Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hverjir eru fasistarnir?

Ég var fyrir mistök auglýstur sem ræðumaður á útifundi sem byrjar kl. 14 í dag á Austurvelli. Þó ég styðji málefnið, þá gat ég ekki verið ræðumaður. Maður kemur í manns stað og sem betur fer kom úrvals ræðumaður í minn stað.

Fyrirfram efast ég um að fundurinn sýni þann mikla stuðning sem er við málefnið. Okkar fólk er ekki duglegt við að fara á útifundi og hvað þá þegar er úrvalsveður í byrjun sumars.

Þar sem ég var auglýstur sem ræðumaður á fundinum, varð ég fyrir því að nokkur hópur fólks sá sig tilknúinn til að senda mér hatursummæli og sumir með hótun um að berja mig og annað verra ef ég leyfði mér að tala fyrir skoðunum mínum. 

Hverjir eru það sem vilja koma í veg fyrir lýðræðislega umræðu? Það er fólkið sem annars sveipar um sig dyggðaflöggun mannkærleika og heimtar að við aukum enn útgjöldin til að taka við hælisleitendum, þó þau séu komin í 100 milljarða á ári skv. því sem Ragnar Árnason prófessor emeritus hefur reiknað út.

En mannkærleikinn nær ekki til þeirra sem eru annarrar skoðunar og lýðræðisvitundin er sambærileg og hjá fasistum og nasistum þar sem öllu skipti að koma í veg fyrir að raddir andstæðinganna fengju að heyrast.

Við þurfum því að berjast bæði málefnalega gegn þeirri ógn sem stafar frá þeim sem vilja skipta um þjóð í landinu og að Ísland glati sérstöðu sinni sem þjóðar, tungu og menningu. Enn við þurfum líka að vera viðbúin að þola frekari árásir frá þessu pakki sem hikar ekki við að beita ógnunum til að þagga niður í pólitískum andstæðingum sínum. 


Ritskoðun og afnám tjáningarfrelsis

Breska lögreglan eyðir miklum tíma í að fylgjast því sem venjulegt fólk skrifar á samfélagsmiðla og taka við og rannsaka kærur vegna þess. Virk ritskoðun hefur því verið tekin upp í Bretlandi með sama hætti og í kommúnistaríkjunum forðum.

Fyrir nokkru var Lucy Connolly,42 ára kona, barnfóstra og móðir fangelsuð og dæmd í 31 mánðar fangelsi fyrir tíst, eftir að ráðist hafði verið inn í Taylor Swift, danskóla stúlkna og þrjár þeirra stungnar til bana í Southport á Englandi.

Hún eyddi tístinu rúmum þrem tímum síðar. Tístið í lauslegri þýðingur:

"Flytjum fjölda (hælisleitenda) í burtu núna og kveikjum í helv.hótelunum sem eru full af „b---s“ (glæpamönnum) og meðan verið er að gera það er rétt að flytja svika ríkisstjórnina og stjórnmálamennina með þeim. Ég verð veik af því að hugsa um hvað þessar fjölskyldur í Southport þurfa að ganga í gegn um. Ef það gerir mig að rasista þá verður svo að vera."

Fyrir þetta tíst var Connolly dæmd í þyngri refsingu en þeir þurfa iðulega að þola sem nauðga konum eða ráðast inn á heimili fólks og misþyrma því og/eða ræna.

Með dóminum yfir Conolly er ljóst, að tjáningarfrelsið er verulega skert í Bretlandi og refsingar við orðum sem höfð eru uppi í geðshræringu eða þegar fólk er ekki í jafnvægi eru úr öllu samhengi við það sem eðlilegt er í lýðfrjálsu ríki.

Meðferðinni á Connolly hefur verið mótmælt af ýmsum m.a. Bandríkjastjórn sem hefur sagt, að tjáningarfrelsið sé verulega skert í Bretlandi. Hvað gerðist eiginlega í Bretlandi þessari vöggu tjáningarfrelsis og mannréttinda. Hvernig stóð á því að það breyttist í lögregluríki, í líkingu við það sem George Orwell lýsir í bók sinni 1984 þar sem ógnarstjórnin var alls staðar til að fylgjast með hugsunum fólks og tjáningu.

Því miður gætum við farið sömu leið hér sbr. ákvæði 95.gr. og 233 gr.a í almennum hegningarlögum á Íslandi. Skv. því hefur sá sem þetta ritar sennilega þráfaldlega orðið sekur um brot gegn 95.gr. alm.hgl. með umfjöllun um Erdogan einræðisherra Tyrklands. Það er hættulegt að hafa ákvæði í hegningarlögum eins og þau sem hér er vísað til. Óprúttin ríkisstjórn gæti lagt fyrir lögregluyfirvöld að lúsleita eftir ummælum sem gætu brotið í bág við þau ákvæði.

Í því sambandi mundi vera nægjanlegt að segja sannleikann um Íslam eins og austurríski kennarinn mátti þola sem sagði nemendum sínum hvað það væri kallað í dag ef menn gerðu eins og M spámaður, sem giftist yngstu eiginkonu sinni Fatimu þegar hún var 6 ára og byrjaði að hafa mök við hana þegar hún var 9 ára. Fyrir það var kennarinn dæmd til refsingar og sá dómur síðan staðfestur af Mannréttindadómstóli Evrópu á þeim grundvelli að sannleikurinn sem austurríski kennarinn sagði frá gæti valdið ólgu í þjóðfélaginu - eins og það eigi að koma í veg fyrir að fólk geti tjáð sig með eðlilegum hætti.  Eigum við þá ekki að banna stjórnmálaflokka. Þeir eru stöðugt að valda ólgu í þjóðfélaginu.

Í ljósi reynslunnar í Bretlandi þá skulum við afnema lög, sem eru til þess fallin að koma í veg fyrir eðlilega umræðu í lýðfrjálsu landi já og jafnvel það að fólk geti gert góðlátlegt grín hvert að öðru. 


Að segja sannleikann

Jesús sagði við Pontíus Pílatus, að hann væri í heiminn borinn til að bera sannleikanum vitni. Pílatus spurði: Hvað er þá sannleikur og dæmdi Jesú til dauða með krossfestingu. 

Svo mjög hefur mannkynið þróast í 2000 ár, að hvorki krossfestingar né dauðarefsingar eru tíðkaðar í okkar heimshluta,þess í stað eru menn reknir úr vinnunni,settir í fangelsi eða lokað á bankaviðskipti þeirra fyrir að bera sannleikanum vitni. 

Úlfar Lúðvíksson var rekinn úr starfi lögreglustjóra Suðurnesja fyrir að vera röggsamt yfirvald og bera sannleikanum vitni. 

Ríkissaksóknari losaði sig við Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara fyrir að segja sannleikann um ástandið í hælisleitendamálum. Þrátt fyrir að dómsmálaráðherra ógilti ákvörðunina fór Ríkissaksóknari sínu fram og komst upp með það án áminningar og brottreksturs. Sumir eru heilagri en aðrir.

Opinberir starfsmenn sem bera sannleikanum vitni þurfa að gæta að sér og velja þögnina til að halda starfi sínu eða standa með sannfæringu sinni og hagsmunum þjóðarinnar og þola brottrekstur að launum svo mjög hefur nú mannkyninu fleytt fram í 2000 ár.  


14 þúsund börn munu deyja næstu 48 klukkustundir.

Jóhanna Hjaltadóttir fréttamaður á RÚV innti "sérfræðing" sinn um ástandið á Gasa, hvað væri með 14.000 börn sem mundu deyja á næstu 48 klukkustundum úr hungri, vegna þess að Ísrael hefði lokað fyrir matarsendingar. Ekkert vitrænt svar kom.

Fjórtán þúsund börn að deyja næstu 48 klukkustundir er hryllingur sem kallar á sterkustu fordæmingar og aðgerðir. Það stóð ekki á fordæmingunum frá fréttafólki, þingmönnum víða um heim og jafnvel einstaka utanríkisráðherra.

Þessar 48 klukkustundir eru löngu liðnar og þetta gerðist ekki. Fullyrðingarnar um börnin 14 þúsund voru falsfréttir, sem starfsmaður Sameinuðu þjóðanna kom með í útvarpsþætti og án þess að skoða málið bergmáluðu fréttamiðlar Hamas vítt og breitt um heiminn þessa falsfrétt. 

Staðreyndin á bakvið falsfréttina var, að í einni skýrslu SÞ kom fram, að 14 þúsund börn á milli 6 mánaða og fimm ára gætu þjáðst af afleiðingum næringaskorts með sama áframhaldi í mars 2026. Það voru engir 48 tímar og engin fjórtán þúsund börn að deyja. Þessi falsfrétt ekki verið leiðrétt hjá RÚV ekki frekar en öðrum miðlum sem tekur fréttir frá hryðjuverkasamtökunum Hamas eins og heilögum sannleik. 

Svona vinnubrögð eru fordæmanleg og sýnir leti fréttamanna við að afla sér réttra upplýsinga og að þeir þurfa ekki að bera ábyrgð á því að úða yfir neytendur falsfréttum vegna pólitískra skoðana og þess að þeir nenna ekki að grafast fyrir um það hvað er raunverulega að gerast. 

Það sem er raunverulega að gerast varðandi dreifingu matvæla á Gasa kom fram í frétt í Daily Telegraph og víðar fyrir nokkrum dögum, en þar segir að hernaðarvængur Hamassamtakanna hafi ekki getað greitt vígamönnum sínum laun frá því í febrúar s.l. og aðrir starfsmenn Hamas hafi mátt þola skerðingar á launum.

Hvernig skyldi síðan standa á því? 

Í fréttinni kemur fram (hún er studd umfjöllun í arabíska blaðinu "Asharq Al-Aswat") að þegar Ísrael takmörkuðu dreifingu matvæla og hjállpargagna og tóku það í sínar hendur var tekið fyrir helstu tekjulind Hamas samtakanna, sem hafa stolið aðstoðinni til að selja og fá tekjur. Starfsemi Hamas byggir nefnilega á að stela mannúðaraðstoð til Gasa búa og selja þær á svarta markaðnum þar. 

Það sem meira er Hamas liðar eru að störfum hjá helstu hjálparstofnun Sameinuðu þjóðanna á Gasza (UNRWA) en sumir starfsmenn þeirra tóku þátt í hryðjuverkaárásinni á Ísrael í október 2023. Það skýrir það að Ísraelsk stjórnvöld vilja ekki eiga samskipti við þessa gjörspilltu stofnun Sameinuðu þjóðanna en velja aðra til að sjá um dreifingu hjálpargagna svo þau berist til þeirra sem mest þurfa á að halda. Í fréttum RÚV hefur verið fordæmt að bandarískt fyrirtæki hafi verið fengið til að sjá um dreifingu hjálpargagna

Ekkert af þessum staðreyndum ratar inn í fréttir RÚV eða fréttaskýringar. Af hverju ekki?

Það ratar heldur ekki inn í fréttir RÚV eða vitundarheim utanríkisráðherra Íslands, að yfirmenn Hamas á Gasa tala í dag um ævarandi stríð við Ísrael og palestínufólk muni "framleiða"(produce)tugi barna fyrir hvern "píslarvott"

Þá ratar heldur ekki inn í fréttir RÚV að mótmæli við Hamas færast í aukana á Gasa og það er ekki gerð grein fyrir því með hvaða hætti Hamas samtökin reyna að berja þau niður. Köstuðu m.a. líki 22 ára manns sem hafði tekið þátt í kröfugöngu fyrir framan hús móður hans eftir að hafa tekið hann af lífi. 

Svo að lokum af hverju er aldrei talað við forustumenn palestínufólks t.d. á Vesturbakkanum svokallaða til að fá fram þeirra álit á baráttu Hamas og framgöngu? Já og af hverju er aldrei sagt frá mannfalli Ísraelsmanna í stríðinu á Gaza og sjónarmið varnarsveita Ísrael svona þó ekki væri nema einu sinni í mánuði.

Þegar þetta er allt dregið saman varðandi fréttamennsku ríkisrekna miðilsins RÚV þá verður jafnvel kjöftugum orða vant. Hvernig stendur á því að ríkisrekna fréttastofan sé í raun orðin áróðusmiðstöð Hamas sem greinir ekki hlutlægt frá atburðum eða greinir frá öllum atriðum sem máli skipta. Af hverju velur fréttastofa RÚV að vera málsvari og áróðursvél dauðasveita hryðjuverkasamtakanna Hamas og stuðla að Gyðingahatri með jafnvel upplognum eða illa unnum og röngum fréttum.

Fjórtán þúsund börn sem munu deyja næstu 48 klukkustundir eru ekkert annað en barnamorð og ásakanir um víðtæk barnamorð, sem ekki er fótur fyrir eru óafsakanlegar.  


Æ skal gjöf til gjalda

Í milliríkjasamskiptum hefur tíðkast, að gefa æðstu stjórnendum gjafir. Kínversk stjórnvöld gáfu Nixon þáverandi forseta Panda birni og Býsanska ríkið gaf öðrum kristnum stjórnendum flísar, sem áttu að vera úr krossi Krists og allt var þetta til marks um vilja til samstarfs og vináttu. 

Æ skal gjöf til gjalda og þess vegna hafa flest ríki sett ákveðnar reglur um gjafir sem erlend ríki gefa stjórnendum t.d. forseta Bandaríkjanna. Fái forsetinn gjöf sem er meira virði en 480 Bandaríkjadalir, þarf að tilkynna gjöfina og afhenda hana. 

Furstadæmið Quatar hefur nú boðist til að gefa Bandaríkjaforseta Júmbó breiðþotu. Trump segir að bara "stupid person"(heimskingi)mundi segja nei við svona gjöf hvaða siðrænu orð sem menn vildu tala um í því sambandi. Hvað sem því líður, þá er þetta gjöf sem er umfram það sem hægt er að þiggja. Hver sem þiggur slíka gjöf er skuldbundinn gefandanum. Æðsti maður stórveldis er "stupid person" ef hann þiggur slíka gjöf. 

Í Quatar búa 2.6 milljónir en ríkisborgarar eru bara 313.000 já færri en íslendingar. Furstafjölskyldan Al Thani hvers nafn menn þekkja hér frá hruninu stjórnar Quatar. 

Quatar hefur tekið þátt í ýmsum vafasömum stríðsaðgerðum með Vesturlöndum m.a. þegar Saddam Hussein og Gaddafi var steypt af stólki. Þrátt fyrir það hefur Quatar haft náið samband við Íslamska hryðjuverkahópa og það í svo miklum mæli að Saudi Arabía, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Egyptaland lokuðu á landið 2017 tímabundið vegna þess. Skyldi eðlið eitthvað hafa skánað síðan. Mörgum er það til efs og nefna þar gild rök.

Quatar hélt heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu 2022, en Bandaríkin höfðu sóst eftir að fá að halda keppnina þá, en töpuðu í atkvæðagreiðslu við Katar og sagt að formaður bandarísku nefnarinnar hjá FIFA í umrætt sinn, Bill Clinton hafi verið mjög brugðið að sjá smáríkið Quatar kaupa fylgi meirihluta fulltrúa, þannig að jafnvel Bandaríkin þurftu að láta í minnipokann. Í reiði sinni á hann að hafa grýtt forláta kristalvasa í vegg á hótelherbergi sínu eftir þetta.

Það væri fráleitt fyrir hvort heldur Trump eða stjórnendur annarra lýðræðisríkja að gera Quatar að pólitískum rekkjunaut. Það væri eins og engilsaxar segja "utmost stupidity." 

En svo verður að sjá hverju fram vindur. Því miður virðast stjórnmálamenn á Vesturlöndum lítt vandir að virðingu sinni þegar asni klyfjaður gulls er fyrir framan borgarhliðið. Hið siðferðilega viðmið hefur gefið eftir í réttu hlutfalli við afkristnun Vesturlanda.


Íslarabía

Skóla í Breiðholti er haldið í helgreipum af strákum af erlendum uppruna.

Við Skyggnisbraut í friðsælu úthverfi Reykjavíkur var hífabardagi um miðjan dag milli manna af sama uppruna. Íbúi hverfisins segir þetta fólk halda íbúum hverfisins í helgreipum óttans.

Sama gerist varðandi leiguakstur slakað var á öllum kröfum þannig að því fór fjarri að öryggi neytenda væri virt og afleiðingarnar liggja fyrir og hafa verið til umjföllunar vegna nauðgunarmála auk annarra minni afbrota. 

Hvernig stendur á því að hælisleitendur, sem halda fólki í heilgreipum óttans við Skyggnisbraut í Reykjavík eru þar í nýjum íbúðum?  Keyptu þeir eða eru á vegum velferðarbatterísins sem vinnur að því að skipta um fólk í landinu t.d. borgarstjórn Reykjavíkur. 

Lögreglan er vanbúin til að takast á við þá ógn sem stjórnmálamennirnir bera ábyrgð á allt frá árinu 2014.  Lögreglan var ekki styrkt til að geta svo vel væri tekið á vandanum og fólki frá framandi menningarheimum var dælt inn í landið með þeim afleiðingum sem nú sést og vísað er til í fréttum núna nánast á hverjum einasta degi. 

Hvaða viðbrögð sýna svo stjórnvöld og hvaða áætlanir hafa þau um að bregðast við svo vel sé? Því miður afar fátækleg ef þá nokkur. 

Við það verður ekki unað, að hópar hælisleitenda taki þjóðfélagið í gíslingu og komi í veg fyrir að við getum gengið örugg um götur og dreifbýli þegar okkur dettur  í hug örugg og frjáls. 

Óeirðarseggjunum og þeim sem virða ekki íslensk lög verður að víkja úr landi. 

Var það einhvern tímann meininginn að bjóða þá velkomna, sem ætluðu sér að gera landið okkar að samskonar araba landi og þeim sem þeir fóru frá.Við skulum ekki láta þann draum þeirra rætast.


Sótt að hinum seku?

Í dag áttu þeir fund forseti Bandaríkjanna(US) og Suður-Afríku(SA). Á fundinum sakaði Trump, Ramaphosa forseta um að stjórn hans hefi ekki brugðist við og veitt hvítum bændum vernd og í raun væri um þjóðarmorð gagnvart þeim að ræða. 

Í framhaldi af ásökunum Trump, er hamast að honum og fullyrt að hann fari með falsfréttir. Sé málið skoðað nánar, þá sést, að ummæli Trump hafa við rök að styðjast. Viðbrögðin því á sama grunni og þegar hann benti á að í Svíþjóð væru hverfi þar sem lögreglan færi ekki inn í öðru vísi en þungvopnuð, sem mótmælt var, en hið sanna kom í ljós. Þetta var rétt hjá Trump.

Fjöldi hvítra bænda í SA hefur mátt þola, að ráðist er á bú þeirra og þeir flæmdir á brott eða drepnir. Ríkisstjórn SA gerir lítið sem ekkert og svo virðist sem sama sagan sé að endurtaka sig og í Zimbabwe,þar sem hvítir bændur voru hundeltir ráðist á bú þeirra og þeir drepnir ásamt fjölskyldum sínum. 

Meir en 30 hvítir bændur frá SA hafa sótt um hæli í Bandaríkjunum og í fréttum spænska sjónvarpsins í kvöld var sagt frá rúmlega 50 hvítum bændum frá SA og fjölskyldum þeirra, sem hefðu sótt um hæli vegna ofsókna gegn þeim.

S-Afríka er gjörspillt ríki, þar sem glæpatíðni er hvað mest í heiminum. Ríkisstjórnin virðist hafa takmarkaðan áhuga á að vernda eigin borgara og alls ekki fólk sem er ljóst á hörund. 

Þetta glæpa ríki ákærði Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum, fyrir þjóðarmorð á Gasa á sama tíma og unnið er að skipulagðri útrýmingu hvítra bænda í SA. En íslenski utanríkisráðherrann hefur aldrei þessu vant ekki haft neitt um þetta mál að segja. 

SA verður vonandi neytt til að vernda eigin þegna óháð litarhætti þeirra eftir réttmæta árás Trump á fundi forseta ríkjanna í dag. Það fornkveðna gildir síðan fyrir SA:  

Þeir ættu ekki að kasta steinum sem í glerhúsi búa. 

 


mbl.is Segir þjóðarmorð hafa verið framin gegn hvítu fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

My heart belongs to Brussel

Starmer forsætisráðherra Bretlands hefur gert samning við Evrópusambandið með tilheyrandi faðmlögum og kossaflensi við Ursulu von der Leyen leiðtoga Evrópusambandsins (ES). Með þessum samningi er fyrsta skrefið stigið til nýrrar aðildar Breta að ES og Starmer virðist hafa verið svo mikið í mun að ná samningnum, að breskum hagsmunum var varpað fyrir róða til að Starmer kæmist undir pilsfaldinn á von der Leyen. 

Hagsmunir bresks sjávarútvegs eru algerlega hundsaðir í samningi Starmer og Leyen svo dæmi sé nefnt auk margra annarra hagsmuna. 

Í sjálfu sér þarf ekki að koma á óvart að Starmer beiti sér fyrir að Bretar gangi aftur í ES, þegar haft er í huga, að hann vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna um Brexit þar sem meirihluti kjósenda ákvað að Bretar skyldu ganga úr ES. Lögmaðurinn frá London nú forsætisráðherra Breta vildi hundsa lýðræðislegt val þjóðarinnar af því að það var honum ekki að skapi. Atkvæði tæplega 18 milljóna átti að hafa að engu.

Því miður situr Starmer nú í forsætisráðuneytinu breska og þykist geta farið sínu fram. Hjarta hans slær í Brussel, sem sýnir hve blindir margir ES sinnar eru á hagsmuni eigin þjóðlanda þegar þeir eru sannfærðir um að ágæti ES sé slíkt, að hagsmunir þjóða þeirra verði að víkja fyrir ákvörðunum Brussel báknsins. 

Þegar horft er á vinnubrögð eins og þau sem Starmer sýnir í þessu mái  þar sem hann vílar ekki fyrir sér að hengja Bretland aftur á snagann í Brussel, þá veltir maður fyrir sér hvað með íslenskt ofsatrúarfólk á ágæti ES þær Þorgerði Katrínu og Kristrúnu Frostadóttur. Munu þær feta sömu leið og Starmer sá breski að gera allt til að troða Íslandi inn í ES hvað sem það kostar t.d. að fórna fiskveiðihagsmunum Íslands.

Því miður mál telja upp á að Þorgerður Katrín sé tilbúin í hvað sem er þegar Brussel er annars vegar því hjarta hennar eins og Starmers slær fyrir Brussel og frú  Kristrún, kötturinn sem læðist virðist sömu gerðar þegar vel er að gáð. 

Við sem viljum Ísland frjálst og fullvalda þurfum því heldur betur að vera á varðbergi gagnvart þeim ættjarðarlausa aðli, sem telur það hentast vorri þjóð, að tapa þjóðerninu og segja okkur til sveitar hjá Brusselvaldinu. 


Kæri Pedro

Öfgavinstri maðurinn Pedro Sanches forsætisráðherra Spánar, sem Kristrún Frostadóttir hefur valið sér sem meðreiðarsvein talaði á fundi Arababandalagsins í gær, þar sem hann sparaði ekki stóru orðin gagnvart Ísrael og ljúfmælgina gagnvart múslimaríkjunum. 

Þennan öfgavinstri mann hefur Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra stórveldisins Íslands valið sér til fylgilags en þau Pedro eru sögð hafa gengist fyrir því að ríki Evrópu skrifuðu upp á sérstaka einhliða yfirlýsingu til fordæmingar á Ísrael og fengu til fylgilags við sig eftir miklar tilraunir, önnur stórveldi Evrópu eins og Möltu, Lúxemborg, Noreg og Írland þar sem aðrir vinstri öfgamenn eru í forsæti. Aðrir vildu ekki koma um borð á þetta lekahrip Kristrúnar og Pedrós.

Daginn eftir að forsætisráðherrar ofangreindra stórvelda Evrópu birtu mynd af sér um leið og þau kynntu yfirlýsinguna greiddi almenningur í Evrópu atkvæði í Eurovísion söngvakeppninni og þar fór svo að langflestir þeirra sem greiddu atkvæði á Spáni og raunar Evrópu, greiddu ísraelska laginu atkvæði sitt. 

Pedro var allt annað en sáttur. Að hans undirlagi hafði spænska sjónvarpið haft myrkvaðan skjá í meir en 15 sekúndur og birti yfirlýsingu gegn Ísrael, en allt kom fyrir ekki fólkið á Spáni fór ekki að fyrirmálum Pedros og greiddi atkvæði með ísraelska laginu. 

Pedro telur að hér séu ísmeygileg brögð í tafli og sé leyniþjónustunni Mossad hinni ísraelsku um að kenna, þó vandséð sé, hvernig hún hafi getað komið að þeim málum. Sama kvöld og þetta kom sendi Kristrún kjölturakkann sinn í hlutverki útvarpsstjóra til að feta í fótspor Pedros, sem hann gerði með þeim sóma við stjórn þessa áróðursfyrirtækis Samfylkingarinnar sem ætlast var til af honum.

Hvað sem líður áhuga fólks á fyrirbrigðinu Euróvisíon þá er það athyglisvert að keppnin sé orðin að pólitísku þrætuepli vegna þess að öfgavinstriöflin í Evrópu, sem hamast hafa að Ísrael nú árum saman sætta sig ekki við að almenningur í Evrópu skuli ekki samsinna þeim og í raun kjósa gegn áróðri þeirra og öfgum. 

Mér er síðan spurn hefði ekki verið eðlilegra að aftengja þessa keppni þessum pólitíska biturleika harðlífisvinstrafólksins en fagna sigri lífsins með því að fagna því að ísraleska söngkonan, sem flutti framlag Ísrael skuli vera í tölu lifenda eftir þá mannraun, sem hún lenti í þegar hún kom fram á söngvakeppninni í Ísrael sem Hamas liðar réðust á og drápu flesta en tóku aðra sem gísla. Söngkonan geðþekka slapp frá hroðalegum örlögum af hendi Hamas með því að látast vera dáinn undir hlaða af líkum ungs fólks sem Hamas hafði drepið án þess að það hefði neitt til saka unnið.

Það er dapurlegt að Kristrún skuli hafa skipað sér í hóp  með öfgafyllstu vinstri prelátum Evrópu og sýnt með því sama dæmalausa dómgreindaleysið og utanríkisráðherra hennar. Ég satt að segja bjóst við meiru af Kristrúnu Frostadóttur, en það reyndist ekki vera innistæða fyrir þeirri von því miður.  

 


Það skiptir máli

Félag hjúkrunarfræðinga beinir áskorun til stjórnvalda um að erlendir hjúkrunarfræðingar verði ekki ráðnir til starfa á Íslandi nema þeir kunni skil á íslensku. Af hverju þarf starfsgreinafélag að taka fram og berjast fyrir sjálfsögðum hlutum, sem að íslensk stjórnvöld hefðu átt í meir en áratug að gera að forgangsverkefni. 

Vegna þess að stjórnmálastéttin er metnaðarlaus gagnvart íslenskri menningu og tungu hvað svo sem sagt er á tyllidögum. 

Verði ekki brugðist við strax og gert að skilyrði að vinnandi fólk á Íslandi kunni það góð skil á íslensku,að geta gefið upplýsingar til viðskiptavina eða þjónustuaðila á íslensku er vá fyrir dyrum. 

Verði ekki brugðist við strax og íslenskan sett í öndvegi þá er hætt við því að innan 20 ára verði íslenskan ekki helsta samskiptamál á stór höfuðborgarsvæðinu, þó henni kunni að vegna betur úti á landsbyggðinni nokkur ár til viðbótar. 

Ef við missum íslenskuna þá týnist stór hluti íslenskrar menningar og við hættum að vera sérstök og íslensk en verðum eins og samkynja sandkorn á strönd þess sem greinir ekkert frá öðru. 

Finnst okkur virkilega engu máli skipta að berjast fyrir íslensku þjóðerni, menningu og tungu? Slík barátta skiptir meira máli en ákveðinn auðsöfnun hinna fáu í núinu fyrir íslenska þjóð.

 


Næsta síða »

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 25
  • Sl. sólarhring: 1046
  • Sl. viku: 4354
  • Frá upphafi: 2539459

Annað

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 4047
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband