Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðisflokkurinn í Suðvesturkjördæmi

Úrslit í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi styrkja flokkinn að því leyti að þau endurspegla málefnalega breidd í flokknum.  Formaður flokksins fékk þó ekki viðunandi kosningu. Hann er þó ekki fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins sem þarf að sæta slíkum örlögum.

Afgerandi stuðningur við Ragnheiði Ríkharðsdóttur sem hefur verið stefnufastur og skeleggur þingmaður og stuðningsmaður aðildarviðræðna við Evrópusambandið sýnir að kjósendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins telja rétt að slíkar skoðanir eigi heima í Sjálfstæðisflokknum. 

Jón Gunnarsson er duglegur þingmaður og málefnalegur. Ég var aldrei í vafa um að hann mundi njóta þeirra verka. Spurningin var hvort hann mundi ná öðru sæti eins og hann sóttist eftir eða því þriðja.

Sigurvegarinn í prófkjörinu er nýliðinn Vilhjálmur Bjarnason. Stuðningur við hann kemur ekki á óvart. Við sem þekkjum Vilhjálm vitum að hann er skemmtilegur maður og skoðanafastur. Hann hefur látið þjóðmál til sín taka þó það hafi ekki verið í flokksstarfi í Sjálfstæðisflokknum.  Jákvæði kynning í spurningaþáttum í sjónvarpi kynnti hann og nafn hans var þekkt af góðum, skemmtilegum og vitsmunalegum tilþrifum.  Vilhjálmur eyddi nánast engum peningum í prófkjörsbaráttuna og fór gegn formanni flokksins þó það væri allt kurteislega gert. 

Elín Hirst nýtur langra starfa sem fréttamaður á RÚV. Elín Hirst er hins vegar ekki ókunn störfum Sjálfstæðisflokksins þó hún hafi ekki beitt sér með virkum hætti undanfarin ár. Slíkt samræmdist ekki stöðu hennar sem fréttamaður á sínum tíma. Elín tók þátt í störfum flokksins í ungliðahreyfingunni og skilaði á sínum tíma róttækum hugmyndum um nauðsyn endurskipulagningar flokksins.

Persónulega vonaði ég að Óli Björn Kárason fengi meiri stuðning. Óli Björn hafur verið virkur í pólitískri stefnumótun hægri manna. Óli Björn má þó vel við una þar sem hann kom seint inn í baráttuna og rak hana ekki af miklum þunga eða eyddi í hana fjármunum sem máli skipta.

Miðað við skoðanakannanir má ætla að þau sem lentu í 6 efstu sætunum í prófkjörinu nái kjöri á Alþingi næsta vor. Allt eru þetta góðir fulltrúar og traust fólk, en stóra vandamálið er hins vegar að engin í þessum hópi hefur áhuga á mikilvægasta velferðarmálinu sem er afnám verðtryggingarinnar.  Ég vona að þau athugi að það mál kann að skipta sköpum um fylgi eða fylgisleysi Sjálfstæðisflokksins í næstu kosningum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða skilaboð eru það til Bjarna Ben ef að Hanna Birna fær afgerandi kosningu í 1. sætið í prókjörinu í Reykjavík?

Hermundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 11.11.2012 kl. 11:11

2 identicon

Ég sé ekki betur en að með þetta fólk innanborðs, sé nánast ljóst að þeir muni fara í eina sæng með Samfylkingunni, flokkinn sem vill ekki afnema verðtrygginuna en vilja ólmir komast undir verndarvæng EU. Ég er sjálfstæðismaður en ég get ekki kosið Sjálfstæðisflokkinn með svona fólk uppi á dekki.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 11.11.2012 kl. 11:22

3 identicon

Er það bara mér sem finnst það skrítið að það er talað um 54% kosningu Bjarna sem formanns í þessu prófkjöri en mér sýnist Árni Páll hafa fengið 49% í sínu prófkjöri ?

Varðandi verðtrygginguna þá er hún mæling á efnahagsstjórnina, ég er sjálfur með verðtryggt lán og sé hversu rosalega það hækkar alltaf, en mun fólk eiga auðveldara með að takast á við mjög sveiflukenndar afborganir vegna hækkunar vaxta á óverðtryggðum lánum ?

Ég hef hinsvegar trú á því að með lækkandi sköttum og auknum hagvexti (þegar vinstri stjórnin er farin frá) þá munu þessir hlutir vonandi batna.

Emil Emilsson (IP-tala skráð) 11.11.2012 kl. 12:34

4 Smámynd: Jón Sveinsson

Sæll Jón

Að mínu mati tel ég það vera vel viðunandi fyrir Bjarna þessi kosning,Flokkurin það mikið af hæfu fólki framm að bjóða og stuðningur við það er góður það sínir að mínu mati að það muni þjappa sér saman meira með svona kosningu því stirkur manna er mikill innan Sjáfstæðisflokksins og þannig munum við lifta þjóð vorri úr viðjum eimdarinnar sem aldrei firr áfram XD.

Jón Sveinsson, 11.11.2012 kl. 14:07

5 Smámynd: Þórir Kjartansson

Það er nokkuð víst að margir sauðtryggir sjálfstæðismenn hafa kosið Bjarna, með mikið óbragð í munninum. Eingöngu vegna flokkshagsmuna. Mér þykir Emil Emilsson vera bjartsýnn maður. Telur ekki enn fullreynt með efnahagsstjórn okkar íslendinga og þar með að verðtryggingin verði ekki vandamál. Verðtryggingin er einn stærsti orsakavaldur verðbólgunnar. Sjálfvirk svikamylla sem viðheldur endalausri hækkun vísitalna og þenslu.

Þórir Kjartansson, 12.11.2012 kl. 10:25

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Í USA gildir um jafngreiðsluveðskuld til 30 ár : Að föst heildar skuld 18,5 milljónir vegna 10 milljóna útborgunnar. Föst greiðsla   51.000 kr á mánuði , skilar raunvirði til baka, [fasteignsköttum]   og verðbótum vegna 150% verðbólgu. Gera ráð fyrir meiri launhækkunum er ekki leyst erlendis.

Þar sem heildar vextir eru fastir er engar sveiplur , en mörgum útlendingnum finnst finnst fyrstu 5 árin erfið , varla mörgum Íslendingum.
Þess raunvaxtalausu verðtygginga veðskuldir : munu skila meiri kaupmætti, betri viðhaldi fasteigna, meira raunvirði frasteignaskattaprósentu og söluverði á fermetra.

USA stjórnsýslan [þýska, Enska, hollenska,...]er með mikið meira fjármála og viðskiptavit, skammtíma og langtíma, en sú Íslenska að mínu mati.            

Júlíus Björnsson, 12.11.2012 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1312
  • Sl. sólarhring: 1315
  • Sl. viku: 3722
  • Frá upphafi: 2299695

Annað

  • Innlit í dag: 1239
  • Innlit sl. viku: 3483
  • Gestir í dag: 1187
  • IP-tölur í dag: 1155

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband