Leita í fréttum mbl.is

Spilltir kjósendur kjósa spillta stjórnmálamenn

Í Zimbabwe í suđurhluta Afríku hefur Mugabe forseti enn einu sinni unniđ stórsigur í kosningum međ réttu eđa röngu. Stuđningsmenn hans kćtast og fara í sigurgöngur.  Í stjórnartíđ Mugabe hefur fjárhagur Zimbabwe hruniđ. Verđbólgan veriđ mest í heimi og mannréttindi virt ađ vettugi. Spilltir kjósendur sjá til ţess ađ ţessi gjörspillti mađur heldur völdum valdanna vegna.

En ţetta er í Afríku og einhver mundi segja ađ ađrir hlutir ćttu viđ í Evrópu og Bandaríkjunum.  Samt sem áđur hafa gjörspilltir stjórnmálamenn í Bandaríkjunum t.d. borgarstjórar sem teknir hafa veriđ fyrir eiturlyfjabrask og misferli međ peninga náđ endurkjöri ţegar ţeir komu úr fangelsi. Franskir kjósendur lýsa yfir mesta stuđningi viđ Zarkosy fyrrum forseta í nýrri skođanakönnun ţó hann sé sterklega grunađur um alvarleg fjármálaleg afbrot.

Fyrirbrigđiđ Silvio Berlusconi mesti áhrifavaldur í ítalskri pólitík á ţessari öld hefur veriđ dćmdur fyrir skattsvik, fjármálaleg misferli, mök viđ ólögráđa stúlku ásamt fleiru. Ţrátt fyrir ađ ţessir hlutir hafi legiđ fyrir um nokkra hríđ nýtur Berlusconi mikils fylgis. Enn ćtlar hann sér ađ verđa örlagavaldur í ítalskri pólitík og svo virđist sem kjósendur muni styđja hann til ţess ţrátt fyrir allt.

Ítalía hefur veriđ á niđurleiđ efnahagslega allan stjórnartíma Berlusconi en ţađ skiptir kjósendur ekki neinu máli heldur.  Ţeir styđja sinn mann.

Skyldu íslenskir kjósendur vera frábrugđnir ţeim frönsku eđa ítölsku?

Spurning hvort viđ horfum upp á siđferđilegt hningnunarskeiđ í stjórnmálum og viđskiptum. Spilltir stjórnmálamenn eru endurkjörnir og stórfyrirtćki sem eru gripin í glćpum sleppa međ minni refsingu en hagnađi ţeirra nemur fyrir ólöglegt athćfi. 

Skattgreiđendur og ţar međ kjósendur borga síđan allan kostnađinn vegna spillingarinnar og sitja uppi međ milljarđaskuldbindingar vegna endurreisnar fyrirtćkja sem rekin voru í ţrot af mönnum sem halda áfram ađ reka ţau og skammta sér áfram milljarđa í arđ og kaupauka.

Vegurinn til versnandi lífskjara er varđađur. Spurning er hvort kjósendur sjá nokkra ástćđu til ađ víkja af honum?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Og "fyrirbrigđiđ" (tilv. JM) , DO, hefur veriđ dćmdur úr sínum spilltu embćttum yfir á galeiđu spilltrar fjölmiđlunar, hrakinn og smáđur stórvinur fyrirmyndarinnar (og vinar, eins og hann segir sjálfur) Berlusconi. - Sćkjast nú sér um um líkir, smáđir af ţjóđfélaginu, skriđnir í skjól spillingarinnar.

Lifi ţessi Mugabwe Íslands sem lengst úti í "Móa".

Eđa var ţetta ekki inntak greinar ţinnar, Jón ?

Már Elíson, 5.8.2013 kl. 13:37

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ţađ er mikiđ til í ţessu hjá ţér og ţeim orđum Jónasar Kristjánssonar, ađ kjósendur fái ţau stjörnvöld yfir sig sem ţeir eiga skiliđ.

Sagan er forn og ný. Spilltir keisarar í Róm gćttu ţess ađ útvega ţegnunum brauđ og leiki. Herfarir til Egyptalands voru međal ţess sem ţurfti til ţess ađ tryggja kornframbođ.

Áberandi hefur veriđ hvernig nánast almenn samtök hafa veriđ um ţađ hér á landi ađ vísa frá sé allri ábyrgđ á ţví sem gerđist í ađdreganda Hrunsins.

Ţađ gengur ekki upp ađ segja ađ meirihluti Íslendinga hafi ekki tekiđ ţátt í ţví ađ skuldir heimilanna fjórfölduđust á örfáum árum í árferđi, sem hjá mörgum öđrum ţjóđum hefđi veriđ notađ til ađ minnka skuldir en ekki auka ţćr.

Meirihluti ţjóđarinnar lét sér vel líka og lćtur sér enn vel líka ađ 40% af byggingarkostnađi Hörpunnar og fjölda annarra framkvćmda hér á landi kom frá erlendum sparifjáreigendum, ţ.á.m. sveitarsjóđum, líknarfélögum og lífeyrisţegum og ađ ţađ voru íslensk fjármálafvrirtćki sem flestum fannst ţá svo gott ađ skiluđu peningum beint til Íslands, af ţví ađ útibúin í öđrum löndum voru í sömu stöđu og útibú hér á landi.

Auđvitađ voru tugţúsundir Íslendinga sem ekki tóku ţátt í ţessum tryllta dansi í kringum gullkálfinn en urđu samt ađ súpa seyđiđ af afleiđingunum. 

En ţjóđin fćr ţađ sjtórnarfar og ţjóđfélag sem meirihluti hennar vill.

Eđa er ţađ ekki?

Ómar Ragnarsson, 5.8.2013 kl. 13:44

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Okkar menn éta bara zebrahesta og allir klappa. Málin eru ekki einu sinni rannsökuđ til neinnar hlítar. Fyrrum ráđherrar fá afskrifađa milljarđa í grínviđskiptum og alda öllu sínu og meira til. Ađrir sleppa međ afglapahátt sinn á kostnađ ţjóđarinnar.

Jón ţetta er revía í mörgum ţáttum. Viđ gleymum 1. ţćtti starx og viđ erum farin ađ hlćja í 2. ţćtti og förum út međ gleđina eina í hjarta.

Halldór Jónsson, 5.8.2013 kl. 19:19

4 identicon

Nafni, ég hélt ađ ţú vćrir ađ skrifa um sjálfstćđisflokkinn og hans kjósendur ?  Margt er líkt međ ţví sem ţú skrifar um og sjálfstćđisflokknum og hans kjósendum !

JR (IP-tala skráđ) 5.8.2013 kl. 21:21

5 Smámynd: Jón Magnússon

Nei Már ţađ var ekki inntak greinar minnar. Davíđ hefur ekki fengiđ dóm eđa veriđ ákćrđur. Ţá veit ég ekki annađ en hann sé međ heiđarlegri mönnum sem hafa gegnt mikilvćgum stjórnmálastörfum hér á landi.  Ţessum ţanka var ekki beint gegn neinum einstaklingi eđa flokki Már heldur settur fram til umhugsunar.

Jón Magnússon, 5.8.2013 kl. 22:32

6 Smámynd: Jón Magnússon

Ţakka ţér fyrir ţetta innlegg Ómar. Ţađ er alveg rétt ađ ţjóđin hefur ekki horfst í augu viđ sjálfa sig vegna bankahrunsins og viđurkennt ábyrgđina. Einfaldir pólitískir frasar og galgopaháttur eins og Steingrímur J og Jóhanna sýndu fćrđu okkur enn fjćr ţví ađ geta horfst í augu viđ raunveruleikann. Ef til vill hentađi ţađ ekki pólitískum veruleika ţeirra.

Jón Magnússon, 5.8.2013 kl. 22:35

7 Smámynd: Jón Magnússon

Nú átta ég mig ekki á ţví hvađa menn ţú ert ađ tala um Halldór nema ef vera skyldi Finnur Ingólfsson og nafni ţinn Ásgrímsson. Eru ţađ ađrir ráđamenn sem hafa fengiđ milljarđa afskrifađa og/eđa fyrirtćki ţeirra og halda öllu sínu?

Jón Magnússon, 5.8.2013 kl. 22:36

8 identicon

Mikiđ lifandi skelfing er ég orđinn yfir mig leiđur á predikunum Ómars Ragnarssonar, hvort sem hann fjallar um umferđaröryggismál, mađur sem hefur veriđ ađ brotlenda flugvélum fyrir asnaskap út um allar grundir í áratugi, eđa hann fjallar um fjár og efnahagsmál, mađurinn sem hefur ţegiđ almenn samskot til ađ greiđa upp skuldir sínar. Hann virkar á mig eins og trúlaus prestur, sem bendir fólki á ţrönga veginn en fer hann ekki sjálfur. Ţađ ţykir kannske gamaldags og úrelt viđhorf, en mér finnst predikun ţví ađeins hafa gildi ađ predikaranum farist ađ tala.

Haukur Brynjólfsson (IP-tala skráđ) 6.8.2013 kl. 07:18

9 Smámynd: Jón Magnússon

Ţađ verđur hver ađ hafa sína skođun á ţví sem fram er sett Haukur.

Jón Magnússon, 7.8.2013 kl. 00:04

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 84
  • Sl. sólarhring: 206
  • Sl. viku: 4267
  • Frá upphafi: 2296057

Annađ

  • Innlit í dag: 77
  • Innlit sl. viku: 3909
  • Gestir í dag: 74
  • IP-tölur í dag: 74

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband