Leita í fréttum mbl.is

Samfylkingin og Þjóðkirkjan

Ef til vill var biskup Íslands nokkuð hvatvís að ákveða eftir því sem virðist að geðþótta að kirkjan skuli beita sér fyrir söfnun á þörfum tækjakaupum á Landsspítala Háskólasjúkrahúsi. Sjálfsagt hefði verið betra að fjalla um þessi mál á Kirkjuþingi.  Það er alltaf spurning hvar og hvernig stofnun eins og Þjóðkirkjan á að beita sér.  Heppilegra hefði e.t.v. verið að þjóðkirkjan einhenti sér af öllu afli í söfnun til að vinna bug á hungri og húsnæðisleysi í þjóðfélaginu. Hvað sem því líður þá ber samt að virða ákvörðun biskups. Öllum má vera ljóst að þar er talað af heilum hug og brýna nauðsyn ber til að kaupa tæki til spítalans.

Nokkrir forustumenn Samfylkingarinnar gagnrýna þessa ákvörðun þjóðkirkjunnar og reyna að gera lítið úr henni og hæðast jafnvel að þessari góðu viðleitni kirkjunnar ti að koma sjúkum til hjálpar. Þar af hafa tveir þingmenn flokksins tjáð sig sérstaklega með mjög neikvæðum hætti í garð þjóðkirkjunnar án þess að benda á nokkur betri ráð.  Það er jafnvel haft í heitingum við þjóðkirkjuna af hálfu sumra Samfylkingarmanna.

Þessi afstaða því miður allt of margs forustufólks í Samfylkingunni kemur ekki á óvart. Innan Samfylkingarinnar eru öfl sem vinna leynt og ljóst gegn kristni og þjóðkirkjunni. Skemmst er að minnast þess, þegar velferðarráð Reykjavíkur undir forustu Samfylkingarkonunnar Margrétar Sverrisdóttur ákvað að úthýsa kirkjunni úr öll skólastarfi í Reykjavík.  Við hver jól veldur þetta miklum vandamálum, en velferðarráð Samfylkingar og Besta flokksins lætur engan bilbug á sér finna.  Kærleiksboðskapur Jesús á ekki erindi að þeirra mati í skólastarf í kristnu landi eins og Íslandi.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Jón.Ég held að það séu ekki bara fólk í samfylkingunni sem er á móti þessari þjóðkirkju.Ég persónulega vil hana feiga eða kannski öllu heldur að meðlimir hennar sjái alfarið um að fjármagna starf hennar.Þessi samningur milli hennar og ríkisins um kirkjujarðir er algjör vitleysa vegna þess að þessar jarðir hafa aldrei með réttu verið í eigu kirkjunnar.Þannig að í raun er ríkið,það er að segja öll þjóðin að borga laun presta.Að safna fyrir tækjakaupum landspítalans er hins vegar gott framtak og ber að þakka fyrir það.

Jósef Smári Ásmundsson, 6.1.2013 kl. 22:23

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Grein Kristjáns Möllers um þetta mál er dæmi um það að innan Samfylkingarinnar og sennilegra annarra flokka eru skiptar skoðanir um þetta mál.

Ómar Ragnarsson, 7.1.2013 kl. 00:30

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fjandskapur borgarstjórnar við kristnina er óskiljanlegur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 7.1.2013 kl. 05:33

4 Smámynd: Jón Magnússon

Að sjálfsögðu getur fólk haft mismunandi skoðanir á því hvort það á að vera ríkiskirkja eða ekki. Ég er í sjálfu sér ekki að fjalla um það Jósef heldur að vekja athygli á þessum sérstaka fjandskap við kirkjuna sem sumt Samfylkingarfólk sýnir. Einnig sú fáheyrða ráðstöfun Velferðanefndar Samfylkingarinnar og Besta flokksins að samþykkja að úthýsa kristilegu starfi algerlega úr skólum landsins.  Það var fjandskapur við eðlilega uppfræðslu og kristilegan trúararf íslensku þjóðarinnar.

Jón Magnússon, 7.1.2013 kl. 09:16

5 Smámynd: Jón Magnússon

Sem betur fer er til fólk í Samfylkingunni sem stendur með málstað kirkjunnar. Aðsópsfólkið er hins vegar hávært í Samfylkingunni og vinkona þín Valgerður Sverrisdóttir sem formaður Velferðarráðs Reykjavíkur vann það sérstaka hermdarverk gagnvart boðun kristilegrar lífsskoðunar að úthýsa kristilegu starfi úr grunnskólum í Reykjavík.  Þú átt að ganga úr þessum flokki Ómar þú átt ekkert heima þar og ganga aftur í Sjálfstæðisflokkinn.

Jón Magnússon, 7.1.2013 kl. 09:18

6 Smámynd: Jón Magnússon

Það finnst mér einmitt Heimir.

Jón Magnússon, 7.1.2013 kl. 09:18

7 Smámynd: Jón Magnússon

Ómar Ragnarsson ég bendi sérstaklega á það í færslunni að það séu öfl innan Samfylkingarinnar sem vinni leynt og ljóst gegn kristni og þjóðkirkjunni.  Ég er ekki að setja allt Samfylkingarfólk í sama flokk hvað það varðar síður en svo.  Vinstri slagsíðan á þessum flokki  leiðir þetta m.a. af sér og þess vegna átt þú ekkert heima í þessum hópi.

Jón Magnússon, 7.1.2013 kl. 09:22

8 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það setti að manni hroll þegar þingmaður Samfylkingar gagnrýndi þetta framlag kirkjunnar. Auðvitað má hver hafa sína skoðun á kirkjunni sem slíkri og hvernig hún er fjármögnuð. Það kemur þessu máli bara hreint ekkert við.

Rök þingmannsins voru einkum þau að kirkjan er á framfæri ríkisins að hluta og að nýlega hafi verið ákveðin aukafjárveyting til hennar til að létta reksturinn.

Þessi söfnun er ekki fyrir kirkjuna, heldur til kaupa á lækningatækjum. Þegar fólk veikist eða slasast er það ekki spurt um hverja trú það hefur. Þar er skoðað hversu veikur einstaklingurinn er eða hversu slasaður og hann höndlaður innan sjúkrahússins eftir því, ekki hverrar trúar hann er.

En þessi ummæli þinmannsins segja fleira, þau segja að enginn sem þiggur fé úr ríkissjóð, hvaða nafni sem það fé er kallað, má standa að söfnun til mannúðarmála.

Þetta er kannski sú nýja jafnaðarstefna sem sumir innan Samfylkingar vilja boða?!

Gunnar Heiðarsson, 7.1.2013 kl. 14:10

9 Smámynd: Einar Karl

Það er gott mál að Samfylkingin í Reykjavík vilji ekki trúboð í grunn- og leikskóla.

Trúboð á ekki heima í almennum skólum í trúfrjálsu landi. Sumir skilja ekki muninn á trúboði og fræðslu. Þess vegna þurfti að setja reglur um samskipti kirkju og skóla.

Mér finnst merkilegt hversu margir úr þínum flokki, Jón, sem kennir sig við einastaklingsfrelsi, vilji hafa hér ríkiskirkju.

Einar Karl, 7.1.2013 kl. 15:30

10 Smámynd: Jón Magnússon

Það er líklega rétt hjá þér Gunnar þetta er hin nýja jafnaðarstefna.

Jón Magnússon, 7.1.2013 kl. 23:44

11 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þessar tillögur sem voru grundvöllur af reglum um samskipti skóla við trúar og lífsskoðunarfrélög komu reyndar frá mannréttindanefnd Reykjavíkur en ekki velferðarnefnd Samfylkingarinnar og Besta flokksins. Þessar reglur gilda um öll trúar og lífsskoðunarfélög en ekki bara kristin trúfélög.

En að því slepptu þá eru nánast allar fullyrðingarnar í greininni rangar. Þessr tillögur úthýsa ekki krisni úr skólum. Eftir sem áður er trúarbragðafræðsla í skólunum með áherslu á kristni. Það er þvíengu fræðslustarfi um kristni úthýst úr skólunum heldur aðeins trúboði. Trúboð á einfalelga alls ekki heima í opinberum skólum. Eða ert þú óssammála því viðhorfi Jón?

Hvaða vandamál hefur leitt af þessu á jólunum í skólum borgareinnar? Svari er einfalt. Engum. Jólaböll eru ekki aflögð. Kirkjuheimsóknir eru ekki aflagðar heldur aðeins sett um þær eðlilegar reglur um að þær skuli ekki innihalda trúboð og ekki skuli ætilast til að börnin séu þátttakendur í athögninni heldur aðeins áheyrendur. Hvað er slæmt við þá reglu?

Við skulum ekki gleyma því að hér eru í gildi lög um skólaskyldu. Því hafa hvorki börnin né foreldrarnir val um það hvort börnin eru í skólanum eða ekki. Það setur þá skyldu á hendur yfirvalda að vernda börnin þegar þau eru í skólanum samkvæmt lagaskyldu og meðal annars fyrir áreiti utanaðkomandi aðila sem eru ekki að sinna menntun barnanna samkvæmt námsskrá. Trúarbragðarfræðsla í skólum á að vera á hendi kennara eins og öll önnur fræðsla í skólum en ekki starfsmönnum trúfélaga með allt aðra menntun.

Þessar reglur eru því ekki aðför að neinu trúfélagi heldur er aðeins verið að skerpa þær reglur að skólar eru menntastofnanir sem hafa það hlutverk að mennta börnin samkvæmt aðalnámsrá grunnskóla og að öðrum hlutum skuli haldið utan við skólana. Það felur í sér að inni í skólunum fer fram trúarbragðafræðsla en ekki trúboð.

Ef foreldrar vilja að börnin þeirra upplifi trúboð þa´geta þeir bara farið með þau sjálf í kirkju eða sunnudagaskóla.

Og til að kæta þig þá verður á bæjarstjórnarfundi í bæjarstjórn Kópavogs rædd álíka tillaga frá jafnréttis og mannréttindanefnd Kópavogs. Vonandi verða settar álíka reglur til verndar börnum í grunnskólum Kópavogs gegn áreiti utanaðkomandi aðild og þá ekki bara trúar og lífsskoðunarfélaga heldur mun víðtækari reglur.

Sigurður M Grétarsson, 7.1.2013 kl. 23:44

12 Smámynd: Jón Magnússon

Þú hefur þá skoðun Einar Karl eins og ítrekað hefur komið fram í athugasemdum þínum við færslur hjá mér. Ég er annarar skoðunr og tel það miður að Margrét Sverrisdóttir og Jón Gnarr skuli hafa úthýst kristilegri fræðslu úr grunnskólunum.  Fólk er frjálst að skoðunum sínum í Sjálfstæðisflokknum Einar Karl það mikið er einstaklingsfrelsið. En það er rétt að það eru sem betur fer margir sem vilja styðja við og efla kristni og kirkjulegt starf í Sjálfstæðisflokknum.

Jón Magnússon, 7.1.2013 kl. 23:46

13 Smámynd: Jón Magnússon

Þú hefðir nú frekar átt að skrifa pistil Sigurður heldur en að koma með þetta sem athugasemd, en þrátt fyrir lengdina ákvað ég að hleypa þessu að.  Ég er þér algerlega ósammála varðandi leiðir og vona að bæjarstjórn Kópavogs hafi vit á því að hafna þessum fráleitu tillögum. 

Jón Magnússon, 8.1.2013 kl. 17:22

14 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ég biðst afsökunar á lengdini en það er því miður ekki mín sterka hlið að vera stuttorður.

Hvað varðar tillöguna í Kópavogi þá var einhugur um hana í jafnréttis og mannréttindanefnd Kópavogs en þar eru fulltrúar frá öllum bæjarstjórnarflokkunum nema næst besta flokknum. Svo má geta þess að álíka tillögur voru samþykktar í Hafnafirði síðast sumar. Og af því að þú nefnir Samfylkinguna í þessu sambandi þá vil ég benda þér á að þegar bæjarráð Kópavogs ákvað að vísa þessum tillögum til bæjarstjórnar þá var aðeins einn bæjarráðsfulltrúi sem bókaði mótmæli við því að setja slíkar reglur. Það var Guðríður Arnardóttir oddviti Samfyliingarinnar í Kópavogi,

Skilur þú munin á trúabragðafræðslu og trúboði? Staðreyndin er sú að þær reglur sem gilda í Reykjavík og Hafnafirði hindra ekki á nokkurn hátt trúarbragðafræðslu eða kristinfræðslu heldur aðeins trúboð. Fullyrðingar um að þær hindir kristinfræðslu eru því oftúlkanir á þessum reglum.

Ert þú sammála því að í grunnslólum eigi aðeins að vera trúarbragðafræðsla en ekki trúboð? Ef ekki getur þú þá fært rök fyrir því af hverju á að vera með trúboð í skólum og hvernig það samrýmist því hlutverki sem þeim er ætlað samkvæmt lögum?

Hvað varðar fullyrðingu þína um að Samfyllkingunni sé eitthvað í nöp við kristni þá hefur aldrei neitt komið frá Samfylkingunni sem hægt er að flokka undir fjandskap við krostni. Það að vera á móti því að vera með þjóðkirkju eða ríkiskirkju er ekki á nokkurn hátt andstaða við kristni eða aðför að kristni enda eru margir trúaðir menn þeirrar skoðunar meira að segja margir prestar. Það eru meira að segja prestar í þjóðkirkjunni sem eru þeirrar skoðunar.

Fullyrðingar þínar um fjandskap við krisni hjá Samfylkingunni standast því enga skoðun.

Sigurður M Grétarsson, 8.1.2013 kl. 22:12

15 Smámynd: Jón Magnússon

Annað segja kirkjunnar þjónar sem ég þekki.

Jón Magnússon, 8.1.2013 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 421
  • Sl. sólarhring: 553
  • Sl. viku: 4211
  • Frá upphafi: 2295946

Annað

  • Innlit í dag: 394
  • Innlit sl. viku: 3860
  • Gestir í dag: 371
  • IP-tölur í dag: 365

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband