Leita í fréttum mbl.is

Burt með þá

saving icelandSamtökin Saving Iceland hafa um nokkurra ára skeið mótmælt því að byggð yrðu vistvæn orkuver á Íslandi. Aðallega hafa mótmælin beinst gegn byggingu Kárahnjúkavirkjunar en nú einnig að jarðvarmaveitunni á Hellisheiði. Samtökin leggja sérstaka rækt við að mótmæla vistvænustu orkuverum í veröldinni. Þá hafa samtökin mótmælt stóriðjustefnu.  Félagar í  samtökunum hafa sama rétt og aðrir til að halda fram skoðunum sínum og mótmæla í lýðfrjálsu landi. Samt sem áður verða mótmælin að vera innan þeirra marka sem lög heimila. Vandamál við mótmæli Saving Iceland hafa komið til vegna þess að félagar og/eða áhangendur samtakanna hafa iðulega farið langt út fyrir eðlileg mörk í mótmælum og staðið fyrir skemmdarverkum og lögbrotum. Nefna má í því sambandi skemmdarverk sem unnið var hjá ræðismanni Íslands í Edinborg en einnig má benda á að lögregluyfirvöld hafa oft þurft að hafa afskipti af mótmælum samtakanna. Árið 2006 voru 14 félagar í samtökunum kærðir og dæmdir fyrir að standa í skemmdarverkum og fara ekki að tilmælum lögreglu svo dæmi  séu tekin. Þegar þetta er skrifað hafa mótmæli samtakanna við Hellisheiðarvirkjun verið friðsamleg. íslensk sumarrigning er meira en margir mótmælendurnir gátu þolað og urðu því að sækja sér aðstoð og hlýju frá þeim orkuverum sem mótmæli þeirra beinast gegn. 

asta þorleifsdottirÞó á þessum inngangi megi skilja að ég er ekki sérstakur aðdáandi samtakanna Saving Iceland, þá hækkuðu þau verulega í áliti hjá mér í dag.  Vistvæni varaformaður Orkuveitu Reykjavíkur Ásta Þorleifsdóttir úr Íslandshreyfingunni segist í frétt dást að hugsjón samtakanna Saving Iceland. Hún bauð samtökunum óformlega að sækja um styrk hjá fyrirtækinu. Varaformaður Orkuveitunnar vildi  hlutast til um að mótælasamtökin, hvers félagar eru margdæmdir fyrir óhlýðni og skemmdarverk, fengju styrk af almannafé  frá Orkuveitu Reykjavíkur.  Í sjálfu sér kom mér þessi hugsun Ástu Þorleifsdóttur “umhverfisverndarsinna” ekki á óvart. Hún er greinilega vön að vasast þannig með opinbert fé að henni finnst eðlilegt að því megi eyða eftir hentugleikum. Þá hefur hún vafalaust einnig haft  í huga þegar Landsvirkjun af gjafmildi sinni styrkti formann Íslandshreyfingarinnar um margar milljónir vegna mótmæla hans við Kárahnjúkavirkjun. Formanninum fannst eðlilegt að taka við styrknum frá Landsvirkjun og hvers vegna þá ekki Saving Iceland.. Nú brá svo við að hugsjónafólkið í Saving Iceland sagði nei takk við Ástu Þorleifsdóttur. Því fannst ekki eðlilegt að þiggja styrk úr hendi þeirra sem mótmæli þeirra beinast gegn. Ég tek ofan fyrir þessari afstöðu félaga Saving Iceland.  Afstaða nefndardrottningar Reykjavíkur  er hins vegar dæmigerð fyrir þann fáránleika sem einkennir meirihlutann í  Reykjavík. Í sama dagblaði og lesa mátti frétt um að Saving Iceland hefði kurteislega afþakkað boð Ástu Þorleifsdóttur varaformanns Orkuveitunnar, var frétt þar sem Ásta, sem fær yfir hálfa  milljón á mánuði fyrir  nefndarsetur og önnur viðvik hjá Reykjavíkurborg, kvartar yfir því að þurfa að borga símkostnað og akstur fyrir REI. Það er raunar með ólíkindum að milljarðafyrirtækið REI skuli gera svona illa við stjórnarmann sinn. Ásta upplýsir að hún fái 125 þúsund á mánuði fyrir stjórnarsetu hjá REI en það er ekki nóg því að engir aksturspeningar fylgja og símann sinn verður hún að borga sjálf. Stjórn Orkuveitunnar gæti e.t.v.hlutast til um að veita Ástu  styrkinn sem  Saving Iceland hafnaði. Þá gæti þessi umhverfissinni sem er varaformaður Orkuveitunnar haldið áfram að nota bílinn sinn til hins ítrasta auk símans. Það er engin ástæða til þess að umhverfisverndarsinnar í orði noti vistvæn farartæki. Eða hvað?
Af orðum og afstöðu nefndardrottningar Reykjavíkurborgar Ástu Þorleifsdóttur að dæma, virðist brýnna að sérgróða liðinu í stjórn Reykjavíkurborgar verði vikið burt en félögum úr Saving Iceland.

Greín í 24 stundum miðvikudag 16.7.2008.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ásta Þorleifsdóttir er hún ekki með borgarstjóranum í liði?  Ólafur F. Magnússon borgarstjóri ætlar að bjóða fram í næstu borgarstjórnarkosningum undir merkjum Frjálslynda og óháða það las ég a.m.k á vef  sem Útvarp Saga er með.

Baldvin Nielsen,Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 15:18

2 Smámynd: Alfreð Símonarson

Ehheehheemm: þér segið ,,vistvænustu orkuverum í veröldinni"

Hvaða heimildir hefur þú fyrir því en útblásturinn úr borholunum er ekki bara saklaus vatnsgufa. Þessi megna skítafíla sem kemur af þeim er brennisteinssýra og væri gaman að rölta með þér þarna um hellisheiðina og sja hvernig mosinn hverfur þarna í kring. Einnig ertu að endurtaka bjagaðar upplýsingar frá þessu stóriðjupakki þ.e. ef þú ert ekki á launum frá þeim.

Lifi byltingin og niður með seðlabankann!

Kær kveðja Alli.

Alfreð Símonarson, 16.7.2008 kl. 16:08

3 identicon

Saving Iceland er í fyrsta lagi grasrótarhreyfing en ekki skipulögð samtök.

Mótmælin hafa beinst gegn því að virkjað sé í þágu stóriðju en Íslendingar hafa fyrir löngu síðan fullnægt sinni eigin orkuþörf.

Það hvað kallast "eðlileg mörk" þegar mótmælaaðgerðir eru annarsvegar er huglægt mat en beinar aðgerðir á borð við þær sem Saving Iceland hefur beitt, hafa verið notaðar í öllum helstu baráttumálum mannkynssögunnar. Mér þætti fróðlegt að vita hvort þér finnst t.d. Nelson Mandela hafa farið yfir "eðlileg mörk" með sinni borgaralegu óhlýðni.

Það er rangt að nokkur Saving Iceland liði hafi sótt eða þegið aðstoð frá þeim orkuverum sem mótmælin beinast gegn.

Við höldum vitanlega fast við þá stefnu okkar að þiggja ekki fé frá OR eða öðrum sem eru ábyrgir fyrir stórfelldum náttúruspjöllum en ef Ásta leitar til okkar, skal ég persónulega hlutast til um að henni verði útvegað reiðhjól í þokkalegu ástandi.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 17:06

4 Smámynd: Jón Magnússon

Baldvin hefur nokkur maður nokkru sinni ákveðið það sjálfur upp á eigin spýtur að hann fari í framboð fyrir ákveðinn flokk eða hreyfingu. Þarf hann ekki stuðnig flokksins til þess? Ólafur F gekk úr Frjálslynda flokknum í Íslandshreyfinguna.  Í ljósi þess eru þessi ummæli vægast sagt sérstök. Nema hann telji sig eiga einkarétt á nafninu.

Jón Magnússon, 16.7.2008 kl. 22:52

5 Smámynd: Jón Magnússon

Alli ég er tilbúinn að rölta með þeir eitthvert fagurt sumarkvöld á næstunni upp á Hellisheiði. Ég hef raunar komið nokkrum sinnum á staðinn en ekki rölt þar um nágrennið síðan virkjunin kom. En þú lætur í þér heyra. Það er auðvelt að finna út á vef Alþingis með netfang og/eða síma.

Jón Magnússon, 16.7.2008 kl. 22:54

6 Smámynd: Jón Magnússon

Eva.

Saving Iceland eru skipulögð samtök. Eftir þeim heimildum sem ég hef þá eru ýmsir þekktir mótmælendur sem taka þátt í starfi samtakanna, fólk sem mér skilst að telji ekki eftir sér að fara töluvert langt út fyrir lög og rétt. 

Þegar þú minnist á Nelson Mandela í þessu sambandi og spurninguna um það hvort hann hafi farið yfir "eðlileg mörk" þá tel ég að hann hafi gert það. Hann hafði hins vegar ákveðna afsökunarástæðu sem hann fjallaði sérstaklega um í merkri ræðu sem hann flutti áður en hann var settur í fangelsi. Þar spurði hann hvort hann væri siðferðilega bundin við lög og reglur sem að minni hlutinn setti meiri hlutanum af því að minni hlutinn hefði meiri hluta atkvæða.

Í sjálfu sér er það verðug spurnig að velta fyrir sér hvað séu "eðlileg mörk"varðandi mótmæli. Ég er mjög hrifinn af hugmyndum Henry David Thoreau eins og þær koma fram m.a. í riti hans "Civil disobedience"  Þeir sem lengst hafa náð og gert hugmyndir Thoreau að sínum er fólk sem hefur lagt áherslu á friðsamleg mótmæli. Ég hef hvergi í þeim fræðum sé að það sé afsakað þegar fólk skemmir hluti fyrir öðru fólki t.d.  En þetta er efni sem þarf annan vettvang en athugasemd á bloggfærslu.  Ég er tilbúinn til að taka snerru við þá í Saving Iceland um skilgreininguna "eðlileg mörk"ef þeir vilja.

Ég segi ekki að þið hafið þegið styrki. Ég er að hrósa ykkur fyrir að gera það ekki. Það er einn helsti púnkturinn í greininni. Mér finnst þeir ekki sérstaklega trúverðugir í baráttunni sem þiggja styrki frá andstæðingnum. Þess vegna sagðist ég taka ofan fyrir ykkur.

Jón Magnússon, 16.7.2008 kl. 23:05

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Einhvern veginn hefði mér fundist eðlilegt að Saving Iceland væri í verkefnum tengdum mannréttindabrotum í kvótakerfinu.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.7.2008 kl. 01:11

8 identicon

Guðrún María, þú ert nú ekki fyrsta manneskja til að hafa skoðun á því hverju Saving Iceland ætti að mótmæla. Ég get reyndar sagt þér að innan Saving Iceland er fullt af fólki sem styður þá sem mótmæla kvótakerfinu. Það er hinsvegar útilokað fyrir eina hreyfingu að ætla að taka öll réttlætismál heimsins upp á arma sína.

Jón, munurinn á hreyfingu og samtökum er talsverður. Samtök hafa stjórn sem ber megin ábyrgð á öllum helstu ákvörðunum og venjulega félagaskrá. Hreyfingar vinna á annan hátt, án leiðtoga og miðstýringar.

Þeir sem hafa náð mestum árangri með borgaralegri óhlýðni og öðrum beinum aðgerðum hafa gengið mjög langt í því að valda tjóni. Sem dæmi má nefna að í Suður Afríku vann almenningur gegn aðskilnaðarstefnunni með því að flykkjast inn á veitingahús og sitja þar sem fastast þar til þeir voru fjarlægðir með lögregluvaldi. Aðgerðirnar voru friðsamlegar (þar til lögreglan mætti með barefli) en ollu því vitanlega að veitingahúsin misstu af miklum viðskiptum. Verkalýðsbaráttan á Vesturlöndum var á sama hátt háð með verkföllum, sem voru auðvitað kolólögleg.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 01:38

9 identicon

Hér er fréttin sem ég var að vitna í. Það er engu líkara en að borgarstjórinn gangi út frá því að hann hafi gott bakland í Frjálslynda flokknum til þess að leiða lista Frjálslynda og óháða í næstu kosningum þrátt fyrir að það séu 2 ár þar til þær verða. Það liggur kannski svona á þar sem næsti landsfundur Frjálslynda flokksins er fljótlega á næsta ári.

,,Ætlar að bjóða fram í næstu kosningum undir merkjum Frjálslyndra og óháðra.

PrintSenda
föstudagur, 11 júlí 2008


Ólafur F. Magnússon
borgarstjórinn í Reykjavík var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í morgunútvarpinu í
vi
kunni og verður þátturinn endurfluttur milli kl.10 og 12 á laugardag og aftur
á sunnudagskvöldið milli kl. 20 og 22. Ólafur greindi frá þeim verkefnum sem
hann hefur sinnt sem borgarstjóri í Reykjavík og lagði þunga áherslu á að
Reykjavík hafi aldrei verið eins græn eins og nú undir hans stjórn''

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 02:58

10 Smámynd: Jón Magnússon

Baldvin ég átta mig ekki á samhengi þessa sem haft er eftir Ólafi F. Magnússyni og næsta landsfundi Frjálslynda flokksins sem þú talar um.  Þú skýrir það e.t.v.

Í stjórnmálum hefur fólk frelsi og Ólafur F. Magnússon hefur frelsi til að ganga úr Íslandshreyfingunni með sama hætti og hann gekk úr Sjálfstæðisflokknum og síðar Frjálsynda flokknum. En hann er í Íslandshreyfingunni í dag og þess vegna er það e.t.v. merkilegast að hann skuli ekki tala um framboð Íslandshreyfingarinnar þegar hann talar um að fara í framboð. Hvað skyldi Ómar Ragnarsson formaður Íslandshreyfingarinnar segja um þetta?

Jón Magnússon, 17.7.2008 kl. 12:31

11 Smámynd: Sverrir Einarsson

þessi kelling hjá OR er bara siðblind frekja og hrokagikkur, ekkert annað. Allir eiga að borga allt fyrir hana og hún þykist vita allt betur en aðrir, er þetta ekki sama gribban og sagði að gym dótið sem átti að selja úr OR húsinu væri ekki nógu gott fyrir Reykvíkinga en fjandans nógu gott fyrir pakkið út á landi.

Ja svei barasta

Sverrir Einarsson, 17.7.2008 kl. 14:08

12 identicon

Landsfundur er æðsta stofnun Frjálslynda flokksins þar eru línurnar lagðar hvað skal gera og hvað ekki.

Miðað við yfirlýsingar Ólafs F. á Útvarpi Sögu er ekkert óeðlilegt að hann ætli sér stóra hluti á næsta landsþingi Frjálslynda flokksins til að  tryggja sér og sínum áhrif til að hægt sé að tryggja að það geti orðið raunhæft að hann leiði  listann undir merkjum Frjálslynda og óháða næst þegar kosið verður til borgarstjórnar eftir tæp 2 ár.

Það er rétt Jón að í öllum flokkum sem byggðir eru í grunninn á lýðræðinu eins og við þekkjum það hér á landi(kerfi sem tryggir banannalýðveldi) geta menn breytt um stefnu og haft aðrar skoðanir í dag heldur en þær voru í gær.

Þess vegna er ekkert óeðlilegt við það að stundum þurfa stjónmála-og hugsjónamenn að fara aðrar leiðir til að finna sínum aðalhugsjónum nýjan farveg með því að skifta um flokk nái þeir ekki settu marki segjum t.d. sem dæmi eftir að hafa fullreynt það í 7 ár með stanslausri vinnu jafnvel án launa.

Jón ég er sammála þér í því að það væri forvitnilegt vita hvað Ómar Ragnarsson formann Íslandshreyfingarinar hefði um þetta útspil Ólafs F. Magnússonar að segja.

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 424
  • Sl. viku: 4193
  • Frá upphafi: 2295983

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 3842
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband