Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstćđismenn kjósa komma í skipulagsráđ.

Ţađ er kaldhćđni örlaganna ađ Sjálfstćđismenn í borgarstjórn skuli hafa látiđ hafa sig út í ađ kjósa gamlan vinstri komma í skipulagsráđ í stađ Ólafar Guđnýjar Valdimarsdóttur.  Ţađ á ekki af borgarstjórnarflokknum ađ ganga. Fylgi Sjálfstćđisflokksins í Reykjavík er komiđ niđur í  26%. Er viđ öđru ađ búast ţegar Sjálfstćđísflokkurinn setur borgarstjórastólinn á uppbođ.

Borgarstjórinn í Reykjavík er forstjóri stćrsta fyrirtćkis landsins. Ţađ skiptir máli hverjir gegna ţví og ţađ er ljóst ađ ţađ eru hagsmunir Reykvíkinga ađ borgarstjóri sé vel hćfur stjórnandi. Borgarbúar telja ađ Sjálfstćđisflokkurinn hafi ekki vandađ valiđ eđa gćtt hagsmuna ţeirra. Ţess vegna hefur tćpur helmingur stuđningsmanna flokksins viđ síđust borgarstjórnarkosningar snúiđ baki viđ flokknum.

Ţađ er  ćvintýri út af fyrir sig ađ sitjandi borgarstjóri sem gegnt hefur embćtti í nokkra mánuđi skuli ekki fá nema tćp 2% fylgi í skođanakönnuninni enda borgarstjóraembćttiđ fram ađ ţessu jafnan veriđ til vinsćlda falliđ.  Ţví miđur fyrir Frjálslynda flokkinn ţá er alltaf talađ um F listann ţegar vikiđ er ađ borgarstjóra. Međ ţví eru fréttamenn vísvitandi ađ rugla málum til ađ skađa Frjálslynda flokkinn. Af hverju er ekki greint frá ţví ađ Ólafur F og helstu lautinantar hans Jakob Frímann Magnússon og Ásta Ţorleifsdóttir eru í Íslandshreyfingunni og Ásta leiddi listan Íslandshreyfingarinnar á Suđurlandi og Jakob lista Íslandshreyfingarinnar í Suđvesturkjördćmi viđ  síđustu Alţingiskosningar.

En ef til vill er fréttmönnum vorkunn ţví  sumir forustumenn í Frjálslynda flokknum hafi ekki áttađ sig á ţví ađ Ólafur F sagđi sig úr Frjálslynda  flokknum og gekk í Íslandshreyfinguna fyrir síđustu Alţingiskosningar. 

En illur fengur illa forgengur eins og  máltćkiđ segir. Á ţađ e.t.v. viđ í ţessu tilviki.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Úbbs! er Reykjavík nú orđiđ stćrsta "fyrirtćki" landsins? Er ţetta ekki sveitarfélag sem á ađ lúta reglum lýđrćđis? - Annars er ţessi meirihluti hreppsnefndar Reykjavíkurhrepps eitt ţađ vitlausasta sem komiđ hefur yfir íslenskt samfélag og ţú bendir réttilega á ţarna Jón, en Reykjavík er ekki fyritćki.

Haraldur Bjarnason, 7.8.2008 kl. 20:48

2 identicon

Einhvern veginn held ég ađ fréttamenn séu ekki „vísvitandi ađ rugla málum til ađ skađa Frjálslynda flokkinn“. Ţorri fréttamanna í seinni tíđ er unglingar sem hafa ekki lágmarksţekkingu á nokkrum sköpuđum hlut yfirleitt. Ţađ er hinn beiski veruleiki og bitnar á flestu sem fjallađ er um - ekki frekar frjálslyndum en öđru eđa öđrum.

Hlynur Ţór Magnússon (IP-tala skráđ) 7.8.2008 kl. 21:35

3 identicon

Ţađ er engu líkara en ađ borgarstjórinn gangi út frá ţví ađ hann hafi gott bakland í Frjálslynda flokknum til ţess ađ leiđa lista Frjálslynda og óháđa í nćstu kosningum ţrátt fyrir ađ ţađ séu 2 ár ţar til ţćr verđa. Ţađ liggur kannski svona á ţar sem nćsti landsfundur Frjálslynda flokksins er fljótlega á nćsta ári. Hér fyrir neđan er frétt sem birtist á vef á vegum Útvarp Sögu 11.júlí sl.

,,Ćtlar ađ bjóđa fram í nćstu kosningum undir merkjum Frjálslyndra og óháđra.

PrintSenda
föstudagur, 11 júlí 2008


Ólafur F. Magnússon
borgarstjórinn í Reykjavík var gestur Arnţrúđar Karlsdóttur í morgunútvarpinu í
vi
kunni og verđur ţátturinn endurfluttur milli kl.10 og 12 á laugardag og aftur
á sunnudagskvöldiđ milli kl. 20 og 22. Ólafur greindi frá ţeim verkefnum sem
hann hefur sinnt sem borgarstjóri í Reykjavík og lagđi ţunga áherslu á ađ
Reykjavík hafi aldrei veriđ eins grćn eins og nú undir hans stjórn''

Nú vil ég spyrja ţig hreint út Jón hvađ er Guđjón Arnar formađur Frjálslynda flokksins ađ bauka bak viđ tjöldin međ Ólafi F. borgarstjóra?

Baldvin Nielsen, Reykjanesbć

B.N. (IP-tala skráđ) 7.8.2008 kl. 21:52

4 Smámynd: Theódór Norđkvist

Ég er hćttur ađ fylgjast međ sápuóperunni í Ráđhúsinu. Eftir ţađ sem á undan er gengiđ held ég ađ ekkert sem meirihlutinn gerir geti komiđ mér á óvart.

Theódór Norđkvist, 7.8.2008 kl. 22:32

5 Smámynd: Ásgerđur Jóna Flosadóttir

Sćll, ţetta er mjög vont mál fyrir Frjálslynda flokkinn.

Ásgerđur Jóna Flosadóttir, 7.8.2008 kl. 23:36

6 Smámynd: Guđrún María Óskarsdóttir.

Sćll Jón.

Frjálslyndi flokkurinn hefur ekkert međ núverandi borgarstjóra ađ gera enda sá hinn sami ekki í flokknum, frekar en varamann hans sem skipađi annađ sćti listans og gekk  einnig gekk úr  Frjálslynda flokknum.

Íslandshreyfingin bauđ ekki fram til sveitarstjórnarkosninga og sá skortur á siđferđi ađ ţađ skuli líđast án gagnrýni fjölmiđla í landinu ađ hćgt sé ađ kippa fólki inn hćgri vinstri án setu til fulltrúaframbođs á sveitarstjórnarstigi er vćgast sagt rannsóknarefni.

Ţví fyrr ţví betra sem nýtt fólk kemur ađ borgarmálum í Reykjavík, og á ţađ viđ um alla flokka ađ ég tel.

kv.gmaria.

Guđrún María Óskarsdóttir., 8.8.2008 kl. 00:17

7 identicon

Jón. Hverjir eru ´sumir forystumenn í Frjálslynda flokknum´?

Landfari (IP-tala skráđ) 8.8.2008 kl. 08:09

8 Smámynd: Dunni

Ađ halda ţví fram ađ Ólafur tengist ekki Frjálslyndaflokknum á neinn hátt er rćtin lýgi og tilraun til ađ fegra ásýnd FF sem svikiđ hefur öll sín loforđ um réttláta skiptingu fiskveiđiheimilda og rekiđ tunguna framan í flóttafólk sem vonast eftir betra lífi á Íslandi en í stríđshrjáđum heimalöndum sínum. Ţiđ voruđ ánćgđir međ ađ koma ykkar fólki í borgarstjórn á sínum tíma. Ekki gleyma ţví.  En innkoma Ólafs eftir veikindafríiđ var nátttúrulega ekki međ ţeim hćtti sem nokkur flokkur vildi skrifa upp á.

En ţađ sem er öllu alvarlegra í íslenskum stjórnmálum ađ ţađ eru svo margir tćkifćrissinnar eđa ólafar f.  Ţar ert ţú, Jón Magnússon, einna fremstur í flokki.  Ţú ásamt mörgum núverandi flokksbrćđrum ţínu eigiđ erfitt međ ađ ţvo egóisman úr andliti ykkar.

Sjálfsćđisflokkurinn gafst upp á ţér og ýmsum öđrum í F. En ţú varst ekki af baki dottinn og ađferđ ţín viđ ađ trođa ţér inn í Frjálslyndaflokkinn er öllum enn í fersku minni.  Sú varđ ţér ekki til framdráttar og alls ekki Frjáslyndaflokknum. 

Ţađ verđur kannski fariđ ađ taka mark á ykkur ef og ţegar ţiđ viđurkenniđ ađ ţegar Frjálsir og óháđir komu manni inn í boragrstjórn  töldi Frálslyndiflokkurinn sig eiga hlut í ţví. Annars hefđuđ ţiđ náttútulega gert ţjóđinni ţađ ljóst á fyrsta degi eftir sveitastjórnarkosningarnar  ađ Ólafur, Margrét og ţeir sem börđust í kosninugnum vćru ekkert á ykkar vegum. 

Ţađ var heimskulegt af ykkur ađ bíđa međ ţessar upplýsingar ţangađ til Ólafur hafđi skitiđ í skóinn sinn.

Hörfđu svo í spegilinn um leiđ og ţú frýrđ blađamenn um óheilindi í starfi sínu.

Dunni, 8.8.2008 kl. 12:36

9 Smámynd: 365

Ég hef vellt ţví fyrir mér eins og ađrir í hvađa umbođi borgarstjórinn starfar.  Er hann á vegum Frjálslindra eđa Íslandshreyfingarinnar?  Hvađ eru Sjálfstćđismenn ađ pćla, ađ halda borginni međ ólögum, ţvílík vitleysa. 

365, 8.8.2008 kl. 13:42

10 Smámynd: Árni Gunnarsson

Reykjavíkurborg er svo sannarlega stćrsta og umfangsmesta fyrirtćki ţjóđarinnar og merkilegt ađ á ţađ séu bornar brigđur. Stćrsta fyrirtćkiđ í öllum skilningi fyrir utan ríkissjóđ.

Árni Gunnarsson, 8.8.2008 kl. 19:46

11 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sćll Jón,

borgarstjórinn á eingöngu fámennt bakland og ekki ráđfćrđi hann sig viđ nokkurn mann áđur en hann gekk til samstarfs viđ Vilhjálm. Ţví var ţetta hans ákvörđun sem ekki var borin undir nein félög í neinum stjórnmálaflokki í Reykjavík. Frjálslyndi flokkurinn er ekki Tryggingafélag án iđgjalda.

Gunnar Skúli Ármannsson, 8.8.2008 kl. 20:16

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 446
  • Sl. sólarhring: 461
  • Sl. viku: 4236
  • Frá upphafi: 2295971

Annađ

  • Innlit í dag: 418
  • Innlit sl. viku: 3884
  • Gestir í dag: 392
  • IP-tölur í dag: 386

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband