Leita í fréttum mbl.is

Eitraðar innistæður

Því er haldið fram að innistæður í Evrópskum bönkum að upphæð 1.5 trilljón ensk pund séu eitraðar og einskis virði.

Í grein í Daily Telegraph í gær segir að Evrópskir bankar þurfi að losa sig við eitraðar eignir (toxic assets) upp á 1.5. trilljón punda samkvæmt mati endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte sem segir að bankarnir séu með svonefndar non-core og non-performing eignir sem þessu nemur í eignasafni sínu.

Ensku bankarnir err mjög illa staddir og samkvæmt mati endurskoðunarfyrirtækisins þá eru sambærilegar eitraðar eignir í breskum bönum um 460 billjónir enskra punda eða meir en samanlagðar eitraðar eignir í Ítölskum, Írskum og spænskum bönkum. Þýskir bankar koma í öðru sæti með um 447 billjón punda eitraðar eignir.

Þannig er staðan eftir alla björgunarpakkana sem búið er að gefa fjármálastofnunum og vogunarsjóðum frá upphafi bankakreppunar í september 2008. Frá þeim tíma hafa skattgreiðendur verið látnir taka á sig trilljóna punda skuldbindingar Austan hafs og vestan sumir segja milli 3 og 4 trilljón Bandaríkjadala.

Spurningin er til hvers?   

Hvaða tilgangi þjónar að henda ennþá meiri peningum í gjaldþrota fjármálakerfi?  Borgar sig ekki að stokka upp og byrja upp á nýtt?

Við höfum séð hvernig er að fara hjá okkur, milljarðar og tugir milljarða og meira eru afskrifaðir hjá sumum sem halda öllu sínu og það iðulega í samkeppnisrekstri.  En það má ekki gefa neitt eftir af "innheimtanlegum lánum" einstaklinga.

Við ættum að verða fyrst til þess að aflétta skuldakreppunni með því að færa höfuðstóla lána niður miðað við október 2008 og láta síðan  leikreglur réttarríkisins og markaðsþjóðfélagsins vinna í stað sértæku lausnana sem búa bara til ójöfnuð. Ef við gerum það þá eigum við bjarta framtíð á meðan Evrópuríkin og Bandaríkin setja meiri og meiri klyfjar á borgarana til að reyna að bjarga vonlausu fjármálakerfi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Við getum varla bakkað klukkunni á skuldum, sem eru nú þegar í eigu erlendra vogunarsjóða og blessaðar í bak og fyrir af fjármálaráðherra, er það?

Það er ekkert sem stoppar þá, nema þá að viðskiptavinir sammælist um að taka út innistæður sínar og hætta viðskiptum. Það gæti hugsanlega fellt bankana og þá getur ríkið keypt hræin aftur á niðursettu verði og bakfært vexti og verðtryggingu.  Sé slíka samstöðu í anda hér.

Þessir bankar hafa frítt spil og eru krabbamein á þjóðarbúinu sem lamar allt. Kannski er hægt með einu pennastriki að fella niður verðtryggingu útlána og svæla þá þannig í burtu.

Einu er ég að velta fyrir mér...Eftir því sem ég man best var því heitið að aðskilja starfsemi þjónustubanka og fjárfestingarbanka, sem var hjú hluti þess að svo illa fór. Af hverju hefur það ekki verið gert enn? Er enn verið að gambla með friðhelg innlán svona a'la MF Global?

Jón Steinar Ragnarsson, 9.12.2011 kl. 20:36

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Ég stakk einhverju sinni upp á að gefa upp á nýtt.  Held að það farið að styttast í það.

Marinó G. Njálsson, 9.12.2011 kl. 21:44

3 Smámynd: Jón Magnússon

Ég veit það ekki Jón af hverju þetta hefur ekki verið aðskilið í bankastarfseminni, en það gengur víðar en hér erfiðlega að aðskilja þjónustustarfsemi og fjárfestingu banka.  Það sem mér finnst alvarlegast er hvað bankastarfseminn í vestræna heiminum, vogunarsjóðirnir og allt þetta peningasullumbull hefur verið innistæðulaust í langan tíma. Því miður áttuðu stjórnmálamennirnir í Evrópu og Bandaríkjunum sig ekki á því og fóru að reyna að bjarga þeim "stóru" á kostnað hinna litlu.

Jón Magnússon, 9.12.2011 kl. 23:35

4 Smámynd: Jón Magnússon

Ég held Marinó að það hefði átt að gefa upp á nýtt á Íslandi, Bretlandi, Írlandi, Portúgal, Grikklandi og Bandaríkjunum strax árið 2008 og e.t.v. víðar.

Jón Magnússon, 9.12.2011 kl. 23:36

5 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Það er dáldið erfitt að eiga samræður við þig Jón sæll, af því að þú kýst að vega og meta innlegg áður en þú birtir, sem getur tekið tíma og þá er málið dautt!  Ég virði samt þessa ákvörðun þína, því þú hefur allavega birt athugasemdir, þó þú teldir þær ekki "skynsamlegar".    Samt er alltaf gaman að eiga lifandi samræður/rökræður.  

Þið Jón og Marinó talið um að "gefa upp á nýtt".  

Í þessu fjandans  hrunmáli öllu vill ég að árétta þá grundvallarskoðun mína þann  6.október 2008;  "Það verður að núllstilla allt"!

Ég vill trúa því að þessi möguleiki hafi verið alvarlega til skoðunnar bæði hjá hrunstjórn og slökkviliðsstjórn, en þetta þótt of brilljant og ofsafengin lausn.  Meginástæðan fyrir því að ekki var hægt að ganga til fulls í núllstillingu og upprisu; rótgróin spilling og skortur á vilja til að hrista "drulluna" af sér.  

Svo ...... við höldum áfram að vaða aurinn upp að öxlum, eða hvað?

Jenný Stefanía Jensdóttir, 10.12.2011 kl. 00:39

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Hvernig geta innistæður í pundum verið eitraðar þegar gjaldmiðillinn er í fínum málum sem stendur.

Ertu kannski að tala um óinnheimtanleg lán og skuldabréf?

Sleggjan og Hvellurinn, 10.12.2011 kl. 10:10

7 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er alveg hárrétt Jenný. En það kemur ekki til af góðu og kerfið býður ekki upp á að leyfa þeim sem eru málefnalegir að komast beint inn með athugasemdir. En þessa lokun setti ég vegna ómálefnalegra athugsemda sem fólu iðulega í sér persónuníð gagnvart óviðkomandi einstaklingum. Ég hef hins vegar þá reglu að setja inn allar athugasemdir sem eru innan siðsamlegra marka.  Þínar athugasemdir komast því alltaf að Jenný, en það líður stundum dálítill tími sem ég kem að bogginu og bið ég þig velvirðingar á því.

Í umræðum á Alþingi við setningu neyðarlaganna þá talaði ég um að setja yrði ný neyðarlög um að taka verðtrygginguna úr sambandi og leiðrétta stökkbreytta höfuðstóla gengisbundinna lána. Það var sú núllstilling sem mér fannst nauðsynleg og hefði verið eina skynsemin. Í stað þess var farið í að reyna að bjarga þeim sem ekkert áttu og höfðu aldrei lagt neitt fram á kostnað hinna sem eitthvað eiga en nú stöðugt minna og minna.

Þó ég væri að klifa á þessu og biðja um stuðning við tillögur um þetta atriði þá var engin hljómgrunnur fyrir því hvorki á þingi né annarsstaðar á þeim tíma því miður. Því hefur farið fram sem við þekkjum.

Ég held að það sjái það ansi margir núna að það hefði verið farsælla að fara að mínum tíllögum hvað þetta varðar Jenný.

Jón Magnússon, 10.12.2011 kl. 11:46

8 Smámynd: Jón Magnússon

Upphæðin er tilgreind í pundum en það er verið að tala um Evrópska banka og þá koma til gjaldmiðlar eins og Evra, Pund, Svissneskir frankar, Dönsk króna o.s.frv.  Endurskoðunarfyrirtækið er að meta heildarfjárhæð eitraðs eignasafns miðað við ensk pund.  Það hefði verið hægt að tilgreina það í evrum eða dollurum og skiptir engu máli. Eitruðu skuldbindingarnar eru vafalaust í öllum þessum myntum.

Jón Magnússon, 10.12.2011 kl. 11:48

9 Smámynd: Guðmundur Jónsson

"Hvernig geta innistæður í pundum verið eitraðar þegar gjaldmiðillinn er í fínum málum sem stendur"

Gjaldmiðillin Ensk pund hefur ekkert að gera með skuldir í evrópskum bönkum hinsvegar er nothæfur seðlabanki á bak við ensk pund sem ekki er í evrulandi. Það þýðir aftur að eitraðar eigni í bönkum á Englandi hafa ekki jafn mikil áhrif til hins verra á ensk pund og eitraðar eigni í þýskum banka sem ekki er með seðlabanka af gamlaskólanum.

Annars er það merkilegt hvað illa gengur að fá pólitíkusana til að skilja grun hagfræðina. Það virðast vera að 80% stjórnmálamanna í Evrópu hafi bara ekki greind til að skilja hvernig þetta gengur fyrir sig.

Engin sem skilur af hverju Evrópa er í þessari klemmu núna léti sér detta hug að það sem verið er að brasa núna á neyðarfundi númer X , lagi ástandið, auka skuldir gjaldþrota banka og halda að hann verði aftur að banka við það það er eiginlega eins vitlaust og vitlaust getur orðið. 

Sama á við um það sem er að gerast á íslandi. Aðgerðirnar sem farið var í til að að taka á skuldavandanum eftir að bankarnir fóru á hausinn bera þess skýr merki að þetta fólk hefur ekki greind til að skilja þetta.

Hér spjalla menn sem skilja hvað er í gangi.  Mæli með að hlust á allt myndbandið í því kemur eiginlega allt fram sem þarf, til skilja hvað þarf að gera til að leysa kreppuna hér heima á einfaldan og skilvirkan hátt.  Af hverju hlustar enginn á þá sem vita augljóslega betur.?

Guðmundur Jónsson, 10.12.2011 kl. 12:51

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það eru yfir $700 billjónir (trilljónir US) af afleiðum (derivetives) á floti um æðakerfi fjármálanna. Ponsi Sceme sem endar einhverstaðar, því ekki er hægt að velta þessu sorpi endalaust. Þetta eru engar smá upphæðir og spanna efnahag fjölda ríkja eins og hann leggur sig. Þetta hreinsast ekki úr kerfinu heldur veltir meiru utaná sig þar til það springur með einum hvelli.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.12.2011 kl. 15:59

11 Smámynd: Júlíus Björnsson

1000 milljóna 25 ár "Balloon" velskuldar veltuveðsafn sem á að skila  minnst 6,0 % eignaraukningu og 5,0% eignarverðbótum á veltu er að halainn um 11% eða 110 milljónum.  60 milljóna eignarauking í þessu árferði er tíma skekkja.  Ef þessi höfuðstóll lækar um 30 % í 700 milljónir þá minnkar halið niður í 77 milljónir. Aðili sem er greiða 150.000 á mánuði fer að greiða 105.000 á mánuðuði. Eftir sprun og greiðslugeta ertir skammtíma neyslu lánum vex, og þörf fyrir eignarverðbóta tilfærslur í Kommaanda minnkar. 


Bolshevika member of the majority faction of the Russian Social Democratic Party, which seized power in the Revolution of 1917.

Vítinn er til að varst þau SDP einkenni í Íslenskum stjórmála heilum leyna sér ekki. Slátra Litlu gulu hænum er óarðbært. Þær  sem voru sendar til Síberíu gerðu hana byggilega. Við eru ekki öll eins. Slökkvuliðsmaður  eða Dómari eða lögregla sem gerir lítið sýnilegt það þýðir ekki að hann sé ónauðsynlegur. Þetta gildir líka um félagslega þjónustugeiran á Íslandi.  Fjöldi hæfra starfsmanna sé fullnæjandi. Á lið á 110% leið [staða sem getur ekki komið upp ef lánformin eru lögleg erlendis] að þakka fyrir að eignast aldrei þak yfir höfðuðið og eignar tilfærslur frá nýjum skuldaþrælum.

Júlíus Björnsson, 10.12.2011 kl. 22:17

12 Smámynd: Jón Magnússon

Það er vegna þess Guðmundur að það kemur gjaldmiðlinum ekki við. Endurskoðunarfyrirtækið gefur upp áætlun um fjárhæð eitraðra innistæðna þess vegna miðað við pund, dollar, Evru eða krónu. Það eru verðmætin sem verið er að tala um en ekki gjaldmiðilinn.

Jón Magnússon, 10.12.2011 kl. 23:49

13 Smámynd: Jón Magnússon

Það er sennilega alveg rétt Jón Steinar og þess vegna er best að klára bullið sem fyrst án þess að gera skattgreiðendur heimsins endalaust ábyrga.

Jón Magnússon, 10.12.2011 kl. 23:50

14 Smámynd: Jón Magnússon

Það er svona Júlíus stundum geta menn þakkað fyrir að gera ekki skynsamlega hluti af því að kerfið er galið.

Jón Magnússon, 10.12.2011 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 37
  • Sl. sólarhring: 698
  • Sl. viku: 2703
  • Frá upphafi: 2298228

Annað

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 2526
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband