Leita í fréttum mbl.is

17.000 ráðstefnugestir menga sem aldrei fyrr.

Forréttindaaðallinn sem þvælist ítrekað heimsálfa á milli  til að álykta um aukna skattheimtu og takmarkanir á athafnafrelsi einstaklinga á grundvelli pólitískrar veðurfræði hélt nýlega fund í furstadæminu Qatar.

Ráðstefnuna um meintar loftslagsbreytingar og hlýnun af mannavöldum sóttu 17.000 ráðstefnugestir og ráðstefnan stóð í 12 daga.

Ráðstefnugestum var flogið til Qatar og fluttir á milli loftkældra vistarvera í stærstu gerðum og eyðslufrekustu bifreiðum sem framleiddar eru. Hvergi sást við framkvæmd ráðstefnunar, fjölda þáttakenda, aðbúnaði þeirra eða hegðun að þeir teldu ástæðu til að takmarka útblástur koltvísýrings þegar forréttindastéttin  á í hlut.

Áætlað er að útblástur koltvísýrings vegna ráðstefnunnar og ráðstefnugesta hafi verið um 40 þúsund tonn og Qatar er með mestu eyðslu koltvísýrings á jörðinni á hvern íbúa. Sannkallaður súrrealismi í framkvæmd þessarar ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna fyrir um 17 þúsund ríkisstarfsmenn.

Samþykkt var að leggja þungar byrðar á skattgreiðendur í Evrópu á grundvelli pólitísku veðurfræðinnar og takmarka framleiðslugetu álfunnar. Nú er að sjá hvort stjórnmálamenn í Evrópu samþykkja þetta rugl eða láta skattgreiðendur sína og efnahagslíf landa sinna blæða út vegna þessarar dýru vitleysu.

Bandaríkin,Indland, Japan, Kanada,  Kína og Rússland taka ekki  þátt í þessu rugli og munu ekki draga úr neinu hjá sér eða leggja á jaðrhlýnunarskatta.

Hvað skyldi sendinefnd Íslands hafa gert? Á síðustu ráðstefnu beitti hún sér fyrir kynbundinni nálgun að viðfangsefninu og samþykkti nú aðför að velferð og möguleikum að efnahagslegum bata Íslands.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ótrúlegt hvað hægt er að draga fólk á asnaeyrunum og kreista peninga í formi skatta.

Svo sitjum við í Evrópu með Svarta-Pétur. Við erum að leggja á okkar þjóðir þungar greiðslur sem koma niðr' öllu sem nafni tjáir að nefna. Stóru löndin Kanada, Japan, Kína, Rússland og Bandaríkin vilja ekki vera lengur með í svona bulli. Svo grenjar þetta fólk sem telur sig umhverfisvænt og lifir af því að hræða líftóruna úr fólki eins og mér og fleirum, sem héldu í byrjun að einhver fótur væri fyrir þessum gigantíska áróðri sem hefur verið rekinn undanfarin ár.

Svo opnuðust augu mín og eyru þegar Al Gore fékk Nobelsverðlaun fyrir starf sitt í þágu umhverfisverndar. Kom hann á einkaþotu frá Bandaríkjunum til að taka á móti þeim. Eitthvað átti þetta nú að fara leynt um ferðamátann, en upp um það komst. Svo lítið hefur nú farið fyrir "kauða" síðan. Nei það eru svo margar afætur á þessarri ofsatrú sem ég leyfi mér að kalla þetta umhverfis kjaftæði. Fólk á að hugsa sig um... virkilega áður en það opnar munninn í sambandi við "vísindalega framþróun þessarra mála". Því hvað framtíðin ber í skauti sér veit enginn.. Sem betur fer. Þetta er mín skoðun. Kveðja.

jóhanna (IP-tala skráð) 9.12.2012 kl. 20:03

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Dásamlegt að sjá hvernig alþjóðlegar stofnanir eins og Alþjóðabankinn hafa fallið fyrir "meintum loftslagsbreytingum" með því að telja að "meint hækkun hitastigs á þessari öld" verði tvöfalt meiri en áður var talið af tómum vitleysingum. 

Og líka er dýrlegt að sjá hvernig því er haldið fram að þeir sem komi saman á ráðstefnum um þessi mál eigi helst að fara þangað hjólandi í og gangandi og að láta líta svo út, sem að alþjóðlegar ráðstefnur séu mestu mengunarvaldarnir.  

Hvernig væri nú að athuga hvar mengunin er mest? Er það í fluginu? Nei, hún er fólgin í mengun hundruð milljóna landfarartækja veraldar sem eru daglega á ferðinni árið út og árið inn.

Ómar Ragnarsson, 10.12.2012 kl. 00:51

3 Smámynd: Kjartan Eggertsson

Rétt hjá þér Jón, þetta er rugl. Hins vegar er það verkefni allra þjóða að minnka hættuleg efni í útblæstri vélknúinna tækja. Það má gera með því t.d. að höfða til almennrar skynsemi, - án boða og banna.

Kjartan Eggertsson, 10.12.2012 kl. 10:16

4 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir gott innlegg Jóhanna. Það er einmitt athyglisvert að þeir sem prédika fyrir okkur hika ekki við að eyða endalaust fyrir sjálfa sig eins og Al Gore og Karl Bretaprins sem fékk einkaþotu vinar síns í Bandaríkjunum lánaða þannig að hún þurfti að fljúga fjórum sinnum yfir Atlantshaf með meiriháttar eyðslu fyrir einn mann. Hann hefði getað tekið farþegaþotu og eitt einum þúsundasta af því sem hann eyddi af gróðurhúsalofttegunum. En það er víst bara pöpullinn sem á að taka á sig verri lífskjör vegna þessara trúarbragða.

Jón Magnússon, 10.12.2012 kl. 10:33

5 Smámynd: Jón Magnússon

Er þá ekki réttara að gera eitthvað í því Ómar með landfarartækin í stað þess að leggja ofurskatta á framleiðslu og flug?  Ekki gleyma að stofnun eins og Alþjóðabankinn og ýmsir vogunarsjóðir eru ánægðir með nýju losunarkvótana. Þar verða til gerviverðmæti eins og í fiskveiðkvótanum okkar.  Takmörkun aðgengis og sala og kaup á losunarkvótum er eitthvað sem alþjóðlegi fjármálamarkaðurinn bíður eftir að geta markaðssett til að rugla ennþá frekar hagkerfi heimsins. Eins og hagkerfið okkar ruglaðist þegar aðgengi að fiskimiðunum varð allt í einu söluvara á ruglverði.

Jón Magnússon, 10.12.2012 kl. 10:36

6 Smámynd: Jón Magnússon

Hjartanlega sammála þér Kjartan. Ég tel mikilvægt að við umgöngumst umhverfi okkar og náttúruauðlindir af varfærni og takkmörkum eigin eyðslu og nýtum okkur vistvænustu kosti. En það er annað en að dæma þjóðir til fátæktar eins og Evrópusambandið er að dæma þegna sína og tekur Ísland með af því að umhverfisráðherrann vill láta Evrópusambandið ráða för. 

Jón Magnússon, 10.12.2012 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 109
  • Sl. sólarhring: 144
  • Sl. viku: 4292
  • Frá upphafi: 2296082

Annað

  • Innlit í dag: 99
  • Innlit sl. viku: 3931
  • Gestir í dag: 91
  • IP-tölur í dag: 91

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband