að veitast að Ingibjörgu Sólrúnu í desember 2008 og janúar 2009 þegar hún var helsjúk að berjast fyrir lífi sínu. Svoleiðis fólk sem veittist að henni er skítapakk, eins og Vilmundur heitinn Gylfason sagði. (annar pólitískur andstæðingur Jóns Baldvins)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Waage

Jón Baldvin er ótrúlega metnaðarfullur þrátt fyrir aldur og fyrri störf. Ekki veit ég hvaðan honum veitist orkan. En ég tek undir þetta flest og verð að segja að málflutningur Jóns Balvins er jafnan hroðalegar rangfærslur og svo mikið ótrúlegt bull að maður stimplar hann einna helst sem einhvern sem er bara orðin of gamall, er af rangri kynslóð og heldur að röksemdafærsla 8. áratugarins dugi á opinberum vettvangi í dag. Að það sé bara nóg að tala nógu fjandi digurbarkalega og af mikilli festu til að koma málstað sínum í gegn. Þetta dugir bara ekki lengur.

Maður heyrir þegar menn eru að þylja upp romsur, orðrétt sem þeir eru búnir að semja heima, tilþrifamikið orðsalat sem fær fólk jafnvel til þess að efast um eigið ágæti. Þetta er þó bara tómt bull.

Ég ætla að heimfæra kenningu John Cleese um Sarah Palin upp á Jón Baldvin en hann líkir henni bara við Páfagauk sem getur farið mjög fallega með texta sem hann skilur þó ekki bofs í sjálfur.

Gunnar Waage, 8.12.2011 kl. 01:01

2 identicon

Skyldi nafni þinn skýra fyrir námskeiðssækjendum kenningu sína um að Ísland hefði bjargast með Evru?

GB (IP-tala skráð) 8.12.2011 kl. 09:03

3 Smámynd: Jón Magnússon

Ég held að þetta sé ekki alveg rétt varðandi Jón Baldvin, Gunnar. Jón Baldvin hefur sett margt gott inn í umræðuna en það hefur verið næsta ótrúlegt að sjá hvað þessi gáfaði maður hefur allt of oft sýnt algjört dómgreindarleysi í orðum og gerðum.

Jón Magnússon, 8.12.2011 kl. 11:42

4 Smámynd: Jón Magnússon

GB ég hef ekki hugmynd um það. Mér finnst hinsvegar sérkennilegt að það skuli haldið námskeið í skýrslu eins og einhverju trúarriti. Ég veit ekki hvað það er sem þarfnast sérstakra skýringa við, en Jón vefur þetta sjálfsagt í tilkomumikið orðskrúð eins og honum er lagið.

Jón Magnússon, 8.12.2011 kl. 11:44

5 Smámynd: Gunnar Waage

Já svona í meiri alvöru þá hefur mér þótt hann alla jafna misnota þekkingu sína, fara líklegast vísvitandi rangt með og stunda alvarlegan einbeittan útúrsnúning. Þetta er reyndar uppskriftin að Samfylkingarmanni, jæja /

Gunnar Waage, 8.12.2011 kl. 16:35

6 Smámynd: Jón Magnússon

En Jón er snarpur Gunnar. Nú er raunar verið að segja mér að þessi frétt sé röng að Ingibjörg hafi ekki sagt sig úr Samfylkingunni.  Við skulum sjá og hafa það sem sannara reynist .

Jón Magnússon, 8.12.2011 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 144
  • Sl. sólarhring: 288
  • Sl. viku: 2810
  • Frá upphafi: 2298335

Annað

  • Innlit í dag: 126
  • Innlit sl. viku: 2622
  • Gestir í dag: 115
  • IP-tölur í dag: 114

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband