Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
30.9.2008 | 15:23
Hvar er peningamálastefna ríkisstjórnarinnar.
Gengið hefur hrunið undanfarna daga og ekkert lát virðist ætla að verða á því. Fullyrða má að gengi krónunnar sé nú mun lægra en eðlilegt er. Hvað er til ráða? Af hverju fellur og fellur gjaldmiðillinn?
M.a. vegna þess að það vantar skýra stefnumörkun ríkisstjórnar og aðgerðir.
Fólkið í landinu á ekki skilið svona lélega ríkisstjórn. Það á við jafnvel þó að Winston Churchill fyrrverandi forsætisráðherra Breta hafi einhverntíma sagt að þjóðir fengju þær ríkisstjórnir sem þær ættu skilið. Þá eigum við ekki skilið ríkisstjórn sem hefur sett kjör í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ofar öðrum málum í forgangsröðinni.
![]() |
Gengi krónunnar lækkar um 4,11% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2008 | 16:45
Of lítið of seint.
Því miður virðist það ætla að verða hlutskipti ríkisstjórnarinnar að standa þannig að málum að gera of lítið og of seint.
Ríkisstjórnin gat vitað að það yrði að gera ráðstafanir strax og hún tók við. Ljóst var að hágengisstefnunni var haldið uppi af ábyrgðarlausu handafli til tjóns fyrir framleiðsluatvinnuvegina. Draga hefði átt úr þennslunni með því að draga saman útgjöld ríkisins. Það var heldur betur ekki það sem ríkisstjórnin gerði. Ríkisútgjöldin tóku stökk upp á við um rúm 20%. Svo taldi Davíð að hann hefði tök á verðbólgunni með því að hækka og hækka stýrivexti.
Nú er um 15% verðbólga. Gjaldmiðillinn íslenska krónan í frjálsu falli og nauðsyn hefur borið til að mati ríkisstjórnarinnar að taka yfir einn stærsta viðskitpabankann. Vogunarsjóðirnir eru í miklum vanda og einn bað um griðslustöðvun í dag. Þrátt fyrir þetta brosir forsætisráðherra út í bæði og lætur sem ekkert sé.
Þeir sem halda að það sé bót í máli að Davíð haldi um stjórnvölinn eins og hann gerði þegar hann keyrði strákana sína þá Geir og Árna Matt. heim eftir fundinn í Seðlabankanum, gleyma því að hann hefur stjórnað þessu þjóðfélagi sem forsætisráðherra eða Seðlabankastjóri frá því að flotgengið var tekið upp.
Flotkrónan sem flýtur ekki lengur.
Það hefði e.t.v. verið betra fyrir þessa ágætu menn að hlusta á okkur sem töldum það frá upphafi háskalega stefnu að taka upp þetta kerfi að láta minnsta gjaldmiðil heims vera á floti. Eða hlusta á okkur Frjálslynd fyrir síðustu kosningar þegar við bentum á að það væri hentara að binda krónuna við gengi helstu viðskiptagjaldmiðla með vikmörkum.
28.9.2008 | 19:44
Grafalvarlegt ástand.
Forsætisráðherra og Seðlabankastjórar hittast ekki bæði á laugardegi og sunnudegi án þess að það sé eitthvað sem bregðast verður við. Það getur ekki verið rétt fullyrðing hjá forsætisráðherra að hann hafi dottið svo rækilega úr sambandi þá nokkru daga sem hann var fjarverandi að berjast fyrir kjöri í Öryggisráðið að hann hafi þurft á allri þessari yfirferð að halda. Geir hafði allan tímann aðgang að netinu og var í símasambandi.
Sé sú staðhæfing rétt hjá Geir að þeir hlutir hafi komið upp þá 4 daga sem hann var í burtu að hann þurfi sérstaklega að fá Seðlabankastjóra og fjármálaráðherra með sér til að kynna sér málið þessa helgi þá er ljóst að það er eitthvað alvarlegt að gerast því miður. Spurning er líka afhverju voru bankastjórar Kaupþings banka boðaðir á fundinn í dag. Afhverju þeir en ekki þá bankastjórar allra stóru viðskiptabankanna?
Mér er ljóst að ástandið er grafalvarlegt. Krónan hefur verið nánast í frjálsu falli og sumir af íslensku vogunarsjóðunum eru komnir í erfiðleika. Þess vegna er eðlilegt að helstu ráðherrar ríkisstjórnarinnar fundi ásamt þeim öðrum ráðamönnum í þjóðfélaginu sem nauðsynlegt er að fá til skrafs og ráðagerða. En alltaf þegar slíkt gerist og fundarhöld eins og þessi eru þá er ljóst að erfiðleikar eru og það borgar sig betur að segja þjóðinni allt af létta og vera tilbúinn til að taka á vandanum en að láta eins og ekkert sé.
27.9.2008 | 10:42
Arfleifð Bush þvælist fyrir John McCain
John McCain stóð sig vel í fyrstu kappræðum forsetaframbjóðendanna í Bandaríkjunum í nótt. Obama var ekki í sama stuði og oft áður og stundum virtist mér hann vera óöruggur og jafnvel þreyttur. Hann sótti þó í sig veðrið fannst mér og John Mc Cain á við þann vanda að etja sem frambjóðandi Repúblikana að vera fulltrúi flokks sem ber ábyrgð á miklum mistökum í utanríkismálum og ber þar hæst innrásin í Írak. Bandaríkjamenn ættu sem fyrst að koma sér þaðan og einnig út úr Afghanistan. Hvaða tilgangi þjónar það að fórna lífi og limum ungs fólks ár eftir ár í tilgangslausu stríði við lítt sýnilegan óvin.
Efnahagslægðin og vandamálin framunan ættu líka að verða vatn á myllu Obama en John Mc Cain náðí að komast ágætlega frá þeim þætti kappræðnanna. John Mc Cain nýtur þess e.t.v. núna að hann er búinn að vera óþæga barnið í Repúblikana flokknum svo árum skiptir.
John Mc Cain stóð sig mjög vel tæknilega og betur en ég átti von á. Obama stóð sig ekki alveg eins vel og ég átti von á. Ég átti raunar von á því að hann mundi brillera en hann gerði það ekki. Eftir því sem ég fékk best greint þá var ekki hægt að greina á milli frambjóðendanna. Báðir góðir en ekki afgerandi góðir.
![]() |
Efnahagsmálin efst á baugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.9.2008 | 20:25
Nauðsynleg aðgerð.
Það er löngu tímabært að ríkisvaldið grípi til aðgerða til aðstoðar skuldsettum íbúðarkaupendum sem hafa lent í miklum greiðsluerfiðleikum vegna gríðarlegrar hækkunar á afborgunum lánanna. Höfuðstóll verðtryggðu lánanna hækka og hækka með gegnisfalli krónunnar og aukinni verðbólgu. Við slíkar aðstæður þar sem við erum með verstu lán í heimi fyrir lántakendur er eðlilegt að grípa til aðgerða vegna þeira óvenjulegu aðstæðna sem hafa skapast fyrir tilstuðlan ríkisstjórna undanfarinna ára og Seðlabankans.
Spurning er þá í hvaða formi á að gera það. Á að gera það í gegn um Íbúðarlánasjóð eða með einhverjum öðrum hætti. Í fljótu bragði sé ég ekki annan aðila heppilegri til að hafa með endurfjármögnun lánanna að gera. Þá skiptir máli með hvaða hætti og á hvaða kjörum lánað er. Spurning gæti verið í því sambandi að fólki yrði boðið upp á gengistryggð lán þar sem ætla má að lækkun krónunnar sé að verulegu leyti komin fram og með því dregið úr vægi þess óréttlætis sem verðtryggðu lánin valda.
Verðtryggðu lánin munu hækka mjög mikið á næstu mánuðum það er fyrirséð vegna þeirrar verðbólgu sem er til staðar. Þess vegna er líklegt að bestu kjörin úr því sem komið er væri að bjóða fólki upp á gengisbundin lán. Þá lækka lánin alla vega við hverja afborgun í þeim gjaldmiðli sem lánið er tekið í.
Ríkisstjórnin má ekki sofa lengur á verðinum í þessu máli. Svefninn er þegar orðinn of langur. Ég benti á að nauðsyn bæri til að grípa til aðgerða varðandi skuldsetta íbúðakaupendur í umræðum á Alþingi s.l. vor en á þeim tíma sagði forsætisráðherra að botninum væri náð og ríkisstjórnarflokkarnir og einn stjórnarandstæðingur tóku í sama streng og töldu ekki vera mikil vandamál framundan.
![]() |
Gæti bjargað fjölskyldum frá gjaldþroti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2008 | 14:31
Af vatninu dýra.
Ég áttaði mig á því við skoðun á verðlagi á ýmsum hlutum í Brussel borg í gær og fyrradag að íslenska krónan er komin undir það sem eðlilegt er miðað við verðmun á ýmsum nauðsynjum og munum í Evrulandinu og hér heima. Hægt er að nefna mörg dæmi en ég læt nægja að nefna eitt reynsluna af vatninu dýra.
Þar sem að neysluvatn í krönum í Brussel borg er með þeim hætti að maður drekkur það ekki til ánægju og yndisauka þá fékk ég mér á síðkvöldi á hótelherberginu mínu vatn úr minibarnum. Þar sem ég á ekki mikil viðskipti við þann bar þá er ég e.t.v. meðvitaðri um verðlag en ýmsir aðrir en e.t.v. er það neytendaáhuginn sem segir til sín. Hvað sem því líður þá sá ég að verð á 25cl. flösku af hreinu og ómenguðu vatni kostaði hvorki meira né minna en 3.50 Evrur. Mér reiknast þannig til að líterinn af vatninu kosti um 2000 krónur.
Við ættum aldrei að gleyma hvað við eigum gott að geta skrúfað frá kananum og fengið okkur gott og ómengað vatn að drekka sem kostar - nánast ekki neitt.
24.9.2008 | 13:26
Þvílíkt rugl.
Ég sá það þegar ég komst loks í tölvu hér út í Brussel að stjórn Kjördæmafélags Reykjavíkur Norður hefði skorað á Sigurjón Þórðarson að gefa kost á sér í formannskjöri á næsta landsfundi flokksins. Í framhaldi af því þá ryðjast fram ýmsir spekingar sem halda því fram að þetta sé undan mínum rifjum runnið og þarna séu mínir stuðningsmenn og/eða Nýtt afl að standa að aðför að formanni flokksins
Þetta er endemis rugl.
Ég hef talað við formann kjördæmafélagsins og það liggur fyrir að þeir tveir stjórnarmenn sem greiddu atkvæði gegn tillögunni um að skorað yrði á Sigurjón Þórðarson til að gefa kost á sér voru báðir úr Nýju afli en þeir sem greiddu tillögunni atkvæði hafa verið í Frjálslynda flokknum mun lengur og alla vega einn frá upphafi. Þeir sem greiddu atkvæði á móti tillögunni eru menn sem eru í nánum tengslum og vinfengi við mig. Það er nú staðreyndin í málinu.
Því fer fjarri að ég hafi nokkuð með þetta að gera og ítreka að ég hef lýst yfir stuðningi við sitjandi formann. Þeir sem halda því fram að ég hafi með þessa ályktun að gera eða meinta aðför að formanni flokksins eru að gera það gegn betri vitund eða þá að þeir eru einfaldlega illa upplýstir og ættu þá að kynna sér málin áður en þeir fara að bullukollast á bloggsíðum eða öðrum fjölmiðlum.
23.9.2008 | 09:26
Evra án aðildar kemur ekki til greina.
Það er athyglivert að þeir sem Evrópunefndin hefur hitt frá Evrópusambandinu á fundum sínum með þeim í Brussel telja fráleitt að Ísland geti tekið upp Evruna með samþykki Evrópusambandsins nema ganga í Evrópusambandið.
Ég hef ítrekað spurt að því hvort það sama gildi ef öll EES ríkin mundu sækja um þá breytingu og eða útvíkkun á grundvelli EES samningsins að taka myntsamstarfið og Evruna án aðildar að Evrópusambandinu og því hefur einnig verið svarað afdráttarlaust neitandi.
Enn eigum við eftir að hitta fjölmargt áhrifafólk Evrópusambandsins hér í Brussel og það verður fróðlegt að heyra hvort það hefur allt sömu afstöðu og þeir sem við höfum rætt við til þessa.
Við höfum m.a. verið spurð að því hvað er vandamálið við að ganga í Evrópusambandið af hverju eruð þið endalaust að tala um að taka upp Evru án aðildar eða taka meira af Evrópusambandsreglunum án aðildar. Hvað er vandamálið. Þegar svarað var spurning um yfirráð yfir fiskimiðunum þá var svarið einfaldlega. Af hverju talið þið þá ekki um það. Af hverju talið þið ekki um það sem máli skiptir fyrir ykkur í samskiptum við Evrópu ef þið viljið nánara samstarf eða aðild.
Spurning er fyrst og fremst hvað við viljum vera. Viljum við nánara samstarf við Evrópu eða ekki. Ef við viljum nánara samstarf þá er eðlilegt að taka upp viðræður um það sem máli skiptir.
21.9.2008 | 18:08
Geir H. Haarde og Gordon Brown
Báðir eiga þeir Geir Haarde og Gordon Brown það sameiginlegt að hafa verið fjármálaráðherrar áður en þeir tóku við forsætisráðherraembætti eftir þrásetu forvera sinna. Þeir eiga það líka sameiginlegt að hafa setið sem fjármálaráðherrar meðan myntir landa þeirra hækkuðu umfram flestar aðrar sem og húsnæði og skuldir heimilanna í báðum löndum.
Eftir stjórn þeirra Geirs og Gordons er efnahagskerfið í báðum löndum í miklum vanda. Gengi gjaldmiðlanna hefur fallið þó meira hér en í Bretlandi. Verðbólga vex þó meira hér en í Bretlandi. Hins vegar er meiri raunlækkun á húsnæði í Bretlandi en hér að því er mér virðist en má þó ekki miklu muna miðað við gengi krónunnar í síðustu viku. Í báðum löndum hefur fjármálaþjónusta vaxið mikið í valdatíð þeirra Geirs og Gordons. Fylgið hrynur af báðum samkvæmt skoðanakönnunum. Þannig eiga þeir þetta sameiginlegt og vafalaust margt fleira þeir Geir og Gordon.
Nú bíð ég spenntur eftir því að þingi Verkamannaflokksins í Bretlandi ljúki. Þá má væntanlega sjá vísbendingar um stefnumörkun Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum, en breski Verkamannaflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa nánast gengið í takt undanfarin áratug með tilheyrandi aukningu ríkisútgjalda og fjölgun opinberra starfa. Munurinn er sá að Verkamannaflokkurinn hefur það á stefnuskrá sinni að blása út báknið en Sjálfstæðisflokkurinn hefur hingað til vilja megra ríkiskerfið.
Spurning er hvort að Sjálfstæðisflokkurinn þarf ekki að fara í hugmyndafræðilega endurhæfingu?
![]() |
Enginn bilbugur á Brown |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2008 | 18:21
Gott þing Neytendasamtakanna.
Þingi Neytendasamtakanna var að ljúka. Þingið var fjölmennt og mikil eindrægni og samstaða ríkti á þinginu.
Sennilega er fréttnæmasta ályktun þingsins þessi:
" Þing Neytendasamtakana telur tímabært að við látum reyna á það með aðildarviðræðum hvort hægt sé að ná viðunandi samningum í málum sem varða sjávarútveg og landbúnað. Ljóst er að hagsmunir heimilanna í þessu máli eru það miklir að ekki er ástæða til að bíða lengur að láta reyna á þessa þætti með aðildarviðræðum. Það yrði að sjálfsögðu þjóðin sem tæki lokaákvörðun um ESB aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu þegar samningar liggja fyrir."
Þessi tillaga var samþykkt af 87% þeirra sem greiddu atkvæði en 13% þeirra sem atkvæði greiddu voru á móti. Afstaðan innan Neytendasamtakanna er því afgerandi.
Það var ánægjuleg tilbreyting að vera á fjölmennum fundi þar sem eindrægni, vinátta og baráttuandi var einkennandi fyrir stemmninguna.
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.3.): 119
- Sl. sólarhring: 402
- Sl. viku: 1127
- Frá upphafi: 1702940
Annað
- Innlit í dag: 112
- Innlit sl. viku: 1046
- Gestir í dag: 112
- IP-tölur í dag: 111
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Agný
-
Alfreð Símonarson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Andrés Magnússon
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Atli Hermannsson.
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Hermannsson
-
Bergur Thorberg
-
Birgir Guðjónsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björn Bjarnason
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Dögg Pálsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Einar B Bragason
-
Einar Ben
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Eiríkur Harðarson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Elle_
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Guðjón Ólafsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
Guðmundur Pálsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Gústaf Níelsson
-
Halldór Jónsson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haraldur Baldursson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Haraldur Pálsson
-
Haukur Baukur
-
Heimir Ólafsson
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Himmalingur
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Hrannar Baldursson
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Högni Snær Hauksson
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jens Guð
-
Jóhann Pétur
-
Jón Kristjánsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Ríkharðsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Þórhallsson
-
Jón Þórhallsson
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Jónas Egilsson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Júlíus Valsson
-
Katrín
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Konráð Ragnarsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Lífsréttur
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Námsmaður bloggar
-
Pjetur Stefánsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar L Benediktsson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rannveig H
-
Rósa Harðardóttir
-
SVB
-
Samstaða þjóðar
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Skattborgari
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Steingrímur Helgason
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Sverrir Stormsker
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
gudni.is
-
jósep sigurðsson
-
ragnar bergsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Árni Gunnarsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Óli Björn Kárason
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Þorsteinn Guðnason
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Loncexter