Leita í fréttum mbl.is

Landssala, nauðung og hungursneyð

Kínverjar, Saudi Arabar, Suður Kóreumenn, Indverjar og fleiri hafa á undanförnum árum keypt gríðarleg landssvæði víða um heim af fátækum þjóðum. Þær þjóðir sem fallast á að selja landið sitt eru venjulegast í mikilli neyð. Landssalan er réttlætt með því að hagvöxtur aukist og kjör batni við að fá erlent fjármagn inn í landið á grundvelli landssölu.

Í nýrri skýrslu segir að vegna landssölu þurfi ríkisstjórn Ethíópíu að þvinga tugi þúsunda af fátækasta fólkinu í landinu til að flytja frá frjósömu landi sem hefur verið selt til fjárfesta í  Saudi Arabíu og Indlandi. Fólkið er neytt til að flytja í þorp þar án skólar, sjúkrastofnana og hreins vatns.  Þegar hafa 20.000 manns verið flutt frá landssvæðum sem ættbálkarnir hafa búið á öldum saman. Búist er við að þegar upp verður staðið hafi 1.5 milljón manns verið flutt nauðungarflutningum vegna landssölunnar.

Indverjar og Saudar taka yfir frjósamt land í Gambella héraðinu, á stærð við Lúxemborg til ræktunar til útflutnings í ágóðaskyni. Þegar hefur til viðbótar verið selt land á stærð við Belgíu til erlendra fjárfesta.

Í dagblaðinu Daily Telagraph á miðvikudaginn er fullyrt að víðtæk mannréttindabrot fylgi nauðungarflutningunum, handtökur af tilefnislausu, einangrun, líkamsmeiðingar, nauðganir og fleira.

Það er ekki alltaf gull og grænir skógar sem fylgja því að selja landið sitt.

Þeir Samfylkingarmenn og taglhnýtingar þeirra sem vildu ólmir selja gríðrlegt land í Þingeyjarsýslu til Kínversks fjárfestis ættu að skoða það hvort það sé ekki betra að þrengja aðeins að sér í núinu og spara í ríkisrekstrinum til  hagsbóta fyrir framtíðina í stað þess að fórna landinu vegna skammtímasjónarmiða.

Þeir sem ólmast yfir því að innanríkisráðherra neitaði að selja Grímsstaðalandið og stóð að málum með lögformlegum hætti, ættu að gaumgæfa, hvort það hefði verið landi og þjóð til blessunar á sínum tíma að selja Gullfoss.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Þetta eru flókin mál þar sem á togast frjálslyndi og íhaldssemi. Sannir frjálshyggjumenn myndu segja að það væri hagkvæmast fyrir alla að fjármagnið leiti þangað sem það vill án hindrana. Þeir íhaldsamari draga línuna við ákveðna landstærð eða stærð lóðar.   

Það sem mér finnst merkilegt er að þeir sem mótmæltu því að kanadískt fyrirtæki keypti HS Orku þeim finnst allt í lagi að kínverskt fyrirtæki kaupi risastórt landflæmi hér !! 

Svo má spyrja, hvers vegna mega evrópsk fyrirtæki kaupa hér land en ekki kínversk.  Og hvað með evrópsk fyrirtæki sem kínverkir aðilar eiga 10% í eða 20% eða hvar eru mörkin ?  

Fjárfestingar ríkra landa í fátækum löndum hafa í sögunni oft leitt til góðs og báðir grætt þó flestar sögurnar sem sagðar eru af því séu á hinn veginn.

Þetta er ekki einfalt mál!

Þorsteinn Sverrisson, 20.1.2012 kl. 16:40

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Ætli þessir bannsettu Þingmenn ætli að vera búnir að koma öllum sinum eignum og afkomendum úr landi þegar við erum orðin gestir her og með Þingmenn frá Kina ?

Erla Magna Alexandersdóttir, 20.1.2012 kl. 16:41

3 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Aðilar innan EES geta nú keypt land með 15-30% afslætti.  Hefur áhugi þeirra eitthvað aukist?

Lúðvík Júlíusson, 20.1.2012 kl. 20:03

4 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir gott og málefnalegt innlegg. Því miður hefur heimurinn þróast með þeim hætti Þorsteinn að hugmyndir um frjálst flæði fjármagnsins á grundvelli óheftrar markaðshyggju ganga ekki upp vegna þess reginmismunar sem er milli svæða og landa í heiminum. Þannig verður ekki til neinn raunverulegur frjáls markaður heldur skortsala. Þjóðir á hungurmörkum leysa bráðavanda með því að selja land og skapa meiri vanda til lengri tíma litið. Til þess að hugmyndafræði markaðshyggjunar gangi upp þá verða skilyrðin að vera fyrir hendi.

Þess vegna gekk það ekki upp að hafa óheft flæði fjármagns til að eyðileggja framleiðslufyrirtæki í Evrópu og Bandaríkjunum til að flytja þau til landa þar sem vinnuaflið nýtur ekki lágmarksréttinda og hefur ekki nema lítinn hluta þeirra starfskjara sem verkafólk í Evrópu og Bandaríkjunum nýtur.  Það er í raun ótrúlegt að ríkisstjórnir Evrópu og Bandaríkjanna skyldu leyfa þessu að gerast. Afleiðingin sem er að koma í ljós er aukið atvinnuleysi og lakari lífskjör.

Jón Magnússon, 21.1.2012 kl. 00:19

5 Smámynd: Jón Magnússon

 Góð spurnin Erla

Jón Magnússon, 21.1.2012 kl. 00:20

6 Smámynd: Jón Magnússon

Ég veit það ekki Lúðvík en þar er munurinn á að fjárfestar í þeim löndum eru almennt með skammtímasjónarmið. Það eru t.d. Kínverjar ekki.

Jón Magnússon, 21.1.2012 kl. 00:21

7 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Jón, aðilar utan EES geta auðveldlega stofnað skúffufyrirtæki og geta með þeim hætti keypt land með þessum 15-30% afslætti sem þeim býðst nú.

Dæmið er auðvitað Magma Energy, fjárfestingu sem var mikið fagnað.  Það greiddi að hluta með aflandskrónum og fékk 400 milljón króna afslátt, athugasemdalaust.

Lúðvík Júlíusson, 21.1.2012 kl. 09:38

8 Smámynd: Magnús Jónsson

Jón: Fer svona sala á landi og nauðungarflutningar ekki illa með tímanum, maður hefði haldið að eitthvað hefð men lært um afleiðingar af slíku, til að mynda vandinn með Palestínumen, mér finnst að þarna sé að eins verið að búa til enn eina púðurtunnuna, sem alþjóðasamfélagið á svo eftir að súpa seiðið af, 1,5 milljón mans neitt til að flytja ?, hefði haldið að það sem þessu fólki vantaði síst, væru enn einar flóttamanna búðirnar.

Magnús Jónsson, 21.1.2012 kl. 10:06

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Það er staglast á af sumum að afhverju mega kínverjar ekki kaupa ef ESS ESB menn mega kaupa. Hverskonar réttlætiskennd er þetta. Við sem þjóð eigum að standa  gegn allri sölu lands sem er fyrir erfingja okkar. Við erum sjálfbær eða er það ekki. Hér er talað um að við megum ekki spilla náttúrunni sjálfri vegna þess að við eigum að skila henni til afkomenda. Hverskonar hræsni er þetta.

Valdimar Samúelsson, 21.1.2012 kl. 10:59

10 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Landakaup fyrir söfnunarfé samtaka sem nutu velvildar Sameinuðu Þjóðanna ásamt skæruhernaði kom milljón manns á vergang fyrir botni Miðjarðarhafs um miðja síðustu öld. Maður sér samt ekki fyrir sér að Kínverjar myndu hefja skæruhernað á nágrannabyggðir frá Grímstöðum á fjöllum í nánustu framtíð. Sammála því að það þurfi að taka allt regluverkið til gagngerrar endurskoðunar. Bæði lönd og fyrirtæki í sjávarútvegi sem öðrum greinum eru að miklu leyti komin í erlenda eigu í gegn um "íslensku bankana" les erlendu bankana.

Sigurður Þórðarson, 21.1.2012 kl. 20:47

11 Smámynd: Jón Magnússon

Alveg hárrétt Lúðvík. Því miður er það þannig.

Jón Magnússon, 22.1.2012 kl. 13:29

12 Smámynd: Jón Magnússon

Alveg sammála þér Magnús.

Jón Magnússon, 22.1.2012 kl. 13:30

13 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er alveg rétt Valdimar. Við eigum að standa gegn allri landssölu.

Jón Magnússon, 22.1.2012 kl. 13:30

14 Smámynd: Jón Magnússon

Já Sigurður þetta er svona. Þú ert glöggur maður og greinir þetta alveg hárrétt.

Jón Magnússon, 22.1.2012 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 127
  • Sl. sólarhring: 327
  • Sl. viku: 3068
  • Frá upphafi: 2294687

Annað

  • Innlit í dag: 119
  • Innlit sl. viku: 2797
  • Gestir í dag: 112
  • IP-tölur í dag: 111

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband