Leita í fréttum mbl.is

Frumkvæði Bjarna Benediktssonar

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins skrifar tímamótagrein í dag, þar sem hann setur fram hugmyndir um breytingar á stjórnarskrá.

Þau atriði sem Bjarni nefnir hefðu flest getað náð fram að ganga á þinginu 2009, ef Samfylkingunni og Vinstri grænum hefði ekki legið svo á að reyna að koma á byltingarstjórnarskrá á þeim forsendum að stjórnarskráin væri gömul og úrelt.

Stjórnarskrá lýðveldisins þjónar vel tilgangi sínum og þær breytingar sem Bjarni Benediktsson bendir á varðandi auðlindir þjóðarinnar, samninga við erlend ríki og þjóðaratkvæðagreiðslur eru þær breytingar sem er eðlilegt að ná víðtækri sátt. Þá verður góð stjórnarskrá betri.

Á sama tíma og þetta frumkvæði Bjarna Benediktssonar er kærkomið og kemur ófrjórri umræðu um breytingar á stjórnarskránni í jákvæðan farveg, þá eru alvarlegar blikur á lofti í samfélaginu sem nauðeynlegt er að bregðast við og þar skiptir máli að fólk reyni ekki að ná stundarávinningi í pólitískum tilgangi í stað þess að vinna af heilindum fyrir land og þjóð.

Það verður að ná sátt á vinnumarkað. Við höfum ekki efni á að skaða þjóðfélagið með verkföllum. Það verður að taka á bankaokrinu og sjálftökuliðinu í fjármálastofnunum og víðar í samfélaginu. Það verður að spara í ríkisrekstrinum til að lækka skatta. Það verður að vinna lausnarmiðað að málum í stað þess að þingmenn skaði sjálfa sig og virðingu stjórnmálanna með því að standa í heimskulegu karpi sí og æ oft á tíðum um keisarans skegg.

Þá reynir á vilja og virðingu fyrir því að lýðræðið er ekki bara einræði meirihlutans frekar en það eigi að vera í gíslingu minni hlutans. Óneitanlega fannst mér sá tónn sem formaður Sjálfstæðisflokksins sló með grein sinni í dag gefa tilefni til þess að fleiri slíka tóna mætti slá landi og lýð til hagsbóta ef vili er fyrir hendi.

Vilji er allt sem þarf.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæll kæri Jón.

Ég held ég verði að taka undir hvert orð í pistli þínum.

Þaðð þarf að koma stjórnarskrárumræðunni í vitrænan farveg. Við eigum góða stjórnarskrá að meginstofni til, enda hefur hún tekið hægfara en öruggum breytingum til batnaðar um áratugina í góðri sátt meðal stjórnmálaflokkanna hverju sinni.

Flumbrugangur og byltingarhugmyndir ólánsstjórnar Jóhönnu og Steingríms kunna ekki góðri lukku að stýra.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 21.5.2015 kl. 12:38

2 identicon

Sæll Jón, ég er nokkuð sammála þessu hjá Bjarna nema að ég hefir viljað sjá jafnt vægi atkvæða sett inn í stjórnaskránna líka en erlendar eftirlitsstofnanir hafa gagnrýnt okkur fyrir þetta misvægi.

En ég skil vel að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur vilji ekki sjá þetta ákvæði inn í stjórnaskránna þar sem að þessir tveir flokkar hafa grætt hvað mest á þessu misvægi eins og sýnir sig vel á því sem er að gerast á þinginu núna, núna ætla þessir tveir flokkar að tuddast með ramman í gegnum þingið án þess þó að hafa ekki nema 49% atkvæða en 60 % þingmanna.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 22.5.2015 kl. 16:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 111
  • Sl. sólarhring: 385
  • Sl. viku: 3052
  • Frá upphafi: 2294671

Annað

  • Innlit í dag: 105
  • Innlit sl. viku: 2783
  • Gestir í dag: 103
  • IP-tölur í dag: 102

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband