Leita í fréttum mbl.is

Það er eitthvað rotið í listalífi Íslands

Einhver tók ákvörðun um að svisslendingur skyldi reisa mosku inn í kirkju í Feneyjum á kostnað íslenskra skattgreiðenda.

Listamaðurinn hefur m.a, í listsköpun  lýst aðdáun á sjálfsmorðsfluginu á tvíburaturnana í New York 11. september.  Það var því að vonum að íslenska listaelítan sem sér um Feneyjatvíæringinn skuli hafa valið hann til að koma íslömskum áróðri á framfæri í Feneyjum á kostnað íslenskra skattgreiðenda  á forsendum listar.

Þrátt fyrir að borgaryfirvöld í Feneyjum hafi ekki leyft opnun moskunnar inn í kirkjunni þá var hún samt opnuð. Ibrahim Sverrir Agnarsson helsti talsmaður Múslima á Íslandi lýsti þessu með eftirfarandi hætti:

"Frábær dagur í moskunni í dag og ekkert vesen með yfirvöld og reglulegt hefðbundið bænahald. Sádar og fleiri forríkir hafa reynt að fá að byggja mosku í Feneyjum í áratugi og ekkert gengið---- Svo kemur hið smáa Langtiburtustan Ísland og reisir fallegustu og áhrifamestu mosku í Evrópu. Glæsilegt Múslimar taka andköf af hrifningu."

Þá liggur það fyrir. Markmiðið var að byggja mosku í Feneyjum á fölskum forsendum.

Nú er eðlilegt að spurt sé: Hver ber ábyrgð á þessu?  Málið heyrir undir menntamálaráðuneytið og Illugi Gunnarsson verður að svara fyrir málið. Ber hann ábyrgð en ef ekki hver þá.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér góðan og öflugan pistilinn, nafni minn.

Þetta mál allt er þvílíkt hneyksli, eins og ég hef nú fjallað um í þremur blogggreinum mínum (þær sjást með því að smella hér á nafn mitt).

Ekki bætir það úr skák fyrir listaelítunni að hafa valið til þessa Svisslending sem eins og nokkrir aðrir snarruglaðir lýsti aðdáun sinni á sjálfsmorðsfluginu á Tvíburaturnana 11. september 2001.

Með kærri kveðju,

Jón Valur Jensson, 10.5.2015 kl. 14:12

2 identicon

Greinilega ekki hægt að treysta íslensku listaelítunni.

Nær hefði verið að láta verðbréfasjóðinn GAMMA sjá um þetta.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 10.5.2015 kl. 14:41

3 Smámynd: Tryggvi Helgason

Ef það er svo að íslendskur ráðherra sé á bak við þennan gjörning í Feneyjum, og að sá hinn sami ráðherra, -  (Illugi Gunnarsson), - hafi samþykkt að taka 80 milljónir króna af fjármunum íslendskra skattborgara, til þess að greiða fyrir útbreiðslu múhameðstrúar í öðru landi, - (og það meira að segja án leyfis og í fullkominni andstöðu við ráðamenn þeirrar þjóðar), -  þá lít ég svo á að hann, - (ráðherrann), - eigi tafarlaust að segja af sér.

 

Ég tel að þessi framkoma sé fullkomin óvirðing við hina kristnu íslendsku þjóð, sem hefur verið kristin allt frá þeim tima að fyrstu landnámsmennirnir stigu á land á eynni hvítu, það er að segja í 1141 ár . Og svo sem öllum er kunnugt, þá var kristni lögtekin, (lögvarin), árið 1000, og allt frá þeim tíma þá hefur hin kristna trú verið hin einu löglegu trúarbrögð á Íslandi. Alla tíð síðan þá hafa öll önnur trúarbrögð verið ólögleg á Íslandi, þar með talið ásatrú og múhameðstrú. Tími er kominn til þess að hart verði gengið fram í því að þessum lögum verði framfylgt.

 

Verði viðkomandi ráðherra ekki við því að segja af sér, þá tel ég að forsætisráðherra (og ríkisstjórnin) eigi að láta málið til sín taka og víkji ráðherranum frá og þá jafnframt að annar verði tilnefndur í hans stað.

 

En fari svo að þetta gangi ekki eftir, þá lít ég svo á að öll ríkisstjórnin sé samsek í þessu máli öllu.

 

Og ef svo; … þá er það jafnframt mitt álit að Forseti Íslands eigi að víkja allri ríkisstjórninni frá og skipa síðan óháða utanþingsstjórn sem sitji til loka þessa kjörtímabils.

Tryggvi Helgason, 10.5.2015 kl. 16:11

4 Smámynd: Tryggvi Helgason

Ef það er svo að íslendskur ráðherra sé á bak við þennan gjörning í Feneyjum, og að sá hinn sami ráðherra, -  (Illugi Gunnarsson), - hafi samþykkt að taka 80 milljónir króna af fjármunum íslendskra skattborgara, til þess að greiða fyrir útbreiðslu múhameðstrúar í öðru landi, - (og það meira að segja án leyfis og í fullkominni andstöðu við ráðamenn þeirrar þjóðar), -  þá lít ég svo á að hann, - (ráðherrann), - eigi tafarlaust að segja af sér.

 

Ég tel að þessi framkoma sé fullkomin óvirðing við hina kristnu íslendsku þjóð, sem hefur verið kristin allt frá þeim tima að fyrstu landnámsmennirnir stigu á land á eynni hvítu, það er að segja í 1141 ár . Og svo sem öllum er kunnugt, þá var kristni lögtekin, (lögvarin), árið 1000, og allt frá þeim tíma þá hefur hin kristna trú verið hin einu löglegu trúarbrögð á Íslandi. Alla tíð síðan þá hafa öll önnur trúarbrögð verið ólögleg á Íslandi, þar með talið ásatrú og múhameðstrú. Tími er kominn til þess að hart verði gengið fram í því að þessum lögum verði framfylgt.

 

Verði viðkomandi ráðherra ekki við því að segja af sér, þá tel ég að forsætisráðherra (og ríkisstjórnin) eigi að láta málið til sín taka og víkji ráðherranum frá og þá jafnframt að annar verði tilnefndur í hans stað.

 

En fari svo að þetta gangi ekki eftir, þá lít ég svo á að öll ríkisstjórnin sé samsek í þessu máli öllu.

 

Og ef svo; … þá er það jafnframt mitt álit að Forseti Íslands eigi að víkja allri ríkisstjórninni frá og skipa síðan óháða utanþingsstjórn sem sitji til loka þessa kjörtímabils.

Tryggvi Helgason, 10.5.2015 kl. 16:14

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég er fovitinn. Með hvaða listsköpun hefur listamaðurinn lýst aðdáun sinni á sjálfsmorðfluginu á Tvíburaturnana í New York 11. september 2001? 

Með þessum gerningi eða einhverjum öðrum áður? 

Ómar Ragnarsson, 10.5.2015 kl. 16:27

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Varla ad madur eigi ord yfir thessari fáránlegu uppákomu, sem greidd er af skattpeningum okkar. Hér er eingöngu verid ad ögra í nafni svokalladrar listar. Thetta á ekkert skylt vid list, svo mikid er víst og er hrein og klár módgun vid almenning í landinu! Their verda sennilega ekki í vandraedum med ad fjármagna moskuna sína í Reykjavík eftir svona trakteringu. Lódin frí, kynning erlendis frí og ekki ad efa ad sedlarnir streyma sem aldrei fyrr frá sádunum. Listaelítan á Íslandi, ásamt menntamálarádherra landsins hefur gert illa í brók og aetti ad skammast sín.

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 10.5.2015 kl. 17:50

7 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er eitthvað stórkostlegt að þegar okkur sem þjóð býðst að kynna land og þjóð á stórri listsýningu erlendis, að þá skuli ráðinn erlendur listamaður til verksins og efnistök hans vísa til trúar sem innan við eitt þúsund Íslendinga stunda.

Ofaná allt þá er Ísland stimplað sem hryðjuverkaþjóð af lögreglu Ítala!

Það þarf vissulega að fá upp á borðið hver ber ábyrgð á þessu rugli og hversu stór hluti kostnaðar við það er greiddur í ríkissjóð.

Gunnar Heiðarsson, 10.5.2015 kl. 19:13

8 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Jón Valur. Við erum sammála eins og ég les úr blogggreinunum þínum og þetta er svo ótrúlegt rugl að maður trúir því varla að opinberir aðilar hafi komið að þessu og samþykkt þetta. En þannig var það.

Jón Magnússon, 10.5.2015 kl. 20:56

9 Smámynd: Jón Magnússon

Þeir hefðu sjálfsagt séð einhverja hagsmuni í að auglýsa íslenskan listamann í stað þess að reyna að stuða fólk.

Jón Magnússon, 10.5.2015 kl. 20:57

10 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er hjartanlega sammála þér Tryggvi.

Jón Magnússon, 10.5.2015 kl. 20:58

11 Smámynd: Jón Magnússon

Ómar hann gerði það í gjörningi í London árið 2007 það koma fram upplýsingar umþ að á fésbókarsíðunni minni. En þar stóð hann að gjörningi sem að fregnum að dæma fól í sér aðdáun á sjálfsmorðsárásinni en auk þess dreifði þessi snillingur riti Adolfs Hitlers "Mein Kamp" í arabískri þýðingu.  Greinilega reginsnillingur. Eðlilegt að listaelítan fyndi engan innlendan málara sem stæði honum á sporði.

Jón Magnússon, 10.5.2015 kl. 21:00

12 Smámynd: Jón Magnússon

Hjartanlega sammála Halldór Egill.

Jón Magnússon, 10.5.2015 kl. 21:00

13 Smámynd: Jón Magnússon

Mergurinn málsins Gunnar Heiðarsson þetta er alveg glórulaust.

Jón Magnússon, 10.5.2015 kl. 21:01

14 identicon

Sammála. Ég tek undir hvert orð, sem hefur verið sagt hérna. Þetta er hreinasta hneyksli, svo ekki sé meira sagt, og engum til sóma.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2015 kl. 21:10

15 Smámynd: Mofi

Jón, hefur þú einhvern gögn sem styðja að þessi listamaður lýsti aðdáun sinni á árásinni á Tvíburaturnanna og að hann hefði verið að dreifa "Mein kampf"?

Mofi, 10.5.2015 kl. 22:58

16 Smámynd: Jón Magnússon

Alla vega ekki landi og þjóð Guðbjörg.

Jón Magnússon, 11.5.2015 kl. 11:22

17 Smámynd: Jón Magnússon

Já ég hef það Mofi annars hefði ég ekki sagt þetta. Það kemur fram í fésbókarfærslunni minni Ætla að reyna að deila linknum hér:

https://news.artnet.com/art-world/mosque-venice-icelandic-pavilion-295385

Jón Magnússon, 11.5.2015 kl. 11:26

18 Smámynd: Mofi

Ég sé ekki einu sinni orðin "tower" eða "Mein" í allri greininni. Ertu alveg viss um að þetta sé rétt?

Mofi, 11.5.2015 kl. 13:16

19 Smámynd: Jón Magnússon

Það er ekki talað um turnana heldur árásina og dagsetningin en Mein Kamp kemur greinilega fyrir Mofi. Ef ekki hefur tekist að peista þetta alveg farðu þá inn á fésbókarsíðuna mína þetta er þar í almenningi.

Jón Magnússon, 11.5.2015 kl. 20:35

20 identicon

Ég hugsa að Mofi sé bara hissa á því að þú skulir vera að slá einhverju fram sem þú hefur ekki hugmynd um Jón.

Í greininni sem þú vísar í er vísað í aðra þar sem sagt er frá sýningu Buchels í London fyrir átta árum. Hluti af sýningu hans á menningarlífi múslima í Evrópu var allskonar dót og meðal annars bænamottur sem búið var að vefa myndir af 9/11 árásunum í og einnig arabískar útgáfur á Mein Kampf.

Í greininni kvartar gagnrýnandinn einmitt yfir því að Buchel sé að GAGNRÝNA múslima og þversagnirnar í samfélagi þeirra með þessum hlutum, en þú snýrð því á haus enda ertu greinilega enginn reginsnillingur frekar en nafni þinn Jensson. Svo ég vitni í sjálfan þig: Þetta er alveg glórulaust.

Gústaf N. (IP-tala skráð) 11.5.2015 kl. 21:59

21 Smámynd: Mofi

Já, sá núna það sem þú ert að vísa í:

https://news.artnet.com/art-world/mosque-venice-icelandic-pavilion-295385
Büchel's interest in Muslim communities is long-held. In 2007, Büchel launched Simply Botiful, a controversial immersive installation in an East End warehouse (a Hauser & Wirth temporary space) that included prayer mats described by Frieze Magazine as featuring motifs celebrating the events of 9/11, as well as copies of Adolf Hitler's Mein Kampf translated into Arabic.

Þetta virðist vera það sem þeir eru að vísa í:

http://www.frieze.com/issue/review/christoph_buchel/
Amid the bland, strip-lit rows of appliances were yet two more narrative elements – a pile of prayer mats woven with motifs celebrating the events of 9/11, and a set of shelves carrying copies of Adolf Hitler’s Mein Kampf (My Struggle, 1925) translated into Arabic.

Væri forvitnilegt að heyra skoðun listamannsins á þessu, er fólk að mistúlka þessa list hans eða er þetta rétt greining.

Mofi, 12.5.2015 kl. 07:19

22 identicon

Eru þið á móti því að svissneskur listamaður sem býr á Íslandi sýnir list fyrir hönd íslands eða eru þið á móti  listaverkinu sem er moska? Þið hafið ekki séð listaverkið, þið heyrðuð orðið moska og þá fór allir fordómar í gang.Hann styður hryðjuverk, hann er útlendingur, hann er að sóa penningunum okkar.

Þetta er glæsilegt verk. Til hamingju Ísland

Salmann Tamimii (IP-tala skráð) 12.5.2015 kl. 17:43

23 Smámynd: Jón Magnússon

Alveg rétt Mofi það skiptir máli að fá það á hreint.

Jón Magnússon, 13.5.2015 kl. 17:36

24 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er á móti hvoru tveggja Salmann. Við eigum mjög mikið af dugandi framsæknum íslenskum myndlistarmönnum og þegar við sem þjóð fáum tækifæri til að sýna hvað býr í íslenskum listamönnum þá finnst mér fáránleiki að velja svisslending til að byggja mosku. Það er ekki eins og þær séu ekki til út um allar koppagrundir Salmann minn.  Hér er ekki um list að ræða heldur pólitíska ögrun gagnvart Feneyingum á kostnað íslenskra skattgreiðenda. Ég er jafnmikið á móti þessu og teikningum í Charlie Hedbo svo þú vitir það.

Jón Magnússon, 13.5.2015 kl. 17:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 141
  • Sl. sólarhring: 280
  • Sl. viku: 3082
  • Frá upphafi: 2294701

Annað

  • Innlit í dag: 132
  • Innlit sl. viku: 2810
  • Gestir í dag: 121
  • IP-tölur í dag: 120

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband