Leita í fréttum mbl.is

Það er sitt hvað Ólafur Pá og Ólafur uppá eins og kerlingin sagði.

Hvað aum og fámenn sem mótmæli hafa verið á Austurvelli, þá hefur fréttastofa RÚV jafnan séð ástæðu til að gera þeim góð skil og jafnvel látið fylgja með öskur og skrílslæti. 

Í gær héldu samtök sem nefna sig "Þvert á flokka" útifund á Austurvelli til að mótmæla innflytjendastefnu stjórnvalda, þar sem komu milli 4-500 manns. Allt skipulag fundarins var til fyrirmyndar og vel að fundinum staðið. 

Hópur No border öfgafólks og taglhnýtingar þeirra sumir með grímur reyndu að koma illu til leiðar og trufla fundinn m.a. með því að þeyta sírenu öðru hvoru, en þeir höfðu ekki erindi sem erfiði. Séð var til þess, að fundurinn gæti haldið áfram með eðlilegum hætti. Allt var þetta aðstandendum fundarins og ræðumönnum til mikils sóma.

Á fundinn kom fólk sem hafnar því að skipt verði um þjóð í landinu og berst fyrir því að við gætum að tungu okkar, siðum og menningu.

Þessi boðskapur á greinilega ekki upp á pallborðið sérstaklega ekki hjá RÚV, sem afflutti í gær fréttir af fundinum. Gerði í engu grein fyrir ræðum eða öðru en reyndi að láta líta svo út sem þetta hefði bara verið átök á milli tveggja hópa. Varla er hægt að leggjast lægra við að afflytja fréttir eins og RÚV gerði af fundinum. 

Aðalatriðið sem eftir stendur er að það er þung undiralda í þjóðfélaginu sem krefst breytinga og fjöldi þeirra sem mættu á fundinn í gær langt umfram það sem ég bjóst við sýnir það. Vel heppnaður fundur fyrir góðu málefni kallar á að við stígum nú fastar á stokk og fylgjum þessu efni með því að mynda skipulögð samtök þvert á flokka til að ná árangri í baráttunni fyrir íslenskt mál, íslensk gildi og íslenska menningu. 


Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 870
  • Sl. sólarhring: 1343
  • Sl. viku: 5199
  • Frá upphafi: 2540304

Annað

  • Innlit í dag: 801
  • Innlit sl. viku: 4824
  • Gestir í dag: 748
  • IP-tölur í dag: 724

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband