Leita í fréttum mbl.is

Vöruverð hækkar. Lífskjör versna.

Það er skelfilegt  að heyra að matarverð skuli hafa hækkað á bílinu 20-30% í lágvöruverðsverslunum. Matarverð á Íslandi hefur verið með því hæsta í heimi. Á tímum lækkandi launa, vaxandi atvinnuleysis og lakari lífskjara þjóðarinnar hefur það verið eitt brýnasta verkefni ríkisstjórnarinnar að vinna sem mest að lágu vöruverði.

Mér er ljóst að lækkun krónunar hefur þýðingu hvað varðar hækkun á matarkörfunni en það skýrir ekki allan þennan mun því að stór hluti af innkaupakörfunni er innlend framleiðsla.

Verslunarumhverfi á Íslandi er mjög dýrt og vöruverð almennt er mjög dýrt. Við erum með flesta verslunarfermetra á íbúa  og við erum með lengsta opnunartíma í heimi. Vissulega þjónusta en það þarf að borga fyrir allt. Meira að segja lágvöruverðsverslanirnar eru með óeðlilega langan opnunartíma.

Það á að vera eitt af helstu forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar að ná matarverði niður og ég bíð spenntur eftir því að heyra hvað Jóhanna Sigurðardóttir segir um það í kvöld í stefnuskrárumræðunum. Matarverð skiptir mjög miklu um almenna velferð og hefur þýðingu hvað varðar verðtrygginguna. Ég trúi ekki  öðru en að  velferðarforsætisráðherrann Jóhanna Sigurðardóttir geri landsmönnum góða grein fyrir til hvaða aðgerða verður gripið til að tryggja fólkinu lí landinu sambærilegt matarverð og er í nágrannalöndum okkar.


mbl.is Matarverð hefur hækkað um 25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef það hefði verið virkt og lifandi neytendaeftirlit í landinu væru hlutirnir öðruvísi. Jóhannes í Neytendasamtökunum hefur verið í vasanum hjá Jóhannesi í Bónus og verðlaunað hann fyrir að skekkja matvörumarkaðinn og hækka meðalæalagningu úr hófi fram.

Samkeppnisstofnun er meira og minna sofandi og Neytendastofa svarar ekki kvörtunum almennings.

Svo á maður að vera hissa

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 18.5.2009 kl. 21:30

2 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Kæri Jón, þú & ÞJÓÐIN þarft að bíða lengi eftir SVÖRUM frá "með & á móti ríkisstjórninni" ef málefnið tengist ekki EB umræðu, þá getur XS ekki tjáð sig....  Þetta er slæmt hjónaband, ég finn smá til með VG, alveg eins og ég fann til með XD þegar þeir voru upp í rúmi með XS!

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson, 19.5.2009 kl. 10:32

3 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er einhver meiri háttar misskilningur Gylfi að það hafi ekki verið virkt neytendaeftirlit í landinu.  Jóhannes Gunnarsson hefur sinnt neytendastarfi af mikilli alúð og heiðarleika þannig að það er rangt að halda öðru fram Gylfi eins og þú gerir.

Samkeppnisstofnun nefur staðið sig með ágætum eftir því sem ég best veit en ég þekki minna til Neytendastofu en hef ekki fyrr heyrt svona gagnrýni á þá stofnun.

Jón Magnússon, 19.5.2009 kl. 16:49

4 identicon

Nei Jón minn. Þér er alveg óhætt að rölta með mér um nokkrar matvöruverslanir og sérvöruverslanir þar sem ég get bent þér á íslenskan álagningarkúltúr.

þar sem ég hef starfað við slík mál í 15 ár þá get ég bæði fullyrt og sannað að álagning á íslandi sé óeðlileg í skugga slælegs eftirlits.

Þá liggur fyrir að Ísland hefur verið dýrasta smásöluland heims í allnokkurn tíma. Eru íslenskir innkaupamenn ekki starfi sínu vaxnir eða er álagningin afbrigðilega há ?

Vara er dýr á Íslandi vegna hárrar álagningar, álagning er há vegna slælegs eftirlits.

Vælið í Jóhannesi í gegnum tíðina er marklaust og gagnslaust óp uppí vindinn sem slælegt samkeppniseftirlit skapaði.

Finnst þér virkilega eðlileg vinnubrögð að leyfa Baugsmönnum að eignast ríflega helming matvörumarkaðarins þegar Jóhannes sagði t.d. sjálfur fyrir 20 árum að 20% væri max yfirráð til að viðhalda markaðsheilbrigði.

Ef þessi samkeppnisstofnun er með ágætum Jón þá ertu einfaldlega að ganga gegn eðlilegum markaðslögmálum í skoðun þinni.

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 19.5.2009 kl. 23:02

5 Smámynd: Jón Magnússon

Gylfi við skulum endilega vera í sambandi eftir Hvítasunnu og taka okkur tíma til að fara yfir íslenskan álagningarkúltúr og við erum sammála um að Ísland sé dýrasta smásöluland í heimi og ég vil endilega ræða það við þig þar sem það hefur verið og er áhugamál mitt að Ísland verði ekki lengur dýrasta smásöluland í heimi og ég er tilbúinn til að hlusta á góðar tillögur og hitta menn sem hafa sama áhugamál og ég að koma Íslandi úr hópi okurlanda.

Jón Magnússon, 20.5.2009 kl. 16:17

6 identicon

Þakka þér fyrir það Jón, ég er ætíð tilbúinn að miðla því sem ég veit um markaðinn.

Maður með þín áhugamál hefði gaman af því að heimsækja mig í verslunina mína og kynnast hvernig þróun verðlagningar hefur almennt verið brengluð á fróni og skilað okkur ofangreindri niðurstöðu sem við erum sammála um.  Markaðurinn var ekki heilbrigður fyrir Baugstímabilið en aðgerðir þeirra læstu honum enn frekar þrátt fyrir að neytendur kynntust ákveðnum fríðindum í ákveðnum vöruflokkum.

Sjúkleikann er m.a. að finna í hugmyndafræði stórra verslunarfyrirtækja sem hafa breytt heildsölustiginu í einkavændiskonu með forgangsröð gagnvart risunum frekar en eðlilegu og heilbrigðu umhverfi.  Svona liggja ástaæðurnar um allan markaðinn en þegar maður hefur starfað við álagningu í jafn mörgum vöruflokkum og ég þá er spillingin vel sjáanleg.  Þó ég sé kaupmaður þá er ég neytandi líka, og mér ofbýður því ég veit hvað hlutirnir kosta í innkaupum.

neytandinn@hotmail.com

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 167
  • Sl. viku: 3066
  • Frá upphafi: 2294744

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 2795
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband