Leita í fréttum mbl.is

Hvað gerðist?

Þeir atburðir sem urðu á Suðurlandsvegi við Rauðavatn í dag eru vægast sagt afar sérstæðir. Í áratugi hefur ekki komið til átaka með þeim hætti sem þarna urðu milli lögreglu og almennra borgara.  Óneitanlega eru þessir atburðir afar óhugnanlegir og það er nauðsynlegt að fá allar upplýsingar um það sem raunverulega gerðist. Hvað olli því að gripið var til þeirra aðgerða sem gert var af hálfu lögreglunnar. Voru þær nauðsynlegar? Voru þær afsakanlegar? Voru almennir borgarar varaðir við áður en gripið var til aðgerðanna? Þessar og fleiri spurningar eru mjög áleitnar og nauðsynlegt er að upplýsa um málið.

Vegna alvarleika þessara atburða höfum við Atli Gíslason og Siv Friðleifsdóttir farið fram á sérstakan fund í Allsherjarnefnd Alþingis sem allra fyrst í því skyni að aflað verði sem bestra upplýsinga um það sem gerðist.

Á þessu stigi finnst mér ekki eðlilegt að  segja meira um þennan dapurlega atburð en mér finnast yfirlýsingar dómsmálaráðherra, forsætisráðherra og borgarstjóra ótrúlega afrdáttarlausar um réttmæti aðgerða lögreglunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Jón ! mér finnst svör þessara ráðamanna sem þú telur upp, sína máttleysi þeirra. Þeir halda að þeir hafi stjórn á einhverju en þar hafa það ekki. Slagsmálin upp í Nörðlingaholti í dag er trúlega byrjun á mun meiri aðgerðum. Þeganar þessa lands eru orðnir mjög þreyttir á sinnuleysi ráðamanna, því lofrð þeirra fyrir kosningar voru allt aðrar en það sem þeir hafa sýnt í verki.

Þeir verða að koma út úr sínum fólabeinsturni of sinni því sem þeir lofuðu.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 23.4.2008 kl. 20:03

2 Smámynd: Haffi

Jón, væri ekki líka hægt að ræða eftirlaunafrumvarpið, svona í leiðinni? Tel óþarft að eyða takmörkuðum tíma Alþingis í að ræða svona. Lögreglan ætti að koma með skýrslu til dómsmálaráðherra og hann ætti að geta sent hana til ykkar.

Haffi, 23.4.2008 kl. 20:35

3 Smámynd: ragnar bergsson

Ég er sammála þér Guðrún þetta er lognið á undan storminum það er vaxandi reiði í þjóðfélaginu og hún á eftir að brjótast út á ýmsa vegu. Ég tel að lögreglan hafi farið út á mjög hála braut.

ragnar bergsson, 23.4.2008 kl. 20:37

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Lögreglan missti sig gjörsamlega þarna í dag. Af hálfu hennar hefur verið talað um stjórnleysi í mótmælunum. Vissulega er það rétt en stjórnleysið hjá lögreglunni var algjört. Þarna var lögregluliðinu stefnt í einum tilgangi. Það kom greinilega fram í fréttum beggja stöðva í viðtali við lögregluþjón þegar hann sagði: "Við látum verkin tala" - Jón - Þjarmiði nú svolítið að Geir og Birni. - Fáið svör við því hvers vegna þeir telja þetta eðlileg viðbrögð lögreglu. Þeir hljóta að þurfa að gefa þingmönnum og þjóðinni svör við því hvort eðlilegt er að bregðast við með ofbeldi.

Haraldur Bjarnason, 23.4.2008 kl. 20:57

5 identicon

Hverju er verið að mótmæla?  Ég hef fylgst með þessum mönnum æsast upp meira og meira með hverjum deginum og ég veit ekki enn nákvæmlega hverju þeir eru að mótmæla.  Eru þeir að mótmæla ríkisstjórninni?  Ef svo er þá er hægt að segja henni upp í næstu kosningum, þannig virkar lýðræðið, það virkar ekki með ofbeldi.  Er kannski verið að mótmæla stjórnvöldum yfir höfuð?  Vilja þessir menn anarkisma?  Maður veit ekkert hvað þeir vilja því það sem þeir leggja áherslu á í sínum málflutningi er að segja að ríkisstjórnin og ráðamenn þurfi að vakna og að þeir séu ekki að vinna vinnuna sína og þannig fram eftir götunum, og tala svo um lögregluna eins og hún sé óvinur þeirra. 

Þetta er bara þvæla hjá þessum mönnum og ég held að þeir ættu að reyna að þroskast aðeins og sýna smá skynsemi.  Ég er ekki í þeim hluta þjóðarinnar sem svo margir karpast við að segja að sé komin með nóg af aðgerðaleysi og ráðþrota ríkisstjórnarinnar, hvernig getur nokkur maður brugðist við þegar það er svona óljóst hvað er verið að fara fram á?  Ef verið er að mótmæla háum álögum á eldsneyti og að ríkið geti í ljósi hækkana á heimsmarkaðsverði á eldsneyti lækkað álögur, þá myndi ég frekar vilja sjá álögur á eldsneyti hækkaðar og peningarnir notaðir til að lækka matvælaverð, það eru hagsmunir allra að lækka matvælaverð, ekki bara sumra.

 Sem lögmaður Jón, þá veistu mætavel að það er brot á lögum að fara ekki að fyrirmælum lögreglu.  Handtökuheimild er fyrir hendi ef lög hafa verið brotin.  Veiti menn mótspyrnu við handtöku hefur lögreglan heimild til að beita valdi.  Þetta veistu allt.  Svona horfði ég á þetta gerast í sjónvarpinu í morgun og ég bara skil ekki fólk sem getur séð eitthvað annað útúr þessu.  Að fólk skuli leggja blessun sína og stuðning við svona skrílslæti gerir þeirra málflutning að engu.  Lögreglunni ber að taka þetta föstum tökum og handtaka fólk sem ekki fer að lögum.  Og þessar aðgerðir trukkabílstjóranna og annarra í dag eru engu síðri lögbrot en þjófnaður, líkamsárásir og önnur ofbeldisbrot.

Heimir Skarphéðinsson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 21:26

6 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Ég verð að segja að ég sakna þess að sjá ekki umræðu um það hvaða kröfur mótmælendur eru að fara fram með á hendur stjórnarinnar.  Ég hef ekki séð fréttamenn ræða þá hlið á mótmælunum, eða það sem kallast má rót vandans.  Það er ekki traustvekjandi að heyra forsætisráðherran neita fólki um að ræða sín mál við fulltrúa ríkisstjórnarirnnar, það hefur hingað til þótt eðlilegt að mann geti bókað viðtal hjá ráðherra og rætt sín mál.  Get ekki séð að það breyti einhverju hvort hér er um að ræða hagsmunasamtök eða einstaklinga. Við heyrum í fréttum að ráðamenn séu tilbúinir að ræða um frið í miðausturlöndum, en geti ekki á sama tíma rætt við þegna sína.  Að mínu mati er hér skrítin forgangsröðun.

Ester Sveinbjarnardóttir, 23.4.2008 kl. 21:42

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ekki er nokkur leið að bera virðingu fyrir þeim sem ráða þessu landi.Landbúnaðarráðherrann laug ískaldur þegar hann var spurður á útvarp Sögu hvort hann svaraði ekki stjórnsýslukærum.Hann er einfaldlega lögbrjótur.Hann svarar ekki umboðsmanni heldur.Er ekki mál til komið að Frjálslyndi flokkurinn boði til útifundar við stjórnarráðið og segi fólki að koma á bílum að staðnum eins langt og það kemst og síðan getur mannfjöldinn lokað öllum leiðum að stjórnarráðinu.

Sigurgeir Jónsson, 23.4.2008 kl. 21:48

8 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Já það er hvoru tveggja sjálfsagt og eðlilegt að fara fram á fund með allsherjarnefnd vegna þessa og gott að farið hefur verið fram á það.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.4.2008 kl. 23:42

9 identicon

 Ég held að þessi truflun við afleggjarann á Bessastöðum í gær hafi orsakað þessa hörku í aðgerðir lögreglunnar í dag. Forristumenn þjóðarinnar hafi fundist þeir vera hafðir af fíflum með svona framkomu að hálfu trukkamanna meðan forseti Palestínu og fylgdarmenn voru í heimsókn. Þeim hefur þótt þetta vera þeim til minnkunar að geta ekki haft hemil á þessum svokölluðum " skríl "

Það sást líka á stöð 2 að ákveðin lögreglumaður bað viðmælanda stöð 2 að bíða um stund og sagði með berum orðum að breyting væri í aðsýgi á ástandinu. Það kom berlega í ljós stuttu síðar að þeir byrjuðu slagsmálin eins og við sáum sannarlega í sjónvarpinu. Skrítið líka að þeir hafi kosið að gera þessa stóru aðgerð með óeirðarlögreglunni með trukkamenn voru sem fæstir og eins og kom fram í viðtali við Sturlu jónsson að þetta hafi ekki verið skipulögð mótmæli og einungis fáir bílar þá finnst mér þessi harka hjá lögreglunni til skammar.

þetta hefur allavega fengið mig til að hugsa minn gang og er akkurat núna fyrst tilbúinn til að sýna trukkamönnum sýnilegan stuðning ásamt flest öllum sem ég hef talað við í dag. Þessi sýn í dag á lögreglu berjandi fólk fékk verulega á mig og vitandi að Björn Bjarnason með sinn einkaher (varalið) sé virkilega í burðaliðnum vekur upp litla vikinginn í mér. Þennan mann þurfum við að stöðva því að svona framkoma í dag mun ekki stilla til friðar heldur mun þetta efla stuðning við trukkamenn. Ég er hræddur um að þetta sé kveikjan á einhverju miklu stærra atburði.

Þröstur

Þröstur Halldórsson (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 00:31

10 Smámynd: Jón V Viðarsson

Væri ekki betra að nota slökkviliðsbíla og sprauta vatni á mótmælendur heldur en að byrja á svona villimannslegum aðferðum . Vatnið hefur verið notað í stórum mótmælum og virkað mjög vel erlendis . Kveðja Jón Viðar

Jón V Viðarsson, 24.4.2008 kl. 01:08

11 identicon

Gott hjá þér Jón og vona ég að þú sleppir þeim ekki auðveldlega út úr þessu ljóta máli.  

Þó ég sé ekki fylgjandi aðferðafræði vörubílsstjórana, þá voru aðgerðir lögreglu í dag langt út fyrir öll mörk sem við getum sætt okkur við hér á landi.   Að mínu viti á lögreglan alla sök á því ofbeldi sem átti sér stað þarna; það var mjög augljóst af þeim myndum sem maður hefur séð af vettvangi - allt frumkvæði af ofbeldi kom frá lögreglumönnum.   Þarna var framinn alvarlegur glæpur og ég vona að þið gerið kröfur um ítarlega rannsókn og að þeir sem bera ábyrgð á þessu verði látnir víkja hið fyrsta úr þeim störfum sem við höfum treyst þeim fyrir; þeir hafa brugðist því trausti algjörlega.   Svona ofbeldi viljum við ekki á Íslandi!

Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 01:45

12 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæl.

Mér virðist við lestur um mótmælin að löggæslan hafi misst sig í skapinu gagnvart mótmælendum og áhorfendum að þeim. Sjá lýsingu sjónarvotts og nokkur myndskeið frá vettvangi á þessari slóð :

http://einartor.blog.is/blog/einartor/entry/517840/

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 24.4.2008 kl. 08:53

13 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Þingmenn sem eru svo uppteknir við úthlutanir af almannafé til samþingmanna á Alþingi, að þeir hafa ekki verið að fylgjast með, skipulagsbreytingar Björns Bjarna og meðreiðarmanna á lögreglu, hafa miðast við að byggja upp óeirðarlögreglu til að geta barið á almenningi innanlands, þátttaka í friðargæslu er ekkert annað en þjálfunarbúðir í nýjum samskiptum innanlands.

Engin ógn er til staðar önnur en brostið langlundargeð landsmanna, á sífellt auknum álögum og mismunun, auk stéttskiptingarinnar.

Skilaboð stjórnvalda til almennings eru skýr, eða eins og annar bloggari skrifaði :

"Vinnið vinnuna ykkar og borgið skatta, við sjáum um rest og hugsum fyrir ykkur. Ef ekki þá látum við lemja ykkur!"

Vinnubrögð og aðferðir lögreglu, eru þau nákvæmlega sömu og þeir beittu á mótmælendur við Kárahnjúk, nú er bara um Íslenska fjölskyldumenn að ræða, en ekki krakka erlendis frá.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 24.4.2008 kl. 09:26

14 Smámynd: Landfari

Jón, ég spyr þig beint: Veistu nákvæmlega hverju verið er að mótmæla?

Ég meina nákvæmar en háu eldsneytisverði og hvíldartíma.

Mér skilst að verið sé að vinna í þessu hvíldartíamamáli en þú leiðréttir mig þá ef það er misskilningur.

Hvað vilja þeir að að ríkið lækki sínar álögur mikið á eldsneytið og hvaðan eiga þá aurarnir að koma í vegagerðina undir þessa trukka?

Og svo ein í lokin: Hvað á lögregla að gera þegar ekki er farið að beinum fyrirmælum hennar?

Landfari, 24.4.2008 kl. 10:08

15 identicon

Ég hjó í eitt atriði í sjónvarpinu en það var þegar að lögreglan hafði sprautað táragasinu yfir maninn í fyrsta skiftið, þá voru margar hendur á lofti með vatn í litlum plastbrúsum..... Hvað voru menn að gera með þessar litlu vatnsflöskur á sér NEMA vegna þess eins að þetta var undirbúið allt saman. Það átti sem sagt að æsa til uppþota og skrílsláta og espa lögreglu til athafna. Hverju eru þessir menn að mótmæla ? Af hverju leggja þeir ekki bara niður vinnu í viku eða lengur  og taka sér frí ? Það er miklu árangursríkara að fara þá leiðina. Svelta alla þá sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Vörubílar allskonar myndu lama helling, vöruflutningar alls konar myndu lama verslanir, dreifbýli og alla þá aðra sem eiga undir þessum aðilum lífsviðurværið sitt, sendibílar gætu hjálpað til og líka leigubílar. En, ekkert gengur upp ef ekki er samstaða meðal mótmælenda. Örfáir bílstjórar með skrílslæti gera ekkert annað en að skemma fyrir fjöldanum.

Magnús (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 13:51

16 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæri samherji og bloggvinur: Takk fyrir veturinn og gleðilegt sumar

Sigurður Þórðarson, 24.4.2008 kl. 15:23

17 identicon

Þetta er mjög sorglegt sem gerðist þarna í gær og augljóst að það var lögreglan sem olli með athæfi sínu múgæsingi sem varð til þess að hún fékk alla upp á móti sér.   Allt frumkvæði af ofbeldi var lögreglunnar og framganga hennar til mikillar skammar.   Það er engu líkara en að lögregluyfirvöld hafi verið búinn að ákveða það fyrirfram að skapa það ástand sem þarna varð.   Ef ekki þá eru þetta illa gefnir menn sem ættu ekki að gegna þessum mikilvægu störfum.  

Ég hef löngum haft mikið álit á Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra, talið hann vera einn besta ráðherrann okkar að mörgu leyti, þar sem hann er hagsýnn, gríðarlega vinnusamur og skilvirkur starfsmaður.   Eftir viðtal sem ég sá við hann í sjónvarpinu í gær, þar sem hann lýsti aðförum lögreglunnar sem eðlilegum, án þess þó að hafa kynnt sér þær eða séð fréttir af þeim, verð ég að segja að hann hefur fallið verulega í áliti hjá mér.   Hvaða maður í ábyrgðastöðu með fullu viti lýsir yfir ánægju með eitthvað, án þess að hafa kynnt sér það áður í þaula? 

María J. (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 18:20

18 Smámynd: Jón Magnússon

Í fyrsta lagi þá er ég ekki að mæla með lögbrotum. Í öðru lagi þá mun ég hitta fulltrúa vörubílstjóra á morgun til að kynna mér betur þeirra málstað. Í þriðja lagi þá hef ég verið fylgjandi því að eftirlaunafrumvarpið yrði afgreitt sem fyrst og það stendur ekki á mér að vinna að því. Í fjórða lagi þá finnst mér mikilvægt í lýðræðisþjóðfélagi að reynt sé að leysa og bregðast við sanngjörnum kröfum ef um þær er að ræða. Þá hafa þeir lögreglustjórar sem ég hef þekkt náið eins og t.d. Sigurjón Sigurðsson heitinn lögreglustjóri í Reykjaví á sínum tíma talað um nauðsyn þess að lögreglan reyni að koma málum þannig í þeim tilvikum sem hægt er að þau megi leysa án ofbeldis.  Í fimmta lagi þá báðum við fulltrúar stjórnarandstöðunnar um fund í allsherjarnefnd til að fá kynningu á því hvað raunverulega gerðist og hvernig var að málum staðið. Í því fellst ekkert annað en sá vilji að stjórnmálamenn eigi þess kost að fá allar bestur upplýsingar áður en þeir móta afstöðu.

Jón Magnússon, 24.4.2008 kl. 22:56

19 Smámynd: Landfari

Flott hjá þér og ykkur. Geri ráð fyrir, þó þú getir þess ekki hér að ofan, að þið kallið til fulltrúa lögreglu og fáir upplýst hvenær og af hverju ákveðið var að beita gasinu. Ég vænti þess að þú leyfir svo okkur hinum að fylgjast með líka og upplýsir hér nákvæmlega um hvað málið snýst og hver staða þess eða hluta þess er í kerfinu.

Geri ekki ráð fyrir að þetta verði neit trúnaðarmál.

Gleðilegt sumar.

Landfari, 25.4.2008 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 793
  • Sl. viku: 3797
  • Frá upphafi: 2295532

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 3472
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband