Leita í fréttum mbl.is

Hvað er framundan hjá Framsókn.

Brigslyrði forustumanna Framsóknarflokksins í garð Sjálfstæðisflokksins eru athygliverð eftir 12 ára samstarf þessara flokka. Ljóst var eftir kosningar að Framsóknarflokkurinn vissi ekki hvert hann ætlaði. Þingmeirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins var of naumur og því var einungis einn kostur í stöðunni vildu þessir flokkar halda áfram samstarfi. Það var að mynda stjórn með Frjálslyndum eða leita eftir samstarfi. Þetta gerðu stjórnarflokkarnir ekki þó að þreifingar hafi verið í gangi. 

Mér er kunnugt um að það eru ekki allir Sjálfstæðismenn sáttir með hugsanlegt stjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Sumir áhrifamenn ráku þó mjög ákveðið á eftir því að af þessu stjórnarsamstarfi yrði. Ólyginn sagði mér að þar hafi borgarstjórinn í Reykjavík farið einna fremstur í flokki. Í sjálfu sér ekki óskynsamlegt hjá honum miðað við stöðuna í borgarmálum og sundrungu í meirihluta Sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Spurning er þá hvort búast megi víðar við samvinnu Sjálfstæðismanna og Samfylkingar en í ríkisstjórn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Eggertsson

Það er spennandi að sjá hvað Samfylkingin ætlar að semja um við Sjálfstæðisflokkinn.  Mörg voru þau kosningaloforðin.

En kannski er þetta bara spurning um stóla undir rassin á sér og völd.  Hugsjónir jafnaðarmanna?.  Skipta þær einhverju máli? 

Það fór ekki mikið fyrir jöfnuðinum hjá þeim Samfylgingarmönnum þegar þeir voru í borgarstjórn.  Hafa þeir einhverja þörf fyrir jafnaðarhugsjónir í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn?

Kjartan Eggertsson, 19.5.2007 kl. 14:10

2 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Góð ríkisstjórn í burðarliðnum.

Magnús Paul Korntop, 20.5.2007 kl. 00:07

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Aðalandstæðingur Sjálfstæðisflokksins hefur verið Samfylking ekki hvað síst eftir að Ingibjörg tók við og ekkert er fróðlegra en að líta samsuðu flokkanna sem stjórnarsáttmála.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 20.5.2007 kl. 02:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1196
  • Sl. sólarhring: 1210
  • Sl. viku: 3606
  • Frá upphafi: 2299579

Annað

  • Innlit í dag: 1127
  • Innlit sl. viku: 3371
  • Gestir í dag: 1087
  • IP-tölur í dag: 1057

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband