Leita í fréttum mbl.is

Póstverslun með lyf?

Lyfjastofnun hefur ákveðið að það sé ólöglegt að flytja inn ódýr lyf frá Svíþjóð. Íslenski læknirinn sem bauðst til að hafa milligöngu í málinu má ekki þjónusta landa sína við að kaupa ódýr lyf.

Hvað á heilbrigðisráðherra að gera í þessari stöðu?

Boða á næsta ríkisstjórnarfundi lagabreytingu þar sem það ákvæði laganna sem Lyfjastofnun hengir hatt sinn á verði breytt með þeim hætti  að hægt sé að hafa milligöngu um kaup á lyfjum frá nágrannalöndum okkar.  Jafnframt að leggja fram tillögur sem tryggja eðlilega samkeppni á lyfsölumarkaðnum til að borgarar þessa lands geti keypt lyf á lágmarksverði. Lyf á sama verði og á hinum Norðurlöndunum.

Sjúklingar eiga enga vörn gegn okrinu þeir verða að fá lyfin sín þeir eiga ekkert val. Stjórnvöld verða að standa með þeim gegn einokunar- og okuröflunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Mikið er ég þér sammála Jón. Ég kann nú ekki lög og reglur um verðlagningu á lyfjum. Það skiptir í sjálfu sér ekki máli. Það er eitthvað MJÖG mikið að að lyf skulu vera svona dýr á Íslandi. Upplifun mín er sú að enn eimir af gömlu lyfjalögunum þegar lyfjasalar höfðu mun meiri kostnað en nú er. Viss vorkunnsemi og skortur á samkeppni virðist ríkja í þessum málum. Svona eins og viðmiðið sé að þeir komi nú örugglega ekki út með tapi. Alveg sama hvað menn hafa bent á hversu lyf eru dýr á Íslandi þá er viss innbyggð tregða til breytinga.

Því er það forgangsmál að knýja á um breytingar. 

Gunnar Skúli Ármannsson, 12.7.2007 kl. 22:53

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Gat það verið segi ég bara ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.7.2007 kl. 02:30

3 Smámynd: Bryndís Helgadóttir

Sammála þér.  Svo legg ég til, til viðbótar að Lyfjastofnun verði lögð niður - hún vinnur greinilega á alltaf á móti hagsmunum almennings.  Hvaða hagsmuni er þessi kjánalega stofnun að verja?

Bryndís Helgadóttir, 13.7.2007 kl. 04:42

4 Smámynd: Þórir Kjartansson

Nú ætti nýi heilbrigðisráðherrann að sanna það að hann sé í raun fylgjandi samkeppni sem leiði til verðlækkunar á þessu svið sem öðrum. Að öðrum kosti sýnir hann það að hann er sami úlfurinn undir sömu sauðargærunni og félagar hans sem setið hafa við stjórnvölinn undanfarin ár og hafa unnið sleitulaust að því að koma hér á umhverfi einkavæddra okurfyrirtækja.

Þórir Kjartansson, 13.7.2007 kl. 09:07

5 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Hvurjir ,,eiga" Lyfjastofnun?

Eru það svonefndir ,,hagsmunaaðilar" eða er skipað í störf þar, ,,að fengnum tillögum hagsmunaaðila"?

Ekki nema von, að Lyfjafræðingar standi með sínum mönnum he´rlendis.  Eða hvað?

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 13.7.2007 kl. 09:07

6 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Jón Magnússon : Þú átt vonandi við : Lyf á ekki hærra verði en í öðrum vestrænum ríkjum.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 13.7.2007 kl. 21:02

7 identicon

Er það hlutverk Lyfjastofnunar að ákveða hvað er löglegt og hvað er ekki?   Ég held að þarna hljóti að vera einhver misskilningur á ferðinni.  Þessi fúskstofnun hefur ekkert með það að gera að gefa út lögfræðiálit.  Þar að auki er fjarsala á lyfjum lögleg innan evrópska efnahagssvæðisins og vissi ég ekki betur en að sömu lög gildi hér.

PS: Dæmi um breska lyfjaverslun á netinu, þar sem hægt er að panta lyfseðilsskyld lyf á vefnum:

    https://prescriptions.pharmacy2u.co.uk/user/ppHome.asp 

Þetta á að snúast um skynsemi, hagkvæmni og skilvirkni en ekki hvað einhverjum vitlausum lyfjafræðingum finnst hjá stofnun sem virðist fyrst og fremst umhugað um hagsmuni lyfsala.   Ég trúi því að núverandi heilbrigðisráðherra, sem er góður frjálshyggjumaður og ber mikla virðingu fyrir frelsi einstaklinga og almannahagsmuni eigi eftir að gera róttækar breytingar hér.

Bjarni M (IP-tala skráð) 14.7.2007 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 417
  • Sl. sólarhring: 468
  • Sl. viku: 3473
  • Frá upphafi: 2295151

Annað

  • Innlit í dag: 375
  • Innlit sl. viku: 3162
  • Gestir í dag: 372
  • IP-tölur í dag: 368

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband