Leita í fréttum mbl.is

Aukin löggæsla öryggi borgaranna.

Það er ekki hægt að sætta sig við það að konur geti nánast hvergi verið óhultar fyrir kynferðisglæpamönnum.  Ekki einu sinni á bestu hótelum landsins. Það er ekki hægt að sætta sig við að fólk þurfi að yfirgefa heimili sín á hverjum morgni óttaslegið yfir að það verði búið að brjótast inn þegar það kemur heim.  Í vaxandi mæli eru þeir sem fremja þessa glæpi  útlendingar. Hvað á að gera til að bregðast við þessu?  Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins benti á nauðsyn þess að fá sem bestar upplýsingar um þá sem koma hingað til lands og taka á grundvelli þeirra upplýsinga ákvörðun um hvort þeim verði veitt dvalarleyfi. Hinir flokkarnir hafa hamast gegn þessum skoðunum og sumir talað um að Frjálslyndi flokkurinn sé holdsveikur af því að flokkurinn lætur sér annt um öryggi fólks. Það eru óábyrgir stjórnmálamenn sem neita að horfast í augu við raunveruleikann og neita að gera raunhæfar kröfur til að tryggja öryggi fólksins í landinu.

Nú þegar verður að bregðast við og efla lögregluna til mikilla muna svo að hún geti tryggt öryggi borgaranna og komið erlendu glæpafólki úr landi. Öryggi borgaranna og velferð eiga að vera algjör forgangsatriði stjórnmálamanna. Það eru hagsmunir allra að vel sé staðið að þessum málum ekki síst þess mikla meirihluta innflytjenda sem hingað hefur komið að undanförnu og stendur sig vel og ætlar að standa sig vel og aðlagast íslensku þjóðlífi og menningu. Við berum líka skyldur við það fólk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Það er ekki hægt að sætta sig við að fólk þurfi að yfirgefa heimili sín á hverjum morgni óttaslegið yfir að það verði búið að brjótast inn þegar það kemur heim.  Í vaxandi mæli eru þeir sem fremja þessa glæpi  útlendingar", segir þú hér að ofan.

Hvaða tölulegu upplýsingar liggja að baki þessari fullyrðingu þinni, Jón, að útlendingar fremji í vaxandi mæli glæpi sem valdi því að fólk þori varla lengur að yfirgefa heimili sín vegna ótta við innbrot? Vinsamlegast legðu þessar upplýsingar fram.

Ég minnist þess að fyrr í vetur komu fram gögn frá lögreglunni (minnir að þau hafi birst í Ríkissjónvarpinu) sem sýndu fram á að fólk af erlendum uppruna á Íslandi fremur hlutfallslega færri glæpi en aðrir íbúar Íslands.  

Virðingarfyllst,

Sigurður Ólafsson 

Sigurður Ólafsson (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 07:08

2 Smámynd: Júlíus Sigurþórsson

Sigurður:

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1259837

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1256721 (seinna kom í ljós að gerendur voru erlendir)

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1244133

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1239848

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1218273

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1191980

Ég nenni nú ekki að finna fleiri dæmi fyrir þig, þú verður bara að fylgjast með fjölmiðlum sjálfur.

En Íslenskir glæpi og Íslenskir glæpamenn duga nú bara fínt og vel það.

1/3 þeirra sem eru á Litla Hrauni eru erlendir ríkisborgarar og svo fr.

Júlíus Sigurþórsson, 21.3.2007 kl. 09:50

3 Smámynd: Guðjón Ólafsson

Sæll Jón ég dásit mjög af þessar góðu og þörfu útlendinga umræðu hjá þér og þínum flokksmönnum.

kíkktu inn á mitt blogg sem er www.gutti.blog.is  og www.123.is/gudjono  þar sérð þú í hvaða klísju ég hef lent í varðandi erlant vinnuafl.

hvar get ég sent þér e-mail eða náð í þig í síma ?

sendu mér það á gutti@strik.is

kveðja

Guðjón Ólafsson

Guðjón Ólafsson, 25.3.2007 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 944
  • Sl. sólarhring: 1254
  • Sl. viku: 6717
  • Frá upphafi: 2304032

Annað

  • Innlit í dag: 880
  • Innlit sl. viku: 6211
  • Gestir í dag: 840
  • IP-tölur í dag: 812

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband