Leita í fréttum mbl.is

Vanþekking fóstrar af sér hatur.

Um miðja síðustu öld var byrjað að tala um jólin og jólagjafir í byrjun desember. Nú byrjar jólaumstangið og kauphátíðin í lok október. Umfjöllun um tilefni jólanna dregst að sama skapi saman eins og þegar ungi drengurinn spurði á aðfangadag. "Erum við ekki að gleyma fæðingardegi jólaveinsins?"

Markaðssetning jólanna hefur tekist svo vel, að vítt og breytt um heiminn ekki bara í kristna heiminum er haldið upp á jól með einum eða öðrum hætti. 

Helgisagan fagnaðarboðskapur jólanna um frið og styrkleika sem rís upp úr vanmætti er einstakur. 

Þrátt fyrir friðar- og kærleiksboðun kristninnar, halda ýmsir fram, að trúarbrögð séu orsakavaldur illsku og haturs. Þetta er rangt. Trúarbrögðin hafa hins vegar oft verið tekin herfangi til að þjóna ákveðnum veraldlegum hagsmunum. 

Það er ekki hægt að skilja trúarbrögð nema kynna sér þau og þekkja. Nýja testamenntið segir stórkostlegustu sögu fjölbreytileika og mannúðar. Góð inngangsfræði við að kynna sér trúarbrögð almennt t.d. Gyðingdóm og Íslam.

Aðalvandi við trúarbrögð í nútímanum er vanþekking, sem m.a. birtist svo skrýtið sem það kann að vera í öfgafullum Íslamisma. Vanþekking fóstrar heimsku og hatur.

Vandi trúarbragðafræðslu í dag er að hún er of lítil. Börn verða miklu betri hvort við annað ef þau þekkja meginboðorð kristinnar trúar um náungakærleik og boðorðin 10 og hvað þau þýða. Sú ráðstöfun skólayfirvalda að úthýsa kristinfræðslu í aðdraganda jólanna er því spor í ranga átt í kristnu samfélagi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hárrétt, get ekki verið meira sammála, hrein ömurleg ákvörðun og óskiljanleg. Það er alltaf verið að þóknast án þess að hugsa um afleiðingar. Takk fyrir skrifin.

Jón Þór Hannesson (IP-tala skráð) 7.12.2022 kl. 13:44

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Algjörlega sammála þér. Það hlýtur að vera eitthvað mikið

að þegar má ekki lengur kenna kristniftæði í kristnu

samfélagi. Út með trúnna og inn með hinsegin fræðslu.

Hvernig dettur þeim sem stjórna svona lagað í hug.

Þetta er alvarlega brenglað svo ekki sé meira sagt.

Sigurður Kristján Hjaltested, 8.12.2022 kl. 02:14

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Siðferðið sem byggði upp velferð og vísindi Evrópskrar menningar, sem síðan dreifðist um heiminn en innféll í mars 2020, var byggð á því að fólk kynnti sér innsæi frumspekirita á borð við Biblíuna.

Undanfarna kynslóð, hefur frumspekilegu innsæi verið ýtt til hliðar, enda er siðmenning okkar hrunin og menning okkar köfnuð.

Það merkilegasta er, að þeir sem sjá menningarhrunið og skilja það, eru frumspekilærðir, en hinir sem eru skólaðir í veraldarhyggju húmanismans, sjá ekki út fyrir snjallsímann.

Guðjón E. Hreinberg, 8.12.2022 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 113
  • Sl. viku: 3099
  • Frá upphafi: 2296097

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2851
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband