Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðisflokkurinn klofinn um myndun meiri hluta í Reykjavík?

Ragnheiður Ríkharðsdóttir alþingismaður sem stýrði bæjarmálum í Mosfellsbæ með myndarskap þar til fyrir skömmu síðan er greinilega hugsi yfir nýja meirihluta Sjálfstæðismanna í borgarstjórn miðað við það sem haft er eftir henni í Fréttablaðinu í dag. Þá verður ekki annað séð en varaformaður Sjálfstæðisflokksins Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sé ekki alls kostar ánægð heldur en hún segir í þessu sama blaði að Sjálfstæðisflokkurinn hafi beðið hnekki vegna borgarmálanna og segir að fólk virðist hafa misst trúna að nokkru leyti og Sjálfstæðismenn fái einna helst að súpa seyðið af því.

Þær Ragnheiður og Þorgerður virðast þannig sammála mér um það að með aðgerðum sínum hafi borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins og þeir aðrir sem stóðu að árás á gamla meirihlutann og myndun þessa meirihluta, að þá hafi skammtímahagsmunir verið teknir fram yfir langtímahagsmuni. Raunar held ég að allt velviljað og heiðarlegt fólk hljóti að viðurkenna að þær aðgerðir voru ósæmilegar óháð því hvort aðrir höfðu gert eitthvað ósæmilegt áður. 

Eitt atriði sem ekki hefur verið skoðað nægjanlega í sambandi við ruglið í Reykjavík er fjöldi borgarfulltrúa. Borgarfulltrúar í Reykjaví eru of fáir. Það væri betra fyrir lýðræðið í borginni að borgarfulltrúar væru a.m.k. helmingi fleiri.  Það mundi gera vægi hvers og eins minna og auka aðhald. Ég held að það gæti þjónað þeim tilagangi að draga úr þeirri spillingu sem allir flokkar í borgarstjórn standa að og þykir orðið sjálfsögð. Bíll og bílstjóri fyrir þrjá borgarfulltrúa. Launakjör borgarfulltrúa langt umfram vinnuframlag í flestum tilvikum. Há laun fyrir nefndarstörf  og síðast en ekki síst laun til varamanna þrátt fyrir að þeir séu aldrei kallaðir til. Það er brýnt að Reykvíkingar kynni sér hvernig þetta sómafólk sem skipar meiri- og minnihluta í borgarstjorn Reykjavíkur hefur sammælst um að sóa skattpeningum okkar í sjálft sig.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér að gera eitthvað af viti til að reyna halda haus í þessu máli er að koma á samstarfi með Samfylkingu með Dag sem borgastjóra og Gísla Martein sem forseta borgarstjórnar eða eitthvern annan borgarfulltrúa í sínum röðum annan en Villa sem er nú rúinn trausti hjá allt of mörgum borgarbúum vegna REI málsins.

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

Baldvin Nielsen (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 22:24

2 identicon

Sammála þér, sukkið í kringum borgarfulltrúana er ótrúlegt.  Endar þetta alltaf í þessu fari þegar vinstrimenn eru búnir að vera við völd?

Það gæti vissulega verið góður kostur fyrir borgarbúa að fá stabílann meirihluta Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, en alls ekki með Dag sem borgarstjóra - hann er búinn að sanna það að hann er óhæfur sem slíkur, þó svo hann virðist ganga í augu eldri kvenna.    Ef þessir tveir flokkar mynduðiu stjórn saman væri besta lausnin að ráða góðan rekstrarmann sem borgarstjóra.

Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 23:43

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sjálfstæðismenn höfðu það sem aðalatriði borgarmálastefnu sinnar síðustu 70 ár síðustu aldar að borgarstjórinn kæmi alltaf úr röðum borgarfulltrúa. Þeir gagnrýndu vinstri menn harðlega 197882 og aftur þegar Þórólfur Árnason var ráðinn að utanaðkomandi maður settist í þennan stól.

Nóg er sennilega komið af vandræðum þeirra þótt þeir kasti nú ekki líka þessu fyrir róða.

Ómar Ragnarsson, 3.2.2008 kl. 23:57

4 identicon

Sæll Jón

Mér sýnist af nógu að taka, vandamálunum í Frjálslyndaflokkunum, eða því sem er eftir af honum. Þér tókst að komast á þing þarna. Væri ekki nær að rækta eigin garð í stað þess að fjargviðrast stöðugt út í þína fyrrverandi flokksmenn?

Njóttu kjörtímabilis. Tíminn er fljótur að líða.

M. kv.

Jónas Egilsson (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 08:47

5 Smámynd: Jón Magnússon

Sæll Jónas gott að heyra frá þér. Það er nóg af vandamálum í öllum stjórnmálaflokkum og ég geri mitt  og mun gera mitt besta til að rækta garðinn í Frjálslynda flokknum.   Jónas ég er ekki að fjargviðrast út í Sjálfstæðisflokkinn. Ég er að benda á ummæli tveggja forustumanna flokksins sem eru mér sammála um að skammtímahagsmunir hafi verið teknir fram yfir langtímahagsmuni. Ef það er að fjargviðrast út í Sjálfstæðisflokkinn að tala um bruðlið og spillinguna í æðstu stjórn borgarinnar þá er það ekki nema að hluta  til rétt. Allir flokkar í borgarstjórn bera ábyrgð á því en Sjálfstæðisflokkurinn getur breytt því núna. Geri hann það ekki þá vona ég að við eigum samleið Jónas í næstu borgarstjórnarkosningum undir kjörorðinu sem við börðumst fyrir sameiginlega á sínum tíma og gerum vonandi nú og í framtíðinni "Gjör rétt þol ei órétt"  

Miðað við óbreytta stjórnarhætti verður Sjálfstæðisflokkurinn ekki valkostur í þeim kosningum.  

Jón Magnússon, 4.2.2008 kl. 09:12

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Umhyggjan fyrir gamla flokknum þínum er aðdáunarverð.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 4.2.2008 kl. 09:52

7 identicon

Sæll aftur og takk sömuleiðs.

Alveg rétt hjá þér að forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafa mismunandi skoðanir á málefnum líðandi stundar. Þannig hefur það verið, eins og þú manst, og þannið verður það. En "so what?" Réttlæti eins getur verið annars óréttlæti. Reyndar skal ég fúslega viðurkenna að það var mér ekkert sárt að sjá vinstrimenn missa völdin í Reykjavík, sérstaklega með svipuðum hætti og þeir fengu þau í haust. Hvort þeim sem nú sitja við völd tekst að spila rétt úr, er annað mál. Reyndar hefði ég fengið að ráða, hefði ég staðið aðeins öðru vísi að, en það er einfaldlega ekki mitt að ákveða.

Lexían sem öll ættum að læra úr borgarstjórn á sl. ári, er að sú sundrung sem hefur ekki verið neinum til góðs - sundrung var ekki til staðar þegar Sjálfstæðismenn báru gæfu til þess að ganga samhentir til leiks.

En ég er þegar farinn að hlakka til næstu borgarstjórnarkosninga og þú gefur mér smátilefni til þess.

Jónas Egilsson (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 10:18

8 Smámynd: Jón Magnússon

Heimir að sjálfsögðu ber ég umhyggju fyrir Sjálfstæðisflokknum hvort það er aðdáunarvert eða ekki er annað máli. Ég hef ítrekað sagt bæði fyrr og síðar að ég  hefði helst kosið að allt borgaralega sinnað fólk gæti starfað saman í einum flokki en harðlínumennirnir sem tóku völdin á sínum tíma í Sjálfstæðisflokknum komu í veg fyrir það. Það var síðan lag eftir síðustu kosningar að mynda ríkisstjórn til hægri með Frjáslyndum og Framsóknarflokknum en Sjálfstæðisflokkurinn tók þá afstöðu að mynda ríkisstjórn til vinstri. Enginn borgaralegur flokkur á Norðurlöndum nema Sjálfstæðisflokkurinn hefði látið sér það til hugar koma nema hinn möguleikinn væri gjörsamlega útilokaður.

Jónas ég vona að við eigum samleið í næstu borgarstjórnarkosningum undir gunnfána Frjálslyndis og framfara.

Jón Magnússon, 4.2.2008 kl. 11:15

9 identicon

Komdu sæll Jón. Þakka þér fyrir þennan pistil svo og marga aðra sem ég hef lesið og alla jafnan haft gaman að. En ég er svolítið undrandi á hvernig þú byrjar þenna pistil. Þú segir að Ragnheiður Ríkarðsdóttir hafi stjórnað Mosfellsbæ með myndarskap? Ég sé á þessu að þú hefur engan veginn kynnt þér hennar stjórnartíð. Hún er Stalínisti fram í fingurgóma. Og horngrýtis púta. Hún vílaði ekki fyrir sér að eyðileggja Tónlistarskólann þarna og fleiri stofnanir. Ég vann undir hennar stjórn þarna sem kennari, og hef aldrei á ævi minni eða ég ætti heldur að segja á mínum ferli sem kennari í 27 ár séð aðrar eins bréfaskriftir frá valdhafa. Út af henni sagði ég og margir aðrir okkur úr Sjálfstæðisflokknum. Og annað Jón, hún er ekki ein af forystumönnum flokksins. Flokkar með svona ofstækisfullar frekjur ættu að reyna að losna sem fyrst við þær. Stundum hélt maður bara að henni væri ekki sjálfrátt. Hvað frekjugang snertir gildir það jafnt um karla sem konur. Það er synd að hún skuli vera kominn svona langt í landspólitíkinni. Vonandi dettur hún út úr í næstu kosningum. Ég bendi þér á að kynna þér störf þessara vesalings manneskju áður en þú ferð að tala um hana og hennar "myndarskap" í sömu setningu. Hún er skaðræðisgripur. Með beztu kveðju.

bumba (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 11:37

10 identicon

Það er mjög athygglisverð skoðun að halda því fram að Frjálslyndi flokkurinn sé borgaralegur flokkur. Finnst flest sem frá honum kemur meira í ætt við hefðbundinn popúlisma... Það sem frá Samfylkinginunni kemur er mun hægri sinnaðra og frjálsyndara en það sem frá þingmönnum Frjálslyndra kemur. Mín tilgáta er nú reyndar sú að Jón Magnússon sé einn á báti þingflokknum, t.d. finnst mér gamli Alþýðubandalagsmaðurinn sem er í þingliðinu ansi langt frá því að vera í borgarasinnuðum flokku...

IG (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 624
  • Sl. sólarhring: 953
  • Sl. viku: 5151
  • Frá upphafi: 2301323

Annað

  • Innlit í dag: 579
  • Innlit sl. viku: 4821
  • Gestir í dag: 565
  • IP-tölur í dag: 548

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband