Leita í fréttum mbl.is

Kvennakúgun eykst í Afganistan

Noor Zia Atmar var talskona hins nýja Afghanistan fyrir réttindum kvenna þegar stjórn Talibana féll. Hún varð þingmaður á Afganska þinginu og mætti á fundi og ráðstefnur víða um heim til að tala um aukin réttindi kvenna og þá breytingu sem væri orðin í landinu.

Þetta var fyrir þrem árum. Núna býr Noor í skýli fyrir konur sem hafa mátt þola heimilisofbeldi, en maður hennar hefur niðurlægt hana, barið og jafnvel skorið með hníf. Noor segir í dag að konur séu í verri stöðu núna og á hverjum degi séu þær drepnar eða eyru eða nef skorið af þeim.

Á 10 ára afmæli hersetu NATO herja í Afganistan sýnir staða Noor sem er bara eitt dæmi af mörgum að árangur veru NATO herjanna í landinu skiptir engu máli. Skýlum fyrir konur er lokað og þing landsins hefur til samþykktar lög sem kemur í veg fyrir að ættingjar geti borið vitni gegn hver öðrum en það mundi koma í veg fyrir réttarhöld vegna heimilisofbeldis.

Noor Atmar flúði að heiman gegn mótmælum fjölskyldu sinnar sem bönnuðu henni að sækja um skilnað þrátt fyrir þær misþyrmingar sem hún hafði mátt sæta í hjónabandinu. Þegar hún sótti um skilnað yfirgaf fjölskyldan hana og töldu hana ættarskömm.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Afganistan til að gæta að hagsmunum og réttindum kvenna. Henni hefur ekkert orðið ágengt og staða kvenna hefur versnað frá því að hún kom til þessara starfa.  Það er ekki henni að kenna. Þessir hlutir voru fyrirsjáanlegir að þegar vestrænir herir færu frá Afganistan þá mundi sækja í sama farið því miður. 

Billjónum hefur verið sóað í tilgangslaust stríð í Afganitan og billjónum hefur verið varið í þróunaraðstoð í landinu. Ákveðinn hluti þess fjár hefur lent í vösum gjörspilltra stjórnenda landsins. Afskiptin af Afganistan er eitt dæmi um vanþekkingu vestrænu stjórnmálastéttarinnar sérstaklega þeirrar bandarísku á sögu og menningu þjóða eins og Afganistan. Öll afskiptin af landinu hafa því verið mistök og því miður mannslífum og fjármunum fórnað til einskis.

Ingibjörg Sólrún ætti að segja upp nú þegar af því að starf hennar ber engan árangur og vera hennar í landinu er eingöngu til að þiggja launin sín án annars takmarks eða tilgangs. Vestrænir herir ættu líka að fara sem allra fyrst og helst langt á undan áætlun. Vera þeirra skiptir hvort sem er ekki máli. Afganar verða sjálfir að ráða örlögum sínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er það ekki starf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur að sjá til þess að ekki verði afturför í þessum efnum? Þá er manneskjan ekki að sinna starfi sínu almennilega eða kannski hún sé ekki starfi sínu vaxin??

Jóhann Elíasson, 11.8.2013 kl. 13:57

2 Smámynd: Jón Magnússon

Hvorki Ingibjörg né nokkur annar getur gert mikið í þessu máli Jóhann því miður. Ég furða mig hins vegar alltaf stöðugt á femínistunum og mannréttindafólkinu sem horfir stöðugt framhjá kvennakúguninni í heiminum eins og það sé eitthvað sem sé minna virði en réttindi ýmissa annrra hópa.

Jón Magnússon, 11.8.2013 kl. 18:42

3 Smámynd: Ómar Gíslason

Þessi ömurlega kúgun er í nafni öfgasamtaka innan Islam og þessir karlfauskar sem virðast halda að eignast konu er eins og kaupa standlampa er í raun sorgleg. Svona lagað mun rýra trúna fyrir hinum sem vilja iðka sína trú í friði.

Ef við skoðum verst stöddu lönd heims. Það sem þau eiga sameiginlegt er að annað hvort eru þar einræðisherrar sem hafa nýsloppið frá „helvíti" eða öfgasamtök innan Islam sem herja á hina venjulega íbúa með ógeðslegum hætti. Það hlýtur að koma að því að það verður risið upp gegn svona öfgahópum.

Ómar Gíslason, 11.8.2013 kl. 21:40

4 identicon

Þetta er makalaust raus!

Hvað ertu að fara með þessum pistli, Jón Magnússon?

Að vegna þess hversu vestrænum stjórnvöldum hefur gjörsamlega mistekist að koma skikkan á Afganistan, þá beri Ingibjörgu Sólrúnu að hundskast heim?

Viltu ekki sjálfur leggja fram tillögu um hvernig stöðu kvenna gæti verið betur borgið?

Jóhann (IP-tala skráð) 12.8.2013 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 64
  • Sl. sólarhring: 252
  • Sl. viku: 4247
  • Frá upphafi: 2296037

Annað

  • Innlit í dag: 60
  • Innlit sl. viku: 3892
  • Gestir í dag: 60
  • IP-tölur í dag: 60

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband