Leita í fréttum mbl.is

Kominn tími til að biðja Guð að hjálpa sér

Laust eftir miðja síðustu öld mætti sr. Bjarni Jónsson Dómkirkjuprestur Hermanni Jónassyni forsætisráðherra.Hermann vék sér að Bjarna og spurði hvort það væri rétt, sem hann hefði heyrt,að sr. Bjarni væri hættur að biðja fyrir ríkisstjórninni í messum. Sr. Bjarni sagði það alrangt því aldrei hafi verið meiri ástæða tl þess en nú. 

Sama mátti segja þegar mynd af glaðbeittum ráðherrum ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar á grunni ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur frá 2017.

Ríkisstjórn Katrínar var kyrrstöðustjórn skuldasöfnunar og útþennslu ríkisbáknsins. Ekki var gætt að þjóðlegri menningu eða íslenskri tungu og allt gert til að  skipta um þjóð í landinu.

Svandís Svavarsdóttir, sem hefur unnið sér til óhelgi situr sem fastast. Ánægjulegt að heyra að einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins Jón Gunnarsson skuli ekki sætta sig við það og greiða atkvæði með boðaðri vantrauststillögu á Svandísi. Það er til skammar fyrir þá þingmenn Sjálfstæðisflokksins  sem varja hana vantrausti, en um það hefur Bjarni sennilega samið í skiptum fyrir forsætisráðherrastól.

Bjarni Benediktsson kaus að halda áfram samleiknum með Vinstri grænum þó aðrir kostir hafi verið í boði. Svo virðist sem honum sé ekki annt um að draga Sjálfstæðisflokkinn upp úr vinstra hjólfarinu en ætli sér að æða enn lengra út á það foræði.

Við þessar aðstæður er full ástæða til að biðja fyrir ríkisstjórninni þannig að hún megi verða til meira gagns en ógagns. En lokaorðin í skáldsögu Jóns Thoroddsen, Maður og Kona eiga e.t.v. við, þegar öll sund voru lokuð fyrir sr.Sigvalda og hann sagði.

"Ætli sé ekki kominn tími til að biðja Guð að hjálpa sér."

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Einu sinni var mér sagt að Brynjólfur Jóhannesson hefði bætt þessari frægu setningu við leikritið í lokin
Allavega er ég nokkuð viss um að það er ekki í sögunni um Mann og Konu

„Ætli það sé ekki mál til komið að fara að biðja guð að hjálpa sér" - séra Sigvaldi

Grímur Kjartansson, 10.4.2024 kl. 14:03

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Móse var sendur sem svar við bænum, en ekki vegna Ástands.

Að öðru leyti, það sem hér er ritað.

Guðjón E. Hreinberg, 10.4.2024 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 115
  • Sl. sólarhring: 128
  • Sl. viku: 4298
  • Frá upphafi: 2296088

Annað

  • Innlit í dag: 105
  • Innlit sl. viku: 3937
  • Gestir í dag: 94
  • IP-tölur í dag: 94

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband