Leita í fréttum mbl.is

Bera Ísraelsmenn enga ábyrgð?

Undanfarna daga hefur her Ísraels drepið um 200 hundruð Palestínumenn þar á meðal konur og börn vegna þess að vitleysingar á Gasa ströndinni skutu heimatilbúnum flugskeytum á Ísrael og urðu einum manni að bana. Flugskeytaárásir á Ísrael eru óviðunandi og ekki afsakanlegar. En þær afsaka ekki aðgerðir Ísraelsmanna. Ísrael heldur Palestínumönnum í tveim risasórum fangelsum þar sem múrar ófrelsisins loka fólk inni. Það er sorglegt að þessi þjóð sem hefur sjálf mátt þola svo mörg hermdarverk gagnvart sér skuli nú standa að morðum á saklausu fólki aftur og aftur.

Spurning er hvort við eigum að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael? Vissulega kemur það til greina. Þá mundum við taka þá ákvörðun að slíta stjórnmálasambandi við þær þjóðir sem virða ekki frumskyldu ríkis að virða rétt eigin borgara eða þeirra sem ríkið ber ábyrgð á "réttinn til lífs." Ísrael hefur ítrekað sýnt að þeir virða ekki rétt Palestínumanna til lífs og fara gegn þeim með harðræði og morðum. Íran fer einnig þannig að gagnvart ýmsum sínum borgurum og þannig mætti áfram telja því miður nokkur ríki sem virða ekki réttindi borgara landa sinna eða þeim sem þeir bera ábyrgð á að njóti borgaralegra réttinda.

Hvað sem þessum hugleiðingum líður þá þótti mér vænt um það að Geir H. Haarde forsætisráðherra skyldi lýsa því yfir á Alþingi í dag að aðgerðir Ísralesmanna væru fordæmanlegar og óafsakanlegar. Ég held að það sé betra að halda stjórnmálasambandi við Ísrael og láta þessa "vini"okkar vita að þrátt fyrir að við höfum jafnan staðið með þeim á alþjóðavettvangi þá hafi þeir ítrekað gengið of langt og við munum í framtíðinni leitast við að koma lögum yfir þá sem ógna lífi fólks og sviptir það mannréttindum hvort heldur þar er um einstaklinga eða þjóðir að ræða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Góð grein.  Það er sláandi hvað Ísraelsmenn hafa tekið upp marga takta frá fyrrum kúgurum sínum.  Núna síðast eru ráðamenn í Ísrael farnir að hóta Palestínumönnum helför.  Á ljósmyndum má sjá slagorð sem ísraelskir unglingar mála á húsveggi Palestínumanna gasofnana með Palestínuaraba!"  (Gaz the Arabs!).

Jens Guð, 4.3.2008 kl. 00:16

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Tek undir að þetta eru góðir punktar. Verð þó að segja að það er mér með öllu óskiljanlegt að alþjóðasamfélagið sé ekki fyrir löngu búið að stilla sér upp á milli þessarar aðila og tryggja það að lífvænlegt umhverfi sé komið á fyrir Palestínumenn. Það er með öllu óþolandi hvernig að Ísraelsmenn eru markvist að draga úr öllum möguleikum Palestínskuþjóðainar á að framfleyta sér, eiga samskipti við aðrar og sín á milli. Og við horfum bara á þegar Ísrael er smátt og smátt í raun að innlima öll herteknusvæðin með því að hvetja fólk til að setjast þar að.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.3.2008 kl. 00:38

3 identicon

Óþarfa áhyggjuefni, þar sem að landið er svo lítið að það skiptir engu máli hvað það hefur til málanna að leggja. Fyrir utan það er Ísrael útibú Bandaríkjastjórnar og þess vegna er sú valdaklíka það sterk að litla Ísland veit nú hvað það þýðir. Eða, kannski þarf ekki ríkisstjórn Íslands að hugsa vegna þessa að þjóðin þegar er puttaríki bandaríkjastjórnar og þarf þar af leiðandi ekki að hugsa neitt nánar um málið.

ee (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 00:54

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

"Það er sorglegt að þessi þjóð sem hefur sjálf mátt þola svo mörg hermdarverk gagnvart sér skuli nú standa að morðum á saklausu fólki aftur og aftur"

Hermdarverk, Jón Magnússon? Nei, það var nú hvorki meira né minna en ÚTRÝMING þegar best lék.

Fyrir þá sem vilja evruna og Efnahagsbandalagið gilda líka reglur og skuldbindingar, sem gætu reynst erfiðar fyrir Íslendinga, sem halda að hægt sé að viðra hvaða sögulausa skoðun sína sem er, líkt og óhrein nærföt á helgum degi.

T.d. þessi regla:

http://eumc.europa.eu/eumc/material/pub/AS/AS-WorkingDefinition-draft.pdf . Orð hafa afleiðingar í Evrópu nú.

Sjá http://www.postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/463655/

Jens Gvuð, þessar veggjaskriftir sem þú nefnir hefur t.d. háskólinn Haifa í Ísrael safnað og sýnt umheiminum á veraldarvefnum. En þar er líka safnað myndum af veggjakroti í arabaheiminum og í Evrópu. Það er eins gott að þú kannt ekki arabísku.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.3.2008 kl. 06:53

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Í dag hef ég viðbjóð á ísraelsku rikisstjórninni.  Hef ekkert meira um það að segja.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.3.2008 kl. 08:00

6 Smámynd: Jens Guð

  Vilhjálmur,  ég kann ekki arabísku.  Ég ætla mér heldur ekki það hlutverk að verja neitt sem Palestínumenn hafa gripið til í andófi gegn ofríki,  landnámi,  aðskilnaðarstefnu eða öðru sem Ísraelsmenn standa fyrir.  Það er bara dálítið sláandi þegar Ísraelsmenn grípa til orðfæra eins og að hóta helför eða að senda Palestínumenn í gasofna.  Það vekur óhug þegar sagan er höfð til hliðsjónar.

Jens Guð, 5.3.2008 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 17
  • Sl. sólarhring: 955
  • Sl. viku: 4544
  • Frá upphafi: 2300716

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 4258
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband