Leita í fréttum mbl.is

Þjóðarflokkur?

Fram kemur á bloggi Björns Bjarnasonar í dag að Sjálfstæðisflokkurinn sé slíkur þjóðarflokkur að innan hann geti allir rúmast. Hann víkur máli sínu að Ellert B. Schram og bendir síðan á ummæli Bubba Morthens.

Vissulega er það rétt hjá Birni Bjarnasyni að innan vébanda Sjálfstæðisflokksins rúmast margar og mismunandi skoðanir og mikið af dugmiklu ágætisfólki er starfandi innan flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn átti því möguleika á að verða raunverulegur þjóðarflokkur en sveigði af leið og kaus að gæta sérhagsmuna.

Sjálfstæðisflokkurinn er ólíkur hægri flokkum og frjálslyndum flokkum að því leyti að hann hefur á síðari árum hvorki gætt aðhalds og sparnaðar í ríkisrekstri né rekstri þeirra sveitarfélaga þar sem flokkurinn er í meirihluta. Þá er hann ólíkur frjálslyndum flokkum m.a. að því leyti að hann hefur tekið sérhagsmuni fram yfir hagsmuni heildarinnar. Frjálslyndur flokkur.já  og líka flokkur sem hefði haft frjálshyggju að leiðarljósi hefði aldrei mótað gjafakvótakerfi eins og Sjálfstæðisflokkurinn gerði. Hann hefði aldrei mótað framleiðenda- og neytendastefnu eins og Sjálfstæðísflokkurinn hefur gert.

Sjálfstæðisflokkurinn rígheldur í höft þar sem því verður við komið. Fjölþjóðlegt samstarf í Gatt og síðan Alþjóðaviðskiptastofnuninni og Evrópska efnahagssvæðinu þvingaði flokkinn til að samþykkja nútímaleg lög um samkeppni, neytendavernd og draga úr tollvernd. Á öll þessi atriði benti ég og barðist fyrir frjálslyndum sjónarmiðum í atvinnu- og neytendamálum meðan ég var í Sjálfstæðisflokknum og fékk mikið fylgi við þau sjónarmið. Þau komust þó aldrei í framkvæmd vegna þess að hin ósýnilega ráðandi bláa hönd fór sínu fram eins og hentaði og gerir enn. Landsfundarsamþykktum var þá vikið til hliðar. Nú eru slíkar samþykktir þannig orðaðar að bláa höndin getur gert nánast hvað sem er vegna möguleika á mismunandi túlkunum.

Alþýðuflokkur Jóns Baldvins Hannibalssonar var á tímbili frjálslyndari og víðsýnni en Sjálfstæðisflokkurinn og gat markað sér stöðu og náð áhrifum í íslenskri pólitík. Alþýðuflokksmenn þraut hins vegar erindið og létu leiða sig í samstarf með kommum og kvennalista. Úr varð sálarlaus hentistefnuflokkur, Samfylkingin. Þess sér nú merki við stjórnarmyndun þar sem Samfylkingin heldur engu til streitu og hefur engar sérstakar meiningar í íslenskri pólitík og sérhagsmunirnir eru enn í forgangi við ákvarðandi nýrrar ríkisstjórnar.

Í dag virðist stefna beggja flokka Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar vera sú ein að vera í ríkisstjórn. Ráða.  Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig samstarfið gengur þegar gleðileik aukinnar skuldasöfnunar og hágengis lýkur.

Frjálslyndi flokkurinn á þess kost að marka sér stöðu með sama hætti og frjálslyndir flokkar hafa gert í nágrannalöndum okkar og á meginlandi Evrópu. Það verður verkefnið á þessu kjörtímabili. Gangi það vel mun Frjálslyndi flokkurinn verða sigurvegari næstu kosninga. Raunverulegur Þjóðarflokkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Vel mælt og ég tek undir hvert einasta orð.

Magnús Þór Hafsteinsson, 2.6.2007 kl. 12:34

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Kvitta fyrir mig.Gleðilega Sjómannadagshelgi

Ólafur Ragnarsson, 2.6.2007 kl. 15:36

3 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Mjög gott innlegg. Góðir hlutir gerast stundum of hægt. Því þarf að bretta upp ermarnar og taka á ef króinn á að fermast-hann er víst fæddur.

Gunnar Skúli Ármannsson, 2.6.2007 kl. 19:09

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já stundum allt of hægt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.6.2007 kl. 21:08

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sammála Jón.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.6.2007 kl. 03:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 53
  • Sl. sólarhring: 832
  • Sl. viku: 3843
  • Frá upphafi: 2295578

Annað

  • Innlit í dag: 49
  • Innlit sl. viku: 3515
  • Gestir í dag: 48
  • IP-tölur í dag: 47

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband